Dagur - 11.08.1992, Side 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 11. ágúst 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25689
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Hrun kjamaflölskyldunnar
Á síðustu tuttugu árum hefur orðið veruleg breyting á
íslensku kjarnafjölskyldunni og tala tölurnar sínu
máli. Hlutfall þeirra sem eru í hjónabandi hefur lækkað
úr 85,8% í 72,5% á árunum 1971-1991 og hlutfall
þeirra sem eru í óvígðri sambúð eða einstæðir hefur
aukist úr tæpum 13% í rúm 24%. Þetta kemur fram í
skýrslu frá Landlæknisembættinu sem kynnt var á
ráðstefnunni „Börn og barnavernd“ nýverið.
Fyrir tuttugu árum var hlutfall foreldra í hjónabandi
með börn 58,2% en á árinu 1991 var það komið niður
í 37,7%. Fækkunin nemur rúmum 20%. Á sama tíma
hefur foreldrum í óvígðri sambúð fjölgað, svo og ein-
stæðum foreldrum og fólki í barnlausu hjónabandi.
Landlæknir túlkar breytingarnar þannig að nú búi
mörg börn í mun ótraustara umhverfi en áður.
Allt ber að sama brunni. Giftingum hefur fækkað og
skilnuðum fjölgað. Helmingur lögskilnaða verður hjá
hjónum 30 ára og yngri og hefur tíðnin aukist verulega
hjá unga fólkinu á síðustu áratugum. í skýrslu Land-
læknisembættisins er bent á að þeir sem lenda í hjóna-
skilnaði eiga oft við mun meiri andlega og líkamlega
vanheilsu að stríða en þeir sem lifa í farsælu hjóna-
bandi. í þessu sambandi er talað um kvíða, slæma
geðheilsu, vímuefnanotkun, sjálfsvígstilraunir, slys,
sjúkdóma á borð við hjarta- og æðasjúkdóma og hærri
dánartíðni almennt. Samverkandi orsakir eru raktar til
fjárhagsvanda, einangrunar, streitu, sálrænna erfið-
leika, reykinga og áfengisneyslu.
Undirrót hjónaskilnaðar getur verið margvísleg og
geta flestir bent á réttlætanlegar ástæður fyrir lög-
skilnaði. En hvers vegna skyldi giftingartíðni hafa
lækkað? í skýrslunni er aðeins getið um að skattbreyt-
ingar hafi haft þau áhrif að sumir kjósi að búa í óvígðri
sambúð frekar en í hjónabandi. Aðrar félagslegar
ástæður koma þó til eins og séra Þórhallur Höskulds-
son, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, hefur oft bent á.
Aðstöðumunur giftra og einstæðra hefur gert það að
verkum að fólk reynir að spila á kerfið til að koma ár
sinni betur fyrir borð. Eitt sinn tíðkuðust „spari-
merkjagiftingar" en nú reynir fólk í sambúð að skrá
sig sem einstaklinga ef það kemur betur út og á það
ekki síst við um námsmenn.
„Fólk hefur fleiri möguleika til að bjarga sér ef það
gefur sig upp í óvígðri sambúð eða hreinlega utan
sambúðar," sagði séra Þórhallur í frétt Dags sl. föstu-
dag og benti á að möguleikar námsmanna á námsláni
væru oft meiri ef þeir væru utan hjónabands. „Lög
leyfa að fólk haldi lögheimili sínu þrátt fyrir tíma-
bundna dvöl vegna náms og ég vil ekki kalla þetta að
leikið sé á kerfið. Ábyrgðartilfinningin gagnvart barni
á framfæri vegur þungt og því áfellist ég ekki að fólk
bjargi sér á þennan hátt við erfiðar aðstæður," sagði
séra Þórhallur ennfremur.
Mitt í þessum hráskinnsleik, upplausn hjónabands-
ins og óhagkvæmni, standa saklaus börnin berskjöld-
uð og teygja sig eftir trausti og hlýju. Það er hryggileg
staðreynd að börnin búa við verri aðstæður en áður í
okkar auðuga þjóðfélagi. SS
„Hvaða önnur lög mega erlendir ferðamenn brjóta án þess að við því verði amast?“
Ferðaþjónusta:
Mynd: Golli
Erlendum ferðamönnum
heimilt að bijóta íslensk lög!
15. júlí s.l. birtist í Degi hreint út
sagt stórkostleg grein um brot
erlendra ferðamanna á íslenskum
lögum. Greininni fylgdi mynd af
Bedford vörubifreið sem tjaldað
liafði verið yfir með segli og á
pallinum hafði haganlega verið
komið fyrir bekkjum meðfram
hliðunum þar sem ferðamenn
sátu þétt saman.
í greininni kom fram að bifreið
þessi þverbrýtur íslensk lög um
fólksflutninga. Samkvæmt viðtöl-
um blaðamanns við embættis-
menn hjá tollgæslu, lögreglu og
Bifreiðaskoðun, virðist ekki vera
til staðar áhugi á að eiga neitt við
erlenda ferðamenn. Hver um sig
vísaði málinu frá sér, lögreglan
vísaði á tollgæslu, tollgæslan á
Bifreiðaskoðun og Bifreiðaskoð-
un svo aftur á lögregluna. Jóhann
Freyr Aðalsteinsson, deildar-
stjóri tollgæslunnar á Seyðisfirði,
sagði umræddan Bedfordbíl ekki
hafa komið með fólk innanborðs
og því „stoppum [við] auðvitað
engan fyrir brot sem hann kann
hugsanlega að fremja einhvern-
tíma í framtíðinni." Með öðrum
orðum; bekkirnir aftan á palli
bílsins gáfu tollgæslumönnum
ekki neina hugmynd um hvað hér
væri á ferðinni. Væntanlega getur
farþegalaus rúta farið inn í landið
án þess að lögum og reglum um
öryggi hópferðabíla sé beitt þar
sem ekki verður sannanlega séð
að farþegi eigi eftir að sitja í við-
komandi bíl!
