Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 8

Dagur - 11.08.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 11. ágúst 1992 Þriðjudagur 11. ágúst 1992 - DAGUR - 9 Íþróttir 1. deild kvenna Staðan: UBK 7 6-1-0 32: 4 19 ÍA 8 6-1-1 27: 6 19 Valur 8 6-0-2 21: 5 18 Þróttur N. 9 4-0-5 19:31 12 Stjarnan 6 3-1-2 14: 6 10 KR 7 1-1-5 8:22 4 Þór 7 1-0-6 2:21 3 Höttur 8 1-0-7 5:33 3 2. deild kvenna B Úrslit: KA-Leiftur 12:0 Dalvík-KS 0:1 KS-TindastóIl 1:1 KA 5 5-0-0 34: 2 14 KS 6 3-1-2 11: 7 10 Dalvík 5 2-0-3 5: 7 6 Tindastóll 5 2-1-2 8: 9 4 Leiftur 5 0-0-5 2:35 0 2. deild karla 12. umferð: Fylkir-Stjarnan 3:2 BÍ-Víðir 2:0 Þróttur R.-Leiftur 3:0 Selfoss-Grindavík 0:6 ÍBK-ÍR Staðan: 2:0 Fylkir 12 10-0-2 28:11 30 ÍBK 12 8-3-125:11 27 Grindavík 12 6-1-5 23:17 19 Þróttur R. 12 6-1-5 18:20 19 Leiftur 12 4-3-5 19:15 15 Stjarnan 12 4-3-5 17:1615 ÍR 12 3-5-4 12:18 14 BÍ 12 3-4-5 16:25 13 Víðir 12 2-4-6 11:16 10 Selfoss Markahæstir: 12 0-4-8 10:32 4 Þorlákur Árnason, Leiftri 13 Óli Þór Magnússon, ÍBK 11 Indriði Einarsson, Fylki 8 Kristinn Tómasson, Fylki 8 Þórður B. Bogason, Grindavík 8 3. deild karla 13. umferð: Völsungur-Magni 2:2 Dalvík-Tindastóll 2:3 Haukar-KS 3:1 Skallagrímur-Grótta 4:2 Ægir-Þróttur N. 3:2 Staðan: TindastóII 13 12-1- 0 43:16 37 Haukar 13 6-4- 3 27:21 22 Grótta 13 6-4- 3 18:16 22 Þróttur N. 12 5-4- 3 29:24 19 Völsungur 13 4-4- 5 17:23 16 Skallagrímur 13 4-3- 6 29:26 15 Magni 13 4-3- 6 19:16 15 Dalvík 13 4-1- 8 22:25 13 Ægir 13 3-4- 5 14:26 13 KS 13 3-0-10 15:38 9 Markahæstir: Bjarki Pétursson, Tindastóli 15 Sverrir Sverrisson, Tindastóli 11 Kristján Brooks, Gróttu 10 Goran Micic, Þrótti N 9 Kristján Svavarsson, Þrótti N. 7 Guðmundur V. Sigurðsson, Haukum 7 4. deild karla 9. umferð: Hvöt-HSÞb 3:0 Þrynrur-Neisti 0:6 SM-Kormákur 0:2 Staðan: Hvöt 9 9-0-0 31: 7 27 Kormákur 9 6-1-2 22: 7 19 Neisti 9 4-0-5 19:16 12 HSÞb 9 5-0-4 21:21 12 SM 9 1-2-6 12:22 5 Þrymur 9 1-1-7 4:37 4 Markahæstir: Sigurður Ágústsson, Hvöt 8 Rúnar Guðmundsson, Kurmáki 7 Ásgeir Valgarðsson, Hvöt 7 Albert Jónsson, Kormáki 6 Knattspyrna, 3. deild: Allt í hnút á botninum - Tindastóll þarf eitt stig til að gulltryggja sæti í 2. deild Heil umferð var leikin í 3. deildinni í knattspyrnu um helgina og eru línur nú mikið farnar að skýrast. Tindastóll hélt sigurgöngu sinni áfram og hefur nú nær tryggt sér sæti í 2. deild að ári. Liðið vann Dalvík 2:3. Öll Iið deildarinnar nema TindastóII geta fræðilega fallið, slík er baráttan í deild- inni. Völsungur og Magni gerðu jafntefli 2:2 á Húsavík, KS tapaði fyrir Haukum á Siglufírði, 1:3, Ægir vann Þrótt N.,3:2 og Skallagrímur vann Gróttu, 4:2. „Þetta var ákaflega kaflaskiptur leikur og ég vil meina að úrslitin hafi verið sanngjörn," sagði Nói Björnsson, þjálfari Magna. „Við byrjuðum á því að skora og eftir það dettur leikur okkar