Dagur - 02.10.1992, Page 6

Dagur - 02.10.1992, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 2. október 1992 Etthvaé fyrir allal i Hvað er að gerast? RÓLEG LEIKFBMI FYRIR KONUR MJÚKT ERÓBIK - ALHLIÐA LÍKAMSÆFINGAR MORGUNTÍMAR - EFTIRMIÐDAGSTÍMAR KVÖLDTÍMAR - KENNARI: ELLEN HÁKONSON TAI CHI - KÍNVERSK LEIKFIMI ALLAR HREYFINGAR HÆGAR - MJÚKAR OG STYRKJANDI - EINFALDAR OG ÓÞVINGAÐAR - LÍKAMLEGT ÁSIGKOMULAG SKIPTIR EKKI HÖFUÐMÁLI ÞAR SEM HVER OG EINN VINNUR ÁVALLT MEÐ SÍNUM EIGIN LÍKAMA. - MORGUNTÍMAR - KVÖLDTÍMAR - KENNARI: MAGNÚS SIGÞÓRSSON KARATE KARATE FYRIR BÖRN - BYRJENDUR ( BÆÐI KYN ) OG FÓLK SEM LENGRA ER KOMIÐ - KARATE ER FJÖLÞÆTT LÍKAMSÞJÁLFUN - TEKIÐ ER FYRIR: STYRKUR - SNERPA - KRAFTUR - LIÐLEIKI - HREYFISAMHÆFING OG ÖNDUN - KARATE ER EIN FULLKOMNASTA SJÁLFSVARNARÍÞRÓTT SEM VÖL ER Á I INNRITUN í SÍMA Kynningarfimdur Guðspeidfélagsins Næstkomandi sunnudag, 4. októ- ber, mun Guðspekifélagið á Akur- eyri halda kynningu á inntaki og markmiðum Guðspekifélagsins en félagið er ein margra starfandi deilda hér á landi. Guðspekihreyf- ingin er friðar- og bræðralagshreyf- ing sem starfar um allan heim og hvetur til aukins skilnings á eðli mannsins og tilgangi hans hér á jörð. Félagar í Akureyrardeildinni hvetja fólk til að kynna sér starfsemi félagsins. Kynningu á viðhorfum og 26233 FRÁ KL. 13-17 HEILJAW HONDIN H f . TRYGGVABRAUT 22 Hörður Torfa í 1929 Trúbadúrinn Hörður Torfason held- ur tónleika á skemmtistaðnum 1929 á Akureyri nk. sunnudagskvöld kl. 21. Þar mun hann að vanda flytja fjölbreytt efni. Að margra áliti er Hörður hinn eini sanni trúbadúr okkar því hann treður alltaf upp einn síns liðs með gítarinn. Undir sama þaki 4o/\ / T \\\ pob 22211 22500 Allar gerðir plastpoka ÖH prentun stór og smá Haldapokar, heimilispokar, ruslapokar, litlir og stórir pokar. Plast fyrir iðnað og fiskvinnslu. Strekkifllma og biómaplast. Hönnun Setning Filmugerð Litprentun Bókband Prentlita og pappírssala Tryggvabraut 18-20 (POB húsið) markmiðum félagsins flytur Esther Vagnsdóttir. Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins að Gler- árgötu 32, 4. hæð (gengið inn að sunnan) kl. 15.30. Kaffiveitingar. Nanun á Hótel KEA Hljómsveitin Namm ásamt Júlíusi Guðmundssyni sér um fjörið á Hótel KEA á Akureyri annað kvöld, laugardagskvöld. EyjaQarðarsveit: Hagar hendur með markað og kaffisölu Samstarfshópurinn Hagar hendur í Eyjafjarðarsveit verður með mark- að og kaffisölu á morgun, laugar- daginn 3. október kl. 14-17 að Stekkjarflötum í Eyjafjarðarsveit (gamla húsið). Stekkjarflatir eru skammt frá Möðruvöllum. Hagar hendur eru að hefja vetrar- starfið og bíður til sölu framleiðslu sína, nytjaflíkur og gjafavöru. Boð- ið er upp á kaffihlaðborð fyrir 500 krónur. Kredit og Galileo í Sjallanum Hljómsveitin Kredit leikur á Sjalla- kránni í kvöld og er aðgangur ókeypis. Annað kvöld verður stór- dansleikur með hljómsveitinni Galileo. Galileo hefur verið á far- aldsfæti í allt sumar og stefna á upptökur á stórri plötu í október. Hljómsveitin hefur fengið til liðs við sig nýjan bassaleikara, Birgi Braga- son, en hann lék með hljómsveitinni Sálin hans Jóns míns og Júpíters. Annað kvöld verður Sjallinn opnað- ur kl. 23. Stallone í