Dagur - 01.12.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 01.12.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 1. desember 1992 - DAGUR - 9 Halldór Arinbjarnarson Bikarkeppnin í handknattleik: KA fékk heimaleik gegn Haukum - „miög ánægður með þessa andstæðinga,“ segir Alfreð Gíslason, þjálfari KA Dregið var í VISA-bikar- keppninni, þ.e. bikarkeppni karla á laugardag og fékk lið KA heimaleik á móti Hauk- um. Liðin eru 4 ár síðan KA fékk síðast heimaleik í bikar- keppni ef undanskildir eru leikir liðsins gegn Haukum-b í fyrra og gegn liði Vals-b í ár en báðir þeir leikir voru keyptir heim. „Ég er mjög ánægður með þessa andstæðinga," sagði Alfreð Gíslason leikmaður og þjálfari KA, „við erum nýlega búnir að vinna þá í deildarkeppninni og unnum báða leikina gegn þeim í fyrra og ætlum að stimpla það inn í þá að tap gegn okkur sé eðlileg- ur hlutur. Þetta verður hins vegar ekkert auðunninn leikur, sami baráttuleikurinn og síðast.“ Bikarleikurinn KA-Haukar fer fram sunnudagskvöldið 13. des- f, ember og aðrir leikir þá sömu helgi, en dráttur fór að öðru leyti ' annig fram: BV-Valur Grótta-Víkingur Selfoss-Fram í kvennaflokki drógust eftirtal- in lið saman: Stjarnan-Víkingur ÍBV-Valur Fylkir-Fram FH-Grótta GG Ársþing Knattspyrnusambands íslands: Hert eftirlit með aðbúnaði á og við knattspymuvelli Ársþing Knattspyrnusam- bands Islands var haldið í Reykjavík um síðustu helgi. Litlar breytingar urðu á aðal- stjórn sambandsins, Eggert Magnússon var endurkjörinn formaður og aðrir aðalstjórn- armenn eru Guðmundur Pét- ursson, Jón Gunnlaugsson, Helgi Þorvaldsson, Elías Hergeirsson, Sveinn Sveins- son, Akureyringurinn Stefán Gunnlaugsson, Eggert Stein- grímsson sem kosinn var í stað Sigmundar Stefánssonar og Agúst Ingi Jónsson sem kosinn var í stað Þórs Símonar Ragn- arssonar eftir tvísýna kosningu milli hans og Jóns Magnússon- ar. Eitt stærsta mál þingsins var að herða reglur í sambandi við aðbúnað valla, eins og t.d. bún- ingsaðstöðu, en þar hefur liðum verið boðið upp á ærið misjafna aðstöðu svo ekki sé fastara að orði kveðið, en þetta eftirlit verð- ur nokkuð misjafnt eftir því um hvaða deild er að ræða. Sem landshlutafulltrúi Norð- lendinga var Rafn Hjaltalín kos- inn og hans varamaður verður Sauðkrækingurinn Stefán Logi Haraldsson. Á komandi starfsári KSÍ mun starfa 5 manna fram- Körfuknattleikur, 1. deild kvenna: Tindastóll tapaði fyrir KR en vann stórsigur á Njarðvíkingum Hið unga lið Tindastóls hélt suður um helgina og lék tvo leiki í 1. deild kvenna í körfu- knattleik. Á föstudag léku þær við KR-inga og töpuðu 54:41 en á sunnudag héldu þær suður með sjó og léku við Njarðvíkinga og sigruðu mjög sannfærandi, 32:64. í leiknum við KR var mikil barátta strax frá upphafi, en KR- stúlkur voru þó oftast yfir. Tinda- stól tókst að jafna um miðjan fyrri hálfleik en síðan dró aftur í sund- ur með liðunum. Staðan í hálf- leik var 23:18. Slæm byrjun Tindastóls í byrj- un seinni hálfleiks slökkti frekari vonir um sigur í þessum leik, og KR-stúlkurnar héldu fengnum hlut og sigruðu 54:41. Stigahæst- ar í liði Tindastóls voru Kristín Elfa Magnúsdóttir með 14 stig, Valgerður Erlingsdóttir með 8 stig og þær Birna Valgarðsdóttir og Inga Dóra Magnúsdóttir með 6 stig hvor. Stórsigur í Njarðvík Það var allt annað lið sem mætti Njarðvík á sunnudag og vann stórsigur, 32:64. Tindastóls- stúlkurnar voru fremri á öllum sviðum kvennakörfuknattleiks og var sigur þeirra aldrei í hættu, en Njarðvíkurliðið situr á botninum í 1. deild án stiga. Dómgæslan í báðum þessum leikjum þótti orka mjög tvímælis oft á tíðum, m.a. var sparkað í liggjandi leikmann Tindastóls sem dæma ætti brottrekstrarvíti á, en sú brotlega slapp með víti og skrekkinn. Stigahæstar hjá Tindastól voru Birna Valgarðsdóttir með 24 stig, Kristín Elfa Magnúsdóttir með 13 stig og Kristjana Jónasdóttir með 12 stig. GG íþróttir fyrir