talsvert niður. Þeir jöfnuðu og komust yfir á fimm mínútna kafla fyrir leikhlé," sagði Nói. „Þetta var eitt lítið stig sem við náðum í um helgina. Það var of lítið því við áttum að vera búnir að kiára þetta í fyrri hálfleik," sagði Björn Olgeirsson, þjálfari Völsungs, en bætti því þó við að líklega hefðu úrslitin verið sanngjörn. „Fyrst okkur tókst ekki að skora meira hljóta úrslit- in að teljast sanngjörn." Eins og fram kom hjá Nóa voru Magnamenn á undan að skora. Komust í 0:1 snemma í hálfleiknum en Völsungar svör- uðu með tveimur mörkum á stuttum kafla rétt fyrir leikhlé. Magnamenn fengu svo vfti á síð- ustu mínútum leiksins og jöfn- uðu. Mörk Völsungs gerðu Jónas Grani Garðarsson og Hilmar Þór Hákonarson en mörk Magna gerðu Ingólfur Ásgeirsson og Magnús Helgason. Tindastóll í 2. deild? „Þetta var baráttuleikur. Þeir höfðu yfirhöndina óhætt að segja allan tímann en við vörðumst vel,“ sagði Guðjón Guðmunds- son, þjálfari Dalvíkinga, eftir leikinn. „Sigur þeirra var sann- gjarn en bæði lið léku nokkuð vel,“ sagði Guðjón. Staðan í leikhléi var 0:0 og Dalvíkingar skoruðu fyrsta markið þegar um 15 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Dvöl Adams í Paradís var þó fremur skammvinn því Stólarnir skoruðu 3 mörk á 10 mínútna kafla og gerðu út um leikinn. Heimamenn minnkuðu svo mun- inn á síðustu mínútunni en sigur- inn var aldrei í hættu. Bæði lið fengu nokkuð af færum og hefðu mörkin allt eins getað orðið fleiri. Með sigrinum um helgina má segja að Tindastóll hafi tryggt sér sæti í 2. deild að ári. Nú þegar fimm umferðir eru eftir, og því fimmtán stig eftir í pottinum, hafa Stólarnir fimmtán stiga for- skot á Gróttu og Hauka og mun betra markahlutfall en þurfa eitt stig enn til þess að gulltryggja sig. Miðað við það sem á undan er gengið ætti það ekki að verða erfitt. KS enn neðst „Þetta var mjög ósanngjarnt. Við lékum okkar besta leik í langan tíma og þeir áttu alls ekki skilið að vinna,“ sagði Hafþór Kol- beinsson, leikmaður KS. „Það voru dæmd af okkur tvö mörk og var a.m.k. annað þeirra löglegt." Að sögn Hafþórs missti liðið Magnús Jónsson markvörð í meiðsli og verður hann ekki meira með í sumar. Ómar Guðmundsson tók sæti hans um helgina, eftir töluvert hlé. Haukar komust yfir eftir um fimmtán mínútna leik og heima- menn svöruðu með marki Stein- gríms Eiðssonar þegar um fimm- tán mínútur voru eftir af hálf- leiknum. Gestirnir komust svo yfir stuttu fyrir leikhlé og var staðan í leikhléi 1:2. KS-ingar sóttu mjög stíft í síð- ari hálfleiknum og fengu nokkur ágæt færi til þess að skora. Ekk- ert gekk þó upp hjá heimamönn- um og svo voru það Haukar sem bættu þriðja markinu við þegar um tíu mfnútur voru til leiksloka. Staða KS er allt annað en væn- leg þar sem neðsta sæti deildar- innar er hlutskipti þeirra. Það er þó reyndar svo að öll lið