Dagur - 24.07.1992, Page 12
Smiðjan um helgina
Nýir sælkeraréttir
Gunnar Gunnarsson leikur fyrir matargesti
Frjóvísar úr nýju holdakyni væntanlegir í
Einangrunarstöð holdanauta í Hrísey:
GaJloway-hjörð í land?
Til stendur aö hefja innflutn-
ing á frjóvísum úr kúm af
holdakyni erlendis frá í
íslenskar kýr í Einangrunar-
stöð holdanauta í Hrísey.
Undanfarin fimmtán ár hefur
stöðin verið notuð til hrein-
ræktunar Galloway-nauta af
innfluttu sæði en nú hefur ver-
ið keypt tæki sem gerir kleift
að geyma frjóvísa úr gripum af
öðru holdakyni sem kýr úr
Nauðgunarmálið:
Rætt við
Qölda manrnis
Rannsóknarlögreglan á
Akureyri hefur rætt við
mikinn Ijölda manna vegna
nauðgunarmálsins sem upp
kom í síðustu viku.
Hreiðar Eiríksson, rann-
sóknarlögreglumaður, sagði
að lögreglan ætti eftir að ræða
við fleiri vegna málsins en vildi
ekki gefa upplýsingar um
hvernig rannsökninni miðaði
eða hvort einhver væri grun-
aður um verknaðinn. Hann
ítrekaði óskir um að þeir, sem
gætu gefið upplýsingar um
mannaferðir í bænum milli kl.
4 og 6 aðfaranótt fimmtudags-
ins 16. júlí eða heföu aðrar
upplýsingar um málið, snéru
sér til rannsóknarlögreglunnar
á Akureyri. JHB
Jarðskjálftar:
Spumiiigalisti
sendur til fólks
á Norðurlandi
Á næstu dögum mun jarð-
skjálftadeild Veðurstofunn-
ar senda út spurningalista til
fólks á Norðurlandi þar sem
leitað verður upplýsinga
varðandi jarðskjálftann,
sem varð kl. 22.41 að kvöldi
sl. miðvikudags með upptök
um 30 km norðvestur af
Sigluflrði.
Þetta er gert til þess að vís-
indamenn fái sem gleggstar
upplýsingar um hversu víða
skjálftinn fannst. Upplýsing-
arnar verða síðan notaðar til
að varpa Ijósi á skjálftann
samanborið við aðra skjálfta á
þessum slóðum sem heimildir
eru til um. Sjá viðtal við Ragn-
ar Stefánsson, jarðskjálfta-
fræðing, á bls. 3. óþh
VEÐRIÐ
í dag er spáð kalda og súld
eða rigningu víðast hvar á
Norðurlandi. Gert er ráð fyrir
að hitastig verði svipað og
síðustu daga. Á laugardag og
sunnudag er gert ráð fyrir
norðaustan og austan átt og
skúrum og rigningu norðan-
lands. Hiti á landinu verður 6-
16 stig að deginum, hlýjast
suðvestanlands.
- smithættu lokið
Galloway-hjörðinni gætu
borið. Lög frá 1990 heimila
slíkan innflutning en banna
hins vegar að hin hreinræktaða
Galloway-hjörð verði flutt í
land til að komast hjá smit-
hættu vegna hinna nýju frjó-
vísa.
Að sögn Helga Sigfússonar,
bústjóra Einangrunarstöðvar
holdanauta í Hrísey, er 15 ára
hreinræktun Galloway-hjarðar-
innar lokið enda er yngsti gripur-
inn í hinum virka ræktunarstofni
út af innfluttu sæði nú 98,5%
hreinn. Sú kvíga er nú tæpra
tveggja ára og er af 6. ættlið í
ræktunarstofninum. „Það tók
auðvitað dálítið langan tíma því
einungis sæðisinnflutningur var
heimilaður.
„Næst verður heimilaður frjó-
vísaflutningur. Frjóvísunum
verður komið fyrir í Galloway-
kúm þannig að þær bera 100%
„angus“ þ.e. hreinan stofn af
öðru kyni,“ sagði Helgi en upp-
haf hreinræktunar íslensku Gall-
oway-hjarðarinnar var þannig að
fyrst voru gripirnir hálf-íslenskir,
síðan að einum fjórða og svo koll
af kolli.
í erindi Ólafs E. Stefánssonar,
nautgriparæktarráðunauts hjá
Búnaðarfélagi íslands, sem hann
nefnir Varðveizla Galloway-
hjarðarinnar sem hreinræktuð
hefur verið á Einangrunarstöð-
inni í Hrísey, bendir hann á að
innflutningi annarra holdakynja
til viðbótar í stöðina í Hrísey í
formi frjóvísa muni fylgja nýtt
áhættutímabil út af hugsanlegri
smithættu. „Því er áríðandi, að
flutningur beztu kúa og kvígna
hjarðarinnar til framræktunar í
landi eigi sér stað, áður en úr
frekari innflutningi verður,“ segir
í erindinu.
Lög sem fyrirskipa eyðingu alls
umframsæðis og dráp allra
Galloway-gripa eru líkast til fall-
in úr gildi. Hins vegar bendir
Ólafur á að lög banni flutning
Galloway-hjarðarinnar úr Hrís-
ey. Ólafur leggur til að lögunum
verði breytt og segir: „Eg færi
rök að því, að hætta á að flytja
smitsjúkdóma með gripum frá
stöðinni í land sé tæpast fyrir
hendi, og sönnu nær sé að líta á
eingangrunarstöðina sem þann
stað á landinu, þar sem smithætta
er minnst." GT
Á myndinni má sjá Helga Sigfússon, bústjóra, við tank með innflutta sæðinu
í 296 stiga frosti. Mynd: GT
Gagnrýni Margrétar Hermanns-Auðardóttur á forsvarsmenn Þjóðminjasafnsins:
Fjárskortur en ekki miðstýring
- segir Guðmundur Magnússon, þjóðminjavörður
„Ef rétt er að búðarústirnar að
Gásum liggja undir skemmd-
um þá er leitt að heyra það.
