Dagur - 02.10.1992, Page 12
/ garðskála Bautans
Expresso kaffi • Cappuccino • Heitt súkkulaði
Nýbakaðar vöfflur með rjóma • Mokkaterta
Konfektterta • Peruterta
Úrval ýmissa ísrétta
Þrotabú skóverksmiðjunnar Striksins:
Iðnþróunarfélag Ejjaflarðar
og Össur hf. gerðu tflboð
I gær lagði Ásgeir Magnússon,
franikvæmdastjórí Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar hf., fram til-
boð í tæki, lager, hálfunnar
vörur og hráefni í eigu þrota-
bús skóverksmiðjunnar Striks-
ins á Akureyri fyrir hönd Iðn-
þróunarfélagsins og fyrirtækis-
ins Össurar h.f. í Reykjavík.
Þorsteinn Hjaltason, bústjóri
þrotabúsins, vildi í gær ekki gefa
upp hversu hátt tilboðið væri, en
sagði að á næstu dögum yrði það
skoðað og metið í samráði við
íslandsbanka hf., stærsta kröfu-
hafann og veðhafann í þrotabú
Striksins.
Allar líkur eru á að annað til-
boð komi í þrotabú Striksins frá
útgerðarfyrirtækinu Skagstrend-
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar:
Tuttugu manns sagt upp
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
sonar & Co. á Akureyri sagði
nú um mánaðamótin upp 20
starfsmönnum. Uppsagna-
frestur þessa fólks er 1-6 mán-
uðir. Framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins segir ekki víst að þess-
ar uppsagnir komi allar til
framkvæmda en þær helgist
fyrst og fremst af stirðri hrá-
efnisöflun fyrir rækjuvinnsl-
una.
því saman en það er ekki víst að
allt þetta fólk hætti,“ sagði Aðal-
steinn Helgason, framkvæmda-
stjóri Niðursuðuverksmiðju K.
Jónssonar. JÓH'
ingi hf. á Skagaströnd. Forráða-
menn Skagstrendings eru nú að
skoða ýmis gögn um skóverk-
smiðjuna og síðan er að vænta til-
boðs frá þeim.
Nú er leitað allra leiða til að
skapa ný atvinnutækifæri á
Skagaströnd eftir að stjórn Skag-
strendings hf. tók þá ákvörðun
fyrr í vikunni að selja ísfisktogar-
ann Arnar burt úr byggðarlaginu
og færa kvóta hans yfir á væntan-
legan frystitogara fyrirtækisins.
Sú ákvörðun hefur í för með sér
að fiskvinnsla hjá Hólanesi leggst
niður að óbreyttu og því hefur
tæplega fimmtíu starfsmönnum
Hólaness verið sagt upp störfum.
Verði eignir þrotabús Striksins
seldar til Skagastrandar er hug-
myndin að þessir starfsmenn fái
vinnu við skóframleiðslu. óþh
Nú styttist í frumsýningu Leikfélags Akureyrar á barnaleikritinu „Lína lang-
sokkur“. Á myndinni er Bryndís Pctra Bragadóttir sem fer með aðalhlut-
Verkið, sjálfa Línu. Mynd: Benni
Hringskyrfi á hrossum á íslandi:
Flest tilfelli í Borgarfirði og Skagafirði
„Þetta eru hagræðingaraðgerð-
ir en mest er þetta tengt rækju-
vinnslunni. Annars vegar hefur
verið tregða í rækjuöflun vegna
þess að Rússinn hefur verið að
veiða þorsk og hins vegar eru
loðnuskipin farin á loðnu þannig
að þau rækjuskip sem voru í sum-
ar hættu snemma. Þetta verkar
Svalbarðsströnd:
Virawslys
að Tiínsbergi
Vinnuslys varð að Túnsbergi á
Svalbarðsströnd sl. miðviku-
dagskvöld. Vinnumaður
klcmmdist á fæti milli dráttar-
vélar og kartöfluvagns.
