Dagur - 05.08.1992, Page 9
Miðvikudagur 5. ágúst 1992 - DAGUR - 9
Dagskrá fjölmiðla
Ólympíuleikarnir eru fyrirferöarmiklir i dagskrá Sjónvarpsins þessa dagana eins og allir vita.
Vésteinn Hafsteinsson komst í úrslitakeppnina i kringlukasti og hefst úrslitakeppnin i dag kl.
17.30. Kl. 20.35 verður sýnt frá úrslitakeppninni i kringlukasti. (tilefni af Ólympíuleikunum
birtum við mynd af Einari Vilhjálmssyni spjótkastara, en hann og Sigurður Einarsson verða
í eldlínunni í undankeppni spjótkastsins nk. föstudag og vonandi komast þeir í úrslit.
Sjónvarpið
Miðvikudagur 5. ágúst
10.45 Ólympíuleikarnir í
Barcelona.
Bein útsending frá úrslitum í
einliðaleik kvenna í borð-
tennis.
15.25 Ólympíuleikarnir í
Barcelona.
Bein útsending frá úrslita-
keppni í frjálsum íþróttum.
18.00 Töfraglugginn.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Ólympíusyrpan.
Farið verður yfir helstu við-
burði dagsins.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Ólympíuleikarnir í
Barcelona.
Sýnt frá úrslitakeppni í
frjálsum íþróttum, meðal
annars í kringlukasti karla.
21.00 Blóm dagsins - fjall-
dalafífill (geum rivale).
21.05 Lostæti (5).
í þættinum steikja
matreiðslumennirnir Hörður
Héðinsson og Örn Garðars-
son lamb og laga jarðar-
berjaeftirrétt.
21.25 Snurður.
(Piccoli equivoci).
ítölsk bíómynd frá 1988
byggð á verðlaunaleikriti
eftir Claudio Bigagli. Hér
segir frá ástarsambandi
leikara, sem virðist vera að
fara út um þúfur, en þó er
ekki öll von úti.
Aðalhlutverk: Sergio
Castellitto, Lina Sastri,
Nancy Brilli, Nicola Pistoia,
Pino Quartullo og Roberto
Citran.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 Ólympíusyrpan.
Farið verður yfir helstu við-
burði kvöldsins.
01.00 Áætluð dagskrárlok.
Stöð 2
Miðvikudagur 5. ágúst
16.45 Nágrannar.
17.30 Gilbert og Júlía.
17.35 Biblíusögur.
18.00 Umhverfis jörðina.
(Around the World with
Willy Fog.)
18.30 Nýmeti.
19.19 19:19.
20.15 Bílasport.
20.50 Skólalíf í Ölpunum:
(Alphine Academy.)
21.45 Ógnir um óttubil.
(Midnight Caller.)
22.35 Tíska.
23.00 í ljósaskiptunum.
(Twilight Zone.)
23.25 Peter Gunn.
Ævintýri leynilögreglu-
mannsins Peter Gunn hófust
í samnefndum sjónvarps-
þáttum vestanhafs á sjötta
áratugnum en þetta er sjón-
varpsmynd sem gerð var
árið 1989 um þennan
vinsæla einkaspæjara.
Aðalhlutverk: Peter Strauss,
Jennifer Edwards, Barbara
Williams og Charles Cioffi.
Bönnuð börnum.
00.55 Dagskrárlok.
Rás 1
Miðvikudagur 5. ágúst
MORGUNÚTVARP
KL. 06.45-09.00
06.45 Veðurfregnir • Bæn.
07.00 Fréttir.
07.03 Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og
Trausti Þór Sverrisson.
7.30 Fréttayfirlit.
7.31 Fréttir á ensku.
Heimsbyggð.
Jón Ormur Halldórsson.
Bókmenntapistill Jóns
Stefánssonar.
08.00 Fréttir.
08.10 Að utan.
08.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttayfirlit.
8.40 Heimshorn.
ÁRDEGISÚTVARP
KL. 09.00-12.00
09.00 Fréttir.
09.03 Laufskálinn.
Umsjón: Karl E. Pálsson.
(Frá Akureyri.)
09.45 Segðu mér sögu,
„Milla“ eftir Selmu
Lagerlöf.
Elísabet Brekkan les seinni
hluta.
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi
með Halldóru Bjömsdóttur.
10.10 Veðurfregnir.
10.20 Árdegistónar.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið í nærmynd.
11.53 Dagbókin.
HÁDEGISÚTVARP
KL. 12.00-13.05
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Auðlindin.
12.55 Dánarfregnir • Auglýs-
ingar.