deildar- innar geta enn fallið nema Tinda- stóll þegar 15 stig eru eftir í pott- inum. Skallagrímur sigraði Gróttu 4:2 og Ægir Þrótt N. 3:2. SV Þeir hafa svo sannarlega verið á skotskónum í sumar félagarnir, Bjarki Pétursson og Sverrir Sverrisson, Tindastóli. Lið þeirra þarf nú aðeins eitt stig til þess að tryggja sér sæti í 2. deiid. Knattspyrna, 4. deild: Bjarni Þórhallsson og Stefán Jóhannesson lentu í 3. sæti um helgina. Mynd: sv Hegðunarvandamál knattspyrnumanna: Hinkalífíð í hættu KSÍ afturkallar leyfi til hlerunar í Samskipadeildinni Knattspyrnusamband íslands gerði það að tillögu sinni og veitti heimild fyrr í sumar fyrir því að dómarar mættu bera fal- inn hljóðnema inná sér r ein- hverjum ótilgreindum leikjum og tækju upp það sem færi fram á milli þeirra og Jeik- manna eða þjálfara. Þettaíhef- ur nú verið bannað og hefur KSÍ afturkallað þá heimild sem það hafði gefíð sjónvarps- stöðvunum til þess að dómarar bæru hljóðnemann. í leik ÍA og Vals í Samskipa- deildinni bar Bragi Bergmann, dómari, falinn hljóðnema og var allt tekið upp sem fram fór á milli hans og leikmanna. Stöð tvö sýndi svo landsmönnum útkom- una og var hún allt annað en glæsileg fyrir leikmenn. Forsvars- menn félaganna mótmæltu harð- lega að þetta yrði sýnt en án árangurs. Því var borið við að verið væri að brjóta á einkalífi leikmanna og gott ef friðhelgi heimilisins var ekki líka rofin með því aðhaldi sem veita átti aðstandendum knattspyrnunnar, utan vallar sem innan. Nú hefur þetta sem sagt verið bannað og geta leikmenn knatt- spyrnuliða haldið áfram þeirri iðju sem enginn má heyra, þ.e. að rífa kjaft við dómara. Vænt- anlega getur dómarinn þá svarað fyrir sig því ef skilja á forráða- mennu sumra félaga er hegðun- arvandamálið dómaranna en ekki leikmanna, SV Púls-Inn opnar: Heilsuræktarstöð í KA-húsinu - framkvæmdastjóri er Guðfmna Sigurðardóttir Eins og Dagur greindi frá fyrr í sumar hefur verið ákveðið að opna heilsuræktarstöð í KA- heimilinu við Dalbraut og mun hún bera nafnið Stúdíó Púls- Inn. Stöðin verður opnuð 12. september næstkomandi og mun bjóða upp á nýtísku heilsu- ræktartæki þar sem kennarar víða að verða við stjórnvölinn. „Meginmarkmiðið er að reyna að höfða til allra. Við munum leggja áherslu á að allir ge'ti fund- ið hér eitthvað við sitt hæfi og munum bjóða upp á þjónustu á þessu sviði sem ekki hefur þekkst áður hér á Akureyri,“ sagði Jónína Ben, íþróttafræðingur og eigandi Stúdíós Jónínu og Ágústu í Reykjavík. Að sögn Jónínu er um að ræða tvo sali í nýja KA-húsinu og yrðu þeir báðir í notkun. Annar myndi hýsa þrektæki þar sem farið yrði í gegnum ákveðið prógramm undir leiðsögn kennara. í hinum saln- um verður pallaleikfimi og stöðvaþjálfun ýmis konar. Til dæmis verður boðið upp á lokaða karla- og kvennatíma þar sem hjón geta þó komið bæði í einu og æft