Dagur - 08.07.1992, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 8. júlí 1992
Spurning vikunnar
Hefurðu farið á óperu?
Á hvers konar tónlist
______hlustar þú?____
Philippa Thomas:
Já, ég hef einu sinni farið á
óperu en reyndar man ég ekki
hvaða verk það var. Óperan var
á ensku en ekki ítölsku og þess
vegna var þetta dálítið skrítið
en mjög gaman. Annars hlusta
ég aðallega á sígilda tónlist en
líka á popptónlist og ýmislegt
fleira.
Gunnar Sólnes:
Jú, ég hef farið á óperu og það
var mjög gott. Ég sá Brúðkaup
Fígarós í Alberthall í London en
það er sennilega eina skiptið.
Heima hlusta ég á allar tegundir
tónlistar-ég hlusta á það sem
konan setur á.
Colin Warnock:
Nei, aldrei! Ég hlusta á alls kon-
ar tónlist; stundum hlusta ég á
sígilda tónlist en af einhverjum
ástæðum hlusta ég aldrei á
óperutónlist. Allt nema óperur.
Hallgrímur Hallgrímsson:
Nei. Ég hlusta heldur lítið á
óperutónlist; hún nær einhvern
veginn ekki til mín. Ég hlusta
helst á kóra, einsöngvara og
létta hljómlist. Ég hef líka svolít-
ið gaman af poppi sem dálítill
kraftur er í.
Tinna Thorlacius:
Já, en það er svo langt síðan
að ég man ekki hvað ég sá. Pað
var í Islensku óperunni fyrir
sunnan og mérfannst rosalega
gaman. Yfirleitt hlusta ég á allt
nema óperur og klassík.
ÍÞRÓTTIR
Bikarkeppni kvenna:
Þór o g Stjaman og
KS-Breiðablik
Tveir leikir verða á Norður- I
landi í bikarkeppni kvenna í
knattspyrnu í kvöld. Þórsstúlk-
ur fá Stjörnuna í heimsókn og
KS fær 1. deildarlið Breiða-
bliks í heimsókn.
„Það gera sér allir grein fyrir
því að við höfum á brattann að
sækja en þetta er stærsti leikurinn
sem kvennaliðið hér hefur spilað.
Við hlökkum bara til og reynum
að gera okkar besta,“ sagði Bald-
ur Benónýsson, þjálfari KS, þegar
hann var spurður hvernig Íeikur-
inn legðist í Siglfirðinga. Breiða-
blik hefur verið, og er, eitt sterk-
asta lið í kvennaknattspyrnunni í
dag svo ástæða er til þess að
hvetja Siglfirðinga til þess að fjöl-
menn á ieikinn. Leikurinn hefst
klukkan 20.
Guðmundur Svansson sagði að
leikurinn við Stjörnuna legðist
vel í stelpurnar hjá Þór. „Við
stefnum auðvitað að því að sigra
og okkur finnst kominn tími til
þess að heilladísirnar snúiSt á
sveif með okkur. Við höfum ver-
ið að tapa niður unnum leikjum
og erum orðin þreytt á því,“
sagði Guðmundur. Leikurinn fer
fram á Þórsvelli og hefst klukkan
20. Aðspurður hvort ekki hafi
verið rætt um að leikurinn færi
fram á Akureyrarvellinum sagði
Guðmundur að Þórsstúlkurnar
vildu spila heima, þar væri topp-
aðstaða og því engin ástæða til
þess að færa leikinn. Aðrir leikir
í bikarkeppninni eru: Hakar-ÍA
KR-Þróttur N. SV
2. flokkur:
Þór vann
um helgina
Annar flokkur Þórs gerði
góða ferð til Reykjavíkur
um helgina og vann sann-
gjarnan sigur á ÍR, 1:4.
„Við erum komnir á beinu
brautina," sagði Eiríkur Eiríks-
son, þjálfari Þórs, eftir leikinn
um helgina.
Þórsarar byrjuðu af mikium
krafti og komust í 0:3 fyrir
leikhlé. Páll Lyngdal byrjaði á
því að skora og svo bættu þeir
Arnar Bill Gunnarsson og
Þorvaldur Sigurðsson viö
inörkum fyrir Þór. Að sögn
Eirt'ks þjálfara fékk Þór ágæt
færi til þess að skora t síðari
hálfleik en nýtti aðeins eitt.