MIÐDEGISÚTVARP
KL. 13.05-16.00
13.05 Hádegisleikrit Útvarps-
leikhússins, „Frost á stöku
stað„ eftir R. D. Wingfield.
2. þáttur af 9.
13.15 Út í loftið.
Umsjón: Önundur
Björnsson.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan: „Vetrar-
böm" eftir Deu Trier Mörk.
Nína Björk Ámadóttir les (2).
14.30 Fiðlusónata í h-moll eft-
ir Richard Strauss.
15.00 Fréttir.
15.03 í fáum dráttum.
SÍÐDEGISÚTVARP
KL. 16.00-19.00
16.00 Fréttir.
16.05 Sumargaman.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Lög frá ýmsum löndum.
16.30 í dagsins önn - Gamlar
konur.
Umsjón: Lilja Guðmunds-
dóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Sólstafir.
Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarþel.
Svanhildur Óskarsdóttir les
Hrafnkels sögu Freysgoða
(2).
18.30 Auglýsingar • Dánar-
fregnir.
18.45 Veðurfregnir ■ Auglýs-
ingar.
KVÖLDÚTVARP
KL. 19.00-01.00
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Kviksjá.
20.00 Hljóðverið.
20.30 Hlutverk söngsins.
Umsjón: Sigríður Alberts-
dóttir.
21.00 Frá tónskáldaþinginu í
París í vor.
22.00 Fréttir.
Heimsbyggð, endurtekin úr
Morgunþætti.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins ■ Dagskrá
morgundagsins.
22.20 Pálína með prikið.
Umsjón: Anna Pálína Árna-
dóttir.
23.10 EftUviU...
Umsjón: Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson.
24.00 Fréttir.
00.10 Sólstafir.
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Rás 2
Miðvikudagur 5. ágúst
07.03 Morgunútvarpið -
Vaknað til lífsins.
Eiríkur Hjálmarsson og
Sigurður Þór Salvarsson
hefja daginn með hlustend-
um.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur
áfram.
09.03 9-fjögur.
Umsjón: Þorgeir Ástvalds-
son, Magnús R. Einarsson,
Margrét Blöndal og Snorri
Sturluson.
Sagan á bak við lagið.
Furðufregnir utan úr hinum
stóra heimi.
- Ferðalagið, ferðagetraun,
ferðaráðgjöf.
Sigmar B. Hauksson.
Limra dagsins.
Afmæliskveðjur. Síminn er
91-687123.
12.00 Fréttayfirlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 9-fjögur.
- heldur áfram.
12.45 Fréttahaukur dagsins
spurður út úr.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmála-
útvarp og fróttir.
Starfsmenn dægurmála-
útvarpsins og fréttaritarar
heima og erlendis rekja stór
og smá mál dagsins.
16.50 Ólympíupistill.
17.00 Fróttir.
- Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfund-
ur í beinni útsendingu.
Sigurður G. Tómasson og
Stefán Jón Hafstein sitja við
símann, sem er 91-686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ekki fréttir.
19.32 Út um allt!
Kvölddagskrá Rásar 2 fyrir
ferðamenn og útiverufólk
sem vill fylgjast með.
22.10 Landið og miðin.
Umsjón: Sigurður Pétur
Harðarsson.
00.10 í háttinn.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
leikur ljúfa kvöldtónlist.
01.00 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Fróttir kl. 7,7.30,8,8.30,9,10,
11,12,12.20,14,15,16,17,18,
19, 22 og 24.
Næturútvarpið
01.00 Tengja.
02.00 Fróttir.
02.05 Tengja.
03.00 í dagsins önn.
03.30 Glefsur.
04.00 Næturlög.
04.30 Veðurfregnir.
- Næturlögin halda áfram.
05.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
05.05 Landið og miðin.
06.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
06.01 Morguntónar.
Ríkisútvarpið á
Akureyri
Miðvikudagur 5. ágúst
08.10-08.30 Útvarp Norður-
lands.
18.03-19.00 Útvarp Norður-
lands.
Bylgjan
Miðvikudagur 5. ágúst
07.00 Fróttir.
07.05 Morgunútvarp
Bylgjunnar.
Eiríkur Jónsson og Guðrún
Þóra.
Fréttayfirlit klukkan 7.30.
08.00 Fréttir.
08.05 Morgunútvarp
Bylgjunnar.
Eiríkur Jónsson og Guðrún
Þóra.
Fréttayfirlit klukkan 8.30.
09.00 Fréttir.
09.05 Tveir með öilu á
Bylgjunni.
Jón Axel Ólafsson og
Gunnlaugur Helgason eru
þekktir fyrir allt annað en
lognmollu.