saman hvort í sínum sal. Boðið verður upp á opin kort sem kallað er en þá getur hver og einn valið sér tíma hvenær sem er á deginum og má koma eins oft og hann vill. Reiknað er með að Púls-Inn verði með um 50 tíma á viku. Framkvæmdastjóri staðarins verður Guðfinna Sigurðardóttir frá Stúdíói Jónínu og Ágústu og mun hún ásamt gestakennurum úr Reykjavík, frá Akureyri og einnig erlendum kennurum sjá um leiðbeiningar og kennslu. „Við munum bjóða upp á tíma fyrir alla, kyrrsetufólk jafnt sem íþróttamenn," sagði Guðfinna. Alfreð Gíslason framkvæmda- stjóri KA mun verða forstjóri og gjaldkeri stöðvarinnar og að hans sögn mun Púls-Inn nýtast KA mjög vel fyrir þá sem eru að æfa með félaginu og sagðist hann þegar vera farinn að kvíða því að mæta í fyrsta tímann hjá stelpun- um því þær hefðu hótað honum því að taka hann í gegn. SV Ákaflega rólegt í umferð helgariimar Næstsíðasta umferð 4. deildar- innar í knattspyrnu var leikin um helgina. Lítil spenna er í deildinni og í raun aðeins formsatriði fyrir liðin að Ijúka mótinu. Hvöt er komið í úrslit og leikur þrjá leiki í úrslita- keppninni. Liðið fær tvo heimaleiki, leikur fyrst við HK 29. ágúst, en síðan Hött og Reyni Sandgerði þarf liðið að sækja heim. Hvatarmenn héldu uppteknum hætti og unnu frekar auðveldan sigur á HSÞb um helgina, 3:0. Að sögn Ragnars Guðjónssonar, leikmanns Hvatar, einkenndist leikurinn af áhugaleysi beggja liða. „Við erum komnir í úrslit og menn eru með hugann við það. HSÞb-menn virtust vera hættir, enda aðeins einn leikur eftir og í raun ekki að neinu að stefna,“ sagði Ragnar. Mörk Hvatar gerðu Ásgeir Valgarðsson, Sigurður Ágústsson og Þorsteinn Sveinsson. HSÞb er í 4. sæti deildarinnar með 12 stig, jafnmörg og Neisti en lakara markahlutfall. Kormákur vann SM SM fékk Kormák í heimsókn og varð að sætta sig við tap, 0:2. Leikið var við ágætar aðstæður og var leikurinn ágætlega leikinn af beggja hálfu. Bæði lið fengu nokkur færi til þess að skora og Kormáksmenn náðu að nýta tvö þeirra en SM ekkert. Mörk Kormáks gerðu þeir Albert Jóns- son og Ingvar Magnússon. SM er í næstneðsta sætinu með 5 stig og getur Þrymur komist upp fyrir þá. Neisti vann stórsigur á Þrym „Þetta var mjög öruggur sigur og þeir áttu aldrei möguleika.“ sagði Páll Brynjarsson, hjá Neistanum. Þrymur hafði skipt báðum vara- mönnum sínum inná, lentu í meiðslum og þurftu að leika ein- um færri nær allan síðari hálfleik- inn. Leikurinn endaði 0:6. Mörk Neista gerðu Oddur Jónsson, Hazade Mirale, Sören Larsen, Ólafur Ólafsson, Guð- mundur Jónsson, fyrsta mark sitt í 77 leikjum fyrir Neista og Jón Þór Óskarsson. Þrymur er í neðsta sæti deild- arinnar með 4 stig en Neisti eins og áður sagði í 3. sæti með jafn- mörg stig og HSÞb. SV Aifreð Gíslason, forstjóri, Guðfinna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og Jónína