Dagur - 05.08.1992, Side 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 5. ágúst 1992
Gunnar Gíslason.
Guðjón Þórðarson.
Akureyringar og nærsveitamenn,
mætið á völlinn og hvetjið ykkar lið
Þrjú gullsmíðaverkstæði á Akureyri frá og með morgundeginum:
Ákvað níu ára gömul að verða gullsmiður
- segir Kristín Guðmundsdóttir, gullsmíðameistari
Sannkallaður stórleikur á Akureyrarvelli,
fimmtudaginn 6. ágúst kl. 19.00
Forsala aðgöngumiða í KA-heimilinu.
leggja gullsmíði fyrir sig. „Það er
til staðfesting á jrví að þá sá ég
eitthvað í sjónvarpinu um gull-
smíði og sagðist þá ætla að verða
gullsmiður. Ég gerði mér þá ekki
grein fyrir því hvernig þetta gengi
fyrir sig, hélt jafnvel að gullsmíði
væri eins og að hnoða leir. Þetta
er hins vegar alls ekki svoleiðis,
þetta er mjög gróf vinna.“
Nota palesander og
íbenholt með málmunum
Kristín segir að megin verkefni
gullsmíðaverkstæðis eins og þess
sem hún er að setja á fót séu við-
gerðir á gömlum skartgripum auk
smíðinnar fyrir verslunina. Þessu
til viðbótar komi sérsmíði eftir
pöntunum sem alltaf sé nokkuð
um. „Sumir eru með mótaðar
hugmyndir um hvernig þeir vilja
hafa hlutina en aðrir eru með
hluta úr hugmynd og ég útfæri
hana síðan. Þessi sérsmíði er
ekki mikil en alltaf eitthvað um
hana. Þá er auðveldast fyrir
mann að vera ekki bundinn við
ákveðinn stíl þó ég sé komin inn
á vissa línu.“
- Hvernig geturðu sjálf lýst
þessari línu sem þú ert að fara í
gullsmíðinni?
„Mig langar til að einbeita mér
að því að nota palesander og
íbenholt með málmunum og það
er nýtt á þann hátt sem ég nota
það. Annars þarf að framleiða á
víðu sviði fyrir verslunina en
mest er salan í hringum og
nælum. Salan er mjög árstíða-
bundin í gullsmíðaversluninni.
Tíminn fyrir jólin vegur þungt og
margir gullsmiðir segjast vera að
taka inn um 40% af ársveltunni í
desember. Svo koma góðir kaflar
í sölunni fyrir fermingar og
stúdentsútskriftir en auk þess eru
sumrin alltaf góð. Ég ætla að láta
sumarið líða og sjá hvernig geng-
ur en ég væri ekki að þessu nema
af því að ég teldi grundvöll fyrir
þriðja gullsmíðaverkstæðinu í
bænum,“ segir Kristín Guð-
mundsdóttir. JÓH
Hver fer
með sigur
af hólmi
s
I
Bikarleiknum?
Yið vinnuborðið. Kristín hefur
áhuga á að einbeita sér að gerð
skartgripa þar sem notaðar eru
viðartcgundir jafnframt málniun-
um.
Stefnan á gullsmíði
frá níu ára aldri
Fáii íslendingar hafa lagt leið
sína til náms í Finnlandi og því
var nærtækast að spyrja hvernig
henni hafi líkað námið og dvölin
þar.
„Þetta var mjög gott,“ svarar
Kristín. „Ég fór að vísu sem
gestanemandi þangað og þurfti
því ekki að sækja bókleg fög en
sótti hönnun, teikningu og
verklegt. Ég lenti því ekki í
vandamálum með finnskuna.
Hún er erfið og ég lærði lítið á
þessu eina ári. Ef ég hefði farið
þangað með því fororði að læra
finnsku þá hefði ég gert það en ég
fór hins vegar til að læra meira í
gullsmíði og gerði það. Ég lærði
að bjóða góðan daginn, þakka
fyrir mig og biðja um kaffi. Það
nægði mér,“ sagði Kristín hlæj-
andi.
Aðspurð segist hún ekki hafa
verið nema níu ára þegar hún
lýsti því yfir að hún ætlaði að
Mjólkurbikarinn í knattspyrnu
Undanúrslit
Kristín Guðmundsdóttir í nýju versluninni. „Mesta salan er í hringum og
nælum.“ Myndir: Golli
Mörg ár eru síðan starfandi
hafa verið þrjú gullsmíðaverk-
stæði í miðbæ Akureyrar en á
morgun bætist það þriðja við á
nýjan leik. Þá opnar Kristín
Petra Guðmundsdóttir, gull-
smiður, verkstæði og verslun í
Hafnarstræti 98 og svo
skemmtilega vill til að í þessu
húsnæði var einmitt á sínum
tíma starfandi gullsmíðaverk-
stæði. Kristín hefur síðasta
hálfa árið verið með vinnu-
stofu, K.P.G. Módel smíði, í
Brauðgerð Kr. Jónssonar á
Akureyri en færir með þessu
út kvíarnar og mun verslunin
bera sama nafn.
„Ég byrjaði gullsmíðanámið
hjá Dýrfinnu Torfadóttur,
gullsmið á ísafirði, og var þar í
hálft annað ár. Svo kom ég til
Akureyrar og var hjá Pétri Breið-
fjörð, gullsmið, í tæp tvö ár. Eftir
það fór ég til Finnlands í gull-
smíðaskóla og var þar í eitt ár.
Þar í landi er gullsmíðin að verða
vinsæl og gott að læra þar. Finnar
eru framarlega í hönnun og eru
að mörgu leyti með meiri kröfur
til gullsmíðarinnar sem iðngrein-
ar vegna þess að þeir líta líka á
þessa grein sem list. íslendingar
líta aftur á móti einungis á gull-
smíðina sem iðn. í Finnlandi er
því meira farið út í kennslu í
hönnun og þess háttar,“ sagði
Kristín þegar við forvitnuðumst á
dögunum um nám hennar í gull-
smíði. Eftir námið í Finnlandi
vann hún í eitt ár hér heima og
öðlaðist meistararéttindi í faginu.
STOFNLANADEILD
LANDBUNAÐARINS
Laugavegi 120, 105 Reykjavík
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1993
þurfa aö berast Stofnlánadeild landbúnaöarins fyrir
15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á
framkvæmdinni, þar sem meöal annars er tilgreind
stærö og byggingaefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraösráöunautar oq
veðbókarvottorð. Þá skal fylgja umsókn búrekstrar-
áætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir væntan-
legir fjármögnunarmöguleikar umsækjanda eru.
Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvéla-
kaupa á árinu 1993 þurfa aö senda inn umsóknir fyr-
ir 31. desember nk.
Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september nk.
Þaö skal tekið fram, að það veitir engan forgang
til lána þó framkvæmdir séu hafnar áður en láns-
loforð frá deildinni liggur fyrir.
Sérstök athygli er vakin á því, að Stofnlánadeild
landbúnaðarins er óheimilt lögum samkvæmt að
fara á eftir öðrum veðhöfum, en opinberum sjóöum.
Lántakendum er sérstaklega bent á aö tryggja sér
veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá Lífeyris-
sjóðum öðrum en Lífeyrissjóði bænda og öðrum
þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð.
Umsóknareyðublöð fást hjá Stofnlánadeild landbún-
aðarins, útibúum Búnaðarbanka íslands og Búnaðar-
samböndum.
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS.