Dagur - 24.07.1992, Page 4
4 - DAGUR - Föstudagur 24. júlí 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRÉNT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGIV. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25689
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SIMFAX: 96-27639
Eyðum ekkí auðlmdunum
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, mun leggja
fram nýjar tillögur um fiskveiðikvóta á fundi ríkisstjórnar-
innar næstkomandi þriðjudag. í hinum nýju tillögum mun
verða gert ráð fyrir stóraukinni sókn í aðra fiskistofna
heldur en þorsk, þannig að heildarskerðing afla verði
aðeins um 3% miðað við verðmæti og landsframleiðslan
dragist saman um 1% í stað 4 til 5% ef farið yrði að
óbreyttum tillögum Hafrannsóknastofnunar varðandi
veiðar á kola, ufsa, ýsu, karfa og síld. Jafnhliða tillögum
um verulega aukningu veiða þessara fiskistofna sem
taldir eru standa vel að vígi er talið líklegt að sjávarút-
vegsráðherra haldi sig við tillögur Hafrannsóknastofnun-
ar hvað þorskinn varðar og leggi til að veidd verði 190
þúsund tonn. Þá er einnig gert ráð fyrir að sjávarútvegs-
ráðherra leggi til að þeim 12 þúsund þorskígildum sem
Hagræðingarsjóður hefur yfir að ráða, verði deilt út til
þeirra byggðarlaga, þar sem skerðing þorskkvótans verð-
ur tilfinnanlegust fyrir atvinnulífið.
Tillögur sjávarútvegsráðherra miða að því að bregðast
við hinum mikia vanda, sem óumdeilanlega mun hljótast
af niðurskurði þorskveiðanna á eins skynsamlegan hátt
og unnt er. Umræddir fiskistofnar eru taldir þola mun
meiri veiði en Hafrannsóknastofnun hefur gert ráð fyrir
og er stofnunin jafnvel tilbúin að endurskoða afstöðu
sína hvað þá varðar og mæla með ákveðnum áhættuveið-
um á meðan reynt verður að byggja þorskstofninn upp á
nýjan leik.
Ef hugmyndir sjávarútvegsráðherra ná fram að ganga
munu þær deyfa hin harkalegu áhrif, sem niðurskurður
þorskstofnsins mun hafa á athafna- og efnahafgslíf
landsmanna. En þær munu ekki eyða þeim að fullu og
stjórnmálamenn og aðrir óttast eftir sem áður þær
afleiðingar sem samdrátturinn muni hafa. En hverjir eru
kostir þjóðarinnar í þeirri stöðu sem hún nú er í? Halldór
Ásgrímsson, alþingismaður og fyrrverandi sjávarútvegs-
ráðherra, hefur bent á að íslendingar geti tekið höndum
saman í þessu máli veiti ríkisstjórnin þá forystu sem til
þurfi. Hann hefur bent á nauðsyn þess að víkja sem
minnst frá hinum vísindalegu niðurstöðum og sagt að við
höfum notið trausts á lánamörkuðum því við höfum tekið
skynsamlegar ákvarðanir um nýtingu auðlinda á undan-
förnum árum. Hann hefur einng sagt að okkur hafi tekist
að afla skilnings í hvalamálinu á grundvelli vísinda og við
getum öðlast traust annarra þjóða með því að byggja
ákvarðanir okkar á þekkingu og vísindalegum niðurstöð-
um. Við þær aðstæður, sem nú hafi skapast hvað þorsk-
veiðarnar varðar, sé hreinlega ekki hægt að treysta á
brjóstvitið eitt.
Þrátt fyrir verulega áhættu er ljóst að mikill þrýstingur
er á sjávarútvegsráðherra að samþykkja meiri veiðar á
þorski en tillögur Hafrannsóknastofnunar kveða á um.