Ben. eigandi studíó Jónínu og Ágústu. Strandblak: Spennan tekin að magnast í blakinu - önnur umferð af þremur fór fram um helgina Önnur umferð íslandsmótsins í strandblaki fór fram á Akur- eyri nú um helgina og var leik- ið í blíðskaparveðri, hita, sól og hægviðri. Sigurvegarar í kvennaflokki voru þær Særún Jóhannsdóttir, Víkingi og Birgitta Guðjónsdóttir, KA en hjá körlunum urðu þeir Sigurð- ur Pétur Ólafsson og Sigurður Arnar Ólafsson hlutskarpastir og unnu í annað skipti. Þriðja og síðasta umferðin fer fram dagana 22. og 23. ágúst en ekki hefur mótsstaður enn verið ákveðinn. Úrslit urðu sem hér segir: Konur: 1. Særún Jóhannsd./ Birgitta Guðjónsd., Víkingi/KA 2. Björk Benediktsd./ Jóhanna Kristjánsd., Víkingi 3. Jóna Matthíasd./ Jóna Óskarsd., Völsungi 4. Jóna Viggósd./ Þórey Haraldsd., ÍS 5. Eyrún Sveinsd./ Kristjana Skúlad., Völsungi 6. Sesselja Jónsd./ Þorbjörg Jónsd., Þrótti N. 7. Karítas Jónsd./ Katrín Pálsd., KA Karlar: 1. Pétur Ólafsson/ Arnar Ólafsson, KA 2. Magnús Aðalsteinss./ Gunnar Svanbergss., KA 3. Stefán Jóhanness./ Bjarni Þórhallss., KA 4. Hjörtur Halldórss./ Davíð Halldórss., Snörtum 5. Haukur Marínóss./ Eggert Marínóss., KA/Snörtum 6. Gísli Jóhanness./ Sigurður Baldurss., Skautum 7. Kristján Gunnarss./ Sigurður Gunnarss., KA 8. Friðmundur Guðmundss./ Bergur Guðmundss., KA Staðan að loknum tveimur mótum af þremur: Konur: 1. Björk/Jóhanna 25 2. Særún/Birgitta 23 3. Jóna Harpa/Þórey 16 4. Jóna/Jóna 10 5.-6. Eyrún/Kristjana 6 5.-6. Hildur/Metta Karlar: 6 1. Arnar/Pétur 30 2. Magnús/Gunnar 18 3. Stefán/Bjarni 14 4. Einar/Guðbergur 10 5. Hjörtur/Davíð 8 Arnar og Pétur eru sem sagt efstir að loknum tveimur umferð- unt en ljóst er að þeir geta ekki tekið þátt í þeirri þriðju og síð- ustu. Gunnar og Magnús eru þó eina liðið sem getur náð þeim að stigum og þurfa að vinna síðustu lotuna til þess að hantpa íslands- bikarnum í strandblaki. Keppnin er jafnari hjá konunum. SV Knattspyrna, 2. flokkur: KA-strákarnir tryggðu sér sæti í 1. deUd - Þórsarar eiga erfitt uppdráttar á botninum Akureyrarliðin, KA og Þór, fóru til Reykjavíkur um helg- ina og spiluðu bæði tvo leiki. KA-menn tryggðu sér 1. deild- arsæti að ári með því að leggja ÍR að velli á sunnudegin- um, 0:8, en tap á laugardaginn gegn Val, 3:1, kom ekki að sök. Þórsarar töpuðu báðum sínum leikjum, fyrir FH á laug- ardaginn, 2:1 og fyrir liði Sel- foss á sunnudaginn, 5:3. „Þetta var ekki nógu gott á laugardaginn. Við komum til Reykjavíkur mjög skömmu fyrir leik og allur undirbúningur var slæmur hjá okkur. Það vantaði neistann í þetta hjá strákunum, voru þungir og stífir eftir keyrsl- una,“ sagði Hinrik Þórhallsson, þjálfari KA. Mark KA í leiknum gegn Val skoraði Höskuldur Þór- hallsson, beint úr aukaspyrnu. Að sögn Hinriks var allt annað uppi á teningnum í leiknum gegn ÍR á