Dagur - 01.12.1992, Page 6
6 - DAGUR - Þríðjudagur 1. desember 1992
Á „Teríunni“ á Hótel KEA. Fólk á öllum aldri hittist og skrafar saman yfir kaffibolla.
„Kaffihúsahengilmænur"
á Akureyri
Fátt er notalegra á fallegum haustdegi en að sitja á kaffihúsi
yfir kaffibolla og virða fyrir sér mannlífið á ókunnum stað.
En það er ekki auðvelt að koma slíku í verk á Akureyri. I
miðbæ Akureyrar er ekki eitt einasta kaffihús og göngugatan
er varla með lífsmarki hvort heldur sem er yfir miðjan daginn
eða á kvöldin. En hvar á utanbæjarmaðurinn að leita að
kaffihúsi, ef ekki í miðbænum?
Það er alltaf Ijúft að setjast niður, sláppa örh'tið af og svala kaffiþorstanum.
Friðrik Finarsson í GriIIhúsinu: „Það vantar „kaffihúsahengilmænur“ á
Akureyri!“
Ásiaug Pétursdóttir
Áslaug er Hafnfirðingur. H ún er fædd
2. júní 1967.
Hún lauk BA-prófi í íslensku í fúní
1992.
Áslaug ftefur starfað við skrifstofustörf
og garðyrkju, auk þess að vera útlærður
rœstitceknir.
Dropinn er eini staðurinn á
göngugötunni þar sem kaffiþyrst-
ur gestur á Akureyri getur búist
við að geta svalað kaffiþorsta
sínum. En viti menn, um miðjan
dag er staðurinn ekki opinn ög
verður ekki opnaður fyrr en kl.
18.00.
Hvað gera bændur þá? Stefnan
er tekin á „Teríuna“ á Hótel
KEA, sem virðist vera sá staður í
bænum þar sem fólk á öllum aldri
hittist og skrafar saman yfir kaffi-
bolla. Umhverfið er langt frá því
að líkjast þeirri ímynd sem mað-
ur hefur af notalegu kaffihúsi.
Ekki er þjónusta á borðum og
aðeins er hægt að fá eina gerð af
kaffi.
Viðskiptavinir á „Teríunni“
sögðu að það væri ekki umhverf-
ið sem laðaði að heldur frekar
félagsskapurinn. Þaö væri öruggt
að hitta einhvern sem maður
þekkti. Einnig væri mannlífið þar
skrautlegt, því fólk úr öllum
stéttum þjóðfélagsins kæmi á
„Teríuna".
Hvað gerir kröfuharður
gestur?
Næsta skrefið hjá kröfuhörðum
og ofdekruðum utanbæjarmanni,
sem vill geta valið um hvers kon-
ar kaffi hann drekkur, er að
athuga kaffiúrvalið á öðrum mat-
sölustöðum í miðbænum. Á
Bautanum og Grillhúsinu er boð-
ið upp á fleiri gerðir af kaffi, svo
sem Expresso og Cappuchino.
Nú ætti utanbæjarmaðurinn loks-
ins að geta unað glaður við sitt.
En sá galli er á gjöf Njarðar að á
Grillhúsinu er nær óhjákvæmi-
legt að verða illa lyktandi af
steikarbrælu eftir að hafa setið
þar yfir kaffibolla og á Bautanum
vantar alla kaffihúsastemmningu.
Af hverju þrífast ekki
kaffihús á Akureyri?
Þegar greinarhöfundur leitaði
skýringa á kaffihúsaleysinu meðal
vegfarenda varð fátt um svör.
Margir héldu því fram að kaffi-
húsamenningin hafi ekki náð til
Akureyrar sökum þess hve
bæjarbúar eru lengi að taka við
sér. Flestir voru þó sammála um
að notalegt kaffihús í miðbæ
Akureyrar myndi blása lífi í
bæinn.
Þráinn Lárusson á Uppanum
hefur tvívegis reynt að koma á
fót vísi að kaffihúsi á Uppanum
en ekki haft erindi sem erfiði.
Sumarið 1985 gerði hann tilraun
til að reka kaffihús í Laxdalshúsi
Algeng sjón í miðbæ Akureyrar: Fremur Iíflaus göngugata.
Nokkur helstu „kaffihúsin“ í miðbæ
Akureyrar. Orðsendingin á hurð
Dropans er að mati greinarhöfundar
nokkuð dæmigcrð fyrir það hve
auðvelt er að finna - og komast inn
á - „ekta“ kaffihús á Akureyri.
Myndir:Áslaug Pétursdóttir
sem gekk ekki heldur. Hann seg-
ir ekki grundvöll vera fyrir því að
reka kaffihús á Akureyri. Menn-
ingarviðburði í bænum segir
hann vera sótta af utanbæjarfólki
og gestum í bænum frekar en af
bæjarbúum sjálfum. Það sama
væri uppi á teningnum hvað varð-
aði kaffihús. Skýringu á þessu
hefur hann ekki á reiðum hönd-
um en telur hugsunarhátt bæjar-
búa vera ólíkan hugsunarhætti
sém tíðkast meðal fólks á höfuð-
borgarsvæðinu.
Önnur manngerð?
Friðrik Einarsson í Grillhúsinu
segir akureyrsku manngerðina
vera frábrugðna þeirri reykvísku
að því leyti að Akureyringar
drekki molasopann heima hjá
sér. Hann telur vanta „kaffihúsa-
hengilmænur" á Akureyri til að
hægt sé að opna þar kaffihús.
Það er því kannski eins gott að
hafa vaðið fyrir neðan sig og
koma með kaffibrúsann með sér
að heiman næst þegar Akureyri
verður sótt heim - nema maður
eigi vini eða kunningja til að
banka upp á hjá.
Áslaug Pétursdóttir
Höfundur er nemandi í hagnýtri fjölmiðl-
un við Háskóla íslands.