Dagur - 01.12.1992, Blaðsíða 15

Dagur - 01.12.1992, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 1. desember 1992 - DAGUR - 15 Dagdvelja Stiörnuspá " eftir Athenu Lee * Föstudagur 27. nóvember G Vatnsberi (20. jan.-18. feb, D Hlutimir gerast hratt í dag og þú færö lítinn tíma til umhugsunar. Gættu að því að taka ekki of fljót- færnislegar ákvarðanir. Fiskar (19. feb.-20. mars) ) Þótt þú hafir mestan áhuga á því sem er að gerast þessa dagana skaltu ekki gleyma áhugaverð- um langtímamarkmiðum. Rækt- aðu hæfileika þína vel. C Hrútur (21. mars-19. aprll) Góður dagur fyrir elskendur. Sérstaklega munu þeir sem eru giftir eða trúlofaðir eiga gott með að ræða áætlanir eða vandamál. Happatölur eru 7, 16 og 32. Naut (20. aprll-20. maí) ) Ekki ana að neinu í dag. Bíddu nauðsynlegra upplýsinga áður en þú tekur ákvarðanir. Einhver þér nákominn gæti skipt um skoðun og gert þér llfið léttara. Tvíburar (21. mal-20. Júnl) ) Afslappað andrúmsloft í dag ger- ir að verkum að þú ert ekki nógu vel á verði gagnvart hnýsni. Láttu ekki blanda þér í pólitískar umræður í dag. C Krabbi (21. Júní-22. Júlí) ) Einhver óróleiki einkennir persónuleg sambönd fyrri hluta dagsins en það ætti að lagast. Þú ættir ekki að taka störar ákvarðanir í dag. Ijón (23. Júli-22. ágúst) ) Taktu daginn snemma ef mikið liggur fyrir í dag. Kannski þurfa aðrir á aðstoð þinni að halda seinni partinn og það gæti sett allt úr skorðum hjá þér. 3 Meyja (23. ágúst-22. sept. D Þessi viðburðaríki dagur gæti opnað þér góða möguleika á næstu vikum, hvort sem um er að ræða í viðskiptum eða einka- lífi. Þú kemur miklu í verk í dag. ( VOg (23. sept.-22. okt. D Þú færð nýtt tækifæri í dag; kannski varðandi hugmynd sem ekki komst á framfæri. í einkalff- inu verður einhvers konar ábyrgð af þér létt. C Sporðdreki') (23. okt.-21. nóv.) J Ýmislegt bendir til breytinga, heimafyrir eða í vinnunni. Ekki ana að neinu. Þú kærir þig nefni- lega ekki um breytingar, bara til að breyta til. Finndu auðveldari leið til að vinna á leiðindunum. (± BogmaðurD (22. nðv.-21. des.) J Ef þú sýnir á þér veikan blett í dag er hætta á að fólk í kringum þig notfæri sér það. Sérstaklega verður reynt að taka af þér vald til ákvarðanatöku. Steingeit 'N (22. des-19. jan.) J Þú stendur ekki vel í samkeppni og þarft að berjast fyrir þfnu. Notaðu tímann til að bæta sam- band sem slitnaði upp úr tíma- bundið. A léttu nótunum í veitingahúsinu „Þjónn! Ég vil gjarnan fá buff.“ „Sjálfsagt, herra. Á það að vera enskt eða franskt?" „Skiptir engu. Ég ætla ekki að tala við það...“ „Þjónn! Þessi þorskur bragðast ekki eins vel og sá sem ég fékk hér í síðustu viku.“ Þjónninn: „Ja, það er nú merkilegt. Sjáðu til, þetta er nefnilega sami þorskurinn." Afmælisbarn Metnaður er sá kraftur sem ein- kennir marga bogmenn og árið býður þeim upp á mörg tækifæri. Hins vegar er hætta á því að þeir verði svo uppteknir við að ná sett- um markmiðum, að þeir vanræki ónnur málefni. Gleymdu þér ékki þar sem persónuleg sambönd eru annars vegar, sérstaklega um mitt ár þegar rómantfkin mun ráða rfkjum. Þetta þarftu Tröllafræ Stærsta fræ í heimi er tvöfalda kókoshnetan, fræ kókospálmans „Lodoicea seychellarum" en hann vex á Seychelleyjum f Ind- landshafi. í hnetunni er aðeins eitt fræ en hún er hins vegar allt upp í 18 kíló að þyngd. Orbtakift Að finna hvar skórinn kreppir Orðtakið, að finna (vita, sjá) hvar skórinn kreppir, merkir að finna (vita, sjá) hvar örðugleikarnir þrengja að; hver vandinn er. Sam- svarandi orðtök eru til í mörgum málum, m.a. dönsku, þýsku og ensku. Orðtakið er runnið frá dag- legri reynslu og eiginleg/uppruna- leg merking þess er augljós. Nú á tímum þykjast sumir vita „hvar skóinn kreppi". Að nota orð- ið skór í þolfalli f þessu samhengi er rangt. Hjonabandib Mistök „Öllum verða á mistök, þeir giftu komast bara fyrr að þvf en aðrir.“ Ókunnur höfundur. sfÓRT Lengsta nafn á vatni Vatn eitt í Massachusetts í Bandaríkjunum mun heita lengsta nafni, sem vitað er um á stöðuvatni. Það heitir hvorki meira né minna en Chargoggu- ugoggmonshaugagggoggc- hubunagungamaug. Nafnið er úr Algonquin-lndí- ánamáli og kvað merkja: „Þú veiðir frá þínum bakka, við frá okkar, en enginn í miðjunni". En þetta nafn hefur víst þótt nokkuð stirt í munni, og ef til vill vont að muna það, a.m.k. fyrir aðra en Indíána, og þess vegna hefur landfræðiheita- nefnd ríkisins úrskurðað að vatnið skuli framvegis aðeins heita - Chaubunagunagunga- maug. Laxamóðirin í Þjóösögum Jóns Árnasonar er eftirfarandi sögn um laxa- móðurina: Hún er talin voðalega stór skepna, og er allt hið sama með löxum, sem flyðrumóður- inni með lúðum, en engar sög- ur fara af meingjörðum henn- ar. „Frá því var mér sagt“, segir séra Jón Norömann, „aö í Laxá í Hnappadalssýslu hafi fyrrum verið mikil laxveiði og silungsveiði. Hylur einn var í ánni og jarðhús í, og var þar óvenjan öll af silungi og laxi, en náðist aldrei. Var það þá til bragðs tekið, að sel var hleypt í hylinn, og haft band á honum, en menn voru fyrir neðan meö net. Fældi selurinn svo fyrst fram smásilungana, síðan komu fram laxarnir, og veiddu menn hvorutveggja. Loksins komu tvær ógnar stór- ar skepnur fram úr jarðhúsinu; það voru laxamæðurnar. ösl- uöu þær fram ána, rifu öll netin og héldu af út á sjó. Þá er sagt, að hafi tekið fyrir veiðina í Laxá“. Lykt af úldnum krata Og ráðstafan- ir ríkisstjórnar hafa litið dagsins Ijós. Sama er hvar borið er niður allir eru óánægðir ef ekki reiðir. Já, kostum þing- manna Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks er ekki hampað. Starri í Garði er maður orð- heppinn og nýverið kom út bók eftir hann er nefnist „Úr ruslakistu Starra í Garði“. Þar er að finna vísu sem ort var fyrir margt löngu, sem sumir segja að eigi vel við daginn í dag. Er í heimi enn um skeið, engin von um bata. Þegar menn finna langa leið, lykt af úldnum krata.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.