sunnudeginum. „Strákarnir náðu að sýna sitt rétta andlit og það var aldrei spurning hvort lið- ið myndi vinna, aðeins hversu stór sigurinn yrði,“ sagði Hinrik. Hann sagðist hafa gert sér von um að vinna annan leikinn um helgina til þess að tryggja liðinu sæti í 1. deild að ári og að það hafi tekist. „Við erum mjög ánægðir en það er mjög hörð bar- átta um annað sætið í deildinni." Mörk KA skoruðu Brynjólfur Sveinsson, 3, Bjarki Bragason, 2, Sigurður Ólason, ívar Bjarklind og Hermann Karlsson eitt mark hver. „Þetta var hálflélegt hjá okkur. Að vísu var ég nokkuð sáttur við leikinn gegn FH þótt við næðum ekki að vinna en leikurinn við Selfoss var afleitur,“ sagði Eirík- ur Eiríksson, þjálfari Þórs. „Það klikkaði allt sem klikkað gat í leiknum gegn Selfossi. Við misst- um mann útaf rétt eftir leikhlé og ég er orðinn mjög þreyttur á því hvernig strákarnir haga sér á stundum. Menn eru að brjóta mjög klaufalega af sér og oft á tíðum algerlega að óþörfu,“ sagði Eiríkur. I leiknum gegn FH skoraði Elmar Eiríksson en í leiknum á sunnudaginn skoruðu Þorvaldur Sigurðsson, Jóhann Bessason og Elmar Eiríksson. Þórsarar berjast nú við Selfoss og Fylki um þau tvö sæti sem koma í hlut þeirra sem falla í þriðju deild. „Við ætlum okkur að halda sætinu í deildinni því hér eigum við heima,“ sagði Eiríkur Eiríksson. SV Þórsstelpur í 1. deild kvenna í knattspyrnu áttu að leika tvo leiki í Reykjavík um helgina. Á föstudagskvöld léku þær við UBK og töpuðu 5:0 en áttu samkvæmt mótaskrá að leika við Val á laugardag. KSÍ hafði þó gefíð heimild fyrir því að Þór fengi eins dags hvfld þegar leiknir væru tveir leikir í ferð. KSÍ lét Valsstúlkur ekki vita og mættu þær til leiks á laugar- dag ásamt dómurum og var leikurinn flautaður á og af og Val dæmdur sigur, 3:0. Þetta eru mistök KSÍ og ég á ekki von á öðru en að þetta verði leiðrétt," sagði Valgerður Jóhannsdóttir, fyrirliði Þórs, þeg- ar blaðamaður spurði hana út í Hinrik Þórhallsson og strákarnir hans hjá KA eru koinnir í 1. deild. þetta mál. Okkur var sagt að KSÍ hefði leitað að okkur logandi ljósi um alla Reykjavík á laugar- daginn en á meðan sátum við niðri á KSÍ og horfðum á hand- boltann í sjónvarpinu. Það kom ekki til greina af hálfu Valsara að leika leikinn á sunnudag eins og við höfðum reiknað með,“ sagði Valgerður. Hvað leikinn gegn UBK varð- ar sagði Valgerður að hann hefði gengið ágætlega framan af. „Við vorum 2:0 undir í leikhléi en misstum eina útaf með rautt spjald snemma í síðari hálfleik og þá var þetta búið að vera. Við erum í erfiðri stöðu á botninum en erum bjartsýnar að okkur tak- ist að hala inn einhver stig svona í loki:n,“ sagði Valgerður. SV Kvennaknattspyrna, 1. deild: Mistök hjá KSÍ - lét Val ekki vita um frestun sem Þór fékk, og leikurinn því dæmdur tapaður

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.