12.00 Hádegisfróttir.
12.15 Rokk og rólegheit.
Anna Björk Birgisdóttir.
13.00 íþróttafróttir eitt.
Allt það helsta úr íþrótta-
heiminum frá íþróttadeild
Bylgjunnar og Stöðvar 2.
13.05 Rokk og rólegheit
á Bylgjunni í bland við létt
spjall um daginn og veginn.
14.00 Rokk og rólegheit.
Bibba lætur í sér heyra.
16.05 Reykjavík síðdegis.
Steingrímur Ólafsson og
Hallgrímur Thorsteinsson
fjalla um málefni líðandi
stundar og hjá þeim eru
engar kýr heilagar.
17.00 Fróttir.
17.15 Reykjavík síðdegis.
Þjóðlífið og dægurmálin í
bland við góða tónlist og
skemmtilegt spjall.
18.00 Fróttir.
18.05 Landssíminn.
Bjami Dagur Jónsson tekur
púlsinn á mannlífinu og ræð-
ir við hlustendur um það
sem er þeim efst í huga.
Síminn er 671111.
19.00 Flóamarkaður
Bylgjunnar.
19.19 Fréttir frá fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
20.00 Kristófer Helgason.
Léttir og ljúfir tónar í bland
við óskalög. Síminn er
671111.
00.00 Næturvaktin.
Hljóðbylgjan
Miðvikudagur 5. ágúst
17.00-19.00 Pálmi Guðmunds-
son leikur gæðatónlist fyrir
alla. Fréttir frá fréttastofu
Bylgjunnar/Stöðvar 2 kl.
18.00. Tími tækifæranna kl.
18.30.
Þú hringir í síma 27711 og
nefnir það sem þú vilt selja
eða óskar eftir. Þetta er
ókeypis þjónusta fyrir hlust-
endur Hljóðbylgjunnar.
# Gullglampi í
augum
Þegar þetta er skrifað eru
ísiendingar ekki búnir að
vinna Svía í handbolta og því
síður orðnir Ólympíumeistar-
ar, en framhaldið er bara
formsatriði. Á einhverri
útvarpsstöðinni var það
margtuggið að íslendingar
væru búnir að tryggja sér
verðlaunasæti og ekki fer
maður að rengja það þótt
skynsamleg rök segi að
landsliðið geti verið fullsæmt
af fjórða sætinu, sem er rök-
réttasta niðurstaðan. Það
væri besti árangur okkar í
handbolta til þessa og fræki-
legri frammistaða en aðrir
Ólympíufarar hafa sýnt í
Barcelona þótt ekki sé öll
nótt úti enn. Vonandi er allt
tal um mikinn hjartslátt, vit-
laust tempó, erfiða setningar-
athöfn, of blautt vatn í sund-
lauginni, vondan mat, ranga
atrennu, hliðarvind og þess
háttar úr sögunni. Við þurfum
ekki að ætlast til að keppend-
ur okkar nái sínu besta eða
bæti sig einmitt á Ólympíu-
leikunum, þótt æfingar miðist
reyndar við það að þeir séu í
toppformi á slíkum mótum.
# Vænlegast að
æfa ekki of stíft
Það er þetta með æfinga-
prógrammið. íslenska hand-
boltalandsliðið kom bakdyra-
megin inn á Ólympíuleikana
og æfði kannski ekki mark-
visst fyrir þá. Danirnir slógu í
gegn á Evrópumótinu í knatt-
spyrnu, sólbrenndir og
æfingalausir. Hugsanlega er
það vænlegast til árangurs
að æfa ekki of stíft fyrir stór-
mót og búast ekki við of
miklu. Ef getan er fyrir hendi
kemur hún helst í Ijós þegar
viðkomandi er ekki undir
miklu líkamlegu, andlegu og
félagslegu álagi. Með þetta í
huga ætti að henda ströngum
æfingaprógrömmum og
senda keppnisfólkið á sólar-
strendur fyrir stórmót.
# Gömlu brýnin
Sjónvarpið á vissulega hrós
skilið fyrir að sinna Ólympíu-
leikunum vel og þarf ekki að
hafa fleiri orð um það. Ritara
S&S þykir líka ástæða til að
hrósa Stöð 2 fyrir beina
útsendingu frá tónleikum
hljómsveitarinnar Genesis sl.
sunnudagskvöld. Gömlu
brýnin eru enn i fullu fjöri og
þeir Collins, Banks, Ruther-
ford og hjálparkokkar þeirra
fóru á kostum enda miklir
sniilingar. Það er á stundum
sem þessum sem manni þyk-
ir vænt um myndlykilinn, en
þær stundir hafa reyndar ver-
ið fáar í sumar.