Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 5

Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 11. ágúst 1992 - DAGUR - 5 Lesendahornið Yfirborðsmerkingar gatna á Akureyri: Óskiljanlegur trassaskapur Vegfarandi hringdi: „Þegar ég ók um götur Akureyr- ar í júnímánuði komu orð eins og skömm, skandall, hneyksli og svívirða upp í huga mér. Leið nú og beið og loks rann af mér reið- in. Fór ég að bardúsa við hitt og þetta og leiddi ekki hugann að þessu fyrr en í lok júlí og byrjun ágúst. Gaus þá upp allur reiði- lesturinn og magnaðist mjög. Orðin sem ég notaði nú eru ekki prenthæf. En það þýðir ekkert að sitja úti í horni og krossbölva og ákvað ég því að senda Degi mín- um nokkrar línur. Tilefnið er ef til vill ekki stórbrotið, en getur verið alvarlegt þegar óhöpp verða. Svo ég komi mér að efninu er ég að tala um yfirborðsmerkingar gatna á Akureyri. Mér fannst skiljanlegt að þær væru máðar og jafnvel afmáðar í maí en bjóst við úrbótum strax í byrjun júní. En ég þurfti að bíða lengi og bíð Óánægð með Sirkus Arena Öskureið inóðir hringdi. „Dóttir mín fór á fyrstu sýningu hjá Sirkus Arena á Akureyri á dögunum. Hún hafði hlakkað til sýningarinnar í margar vikur, einkum þó að sjá sæljónin. Það voru hins vegar engin sæljón sýnd. Þar að auki keypti hún miða í stúku, sem kostaði 800 krónur. Hún fékk hins vegar ekki stúkusæti og var gert að sitja á grasinu. Dóttir mín og vinkona hennar kvörtuðu við einhverja konu þarna og hún gaf þeim kók í staðinn. í leiðinni vil ég geta þess að svokallaður „púðurís" var seldur í sirkustjaldinu á 200 krónur og kókið var selt á sama verði. A sýningum Sirkus Arena í Reykj- avík kostaði „púðurísinn“ hins vegar 100 krónur og kókið aðrar 100 krónur. Þetta er fáránleg verðlagning." Eru laxveiðiámar „sveitaklóak“ ? Brynjólfur Brynjólfsson hringdi. „Eg vil varpa fram þeirri spurningu hvort þaö geti verið að margar af stóru laxveiðián- um séu „sveitaklóak“? Maður veit að svo er. Úrgangi er hleypt út í skurði og þaðan í árnar. Við erurn ekki komnir lengra í umhverfismálum cn þetta.“ Pennavinir Graeme Tagg frá Englandi óskar eftir pennavinum á ís- landi, körlum og konum á aldrinum 16-22 ára. Hann hef- ur áhuga á íþróttum, ferðalög- um, mannlegum samskiptum og að lila lífinu. Honum finnst mikið til okkar fallega lands koma. Utanáskriftin er: Mr. Graeme Tagg 28 Sylvia Avenue, Hatch End Pinner Middlesex HAS4QE England. enn eftir að sumar götur verði almennilega merktar. Þetta er ekki bara innihalds- laust nöldur. Lítum á gatnamótin Glerárgata-Kaupvangsstræti. Bíl- stjóri sem ekur suður Glerár- götu á um þrjár leiðir að velja á þessum gatnamótum, beint áfram og til beggja hliða. Akreinin lengst til hægri er aðeins fyrir þá sem beygja til hægri enda er sér- stök ör á umferðarljósunum fyrir þessa akrein. í miðjunni er ak- rein fyrir þá sem fara beint áfram. Nú hefur það viljað brenna við með utanbæjarmenn og óvana ökumenn að þeir planta sér á hægri akreinina þótt þeir ætli beint áfram og liggur þá oft við árekstri við bílinn á mið- akreininni. Svona gekk þetta í allt sumar vegna þess að yfir- borðsmerkingar vantaði. Svipaðar aðstæður og jafnvel enn hættulegri hafa skapast á gatnamótunum Þingvallastræti- Mýrarvegur. Þeir sem fara upp Þingvallastræti standa frammi fyrir tveimur kostum á gatna- mótunum. Hægri akreinin er fyr- ir þá sem halda áfram uppeftir eða beygja til hægri. Vinstri ak- reinin er fyrir þá sem beygja til vinstri. NB! Vinstri akreinin er ekki ætluð til framúraksturs á gatnamótunum. Þetta vita ekki allir og því er nauðsynlegt að merkja göturnar. Svona mætti halda lengi áfram, taka fyrir hin ýmsu gatnamót og ekki má heldur gleyma gang- brautunum. Þær eru til einskis nýtar ef ekki eru hvítmáluð strik yfir götuna. Bílstjórar taka ekk- ert mark á einhverjum staurum sem gefa til kynna að gangbraut sé framundan. Þeir þurfa að sjá þær með eigin augum. Af fákunnáttu og lítillæti vil ég í fyllstu auðmýkt spyrja bæjar- yfirvöld hvers vegna ekki sé farið í yfirborðsmerkingar gatna fyrr en undir haust. Mér finnst þetta óskiljanlegur trassaskapur. Myrkraverk Degi hefur borisf bréf, dagsett 20. júlí, undir fyrirsögninni „Myrkraverk