Dagur - 08.07.1992, Qupperneq 7
Miðvikudagur 8. júlí 1992 - DAGUR - 7
KA sigraði Þór 2:0 í sögulegum leik í Mjólkurbikarnum:
„Ég hef ekkert um svona rugl að segja“
Leiftursmenn ekki með eftir hlé
KA vann góðan sigur á Þór í
Mjólkurbikarnum í gær.
Leikurinn fór rólega af stað en
fjörið var alit í síðari hálfleik.
Þá skoruðu KA-menn bæði
mörk sín, Þórsarar misnotuðu
víti og Lárus Sigurðsson mark-
vörður Þórs var borinn meidd-
ur af leikvelli.
„Ég var ósáttur við að fá á mig
þetta víti en úr því sem komið
var varð ég að verja,“ sagði
Haukur Bragason, markvörður
KA, eftir að hafa varið víta-
spyrnu frá Bjarna Sveinbjörns-
syni. „Sigurinn var rosalega
mikilvægur fyrir liðsandann og ég
vona að þetta gefi okkur aukið
sjálfstraust í leikjunum sem eftir
eru,“ sagði Haukur.
„Ég hef ekkert um svona rugl
að segja,“ sagði Sigurður Lárus-
son, þjálfari Þórs, eftir leikinn og
útskýrði ekki frekar hvað hann
átti við.
Leikurinn fór rólega af stað og
var í járnum framan af. Þórsarar
voru þó tvívegis mjög nálægt því
að skora. Fyrst í lok hálfleiksins,
þegar Bjarni Sveinbjörnsson
skallaði yfir markið úr dauðafæri
á síðustu mínútu hálfleiksins.
Síðan var það Kristján Kristjáns-
son sem skaut hárfínt yfir úr
góðu færi í byrjun þess síðari.
Gunnar Gíslason fékk þokkalegt
færi til þess að skora en Lárus
Sigurðsson varði skalla hans
utan úr teig. Staðan í leikhléi var
0:0.
Síðari hálfleikur byrjaði af
miklum krafti og strax á þriðju
mínútu átti Bjarni Sveinbjörns-
son skot í stöng eftir að KA-
mönnum hafði mistekist að
hreinsa frá markinu. Stuttu síðar
var Kristján Kristjánsson kominn
einn inn fyrir KA-vörnina en
Haukur varði laust skot hans.
Bjarni var aftur á ferðinni fyrir
Þór á 64. mínútu. Þá urðu hroða-
leg mistök í vörn KA og Bjarni
komst einn inn í teig, lék framhjá
Hauki í markinu en á óskiljanleg-
an hátt hitti hann ekki boltann og
missti hann aftur fyrir. Á 69.
mínútu skoraði Páll Gíslason
fyrsta mark leiksins. Fékk bolt-
ann fyrir utan teig, lék inn í teig-
inn og skaut góðu skoti efst í
markhornið, óverjandi fyrir Lár-
us í markinu.
Stuttu síðar fékk Bjarni Svein-
björnsson vítaspyrnu, sem fyrr
segir, eftir hornspyrnu.
Bjarni tók hana sjálfur en Hauk-
ur gerði sér lítið fyrir og varði frá
Hið umdeilda atvik þegar Lárus Sig-
urðssun meiddist. Braut Gunnar
Már Másson á honum eða ekki?
Bjarni Sveinbjörnsson tekur vítaspyrnuna en Haukur Bragason er greinilega
búinn að ákveða á hvort hornið hann ætlar að veðja. Myndir: Goiii
Önnur úrslit:
Valur Rf. -ÍA 0:7
LBK-Vaiur 0:3
ÍBK-FH 1:2
BÍ-Fram 1:4
Víkingur-ÍBV 3:2
- og töpuðu 2:5 fyrir Fylki
Fylkismenn unnu stórsigur á
Leiftri, 5:2, í afar kaflaskiptum
leik í Olafsflrði í gær. Heima-
menn voru mun sterkari aðil-
inn í fyrri hálfleik og pressuðu
stíft en við umdeilt jöfnunar-
mark Fylkis á lokamínútum
fyrri hálfleiks datt botninn úr
leik Leifturs og eftirleikurinn
var gestunum auðveldur.
Leiftursmenn pressuðu nánast
látlaust í fyrri hálfleik og á 29.
mínútu náði Pétur Björn Jónsson
forystunni með þrumuskoti eftir
aukaspyrnu. Aðeins mínútu áður
hafði Þórhallur Dan átt skot í
stöng Leiftursmarksins eftir
skyndisókn.
Leiftursmenn pressuðu áfram
en á 40 mínútu skoruðu Fylkis-
menn umdeilt jöfnunarmark.
Þorvaldur markvörður stökk þá
upp í bolta ásamt tveimur Fylk-
ismönnum og vildu Ólafsfirðing-
ar meina að hann hefði verið
hindraður. Ekkert var þó dæmt,
boltinn barst út í teig til Þórhalls
Dan sem skoraði. Leiftursmenn
fengu tvö góð færi á lokamínút-
um hálfleiksins en nýttu þau ekki
og staðan í hléi var 1:1.
