Dagur - 01.12.1992, Qupperneq 16
Hágæða litstækkun á 5 mínútum
^PcóíomyndÍT^
Skipagötu 16 * Sími 23520
Góð veiði á línu hjá bátum á Árskógssandi:
Kemur mér á óvart ef einhverjir þingmenn Fram-
sóknarflokksins greiða atkvæði með EES-samningmim
- segir Steingrímur Hermannsson en telur að hagsmunir
Hagvirki-Klettur átti lægsta til-
boðiö í þetta verk, 44,7 milljónir
króna. Fyrst og fremst er um að
ræða fyllingu og burðarlag.
Hagvirki-Klettur mun hefja
framkvæmdir 15. maí nk. og
stefnir að því að ljúka verkinu 1.
september, en í útboðsgögnum
hafði verið miðað við 15. október
nk.
Sólrún hf. á Árskógssandi ger-
ir út tvo línubáta, Sólrúnu EA-
351, sem er 147 tonn að stærð,
og Þyt EA-96, sem er 9,3 tonn.
Þytur hefur aflað alível að
undanförnu á Grímseyjar-
sundi, norðan af Grímsey og
austur á Mánáreyjahrygg og
vestur undir Skaga og er þetta
allvænn fiskur, sem fengist
hefur á þessum slóðum.
Þytur hefur verið á línu síðan í
september en Sólrún síðan í
byrjun nóvembermánaðar og
hefur sótt vestur undir Horn,
austur undir Sléttu og norður að
Kolbeinsey. Tvær síðustu vikur
hefur fengist ágætur afli á
Skagagrunni. Aflanum er landað
slægðum, en gæði þess fisks eru
verulega meiri en óslægðs fisks.
Með því að landa óslægðu má
hagnast á kvóta, en Pétur Sig-
urðsson hjá Sólrúnu telur það
algjöra öfugþróun vegna þess
hversu mikill gæðamunur er á
þessu hráefni. Allur aflinn er
verkaður í salt, en mjög gott verð
er fyrir línufiskinn nú, en hann
fer aðallega til Ítalíu, Spánar og
Grikklands. Vegna eftirspurnar
er fiskinum afskipað jafnóðum
og hann er tilbúinn til útflutn-
ings.
í dag vinna 13 manns við beit-
ingu hjá Sólrúnu hf., og er stór
hluti þess hóps aðkomufólk, úr
Arnarneshreppi og frá Akureyri.
Hjá fyrirtækinu starfa alls um 45
manns, þ.e. iandverkafólk, beit-
ingamenn og sjómenn.
Svipaður fjöldi starfsmanna er
hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tækinu G. Ben hf. á Árskógs-
sandi, en annar bátur fyrirtækis-
ins, Sæþór EA-101, hefur verið á
ufsaveiðum með net og aflað um
95 tonn sl. hálfan mánuð. Hinn
báturinn, Arnþór EA-16, hefur
verið á síld og hefur hún að lang-
mestu leyti farið til vinnslu og
hafa útflutningsverðmæti hennar
aukist allt að fimmfalt miðað við
bræðslusíld. GG
Framkvæmdir í
Bakkaselsbrekku
hefjast 15. maí
Síðastliöinn föstudag voru
undirritaðir samningar Vega-
gerðar ríkisins og Hagvirkis-
Kletts um lagningu nýs 3,4 km
vegar um Bakkaselsbrekku í
Öxnadal.
Fongulegustu fynrsæturnar í samkeppni Módelmynda og Sjallans. Fv.: Asdís María Franklín (2. sæti), Elva Hrönn
Eiríksdóttir, sigurvegari og Helga Berglind Jónsdóttir (3. sæti). Mynd: Robyn
Fyrirsætukeppni Módelmyndar og Sjallans:
Fjórtán ára Akureyrar-
mær bar sigur úr býtum
Tólf stúlkur kepptu til úrslita í
fyrirsætukeppni Módelmyndar
og Sjallans í Sjallanum á Ákur-
eyri sl. föstudagskvöld. Það
var spenna í loftinu þegar
dómnefnd kynnti niðurstöðu
sína, sem var á þá leið að Elva
Hrönn Eiríksdóttir, 14 ára
Akureyrarmær, bar sigur úr
býtum. Var henni ákaft
fagnað.
Stúlkurnar tólf voru á aldrin-
um 14-23 ára og flestar búsettar á
Akureyri. Þær hafa verið í
ströngum æfingum fyrir keppnina
og skörtuðu sínu fegursta á
úrslitakvöldinu. Mikið var um
dýrðir í Sjallanum og verður svo
einnig um næstu helgi, en þá
munu átta karlar reyna með sér í
fyrirsætukeppni á vegum sömu
aðila.
Elva Hrönn var leyst út með
veglegum verðlaunum. Hún fékk
skartgrip frá Módelsmíði Kristín-
ar, fatnað frá Fínum línum,
undirföt og sokkabuxur frá
Davíð S. Jónssyni hf., snyrtivör-
ur frá Th. Stefánssyni hf. og
Amaro og ljósmyndatöku hjá
Bonna. í 2. sæti varð Ásdís
María Franklín (14 ára) og í 3.
sæti Helga Berglind Jónsdóttir
(16 ára).