Slíkur þrýstingur er í sjálfu sér ekki óeðlilegur þegar mikil
tekjuskerðing er fyrirsjáanleg. En við henni verður að
bregðast á annan hátt en sniðganga ráðleggingar vís-
indamanna. Hagræðing verður að halda áfram í sjávarút-
vegi. Bæta verður rekstrarumhverfi útgerðar og fisk-
vinnslu. Jafnvel gengisfelling getur orðið nauðsynleg,
þótt hún hljóti ætíð að vera óyndisúrræði. Allt er betra en
kasta hinum vísindalegu niðurstöðum á glæ og kynna
okkur fyrir öðrum þjóðum sem óheflaða ribbalda er skirr-
ast ekki við að eyða auðlindum þjóðarinnar vegna græðgi
og úrræðaleysis. ÞI
Mývatnssveit:
Ný verslun og veitinga-
salur á Skútustöðum
Sigrún Jóhannsdóttir og
Kristján Yngvason sem eiga og
reka verslunina og veitinga-
staðinn Sel á Skútustöðum í
Mývatnssveit tóku í notkun
nýtt verslunarhús og veitinga-
sal nú í vor. Aðstaða til að taka
á móti hópum ferðamanna í
mat hefur batnað til muna, en
vart hefur verið hægt að anna
eftirspurn fram að þessu.
Síðastliðið haust var byrjað að
byggja nýtt verslunarhús við hlið-
ina á eldra húsinu. Nýja verslun-
in var opnuð 27. mars s.l. í 100
fermetra húsnæði í stað 50-60 fer-
metra áður. Síðan var eldra
verslunarhúsnæðið innréttað sem
veitingasalur og hann var tekinn í
notkun 16. júní sl. Salurinn tek-
ur um 60 manns í mat og þar er á
boðstólum fjölbreyttur matseðill,
einnig eru þar vínveitingar og bar
á kvöldin. Á matseðlinum er
m.a. hinn sígildi Mývatnssilung-
ur, sem er mjög vinsæll, ekki síst
af erlendum ferðamönnum að
sögn Sigrúnar. Þessi nýja og
bætta aðstaða hefur mælst vel
fyrir af bæði ferðamönnum og
heimamönnum. Nýja veitingaað-
staðan var auglýst sérstaklega
fyrir heimamenn s.l. laugardags-
kvöld þar sem menn áttu m.a.
kost á að hlýða á gítarleik Jenni-
fer Spear, kennara við Tónlistar-
skólann á Akureyri.
í hinum hluta hússins er sæl-
gætissala og skyndibitastaður
eins og verið hefur. Á sunnudög-
um er boðið upp á kaffihlaðborð
í nýja veitingasalnum. Þar stend-
ur nú yfir sýning á olíumyndum
eftir Sólveigu Illugadóttur.
Verslunin er opin alla daga frá
kl. 8.30 til 22, skyndibitastaður-
inn frá 9 til 23 og veitingasalurinn
frá 12 til 23.30. sþ
Tími er peningar:
Frystiskip virk 264%
lengur en frystihús
- lögboðnir frídagar sjómanna mun færri
en annars fiskvinnslufólks
„Frystiskip eru virk 264%
lengur en frystihús. Einnig má
segja sem svo að ef 10 menn
eru að jafnaði í vinnslunni á
frystiskipi, þá þurfi 36 menn í
dagvinnu í landi til að afkasta
jafnmiklu.“ Þannig hljóðar
niðurstaðan í grein Andra
Teitssonar, aðstoðarmanns
nefndar um mótun stefnu í
sjávarútvegi, en þar gerir hann
samanburð á rekstrarumhverfi
landvinnslu og sjóvinnslu.
í grein sinni í Morgunblaðinu
bendir Andri Teitsson á að
afkoma blandaðra ísfisktogara-
og fiskvinnslufyrirtækja sé 17,5
prósentustigum verri en afkoma
af rekstri frystiskipa. Ein af meg-
inástæðunum er sá aðstöðumun-
ur sem fólginn er í því að vakta-
vinnufyrirkomulag í frystiskipum
gerir kleift að nýta fjárfestingu og
fasta útgjaldaliði betur en í fisk-
vinnslu. Krafa fiskvinnslufólks
um næturvinnuálag gerir land-
vinnslu dýrari.