í miðbænum“. Höfundarnir tveir kjósa að birta það undir dulnefni: „Svo vildi til síðastliðið föstu- dagskvöld að við félagarnir urð- um vitni að smánarlegum atburði sem okkur þykir hafa varpað dökkum skugga á ljóma bæjar- lífsins. Við vorum að keyra í hægðum okkar í miðbænum þeg- ar við sáum lögregluna fram- kvæma fólskulega handtöku á í miðbænum leðurklæddum herramanni sen. hefur vakið athygli og aðdáun ungmenna um land allt með prúðmannlegri og skemmtilegri framkomu í hvívetna. Við viljum lýsa hneykslan okkar á því að geigvænlegir atburðir sem þessi geti átt sér stað í hinum sann- kristna og löghlýðna bæjarfélagi voru. Ennfremur er það einlæg von okkar að lögreglan sjái að sér og standi ekki að ofsóknum af þessu tagi í framtíðinni. Með kveðju, bæjarbúar." Engimi Ég var að koma úr ferðalagi. Á húsinu mínu eru tvennar útidyr, enda tvíbýlishús. Það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég renndi í hlað var að augljóslega var enginn íbúi hússins heima. Það var nefnilega enginn bíll framan við liúsið og það sem meira er: dag- blöðin stóðu út úr bréfalúgum beggja útidyrahurðanna. Þetta kalla ég að bjóða hætt- unni heim, því vart er hægt að heima! hugsa sér augljósari hátt til að auglýsa að enginn sé heima. Óvandað fólk gæti hæglega tekið það sem heimboð, ef því er að skipta! Áð mínu áliti ætti að krefjast þess af öllu blaðburðarfólki, börnum sem fullorðum, að það ýti blöðunum alla leið inn úr lúg- unni. Vinsamlegast takið þetta til athugunar, gott fólk. Kona á Eyrinni. Þessar ungu blómarósir héldu tombólu nú á dögunum og ætla að gefa þær 9800 krónur sem söfnuðust til styrktar Sophiu Hansen. Þær heita Sigrún Björk Bjarkadóttir, Heiðdís Dröfn Bjarkadóttir og Ása Sigríður Hallsdóttir. Dagur tekur við peningunum og kemur þeim til skila. Hafi stúlkurnar þökk fyrir framlagið. VINNINGASKRÁ NISSAN PATROL JEPPI KR 3.300.OOO.- 721334 Ferðavinningar Kr. 30.000 16204 7076* 12203* 304074 457S84 54706* 17524 7344* 131484 31564* 466224 57461V 2023* 87184 14272V 33932* 483694 59265V 22704 10063* 21216* 34089* 48842* 59695* 2370* 104754 224414 34399* 50108* 60133* 2443* 10808V 22991* 40349* 50142V 60597* 2508* 117864 250104 40622* 50550* 61674* 3651* 118204 28983* 42384* 508004 67855* 4145V 12070* 29436V 43753V 51163* 70441V 60474 12139V 29716V 44133V 533184 76606* Feröavinningar Kr. 20.000 3436* 1£7£1*. £1£1£* 34839* 40679* 7£44* 13467« £3£31* 37435¥ 40854¥ 9880¥ 13936¥ £5£79* 38106V 4£801* 1093£¥ 175174 30685V 385304 518134 1£36£* £1£054 307£54 393£14 5£61£¥ Húsbúnaðarvinningar Kr. 12.000 46¥ 3897» 10834* 16999» 33455* 310834 38908* 485674 549674 64758» lllt 4£66* 10858* 17374* 33576* 31195* 39478* 493664 554664 65340* 431* 47£7* 110104 177134 33737* 314614 40013* 49390* 555394 658414 462* 48034 11019* 18336* 34738* 315084 40514+ 49699» 55614* 65857» 4664 5641* 11035* 18396* £5145* 31538* 407164 49856* 55673* 65895* 5514 61584 11148* 18531* 35366* 31990* 40846» 50001* 56857* 67366» 558* 6316* 11303» 18598» £5386» 33041» 40878* 50037» 57347* 67393» 5914 6488* 11415* 18837* 35488* 33311» 41163* 503344 57731* 680584 750* 6440* 11440* 19551» 356464 33330* 41305* 506474 59151* 68405* 77 £9 6739* 11574* 30099* 36331* 33479* 41401* 50763* 60166» 68936» 851* 7919* 11698* 30303* 36809» 33068* 41414* 50840* 60538» 68943* 1184V 8064* 13139* 303134 37137* 33113»' 41431* 51135* 60635* 690804 1355* 8458* 13313* £06734 37183* 33568* 41793* 51150* 60853* 73668* 1464V 88784 13400* 31154* 37710* 33633» 43358» 51189» 610434 73673» 16814 9403* 18454» £14384 37741* 33933* 43565* 51197» 61053* 75610* 1813* 9499* 14383* 316744 £79684 34310» 43803* 51540* 61631* 76010* 18884 97374 14404* 31833* 38331* 346094 44363» 516434 63194» 76154* 19184 10066* 14733» 31908» 38405* 35355* 44433* 53447* 635984 761974 19894 108564 15631* 33390» 39058* 35336* 45737* 53695* 638894 77743» £765* 105054 16008* 33300» 30046* 35633» 46033» 53696* 639064 3174» 10531* 16086* 33436* 30169* 37535* 463334 53617» 63090* 34£9* 10581* 164144 33544* 30303» 37809* 470414 54115» 64191* 38434 10653» 16700* 33370* 31014* 38874* 47333* 54555» 64357*

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.