Steindór Gíslason skoraði þá
úr vítaspyrnu. ÍR núnnkaði
muninn undir lokin en sigur-
inn var síst of stór miðað við
gang leiksins. SV
Sigurður Matt. frá vegna meiðsla
- kastar ekki spjótinu á ÓL í sumar
Það er nú orðið ljóst að
Sigurður Matthíasson, spjót-
kastari, getur ekki reynt við
ólympíulágmarkið og verður
ekki með á ÓL í Barcelona í
sumar. Sigurður meiddist á
olnboga og verður frá keppni
um tíma.
„Þetta er gífurlegt áfall fyrir
mig því ég hef aldrei verið í jafn
góðu formi og einmitt nú í vor,“
sagði Sigurður, þegar blaðamað-
ur sló á þráðinn til hans í gær.
Hann sagðist hafa meiðst á hné
snemma í vor og síðan er það
olnboginn núna. „Þetta er í
þriðja skiptið sem ég meiðist á
olnboganum og það er orðið
frekar pirrandi. Ég hef ekkert
getað æft að ráði og því bara
hvílt að mestu. Ég er að bíða
eftir því að komast í rannsókn og
eftir það skýrist málið. Þá fæ ég
að vita hvort ég þarf að fara í upp-
skurð eða hvað. Það er a.m.k.
ljóst að ég keppi ekkert á næst-
unni,“ sagði Sigurður. SV
Frjálsar íþróttir:
Meistaramót íslands
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum var haldið um síðustu
helgi. Það markverðasta á
mótinu var það að Sigurður
Einarsson, spjótkastari, kast-
aði 83,32 m á mánudag í auka-
keppni í spjótkasti og hefur
þar með tryggt sér sæti á ÓL.
Hins vegar er nú orðið ljóst að
Sigurður Matthíasson, spjót-
kastari, verður ekki með á ÖL.
Hann hefur átt við meiðsli að
stríða og verður ekki orðinn
nægilega góður 10. júlí, en þá
rennur út sá tími sem menn
fengu til þess að ná ólympíu-
lágmarki. Hér fara úrslit
þriggja efstu í hverri grein
laugardag og sunnudag, úrslit
mánudags eru ekki komin:
Úrslit karlagrcina laugard:
200 m hlaup karla: sek.
1. Gunnar Guðmundsson, FH 21,66
2. Jóhannes Már Marteinsson, ÍR 22,45
3. Kristján Friðjónsson, KR 22,63
800 m hlaup karla, 21 árs og yngri: mín.
1. Finnbogi Gylfason, FH 1:56,36
2. Sigurbjörn A. Arngrímsson, HSÞ 1:58,70
3. Guðmundur Skúlason, FH 1:59,11
5000 m hlaup karla, 21 árs og eldri: mín.
1. Sigmar Gunnarsson, UMSB 15:07,39
2. Gunnlaugur Skúlason, UMSS 15:11,07
3. Jóhann Ingibergsson, FH 15:17,01
400 m gr.hlaup karla: sek.
1. Magnús Orri Sæmundsson, USVS 58,20
2. Björn Traustason, FH 58,55
3. Friðgeir Halldórsson, USAH 59,85
Langstökk karla, 21 árs og eldri: m
1. Jón Oddsson, FH 7,11
2. Stefán Þór Stefánsson, ÍR 6,77
3. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 6,66
Stangarstökk karla, 21 árs og eldri: m
1. Sigurður 1. Sigurðsson, FH 4,70
2. Kristján Gissurarson, UMSE 4,60
3. Magnús Orri Sæmundsson, USVS 3,80
Kúluvarp karla, 21 árs og eldri: m
1. Pétur Guðmundsson, KR 16,96
2. Bjarki Viðarsson, HSK 15,14
3. Þorsteinn R. Þórsson, UMFT 14,52
Spjótkast karla, 21 árs og eldri: m
1. Einar Vilhjálmsson, ÍR 84.36
2. Sigurður Einarsson, Á 77,92
3. Unnar Garðarsson, lR 67,38
4x100 m boðhlaup karla, 21 árs og eldri: sek.
1. SveitFH 43,98
2. Sveit ÍR 45,96
3. Sveit HSK 47,22
Úrslit kvennagreina laugard:
200 m hlaup kvenna: sek.
1. Súsanna Helgadóttir, FH 24,07
2. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE 24,66
3. Sunna Gestsdóttir, USAH 24,89
800 m hlaup, 21 árs og eldri: mín.