Eins og áður segir er röðin
komin að körlunum um næstu
helgi og verða keppendur kynntir
þegar nær dregur úrslitakvöld-
inu. SS
Bjart yfír markaðinum
á söltuðum línufíski
Miklar umræður urðu um
samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið á flokksþingi
Framsóknarflokksins og mátti
greina mismunandi áherslur í
máli manna varðandi hvort
hafna bæri þeim samningi er
nú liggur fyrir Alþingi eða
ekki. Allmikil andstaða var við
samninginn á meðal þingfull-
trúa en hann átti sér einnig
talsmenn og fór Halldór
Ásgrímsson, varaformaður
Framsóknarflokksins og fyrr-
um sjávarútvegsráðherra,
@ VEÐRIÐ
Veður fer nú kólnandi á land-
inu. Á Norðurlandi vestra er
spáð austlægri átt, golu eða
kalda og léttskýjuðu. Síðdegis
verður komin allhvöss norð-
austanátt með éljum. Á
Norðurlandi eystra verður
breytileg átt, gola eða kaldi
framan af degi. Síðla dags
verður austan kaldi og él á
miðunum úti fyrir en skýjað
með köflum til landsins.
sjávarútvegsins hafi áhrif á sjónarmið manna
einkum fyrir þeim er töldu
ógerlegt að hafna þessum
samningi með öllu. Steingrím-
ur Hermannsson, formaður
flokksins, tók hinsvegar meiri
vara fyrir mörgum atriðum í
EES-samningnum.
Steingrímur Hermannsson
sagði í samtali við Dag að allt tal
um klofning í flokknum væri
mjög orðum aukið. Hinsvegar
hefðu menn mismunandi áhersl-
ur um efni samningsins og einnig
þá hlið hans sem snertir stjórn-
arskrána. Steingrímur kvaðst
telja að á flokksþinginu hafi feng-
ist vel ásættanleg niðurstaða hvað
EES-samninginn varðar og þeir
sem hafi efasemdir um hvort
hann standist stjórnarskrána hafi
fallist á að vafaatriði verði túlkuð
stjórnarskránni í vil - þannig að
ekki væri hægt að fylgja samn-
ingnum nema að stjórnarskráin
heimilaði.
Um væntanlega atkvæða-
greiðslu um EES-samninginn á
Alþingi sagði Steingrímur Her-
mannsson að hver þingmaður
tæki ákvörðun um það fyrir sig en
það kæmi sér verulega á óvart ef
þingmenn Framsóknarflokksins
greiddu atkvæði með honum.
Eins og samþykkt flokksþingsins
sé þá skipti ekki máli hvort þing-
menn sitji hjá við atkvæðagreiðslu
eða greiði atkvæði á móti.
Steingrímur kvaðst aðspurður
telja að nokkur munur væri á
skoðunum manna um EES-samn-
inginn eftir búsetu. Þannig væri
meiri andstaða við hann á
Norðurlandi og raunar Suður-
landi einnig en í öðrum lands-
hlutum. Staðreyndin væri sú að
þar sem sjávarútvegurinn væri |
ríkari þáttur í atvinnulífinu þar
væru menn hliðhollari samningn-
um sem væri skiljanlegt út frá
hagsmunum á þeim svæðum.
Aðspurður kvaðst Steingrímur
einnig telja að tengsl Halldórs
Ásgrímssonar við sjávarútveginn
gerðu það að verkum að hann
væri hliðhollari EES-samningn-
um en margir aðrir þingmenn
Framsóknarflokksins. Vitanlega
yrði að viðurkenna að eflaust
sköpuðust erfiðleikar hér ef
Norðmenn lentu innan tollmúra
Evrópu en við utan þeirra. Því
væri þarna um hagsmuni að ræða
fyrir sjávarútveginn og hefði það
áhrif á sjónarmið manna. ÞI
„Við vonum að hráefni til
vinnslu hjá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur endist alveg fram
undir jól,“ sagði Einar
Njálsson, stjórnarformaður
fyrirtækisins í samtali við Dag.
Ekki var reiknað með að unnið
yrði lengur en til 12. des. hjá
Fiskiðjusamlaginu, og sam-
komulagi þarf að ná við starfs-
fólk til að semja um nokkurra
daga lengri vinnu.
Einar sagði að vonir stæðu til
að einhver afli fengist af trillun-
um, sem hefðu fiskað svolítið
þegar þær hefðu komist á sjó.
Samstarf er við Hafbjörgu EA
sem rær með iínu frá Húsavík.
Vegagerð ríkisins mun síðan
sjá um lagningu efra burðarlags
og slitlags og verður þeim fram-
kvæmdum lokið árið 1994. óþh
Keypt hafa verið 100 tonn af
Rússafiski til viðbótar, en alls
hafa þá verið keypt um 180 tonn
á síðustu vikum. „Miðað við að
gæftir verði og línubátar geti
róið, vonumst við til að hráefni
fáist til að vinnslu fram til 18. eða
19. des,“ sagði Einar. Hann sagði
að starfsfólki hefði verið sagt upp
frá 12. des. og samkomulag þyrfti
að nást við það til að unnt reynd-
ist að halda vinnslu áfram viku
lengur.
Um miðjan desember verður
hafist handa við viðhaldsverkefni
í rækjuvinnslunni en reiknað er
með að vinna hefjist þar á ný
fljótlega eftir áramótin. IM
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Hráefni gæti enst
fram undir jól