Dagur


Dagur - 01.12.1992, Qupperneq 7

Dagur - 01.12.1992, Qupperneq 7
Þriðjudagur 1. desember 1992 - DAGUR - 7 Valur náði jafntefli gegn KA Það voru stálin stinn sem mættust í KA-húsinu á föstu- dagskvöldið. Þá áttust við í 1. deild karla í handknattleik, KA og Valur. Leikurinn var hnífjafn og spennandi og bauð á köflum upp á mjög góðan handknattleik. Þegar flautað var til leiksloka var staðan jöfn, 24:24 op. aukakast sem KA- menn tóku eftir að leiktíminn var runninn út, breytti engu þar um Það sem helst skyggði á var slök dómgæsla, sem var mjög ileiðinlegt, þar sem Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson eru almennt með bestu dómurum deildarinnar. KA var með for- Erlingur Kristjánsson leikmaður KA lék vel með liði sínu gegn Val og skor- aði 7 mörk. Knattspyrna: Gústaf Ómarsson til Leifturs á ný - óvissa með Einar Einarsson Gústaf Ómarsson hefur ákveð- ið að leika með knattspyrnuliði Leifturs í Ólafsfirði í 2. deild- inni næsta keppnistímabil. Gústaf er ekki ókunnugur í herbúðum Leifturs, því hann lék með félaginu þrjú keppnis- tímabil, árin 1987, ’88 og ’89. Gústaf Ómarsson hyggst leika með Leiftri í 2. deildinni í knattspyrnu næsta sumar. Gústaf gekk til liðs við Breiða- blik eftir dvölina hjá Leiftri og lék með liðinu í tvö ár. í sumar þjálfaði hann Val frá Reyðarfirði og lék einnig með liðinu. Lið Vals gerði það gott undir stjórn Gústafs og lék m.a. við íslands- meistara IA í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar en varð að lúta í lægra haldi. Pá hefur Páll Guðmundsson frá Selfossi einnig ákveðið að leika með Leiftri, eins og komið hefur fram í Degi. Hópurinn frá því í fyrra verður að mestu óbreyttur en þó mun Eyjamaður- inn Jón Atli Gúnnarsson, yfir- gefa liðið og þá er óvíst hvort Einar Einarsson leiki áfram með liðinu. Einar lék með Leiftri í sumar, en kom upphaflega norð- ur til KA frá Víkingi. Hann er fluttur til Reykjavíkur aftur og því óvíst hvar hann leikur knatt- spyrnu í sumar. -KK ystu lengst af leiknum, mest 3 mörk um miðbik fyrri hálfleiks og aftur um miðjan seinni hálf- leik, en tókst ekki að hrista Vals- ara af sér. Valdimar Grímsson minnkaði muninn í 1 mark úr vítakasti þegar leiktími fyrri hálf- leiks var runninn út. Valsmenn náðu síðan að jafna og komast yfir þegar aðeins 5 mínútur voru eftir af leiknum en KA jafnaði þegar tæpar 2 mínútur voru eftir. Valsmenn voru með boltann síð- ustu mínútuna en tókst ekki að skora og minnstu munaði að KA næði báðum stigunum þar sem mislukkuð sending 13 sekúndum fyrir leikslok færði KA-mönnum boltann. Tíminn var þó of naum- ur og jafntefli 24:24 var niður- staðan. „Þetta var mjög jafn leikur og gat farið á hvorn veginn sem var. Vörnin var mjög góð, sérstaklega í fyrri hálfleik, en markvarslan brást,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari KA. Iztok Race stóð í marki KA lengst af, en varði aðeins 3 skot. Bestu menn KA voru Óskar Elvar og Erlingur Kristjánsson og Alfreð. Dagur Sigurðsson var bestur Valsara. Eftir leikinn hljóp forráðamönn- um liðanna kapp í kinn og var sú framkoma báðum aðilum til vansa. M.a. gaf Þorbjörn Jensson þjálfari Vals einum stjórnar- manni í handknattleiksdeild KA óþyrmilegt olnbogaskot. Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 8:5, 12:9, 14:13, 16:15, 19:18, 21:19, 22:22 og 24:24. Mörk KA: Óskar E. Óskarsson 8/1. Erlingur Kristjánsson 7/3, Alfreð Gísla- son 4, Jóhann Jóhannsson 3, Pétur Bjarnason 1 og Ármann Sigurvinsson 1. Mörk Vals: Valdimar Grímsson 8/5, Dagur Sigurðsson 5, Jón Kristjánsson 5/ 2, Júlíus Gunnarsson 4, Óskar Óskarsson 1 og Geir Sveinsson 1. Bæði lið Stólanna fengu heimaleiki í Bikarkeppni KKÍ: Báöu um heimaleik gegn Narðvík, og fengu! Dregið var í 8-liða úrslit í bik- arkeppni Körfuknattleiks- sambands íslands á laugardag. Karla- og kvennalið Tindastóls á Sauðárkróki sem bæði eru með í bikarkeppninni fengu heimaleik, konurnar gegn Keflvíkingum sem eru enn ósigraðar í deildarkeppninni og karlarnir gegn Njarðvík en þeir eiga harma að hefna gegn þeim, en Njarðvíkingar slógu þá út úr bikarkeppninni fyrir tveimur árum síðan. „Þetta voru okkar óska- andstæðingar í bikarkeppninni, fyrst og fremst vegna þess að þeir slógu okkur út í 16-liða úrslitum í Njarðvík fyrir tveimur árum með eins stigs mun. Við höfum spilað tvo deildarleiki við þá í vetur, unnum þá í Njarðvík 111:107 en töpuðum með tveggja stiga mun hér heima, 72:74,“ sagði Þórarinn Thorlacius formaður körfuknatt- leiksdeildar Tindastóls aðspurð- ur. Tindastólsstúlkurnar hafa ekki leikið í vetur við hið sterka lið Keflvíkinga sem enn er ósigrað í deildinni. Segja má að lið Tinda- stóls hafi komið bakdyramegin inn í 1. deildina, því lið Hauka dró sig á síðustu stundu út úr keppninni. Ákveðið var að senda unglingalið Tindastóls sem er yfirburðalið í þeim aldursflokki og hefur þeim gengið framar öll- um vonum, eru með 10 stig og í hópi efstu liða. Leikirnir fara fram sunnudag- inn 13. desember, kvennaleikur- inn klukkan fimm en karlaleikur- inn klukkan átta. Aðrir bikarleikir í karlaflokki eru eftirtaldir: Snæfell-Valur Breiðablik-Keflavík Skallagrímur-KR í kvennaflokki drógust eftirtal- in lið saman: ÍS-KR ÍR-Njarðvík Grindavík-Snæfell GG Þar sem lið Bjarnarins mætti ekki til leiks, tók lið SA létta ætingu á laugardaginn. Björninn Ekkert varð af fyrirhuguðum leik Skautafélags Akureyrar og Bjarnarins. Liðsmenn Bjarnarins höfðu fengið leikinn færðan til kl. 16.00 Íshokkí: mætti ekki til leiks og skömmu áður en hann átti að hefjast vildu þeir fá honum frestað. Skautafélagsmenn töldu sig ekki geta sætt sig við slíka framkomu, því m.a. höfðu verið fengnir dómarar frá Reykjavík. Leikurinn var því flautaður af og á og SA dæmd stigin. í staðinn var sett upp innanfélagsmót og skipt í 2 lið.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.