Óhappið varð er vinnumaður-
inn hugðist losa kartöfluvagninn
aftan úr dráttarvélinni. Búkki
sem var reistur undir beisli vagns-
ins skriplaði til og við það
klemmdist fóturinn illa rétt fyrir
ofan ökla. Sjúkrabíll var kallaður
til og flutti manninn á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Við
skoðun kom í ljós að ekki var um
brot að ræða sem óttast var. Um
slæmt mar er að ræða og hinn
slasaði fékk að fara til síns heima
eftir næturdvöl á sjúkrahúsinu.
ój
O VEÐRIÐ
Suðvestur af landinu er nær
kyrrstæð lægð sem grynnist.
Milli Jan Mayen og Noregs er
háþrýstisvæði og austur af (r-
landi er lægðardrag sem
hreyfist norðaustur. I dag gerir
Veðurstofan ráð fyrir hægt
vaxandi austan- og suðaust-
anátt. Á Norðurlandi verður
skýjað með köflum og
úrkomulaust að mestu. Lítið
eitt kólnar er líður á daginn.
„Trichophyton mentagropytes“
þ.e. hringskyrfi í hrossum hef-
ur greinst á íslandi í fyrsta
sinn. Elfa Ágústsdóttir, dýra-
læknir á Akureyri, varð fyrst
til að Iáta staðfesta sjúkdóm-
inn að Keldum með ræktun.
Sigurður Sigurðsson, dýra-
læknir að Keldum, segir sjúk-
dóminn nú nokkuð útbreiddan
í Skagafirði og Borgarfirði og
hans hefur orðið vart í Reykja-
vík og á Akureyri. Grunur
leikur á að hestamaður í
- greindist fyrst á hrossum á Akureyri
Skagafirði hafi sýkst.
Árið 1987 greindist „tric-
hophyton verrucosum" þ.e.
hringskyrfi í kúm á bæ undir
Eyjafjöllum. Ábúendur sýktust
einnig. Bærinn var settur í
sóttkví. Heilbrigðisyfirvöld gripu
til aðgerða sem dugðu. Sérfæð-
ingar telja hrossaskyrfi ekki jafn
alvaricgan sjúkdóm og hring-
skyrfi í kúm.
„Fyrir ári sendi ég sýni til
greiningar að Keldum. Sýnin
voru tekin úr hárlausum hrúðr-
uðum blettum af teimur hrossum
á Akureyri. Greinilegt var að um
sveppasjúkdóm var að ræða og
ég vildi fá staðfestingu á hvers
stofns hann væri. Við ræktun
kom í Ijós sérstök tegund hring-
skyrfis sem víða er á hrossum
erlendis, en hefur ekki greinst
fyrr á hrossum hér á landi.
Sigurður Sigurðsson, yfirdýra-
læknir á Keldum, sendi lyf norð-
ur sem unnu fljótt og vel á sjúk-
dómnum. Nú er svo komið að
dýralæknar vænta viðbragða frá
embætti yfirdýralæknis vegna
Verkamannafélagið Fram á Sauðárkróki:
Tekíst á um formannsembættíð
- Jón Karlsson endurkjörinn formaður
Á aðalfundi verkamannafélags-
ins Fram á Sauðárkróki sl.
miðvikudagskvöld kom fram
mótframboð gegn hluta stjórn-
ar og sitjandi formanni, Jóni
Karlssyni. Er það í fyrsta skipti
í formannstíð Jóns, en hann
hefur gegnt því embætti frá
árinu 1967. Jón er jafnframt
varaformaður Verkamanna-
sambandsins. 89 manns mættu
á fundinn og var Jón endur-
kjörinn formaður með 51
atkvæði gegn 34. Jón telur að
málefnalegan grundvöll hafí
skort og átelur vinnubrögð
þeirra sem að mótframboðinu
stóðu. Ari Jóhann Sigurðsson
sem bauð sig fram til formanns
á móti Jóni sagði framboðið
tilkomið vegna óánægju fjöl-
margra í félaginu með Jón
Karlsson og með stjórn félags-
ins.
