Dagur - 17.12.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 17. desember 1992 - DAGUR - 9
Jóna Berta Jónsdóttir (t.v.) og Hekla Geirdal, tvær af konum í Mæðra-
styrksnefnd á Akureyri, í húsnæði Mæðrastyrksnefndar að Gránufélags-
götu 5 á Akureyri. Mæðrastyrksnefnd hefur m.a. borist mikið magn af fatn-
aði og ýmsum öðrum varningi. Þá hafa fjölmargir aðilar styrkt nefndina fjár-
hagslega. Mynd: Robyn ,
hafa mun minni peninga til ráð-
stöfunar.“
Mikið ábyrgðarstarf
„Almennt má segja að þetta er
mikið ábyrgðarstarf og maður
þarf að vera ákaflega gætinn og
passa sig að særa ekki fólk,“
sagði Jóna Berta. „En ég vil segja
að fólk er yfirleitt ákaflega
þakklátt. Það tekur oftast yndis-
lega á móti manni,“ sagði hún.
Jóna Berta sagðist ekki sjá eft-
ir öllum þeim tíma sem færi í
þetta sjálfboðaliðastarf. Vinnu-
veitandi hennar væri skilningsrík-
ur og jólaundirbúningur á hennar
eigin heimili hlypi ekki í burtu,
eins og hún orðaði það. „Þessi
vinna gefur mér mjög mikið og
þegar henni lýkur fyrir hver jól
líður mér vel og ég get sagt með
sanni að ég á mjög ánægjuleg
jól,“ sagði Jóna Berta Jónsdóttir.
Félagsmálastofnun Akur-
eyrar veitir fjárhagsaðstoð
Guðrún Sigurðardóttir, hjá ráð-
gjafadeild Félagsmálastofnunar
Akureyrarbæjar, segir að hærri
upphæð sé varið fjárhagsaðstoð-
ar í desember en öðrum mánuð-
um ársins. „Af okkar hálfu er
einungis um að ræða fjárhags-
aðstoð. Fólk sem býr við kröpp
kjör alla jafna sækir um aðstoð til
að halda jól,“ sagði Guðrún.
Hún sagði að um væri að ræða
elli- og örörkulífeyrisþega og lág-
launafólk með þunga framfærslu-
byrði. „Að undanförnu höfum
við einnig aðstoðað atvinnulaust
fólk,“ sagði Guðrún.
Opið hús hjá
Hjálpræðishernum á
aðfangadagskvöld
Hjálpræðisherinn á Akureyri
kemur fólki til aðstoðar um jól.
Elsabet Daníelsdóttir, kapteinn
hjá Hjálpræðishernum, segir að
reynt sé að hjálpa því fólki sem
ieiti eftir aðstoð. Það fái að gjöf
peninga eða mat eftir því sem
efni leyfi. „Svo höfum við opið
hús á aðfangadagskvöld. Við
prófuðum það í fyrsta skipti í
fyrra. Þá komu ekki margir en
við höldum að þörfin sé meiri í
ár. Einnig förum við til eldra
fólks rétt fyrir jólin og færum því
glaðning,“ sagði Elsabet. Hún
sagði að í fyrra hafi einstæðingar
borðað hjá Hjálpræðishernum á
aðfangadagskvöld, en jólamáltíðin
sé einnig hugsuð fyrir fólk sem
vegna veikinda eða af öðrum
ástæðum eigi erfitt með að undir-
búa jólahaldið.
Elsabet sagði að Hjálpræðis-
herinn fjármagnaði þessa aðstoð
fyrir og um jólin með fé sem
almenningur léti af hendi rakna.
„Við finnum fyrir stuðningi og
velvild fólks og fjársöfnunin hef-
ur gengið mjög vel undanfarin
ár,“ sagði Elsabet.
Rauði krossinn með
fatasöfnun
Hafsteinn Jakobsson, starfsmað-
ur Akureyrardeildar Rauða
krossins, sagði að þess væru
dæmi að fólk hringdi þangað og
óskaði eftir aðstoð eða vísaði á
fólk sem þyrfti á aðstoð að halda.
í flestum tilfellum væri þessum
erindum vísað til Mæðrastyrks-
nefndar. „Við höfum ekki farið
út í að styrkja fólk beint nema
það hafi orðið fyrir sérstökum
áföllum," sagði Hafsteinn.
Rauði krossinn stendur allan
ársins hring fyrir fatasöfnun en
mestur kraftur er í henni fyrir jól.
Um síðustu helgi stóð ungliða-
hreyfing Akureyrardeildar
Rauða krossins fyrir sérstöku
fatasöfnunarátaki og sagði Haf-
steinn að viðbrögð hafi verið
góð. „Þessi fatnaður er sendur til
Reykjavíkur og þaðan til Dan-
merkur þar sem hann er flokkað-
ur og honum dreift þangað sem
þörfin er mest á hverjum tíma.
Um þessar mundir fara fatasend-
ingar mest til Sómalíu og gömlu
Júgóslavíu," sagði Hafsteinn.
Prestar veröa varir viö
þrengingar á heimilum
Séra Birgir Snæbjörnsson, sókn-
arprestur á Akureyri, segir að
prestarnir verði varir við þreng-
ingar á mörgum heimilum um
þessar mundir. Hann segir að
kirkjan hafi ekki í digra sjóði að
sækja með aðstoð, en þó séu
dæmi þess að í neyðartilvikum sé
sótt um aðstoð til Hjálparstofn-
unar kirkjunnar.
Sr. Birgir sagði að ástæða væri
til að hafa áhyggjur af vaxandi
atvinnuleysi. Hann nefndi að á
fundi sóknarnefndar Akureyrar-
kirkju nýverið hafi verið rætt um
möguleikann á því að eftir ára-
mót veiti Akureyrarkirkja
atvinnulausu fólki aðstoð með
einhverjum hætti. í Reykjavík
hafi um tíma verið opið hús fyrir
atvinnulausa í safnaðarheimil-
um tveggja kirkna og ætlunin
væri að afla upplýsinga um
hvernig að þessu starfi væri
staðið. „Þetta mál er í athugun
en það er fullur hugur hjá okkur
að reyna að gera eitthvað í þess-
um málum eftir áramót,“ sagði
sr. Birgir Snæbjörnsson. óþh
Opið uiii frain A enj u:
Laugardagiim 19. desember
fráld 10-22
Summdagirm 20. desember
frá Id. 13-17
Kaupmannafélag Akureyrar