alla: Skautakennari á skautasvellinu í dag Landssamtökin IÞRÓTTIR FYRIR ALLA standa fyrir skautahátíð á skautasvelli Skautafélags Akureyrar í dag frá kl. eitt til sex og er aðgang- ur ókeypis. Á skautasvellinu á Akureyri verður skautakennari til staðar, en dagskráin í Reykjavík er sínu veglegri því þar verður kynning á listskautum, kynning á íshokký og listskautasýning. Hátíðin er haldin í samvinnu við ÍTR, Vífil- fell og Bauer umboðið. GG kvæmdastjórn, og er það nýlunda. I henni munu sitja for- maður, gjaldkeri, formaður mótanefndar auk tveggja aðal- stjórnarmanna. GG „Verður ekkert auðunninn leikur,“ segir Alfreð Gíslason. Gráðumót Júdósambands íslands: Kristján lagði alla andstæðinga sína á ippon Gráðumót Júdósambands ís- lands fór fram í íþróttahúsi Fjölbrautaskólans í Breiðholti í Reykjavík sl. laugardag. Júdódeild KA átti einn fulltrúa á mótinu, Kristján Jóhannsson, og gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í sínum flokki og lagði alla andstæðinga sína á ippon. Kristján er nýbyrjaður að æfa júdó á ný eftir nokkurt hlé og hann sýndi það í Reykjavík á laugardag, að hann hefur engu gleymt. Flokkur hans er mínus 71 kg en þar sem ekki var keppt í þeim flokki á mótinu, keppti Kristján í mínus 78 kg flokki og því er árangur hans enn athygl- isverðari. Næsta verkefni hjá júdómönn- um KA, er sveitakeppni JSÍ, sem haldin verður á Akureyri 12. des- ember nk., í tilefni 15 ára afmælis júdódeildar KA á árinu. Þar munu allir bestu júdómenn landsins mæta til leiks, með Bjarna Friðriksson, úr Ármanni í broddi fylkingar. -KK Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals sakaður um líkamsmeiðingar jiioauu, v uio ounuuui uni njvaui eftir leikinn við KA sl. föstudagskvöld: Sámar mest að verið er að ljúga upp á mig og gefa í skvn að ég sé illmeimi - Þorbjörn gaf mér olnbogaskot í magann, segir Hermann Haraldsson „Það sem gerðist var að Þor- björn Jensson, þjálfari Vals, gaf mér olnbogaskot í magann og ástæðan fyrir því var engin,“ sagði Hermann Har- aldsson, stjórnarmaður í hand- knattleiksdeild KA í samtali við Dag, um atvik sem skeði eftir leik KA og Vals í 1. deild- inni í handbolta sl. föstudags- kvöld. Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals kannast ekki við að hafa gefíð Hermanni oln- bogaskot og segir KA-menn vera að blása upp tóma vit- Ieysu. „Eftir að ég hafði átt orðastað við Hermann við innganginn í búningsklefana, ýtti ég honum úr dyragættinni og gekk til bún- ingsklefa. Það var allt um sumt og það sem mér sárnar mest er að verið er að ljúga upp á mig og gefa í skyn að ég sé eitthvert ill- menni. Ég er með vitni að því sem gerðist og það var nákvæm- lega eins og ég hef lýst því,“ segir Þorbjörn. „Það voru vitni að þessum atburði, m.a. stjórnarmenn í Val. Þorbjörn kom svo til mín seinna um kvöldið og bað mig afsökunar en tilgreindi enga ástæðu fyrir þessari framkomu sinni aðra en þá að þetta væri keppnisskapið,“ sagði Hermann. I framhaldi af þessum atburð- um var hætt við að bjóða leik- mönnum Vals í kaffi og meðlæti eftir leik, eins og venja er hjá forráðamönnum KA. „Það var ákveðið að láta liðsmenn Vals bíta úr nálinni fyrir hegðun þjálf- ara síns,“ sagði Hermann. „Mér finnst það í hæsta máta barnalegt að liðsmenn mínir skildu ekki fá kaffi vegna þessa máls og mér skilst að dómurum leiksins hafi heldur ekki verið boðið í kaffi, ekki voru þeir á mínum vegum,“ sagði Þorbjörn Jensson. -KK íslenskar getraunir: Tveir íslendingar í hópi vinningshafa - 13 réttir gáfu kr. 1.300.000,- Fertugasta og áttunda leikvika í íslenskum getraunum var um síðustu helgi. Samkvæmt upplýsing frá íslenskum getraunum reyndust 33 raðir með þrettán rétta. Tveir íslendingar eru í hópi vinnings- hafa og hljóta eina milljón og þrjú hundruð þúsund hvor. Báð- ar raðirnar voru seldar í Laugar- dalum í Reykjavík. ój

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.