Dagur - 08.07.1992, Qupperneq 5
Miðvikudagur 8. júlí 1992 - DAGUR - 5
Urðakirkja 90 ára:
Hátíðarmessa
sl. sunnudag
- kirkjunni bárust góðar gjafir
í tilefni afmælisins
Kirkjukórinn söng undir stjórn Jóhanns Ólafssonar organista.
Myndir: -ÞH
Efnt var til hátíðarmessu í
Urðakirkju í Svarfaðardal sl.
sunnudag af því tilefni að
kirkjan á 90 ára afmæli um
Sóknarpresturinn, sr. Jón Helgi
Þórarinsson.
þessar mundir, en hún var vígð
20. júlí 1902. Sóknarprestur-
inn, sr. Jón Helgi Þórarinsson,
messaði fyrir fullri kirkju, en
sr. BoIIi Gústavsson vígslu-
biskup á Hólum predikaði og
stjórnaði altarisgöngu.
Ekki er fullljóst hvenær fyrsta
kirkjan var reist að Urðunr, en
heimildir eru fyrir því að snemnra
á 15. öld var þar prestur. Urðir
voru höfðingjasetur fram eftir
öldurn og kirkjan þar bænda-
kirkja. A árunum 1850-53 var
byggð þar kirkja en hún fauk og
brotnaði í spón í ofsaveðri haust-
ið 1900 í svonefndu kirkjuroki.
Sigurhjörtur Jóhannesson kirkju-
bóndi að Urðum stóð fyrir endur-
reisn kirkjunnar og var hún vígð
sumarið 1902. Alls var kostnaður
við kirkjusmíðina 2.736,63 krón-
ur og var upphæðin ekki að fullu
greidd fyrr en árið 1930. Árið
1918 afhenti Sigurhjörtur söfnuð-
Sr. Bolli Góstavsson vígslubiskup
prvdikaði og útdcildi sakramcnti.
inum kirkjuna til eignar og hefur
hún verið sóknarkirkja upp frá
því.
Kvikmyndarýni
Jón Hjaltason
Ógnareðli
Borgarbíó sýnir: Ógnarefili
(Basic Instinct)
Leikstjóri: Paui Verhoeven
ARalhlutvcrk: Michael Douglas, Sharon
Stone og George Dzundza.
Þá er hún komin þessi mest um-
rædda kvikmynd síðustu vikna og
mánaða. Fárast hefur verið yfir
kynlífssenum í kvikmyndinni og
mikið rétt hún er djarfari en við
eigum að venjast en þó ekki svo
að nokkrum ætti að blöskra.
Hommar og lesbíur hafa mótmælt.
Eftir að hafa séð myndina get ég
ómögulega áttað mig á því hvað
það er sem fólkið hefur verið að
rísa gegn. Mér segir svo hugur um
að hér gæti jafnvel verið á ferð-
inni „Ali-brella“ sem byggir á
þeim einföldu sannindum að vont
umtal sé betra en ekkert. Þeir kyn-
villtu hafa séð sér leik á borði að
vekja athygli á málstað sínum og
sjálfum sér og aðstandendur kvik-
myndarinnar þakkað pent fyrir
auglýsinguna. Seldist hún ekki
upp litla þunna bókin um Jesú
þegar íslenski biskupinn hafði á
orði að réttast væri að banna bók-
ina? Fleira hefur gert Ógnareðli að
fréttaefni. Höfundur handrits, Joe
Eszterhas, fékk metupphæð fyrir
skrifin, 180 milljónir íslenskra
króna. Eiginkona Douglas hótar
að fara frá honum vegna rúmsen-
anna. Ég velti því raunar fyrir mér
hvemig það sé fyrir eiginkonu að
horfa á berrassaðan eiginmann
sinn renna niður á milli nakinna
læra föngulegrar konu þar til að-
eins sést í hvirfilinn á honum vit-
andi að á þetta muni allir nágrann-
amir og vinimir horfa.
En hvað stendur svo eftir þegar
búið er að flysja frá alla þessa við-
auka? Svar: Ágætis spennumynd,
ögn djarfari en til dæmis Black
Rain enda er mér til efs að Dou-
glas hefði viljað leika allar sömu
kúnstimar með Andy Carcia í
Svarta Regninu og hann gerir með
Stone í Ógnareðli. Það er ekkert
vafamál að einkennileg og hræsn-
isfull afstaða okkar til kynlífs og
ofbeldis hefur gert framleiðendum
Ógnareðlis mikið gagn. Óhugnan-
leg morðatriðin eru ekkert eins-
dæmi en í bland við rúmsenumar
verður myndin sérstök. En það
verður líka að segjast að Ezterhas
kann sitt fag, honum hefur að
minnsta kosti tekist ágætlega upp í
þetta sinnið.