„Lögreglan á Akureyri sagðist
ekki sjá ástæðu til að aðhafast í
málinu þar sem bifreiðinni hefði
verið hleypt inn í landið og hefði
framvísað öllum pappírum,“ eins
og segir í greininni. En sætust eru
þó ummæli Eyþórs Þorbergsson-
ar fulltrúa sýslumanns á Akureyri
þegar hann segir: „Við förum
ekki að ráðast inn á saklausa
útlendinga sem eru að ferðast hér
um landið."
Nú vill svo til að þetta er ekki
eina dæmið um íslenska em-
bættismenn sem veigra sér við að
refsa útlendingum fyrir brot á
íslenskum lögum. Á hverju sumri
koma upp dæmi um skýlaus lög-
brot sem oft á tíðum eru kærð en
með sorglega dræmum undirtekt-
um yfirvalda sem virðast mis-
skilja hlutverk sitt þannig að það
heyri undir lög um ókurteisi að
abbast svona upp á saklausa
útlendinga þótt þeir brjóti lítil-
lega af sér.
Og nú er þarft að spyrja yfir-
völd: Hvaða önnur lög mega er-
lendir ferðamenn brjóta án þess
að yfir því verði amast? Má til
dæmis ofangreindur ökumaður
keyra ljóslaus á hundraðogeitt-
hvað kílómetra hraða á vinstri
akrein? Eða spæna upp við-
kvæman gróður hálendisins með
akstri utan vega? Það er jú búið
að hleypa honum inn í landið og
framvísa öllum pappírum!!!
Mega átta farþegar sitja í fimm
manna fólksbfl sem kemur með
sama hætti inn í landið? Hvar
liggja mörkin? Hverskonar papp-
írar eru eiginlega gefnir út af toll-
gæslunni á Seyðisfirði?
Nú má einnig spyrja hvort
íslenskir vörubílstjórar fái ekki
að sitja við sama borð? Er stjórn-
völdum stætt á því að neita
mönnum að tjalda yfir vörubíls-
pallinn sinn og fara í útgerð?
Islendingar hljóta að geta litið
Við Skipatangabryggju liggja
mörg stálskip sem virðast vera
' komin úr notkun. Venja hefur verið
að koma slíkum skipum í verð
erlendis. Nokkur kostnaður er því
samfara að koma þeim yfir hafið.
Ég var að hugleiða það, þar sem ég
stóð og horfði á þessi skip, hvort
þarna væru atvinnutækifæri, sem
mikill skortur er á nú sem stendur.
Slippstöðin býr yfír kunnáttu og
aðstöðu til þess að taka sundur
skip, og hana vantar verkefni.
Hér á Akureyri er nokkur floti
vörubíla, sem vantar verkefni hluta
úr árinu. I þessum hugleiðingum
mínum geri ég ráð fyrir að Stál-
bræðslan taki til starfa aftur. Ég get
ekki gert ráð fyrir þeirri skamm-
sýni að það verði ekki. Atvinnu-
málanefnd er starfandi hér í bæ.
Ég veit ekki hvað er hennar verk-
svið, en ég geri ráð fyrir að það sé
eins og nafnið bendir til.
Því geri ég ráð fyrir, að atvinnu-
málanefnd geti haft forgöngu um
ámóta saklaust út sem ferðamenn
og þeir sem erlendis eru fæddir
og þar með engin ástæða til að
„ráðst inn á“ þá.
Það hlýtur að vera eðlileg
krafa að viðkomandi stjórnvöld
geri hreint fyrir sínum dyrum og
útskýri hversvegna þau samþykki
lögbrot erlendra ferðamanna. Er
hér um að ræða sérstaka gest-
risni, óttablandna virðingu eða
skort á áhuga í starfi? Við lestur
greinarinnar í Degi 15. júlí s.l.
læðist að manni sá grunur að
bókin um litlu gulu hænuna
kunni að vera skyldulesning
starfsmanna tollgæslu, lögreglu
og Bifreiðaskoðunar.
athugun á þessu máli. Ég geri mér
grein fyrir að ýmislegt er í vegi
fyrir þessari framkvæmd, t.d.
reglugerðarákvæði ýmisskonar.
Það eru slfk ákvæði sem gera eig-
endum skylt, að geyma þessi skip
og hafa af þeim kostnað svo sem
hafnargjöld o.fl. Það þarf að
hyggja að þessu máli, svo það liggi
ljóst fyrir jtegar þessi skip losna úr
reglugerðarkvínni.
Það að Slippstöðin taki þessi
skip í sundur og vörubílar flytji
stálið suður í bræðsluna var sú
hugmynd sem kviknaði þar sem ég
stóð á bryggjunni. Það eru ýmsir
fjármálapóstar í þessu, sem þarf að
athuga vel, t.d innkaupsverð á hrá-
efni, sem bræðslan þarf að flytja til
landsins, þegar það innlenda þrýt-
ur. Þessi hugmynd er kannski ekki
raunhæf en hún skaðar engan. Það
er eitthvað skrýtið ef aðrar þjóðir
geta hagnýtt sér þetta en við ekki.
Brynjólfur Brynjólfsson
Höfundur er matreiðslumeistari.
Með kveðju,
Páll Þór Jónsson.
Atvinnutækifæri