Borgarbíói Aðalmynd helgarinnar í Borgarbíó á Akureyri verður Stopp - eða mamma hleypir af með Sylvester Stallone og Estelle Getty í aðalhlut- verkum. Þessi grín- og spennumynd verður sýnd kl. 21 og á sama tíma birtist á hvíta tjaldinu Höndin sem vöggunni ruggar. Klukkan 23 verða sýndar myndirnar Vinny frændi og Náttfarar. Á barnasýningum á sunnudag verða sýndar myndirnar Kötturinn Felix og Pétur Pan. Akureyrarkirkja: Hádegistón- leikar á morgun Fyrstu hádegistónleikar vetrarins verða í Akureyrarkirkju á morgun, 3. október, og hefjast þeir kl. 12 og standa í u.þ.b. hálftíma. Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju, spilar verk eftir Bach og Widor og auk þess verður lesið upp úr Ritningunni. Hádegis- tónleikar í Akureyrarkirkju verða fyrsta laugardag hvers mánaðar í vetur. Dynheimabridds á sunndagskvöld Næsta Dynheimabridds verður í Dynheimum nk. sunnudagskvöld kl. 19.30. Síðast mættu ellefu pör. Úrslit þá urðu þau að Sigurbjörn Porgeirsson og Jakob Kristinsson urðu í efsta sæti, Sigurbjörn Haraldsson og Stefán Stefánsson í öðru sæti, Gunnar Berg og Sigfús Hreiðarsson í þriðja sæti, Soffía Guðmundsdóttir og Hjalti Berg- mann í fjórða sæti og Magnús Magnússon og Reynir Helgason í fimmta sæti. Gréta Berg teiknar í Vín Gréta Berg teiknar myndir í Blóma- skálanum Vín í Eyjafjarðarsveit nk. sunnudag, frá kl. 14 til 18. Á sama tíma verður að vanda boðið upp á kaffihlaðborð í Vín. MENOR - dagskrá mennmgar- í október TONLEIKAR Föstudagur 2. október Safnaðarheimili Akureyrarkirkju Einsöngstónleikar. Jón Þor- steinsson flytur lög eftir norræn tónskáld m.a. Sigfús Einarsson, Pál Isólfsson, Emil Thorodd- sen, Peter Heise, Ture Rang- ström, Eyvind Alnæs, Jean Sibelius. Undirleikari er Gerrit Schuil. Tími: 20:30 Félagsheimilið Hvammstanga Tónleikar með Bubba Mortens. Miðaverð kr. 900.- Tími: 21:00 Laugardagur 3. október. Hádegistónleikar í Akureyrar- kirkju Björn Steinar Sólbergsson flyt- ur lög eftir Bach og Vidor. Léttur hádegisverður verður í Safnaðarheimilinu eftir tónleik- ana. Tími: 12:00 Tónlistarskólinn á Húsavík - sal- ur Einsöngstónleikar. Jón Þor- steinsson flytur lög eftir norræn tónskáld m.a. Sigfús Einarsson, Pál ísólfsson, Emil Thorodd- sen, Peter Heise, Ture Rang- ström, Eyvind Alnæs, Jean Sibelius. Undirleikari er Gerrit Schuil. Tími: 17:00 MYNDLIST/SÝNINGAR Gamli Lundur við Eiðsvallagötu á Akureyri Finnlaugur Snorrason opnar sýningu á renndum munum og stendur hún næstu viku. Sýningin verður opnuð klukkan 13:00 Frá og með 1. október verð- ur sú breyting á fréttum af menningarviðburðum á Norður- landi að Katrín Ragnarsdóttir tekur við af Hrefnu Harðardótt- ur að safna saman þessum upp- lýsingum. Viljum við vinsam- lega biðja þá sem vilja koma á framfæri fréttum af slíkum við- burðum að hafa samband við Katrínu. Hún hefur v.s. 24655 h.s. 24856 og fax 11506. Fyrsta þriðjudag hvers mán- aðar birtast hér í blaðinu fréttir frá MENOR og þurfa upplýs- ingar í þann pistil að hafa borist föstudaginn þar á undan. Einnig birtast MENOR fréttir aftur þriðjudag hálfum mánuði síðar og þá með viðbót ef ein- hver er. Þær fréttir þurfa einnig að berast föstudeginum áður.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.