M.a. bendir Andri á að vinna í
frystihúsi falli að jafnaði niður í
11,3 daga á ári auk þess sem helg-
arfrídagar eru 104 á ári. „Þannig
er hægt að vinna í dagvinnu 250
daga á ári, eða 2000 klst,“ segir í
greininni.
Með færri lögboðnum frídög-
um að frádregnu vinnutapi við
siglingu á miðin og vinnutapi
vegna veðurs gerir Andri ráð fyr-
ir því að nýting tíma sé að meðal-
tali mun betri í sjóvinnslu frysti-
skipa sem leiðir til sparnaðar
enda er tími peningar. „Skipin
geta því verið að veiða eða vinna
fisk í um 7.270 klst. á ári,“ skrifar
Andri og kemst því að þeirri nið-
urstöðu að einn sjómaður í sjó-
vinnslu sé hátt í fjögurra manna
maki hvað nýtingu tíma varðar.
Mestu máli skiptir að lögboðn-
ir frídagar sjómanna eru mun
færri en annars fiskvinnslufólks.
„Því má gera ráð fyrir að frysti-
skip séu í landi alls 52,5 daga á
ári. Með öðrum orðum geta þau
verið á sjó í 313 daga á ári.
Tíu ár eru liðin frá því að Sport-
veiðiblaðið kom fyrst út. Rit-
stjóri og ábyrgðarmaður blaðsins
er Gunnar Bender. Blaðið kemur
út tvisvar á ári, í byrjun sumars
og í lok hvers árs. Afmælisblaðið
sem leit dagsins’ ljós nýverið er
veglegt og margar greinar eru
áhugaverðar fyrir þá mörgu sem
stunda sportveiði á íslandi. Rit-
stjórinn fylgir blaðinu úr hlaði
með stuttri grein er hann nefnir
„Vorspjall". í blaðinu er birt
verð á veiðileyfum í allflestum
stangveiðiám landsins þeim
„fársjúku" til fróðleiks. „Veiði-
maður af guðs náð“ er yfirskrift
viðtals við sr. Pálma Matthías-
son, sóknarprest í Reykjavík, þar
sem presturinn fer á kostum og
grein er um ABU Carcia veiði-
daginn 1991. Völva Sportveiði-
blaðsiris spáir fyrir um veiðina í
sumar og þar er Laxá í Aðaldal í
efsta sæti. Flottopnan með ljós-
myndum Rafns Hafnfjörð ber
meistaranum vitni og Óli G.
Jóhannsson, blaðamaður, fjallar
um Heimsmeistaramótið í ís-
dorgveiði sem fram fór sl. vetur á
Simcoevatni í Kanada. Á síðu
þeirra ungu er fjallað um Torfa-
staðavatn í Miðfirði í máli og
myndum og Fnjóská fær ítarlega
umfjöllun í ritsmíð Eiríks Sveins-
sonar læknis á Akureyri. „Það er
Reyndar er Oddeyrin EA skráð
með 328 úthaldsdaga hjá LÍÚ
árið 1991,“ bendir Andri á en
meðaltal harðsæknustu skipanna
er tveimur dögum hærra en lög-
boðnir frídagar leyfa. GT
nauðsynlegt að skilja bráðina" er
yfirskrift greinar Haraldar Stef-
ánssonar, slökkviliðsstjóra, þar
sem ritað er um veiðiskap og
gæsasálfræði. Reykjadalsá í
Borgarfirði fær umfjöllun og í
viðtali Róberts Schmidt við Úlfar
B. Thoroddsen segir viðmæland-
inn: „Nýt mín best einn á
fjöllum.'1 Auk þeirra greina er að
framan greinir er fjöldi smá-
greina um veiðiskap og blaðið er
fagurlega búið litmyndum.
Fréttatilkynning
Sportveiðiblaðið 10 ára:
Fjölbreytt efiii að vanda