Við munum beita okkur fyrir
því að senda fornleifafræðing á
vegum safnsins norður til að
kanna hversu alvarlegt þetta
er,“ sagði Guðmundur Magn-
ússon þjóðminjavörður þegar
Dagur spurði um viðbrögð
Framkvæmdastjórn
Stöpla hf.:
Rætt við
I Iermann
Ólafsson
Stjórn Stöpla hf., félags um
atvinnuuppbyggingu í Reykja-
hverfí, hefur ákveðið að ræða
við Hermann Olafsson á
Hvammstanga um ráðningu í
stöðu framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins. Alls bárust þrjár
umsóknir um stöðuna.
Að sögn Þorgríms Sigurðsson-
ar, oddvita í Reykjahverfi, verð-
ur haldinn stjórnarfundur í félag-
inu á næstu dögum og er mikill
hugur í félagsmönnum.
Þorgrímur sagði að heyskapur
í hreppnum væri misjafníega vel
á veg kominn, nokkrir bændanna
hefðu lokið heyskap en aðrir
væru skammt á veg komnir í
þeim efnum. IM
Þjóðminjasafns við fréttum
um að hinn forni verslunar-
staður liggi undir skemmdum
vegna sjávarstöðuhækkunar
við Eyjafjörð eins og fram
kom í viðtali við Margréti Her-
manns-Auðardóttur fornleifa-
fræðing í Degi í gær. „Forn-
leifamál eru í ólestri og óhjá-
kvæmilegt að þjóðminjavörð-
ur beiti sér í þeim málum,“
sagði Guðmundur.
„Margrét hefur mikla þekk-
ingu á þessum rústum og rann-
sakaði þær á sínum tíma. Gásir
er einn af merkustu minjastöðum
okkar og þess vegna er full ástæða
til að bregðast fljótt við svona
fréttum,“ sagði óuðmundur og
benti á að eftirlit fornminja á ís-
landi væri verkefni fornleifa-
deildar Þjóðminjasafnsins.
„Fornleifadeild lýtur sérstakri
fimm manna stjórn en þjóðminja-
vörður hefur umsjón með þjóð-
minjavörslu í landinu öllu eins og
segir í þjóðminjalögum frá 1989.
Hins vegar er vandinn sá að forn-
leifadeildin hefur ekki nema einn
starfsmann. Það er í raun ámælis-
vert enda annar einn starfsmaður
ekki að sjá um fornleifarann-
sóknir Þjóðminjasafnsins og fara
svo um landið allt og líta eftir
þeim rústum sem grafnar hafa
verið upp,“ sagði Guðmundur
um skipulag fornleifamála.
„Viðhald rústa er mjög dýrt og
það er víðar en að Gásum sem
við erum í vanda. Fjárveitinga-
valdið hefur því miður ekki sýnt
vandanum mikinn skilning á und-
anförnum árum,“ sagði Guð-
mundur og sagði að fé safnsins
færi fyrst og fremst í nauðsynleg
dagleg afgreiðsluverkefni þegar
ýmsir aðilar leita ráða og leið-
beininga.
„Ég mun beita mér þannig að
maður fari á vettvang," segir
Guðmundur og bætir við að hann
muni halda áfram að láta forn-
leifamál til sín taka þrátt fyrir
þjóðminjalög enda séu þau í
ólestri.
Guðmundur vildi ekki kveða
svo fast að orði að miðstýring
valdi vandanum heldur fjárskort-
ur. Hann bendir á að þær tvær
fornleifarannsóknir sem Þjóð-
minjasafn hafi staðið fyrir hafi
komið til vegna utanaðkomandi
atvika. Annars vegar er um að
ræða rannsóknir vegna fram-
kvæmda á Bessastöðum og hins
vegar vegna landfoks á Stóru
Borg undir Eyjafjöllum sem
kostaðar eru utan fjárframlaga til
Þjóðminjasafnsins. „Það er ekki
út af viljaskorti af hálfu okkar til
að stunda rannsóknir úti á landi,“
sagði Guðmundur. GT
Harðbakur EA:
Gagngerar breytingar og
lagfæringar fyrirhugaðar
- skilafrestur tilboða til 10. ágúst
Fyrir ári voru gerðar gagngerar
endurbætur á togaranum
Kaldbak EA og nú er til athug-
unar að ráðast í svipaðar fram-
kvæmdir við systurskip Kald-
baks, Harðbak EA.
Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa hf., segir, að búið
sé að senda út útboðsgögn vegna
fyrirhugaðra breytinga og lag-
færinga á Harðbak. Skilafrestur
tilboða er 10. ágúst nk. Strax og
tilboð liggja fyrir verður tekin
ákvörðun um framkvæmdir. „í
fyrra var togþilfar Kaldbaks
endurnýjað, ný fiskmóttaka var
sett í togarann sem þilfarskrani.
Lunningar voru hækkaðar og
gagngerar endurbætur voru gerð-
ar á millidekki þ.e. ný vinnslulína
og fleira. í brú togarans voru
gerðar umtalsverðar breytingar.
Allt það sama er fyrirhugað að
framkvæma við Harðbak og að
auki verða sett ný togspil í togar-
ann,“ sagði Vilhelm Þorsteins-
son. ój