í seinni hálfleik var allur vind-
ur úr Leiftursmönnum, gestirnir
réðu lögum og lofum og skoruðu
fjögur mörk á 25. mínútum áður
en Leiftursmenn klóruðu í
bakkann. Kristinn Tómasson var
í essinu sínu og skoraði þrívegis,
á 55., 65. og 80. mínútu og Finn-
ur Kolbeinsson skoraði á 59.
mínútu. Pétur Björn minnkaði
muninn úr vítaspyrnu á 89. mín-
útu eftir að brotið hafði verið á
Pétri Marteinssyni og sá síðar-
nefndi var að skora þriðja markið
þegar leikurinn var flautaður af.
Eins og fyrr segir var leikurinn
afar kaflaskiptur en dómarinn,
Kári Gunnlaugsson, sá til þess að
seinni hálfleikurinn fór út í
hreina vitleysu. Kristinn Tómas-
son var bestur Fylkismanna en
Pétur Marteinsson og Mark
Duffield voru bestir í Leifturslið-
inu. Þess má geta að Þorlákur
Árnason lék ekki með Leiftri
vegna meiðsla. KH/JHB
Pétur Björn Jónsson skoraði bæði mörk Leifturs í gærkvöld. Mynd: gt
honum. Stuttu fyrir leikslok
gerðist umdeilt atvik. Halldór
Kristinsson sendi háan bolta inn í
teiginn þar sem þeir Gunnar Már
og Lárus markvörður voru stað-
settir. Báðir stukku upp í
boltann, Lárus féll við og Gunnar
náði boltanum og skoraði. Þórs-
arar heimtuðu brot á Gunnar en
Egill Már, dómari, var viss í sinni
sök og dæmdi mark. Lárus var
borinn af leikvelli og fluttur í
sjúkrabíl á slysadeild. Margur
dómarinn hefði án efa dæmt brot
á Gunnar en Egill Már, sem fær
ekki háa einkunn fyrir frammi-
stöðu sína í leiknum, gerði það
ekki. Þórsarar geta nagað sig í
handarbökin fyrir að fara illa
með góð marktækifæri en KA-
menn hrósa sigri og eru komnir í
8-liða úrslit. SV
KR-ingar sluppu fyrir horn á Húsavík:
„Ekki ósanngjamt þótt
Völsungar heföu unnið“
KR-ingar voru heppnir að fara
með sigur af hólmi á Húsavík í
gærkvöldi. Völsungar náðu
forystunni strax í upphafl og
voru betri aðilinn framan af en
í seinni hálfleik tryggði Steinar
Ingimundarson KR sæti í 8 liða
úrslitum með tveimur
mörkum. „Við vorum lélegir
og það hefði ekki verið ósann-
gjarnt þótt Völsungar hefðu
unnið. Þetta var einn erflðasti
leikur sem við höfum spilað í
sumar,“ sagði Atli Eðvalds-
son, leikmaður og aðstoðar-
þjálfari KR, í leikslok.
Strax eftir 45 sekúndur fékk
Hilmar Hákonarson sendingu inn
í vítateig KR, snéri laglega af sér
varnarmann og skoraði með
góðu skoti við mikinn fögnuð
fjölda áhorfenda á Húsavík.
Völsungar voru þar með komnir
á bragðið og gífurleg barátta
þeirra sló KR-inga út af laginu.
Rétt fyrir hlé voru heimamenn
tvívegis nálægt því að bæta við
mörkum og í annað skiptið náði
Ólafur Gottskálksson að verja
boltann í stöng eftir aukaspyrnu
Skarphéðins fvarssonar.
KR-ingar voru mun ákveðnari
í seinni hálfleik en Völsungar
börðust áfram vel og gáfu þeim
ekkert eftir. Síðan fór þreyta að
segja til sín hjá liðinu og kafla-
skipti urðu í leiknum þegar Stein-
ari Ingimundarsyni var skipt inn
á hjá KR fyrir Hilmar Björnsson.
Steinar jafnaði leikinn á 30. mín-
útu eftir góða sókn og skoraði
síðan sigurmarkið fimm mínút-
um síðar eftir frábæra sendingu
Einars Daníelssonar. KR-ingar
sóttu meira í framhaldinu en
Völsungar beittu skyndisóknum
og voru mjög nálægt því að jafna
í leikslok.
„Við gerðum mistök þegar
þreytan fór að segja til sín en lék-
um vel fram að því. Nú vitum við
hvað við getum og ætlum að ná
upp sömu stemmningu gegn
Haukum í deildinni á föstudags-
kvöldið," sagði Björn Olgeirs-
son, þjálfari og leikmaður
Völsungs. HJ/JHB
Mjólkurbikarinn:
Umfjöllun
féll 'niður
Þau leiðu mistök urðu í blaðinu í
gær að grein sem skrifuð hafði
verið um bikarleiki, Völsungs og
KR og Leifturs og Fylkis, féll
niður af tæknilegum ástæðum.
Blaðamaður biðst velvirðingar á
þessum mistökum sem eru alfarið
á hans ábyrgð. SV
Dráttarvéla- og
vinnuvéladekk
fyrirliggjandi
Hagstætt verð!
M».|j I f Hjólbarðaverkstæði
riOlClUr fll. Tryggvabraut 14 • sími 21715
i