Dagur - 11.08.1992, Side 16
Kodak ^
Express
Gæöaframköllun
FYRIR ÞA SEM GERA KROFUR
k ^Peáíomyndir"
Skipagötu 16 - Sími 23520
Akureyri:
Mikill
reykur af
ofsoðnu
Ferðakaupstefna Vest Norden á Akureyri:
Öll gistirými að þijóta
Útlit er fyrir að á fjórða hundr-
að manns muni taka þátt í
Ferðakaupstefnu Vest Norden,
sem haldin verður á Akureyri
dagana 23.-26. september
næstkomandi. Hér er bæði um
seljendur og kaupendur að
ræða en fyrirtækin sem selja
verða rúmlega hundrað að
tölu.
íslensk fyrirtæki tilkynnt þátt-
töku, 9 færeysk og 22 grænlensk.
Starfsfólk þessara fyrirtækja mun
telja um 190 manns en um 140
kaupendur frá Evrópu, Ameríku
og Japan hafa tilkynnt komu
sína. Undirbúningur kaupstefn-
unnar gengur vel þó enn sé eftir
að hnýta nokkra lausa enda. VG
Þórhallur Daníclssun fánum prýddur í Dalvíkurhöfn á sunnudaginn. Á inn-
felldu myndinni er Snorri Snorrason skipstjóri og útgeröarmaður í brúnni:
Myndir: -PH
Þórhallur Daníelsson frá Höfn til Dalvíkur:
Á veiðar næstu daga
- segir Snorri Snorrason útgerðarmaður
og nýr eigandi togarans
Togarinn Þórhallur Daníels-
son kom á sunnudag til Dalvík-
ur. Sl. fimmtudag tilkynnti
bæjarstjórn Hafnar í Horna-
firði Snorra Snorrasyni útgerð-
armanni að forkaupsréttur
bæjarfélagsins yrði ekki nýttur
og gat kaupsamningur þá kom-
ið til framkvæmda. Snorri
verður sjálfur skipstjóri og seg-
ir hann að haldið verði út alveg
á næstu dögum að öllu
óbreyttu.
Að sögn Snorra Snorrasonar,
útgerðarmanns á Dalvík sem er
nýr eigandi Þórhalls Daníelsson-
ar, var ekki vitað fyrr en á
fimmtudag að fallið yrði frá for-
kaupsrétti. Kaupverðið er 150
milljónir og fylgja skipinu rúm-
lega 800 tonn í karfa- og rækju-
kvóta.
Eigandinn, Snorri Snorrason,
verður skipstjóri en sonur hans
og alnafni verður fyrsti stýrimað-
ur. Yfirvélstjóri verður Finnbogi
Theodórsson sem áður var vél-
stjóri á Baldri sem var í eigu
Snorra. Þórhallur Daníelsson er
300 tonn, 42 m á lengd og rúmir 9
m á breidd.
„Við reynum að komast á veið-
ar núna alveg á næstu dögum ef
ekkert óvænt kemur upp á,“
sagði Snorri Snorrason í samtali
við Dag. Aðspurður sagði Snorri
Snorrason að Þór EA, sem
Snorri átti fyrir, myndi halda
áfram veiðum frá Dalvík. GT
Slökkviliðið á Akureyri hafði í
nokkur horn að líta um helgina
þótt hvergi væri eldur laus.
Þrjú útköll voru skráð í dag-
bækur, á Norðurlandsveg, í
Barnaskóla Akureyrar og
íbúðarhús við Sólvelli.
Eins og sagt er frá annars stað-
ar í blaðinu var ekið á hross á
Norðurlandsvegi í Glæsibæjar-
hreppi og var slökkviliðið kallað
út til að hreinsa veginn.
Klukkan 10.52 á sunnudag var
slökkviliðið kallað að Barnaskóla
Akureyrar. Viðvörunarkerfið
sýndi að eldur var laus en í Ijós
kom að menn höfðu verið að
brenna saman dúk á kennara-
stofu og þeir sem unnu að því
vissu ekki að eldvarnakerfið var
tengt og létu slökkviliðið því ekki
vita.
Sama dagkl. 11.34 vartilkynnt
um reyk úr íbúð við Sólvelli.
Húsráðandi hafði verið að sjóða
sér kjötbita en gleymt pottinum á
eldavélinni. Mikill reykur barst
um íbúðina og unnu slökkviliðs-
menn við reyklosun. Ekki urðu
teljandi skemmdir af völdum of-
soðna kjötsins. SS
Glæsibæjarhreppur:
Hross aflífað
eftir árekstur
- átta ökumenn fóru
fuil greitt
Hestur tölti fyrir bfl á Norður-
landsvegi við Dvergastein
aðfaranótt laugardags. Hrossið
meiddist mikið við samstuðið
og var það aflífað á staðnum.
Bfllinn skemmdist verulega en
fólkið í honum slapp ómeitt.
Lögreglan á Akureyri stöðvaði
átta ökumenn fyrir of hraðan
akstur frá aðfaranótt laugardags
til sunnudags. Sá sem hraðast ók
var á 122 km hraða fyrir utan
bæinn en flestir voru á um eða
yfir 80 km hraða innanbæjar.
Þá sektaði lögreglan ökumann
fyrir að aka á móti rauðu ljósi og
gegn einstefnu aðfaranótt iaugar-
dags. Það skal tekið fram að öku-
maðurinn er ekki grunaður um
ölvun við akstur.
Klukkan 18.40 á sunnudag
varð harður árekstur á Tryggva-
braut en lögreglunni er ekki
kunnugt um meiðsl á fólki.