1. Margrét Brynjólfsdóttir, UMSB 2:19,96
2. Laufey Stefánsdóttir, Fjöl. 2:20,95
'3. Hulda Pálsdóttir, ÍR 2:21,44
3000 m hlaup kvenna 21 árs og eldri: mín.
1. Martha Ernstsdóttir, ÍK 9:28,57
2. Fríða Rún Þórðardóttir, UMFA 9:46,84
3. Anna L. Þórsdóttir, KR 11:54,60
Hástökk kvenna 21 árs og yngri: m
1. Erna Björg Sigurðardóttir, KR 1,65
2. Elín Jóna Traustadóttir, HSK 1,62
3. Rakel Tryggvadóttir, FH 1,56
Kúlvarp kvenna 21 árs og eldri: m
1. Guðbjörg Gylfadóttir, USAH 15,00
2. Halldóra Jónsdóttir, UMSB 10,97
3. Svava Arnórsdóttir, USU 10,97
Spjótkast kvenna 21 árs og eldri: m
1. Iris Grönfeldt, UMSG 51,88
2. Vigdís Guðbjörnsdóttir, HSK 43,36
3. Halldóra Jónasdóttir, UMSB 44,28
4x100 m bhl. kvenna 21 árs og eldri: sek.
l.SveitFH 49,49
2. Sveit KR 57,15
Úrslit karlagreina sunnud:
100 m hlaup karla: sek.
1. Einar Þór Einarsson, Á 10,92
2. Jóhannes Már Marteinsson, ÍR 11,09
3. Siguröur H. Sigurðsson, UMFT 11,12
400 m hlaup karla: sek.
1. Gunnar Guðmundsson, FH 50,22
2. Þorvaldur Hauksson, USU 53,09
3. Geir Sverrisson, Á 53,16
1500 m hlaup karla, 21 árs og eldri: mín.
1. Finnbogi Gylfason, FH 4:11,68
2. Sigmar Gunnarsson, UMSB 4:11,69
3. Sigurbjörn Á. Arngrímsson, HSÞ 4:17,20
110 m gr.hlaup karla: sek.
1. Hjörtur Gíslason, FH 14,98
2. Stefán Þór Stefánsson, ÍR 15,39
3. Þorvaldur V. Þórsson. ÍR 16,20
Þrístökk karla, 21 árs og eldri: m
1. Jón Oddsson, FH 14,18
2. Stefán Þór Stefánsson, ÍR 13,24
3. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 13,04
Kringlukast karla, 21 árs og eldri: m
1. Vésteinn Hafsteinsson, HSK 61,50
2. Þorsteinn R. Þórsson, UMFT 40,82
3. Friðgeir Halldórsson, USAH 31,92
Sleggjukast karla, 21 árs og eldri: nt
1. Guðmundur Karlsson, FH 59,00
2. Jón Auðunn Sigurjónsson, UBK 58,16
3. Bjarki Steinn Jónsson, HSK 44,90
Úrslit kvennagreina sunnud:
100 m hlaup kvenna: sek.
1. Súsanna Helgadóttir, FH 12,14
2. Geirlaug B. Geirlaugsdóttir, Á 12,29
3. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE 12,39
400 m hlaup kvenna: sek.
1. Súsanna Helgadóttir, FH 59,78
2. María Bjarney Leifsdóttir, Self. 62,23
3. Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, USÚ 62,65
1500 m hlaup kvenna, 21 árs og eldri: mín.
1. Martha Ernstsdóttir, ÍR 4:40,30
2. Margrét Brynjólfsdóttir, UMSB 4:59,92
3. Ásdís María Rúnarsdóttir, ÍR 5:00,30
100 m gr.hlaup kvenna, 21 árs og eldri: sek.
1. Sólveig Björnsdóttir, KR 15,07
2. Erna Björg Sigurðardóttir, KR 15,99
3. Elín Jóna Traustadóttir, HSK 16,89
Langstökk kvenna, 21 árs og eldri: m
1. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE 5,75
2. Súsanna Helgadóttir, FH 5,67
3. Sunna Gestsdóttir, ÚSAH 5,25
Kringlukast kvenna, 21 árs og eldri: m
1. Halla Heimisdóttir, Á 37,42
2. Margrét V. Óskarsdóttir, ÍR 36,50
3. Svava Arnórsdóttir, USÚ 36,12
Aukagrein:
Spjótkast karla: m
Sigurður Einarsson, Á 83,32
Einar Vilhjálmsson, ÍR ógilt