Leit Douglas og löggufélaga
hans, George Dzundza, að morð-
ingjanum er spennandi og ekki al-
veg laus við húmor, þó hann sé
æði grályndur á köflum. Allar
kvikmyndir byggjast upp á litlum
köflum, stundum illa tengdum,
stundum betur. í Ógnareðli er
tengingin á milli skota góð, sviðin
birtast eitt af öðru í eðlilegu sam-
hengi við það sem á undan er
'gengið. Hugmyndin að láta tvær
persónur, ákaflega keimlíkar til
andans, takast á með þeim hætti
sem Douglas og Stone gera er
sniðug og hún er vel útfærð í
höndum leikstjórans. En Ógnar-
eðli er „köld“ mynd. Persónumar
eru kaldlyndar, ekkert síður lögg-
ur en grunaðir morðingjar. Rúm-
senumar eru lítið erótískar ef ég
má nota það orð yfir áhrif á lima-
burð. Það er kuldi yfir þeim,
kannski vegna yfirvofandi morðs.
Morðinginn hei'ur það nefnilega
til siðs að riðlast á karlpeningnum
og þegar hæst stendur í stönginni
að reka ísfork í brjóst þeirra.
Niðurstaða mín er einföld;
Ógnareðli hefur fengið óeðlilega
mikið umtal sem helgast af duldri
löngun alls almennings til að
horfa á nágranna sína elskast.
Kynlíf heillar en fáir þora að fara í
bíó að horfa á klámmynd. Ef
klámið er hins vegar klætt í viður-
kenndan búning gegnir öðru máli.
Kvikmyndin Ótrúlegur léttleiki
tilverunnar naut þessa og nú er
röðin komin að Ognareðli sem
verðskuldar það miklu fremur en
Léttleikinn gerði um árið. Það er
svo annað mál að Ógnareðli er
þegar allt kernur til alls ekkert
mikið frábrugðin löggumyndinni
Svörtu regni þar sem Douglas lék
á móti Andy Carcia, það er að
segja þegar horft er fram hjá kyn-
lífsþættinum.
Séra Jón Helgi er fjórði prest-
urinn sem þjónar núverandi
Urðakirkju en hún er nú annexía
frá Dalvíkurkirkju. Forverar
hans í embætti voru sr. Kristján
Eldjárn Þórarinsson (til 1917),
sr. Stefán B. Kristinsson (1917-
1941) og sr. Stefán Snævarr
(1941-1984). Núverandi formað-
ur sóknarnefndar er Lena Gunn-
laugsdóttir.
Kirkjan er í góðu standi því
miklar endurbætur voru gerðar á
henni árið 1985 og fyrir tveimur
árum var hún máluð að utan.
Predikunarstóllinn er frá árinu
1766, gefinn af Lárusi Scheving,
en altaristöfluna málaði Arn-
grímur Gíslason málari árið
1881. Stendur til að gera þessa
muni báða upp. Tvær klukkur
eru í kirkjunni og er sú eldri frá
árinu 1534 og þar með ein af elstu
klukkum landsins. Sú yngri er frá
1756 og merkt áðurnefndum
Lárusi Scheving.
Við athöfnina á sunnudag söng
kirkjukórinn undir stjórn
Jóhanns Ólafssonar organista en
Svana Halldórsdóttir frá Melum
söng einsöng. Séra Jón Helgi
greindi frá því að kirkjunni hefðu
borist ýmsar gjafir í tilefni afrnæl-
isins, bæði peningagjafir og mun-
ir sem ætlaðir eru til notkunar við
útfarir. Að messu lokinni þáðu
gestir veitingar hjá heimilisfólk-
inu að Urðum. -ÞH
fronskar korlöflur
Meistorakokkurinn
Hermann
Huijbens
tilbúinn til
skrofs 09
róöogcröo
Matvöru-
markaöurinn
Kaupangi
Opiö virka daga kl. 9-22
Laugardaga og
sunnudaga kl. 10-22