Hamingjusamir eigendur
tveggja bíla á Akureyri þurftu að
sjá á eftir skráningarnúmerunum
vegna þess að þeir höfðu vanrækt
að fara með ökutækin í skoðun.
SS
Kaldakinn:
Eldur í hlöðu
Snemma á sunnudagsmorgun
varö eldur laus í hlöðu við
bæinn Syðri-Skál í Köldukinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Húsavík kvikn-
aði í heyi af völdum ofhitnun-
ar.
Slökkvilið á Stórutjörnum kom
á vettvang og sá um að ráða
niðurlögum eldsins, halda kæl-
ingu og rýma heyið úr hlöðunni.
Tjón mun hafa orðið á um 80
heyrúllum en hús sluppu öll. SS
Starfsmenn í Slippstöðinni:
Hóta að vísa kjaradeflu til Félagsdóms
„Við erum að sprengja allt
gistirými í bænum utan af þessu,"
sagði Sigríður Þrúður Stefáns-
dóttir sem sæti á í undirbúnings-
nefnd kaupstefnunnar. Þegar er
að verða uppbókað á hótelunum
fjórum í bænum og reiknar hún
með að öll gistiheimilin verði líka
notuð. Hún segir að kaupstefnan
verði að líkindum sú stærsta sem
haldin hefur verið til þessa og
jafnframt er þetta í fyrsta skipti
sem hún er haldin utan höfuð-
borgar hvers lands.
Eins og staðan er í dag, hafa 80
© VEÐRIÐ
Veðurstofa Islands spáirfrem-
ur hægri breytilegri eða aust-
lægri átt á landinu í dag. Skýj-
að verður að mestu sunnan-
lands og skúrir en sjást ætti til
sólar inn til landsins á Norður-
landi en þokuslæðingur verð-
ur með allri norður- og austur-
ströndinni. Svalt verður í þok-
unni en annars 9-15 stiga hiti.
Á miðvikudag og fimmtudag
er gert ráð fyrir svipuðu veöri.
Starfsmenn Slippstöðvarinnar
á Akureyri hafa frá síðustu
áramótum verið án kjarasamn-
inga en stjórnendur stöðvar-
innar vilja ekki fallast á að
greiða starfsmönnum að fullu
samkvæmt sáttatillögu ríkis-
sáttasemjara frá í vor. Vinnu-
staðasamningur var gerður í
stöðinni árið 1990 og rann út
um síðustu áramót en síðasta
launahækkunin í þeim samn-
ingi var 15. september i fyrra,
2,5%. Með henni telja for-
svarsmenn Slippstöðvarinnar
að starfsménn séu búnir að fá
þá launaliði sem felist í sáttatil-
lögunni en á það vilja starfs-
menn ekki fallast.
Fjölmennur starfsmannafund-
ur var haldinn fyrir helgi í Slipp-
stöðinni og að honum loknum
var stjórnendum gerð grein fyrir
að deilunni kunni að verða vísað
til Félagsdóms, náist ekki sam-
komulag.
Knútur Karlsson, stjórnarfor-
maður Slippstöðvarinnar, segir
að með launahækkuninni í sept-
ember hafi verið litið svo á að
hún gengi upp í væntanlega
kjarasamninga. „Við teljum því
að við séum búnir að borga
hækkunina sem var í sáttatillög-
unni og gott betur. Það verður
tekin ákvörðun um það mjög
Nýtt íþróttahús verður form-
lega tekið í notkun á Blöndu-
ósi laugardaginn 5. september
nk. Húsið verður notað af
grunnskólanum til kl. 4 á dag-
inn en síðan leigt út fram undir
miðnætti.
Með tilkomu þessa nýja íþrótta-
húss sem verður með löglega
fljótt hjá okkur hvort þetta fer
fyrir Félagsdóm," sagði Knútur í
gær. Hann sagði jafnframt að ef
stöðin þyrfti að greiða launa-
hækkun samkvæmt sáttatillög-
unni þýddi það um 5 milljóna
kostnað á þessu ári. Hvað varðar
aðra liði í sáttatillögunni, s.s.
júlíuppbót, sagði Knútur stöðina
tilbúna að taka tillöguna í gildi að
stærð keppnisvallar, verður
algjör bylting í iðkun innanhúss-
íþrótta því gólfflötur gamla salar-
ins er 8x12 metrar. Keppnisfólk á
Blönduósi hefur þurft að sækja
æfingar að Húnavöllum og jafn-
vel til Sauðárkóks ef möguleikar
hafa verið tii þess og má því segja
að með ólíkindum sé að lið ung-
mennafélagsins Hvatar skuli
öðru leyti en launahækkanir.
Trúnaðarmenn starfsmanna
liafa staðið í viðræðum um þetta
mál að undanförnu við forsvars-
menn fyrirtækisins en lítið miðar.
Starfsmenn geta einhliða vísað
málinu í Félagsdóm en síðdegis í
gær var útlit fyrir að reynt yrði
enn að ná samkomulagi áður en
til kasta Félagsdóms komi. JÓH
leika í 2. deild íslandsmótsins í
innanhússknattspyrnu.
Aðstaða Húnvetninga til
iðkunar innanhússíþrótta breytist
mjög til hins betra á haustdögum
því auk hússins á Blönduósi verð-
ur einnig tekið í notkun nýtt
íþróttahús að Laugarbakka í
Miðfirði. GG
Blönduós:
Nýtt íþróttahús vígt 5. september