Framboð Ara Jóhanns Sig-
urðssonar kom fram stuttu fyrir
aðalfundinn. Jón Karlsson sagð-
ist telja það „ákaflega eðlilegan
hlut í sjálfu sér“ að fá mótfram-
boð, en enginn málefnalegur
grundvöllur fyrir þessu framboði
hefði komið fram og enginn
þeirra sem stóðu að mótframboð-
inu hafi tekið til máls á fundin-
um. Helst virtist því hafa verið
stefnt gegn sér persónulega. Jón
kvaðst ekki geta skýrt þann
fjölda atkvæða sem Ari Jóhann
fékk, en óvenju vel hefði verið
mætt á þennan fund og jafnvel
menn sem hann kannaðist ekki
við úr félagsstarfinu. Hins vegar
ef andstaðan væri ekki meiri í
félaginu en þessir 34, sem þýddi
7% félagsmanna, þá mætti hann
vel við una. Jón sagði ennfremur
að þessi hópur hefði reynt að fá
varaformann félagsins, Ólöfu
Hartmannsdóttur í lið með sér,
með „leiðinlegri aðför" að henni,
eins og hann orðaði það. Ólöf
lýsti hins vegar yfir fullum stuðn-
ingi við formanninn. Stjórn
félagsins situr áfram, en þau mót-
framboð sem fram komu til
stjórnarembætta voru dregin til
baka.
Ari Jóhann sagði marga
óánægða með formennsku Jóns
Karlssonar og einnig stjórn
félagsins sem gerði nákvæmlega
það sem Jón vildi. Þegar ljóst var
að Jón yrði áfram formaður, að
loknu formannskjöri, hættu
menn við að gefa kost á sér í
stjórnina og drógu framboð sín
til baka. Aðspurður sagði Ari
Jóhann að framboðið hefði verið
ákveðið nokkrum dögum fyrir
aðalfund, en það hefði sýnt sig að
hann nyti stuðnings, hann telur
sig sigurvegara í þessum kosning-
um. Það lýsti best ástandi í félag-
inu að menn mættu bara á aðal-
fund þegar mótframboð við for-
manninn kæmi fram. Ari Jóhann
gagnrýndi ennfremur að Jón
Karlsson hefði verið fundarstjóri
á aðalfundinum. sþ
þessa sjúkdóms," sagði Elfa
Ágústsdóttir.
Sigurður Sigurðsson að Keld-
um staðfesti að um hrossaskyrfi
væri að ræða og nú væru sýni af
hrossum úr Skagafirði og Borgar-
firði í ræktun erlendis til frekari
staðfestingar. „Svipuð sveppa-
tegund hefur verið á smádýrum á
íslandi til fjölda ára. Erfitt er að
segja til um hvort hrossaskyrfið
hefur borist til landsins með reið-
tygjum eða hvort íslenski
stofninn, sem er á smádýrum,
hefur tekið breytingum. Ljóst er
að sveppurinn berst milli hrossa
með reiðtygjum, kömbum, burst-
um, ábreiðum og fleiru. Sveppa-
sporar geta verið á húð án þess
að sár sjáist og mannshöndin get-
ur borið sjúkdóminn milli hesta.
í Skagafirði hefur sjúkdómurinn
breiðst út frá tamningastöðvum
og er mest áberandi þar sem og í
Borgarfirði," sagði Sigurður Sig-
urðsson. ój
Sjá nánar fréttatilkynningu frá
yfirdýralæknisembættinu bls. 5.
Akureyri:
Fækkar á
atvinnu-
leysisskrá
AUs voru 165 manns skráðir
atvinnulausir á Akureyri um
mánaðamótin. Samkvæmt
upplýsingum frá Vinnumiölun-
arskrifstofunni eru þetta
lægstu atvinnuleysistölur sem
sést hafa á þessu ári.
Þess ber að gæta að nú starfa
95 manns í atvinnuátaki sem
Akureyrarbær setti á fót í fram-
haldi af styrk sem fékkst úr
Atvinnleysistryggingasjóði.
Alls voru 105 konur atvinnu-
lausar á Akureyri um mánaða-
mótin og 60 karlar. JÓH