Dagur - 18.12.1992, Page 1
RafVeita Akureyrar:
Gjaldskrár-
hækkunin 3%
frá 1. janúar
Stjórn veitustofnana Akureyr-
arbæjar samþykkti á fundi sín-
um á miðvikudag að leggja til
að gjaldskrá Rafveitu Akur-
eyrar verði hækkuð um 3% frá
1. janúar. Þessi hækkun kem-
ur í kjölfar ákvörðunar Lands-
virkjunar um 4% hækkun raf-
orkuverðs en er þó minni en
t.d. hækkun Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sem hækkaði sína
gjaldskrá um 4%.
Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs og stjórnar
veitustofnana, segir það ætlunina
að Rafveita Akureyrar komist af
með einu prósentustigi minni
hækkun en hjá Landsvirkjun og
segja megi að reynt sé með þessu
að draga úr gjaldskrárhækkun-
inni eins og mögulegt er. En þýð-
ir þetta ekki að Rafveitan er að
taka á sig mismuninn?
„Við erum að reyna að taka á
okkur afvegaleidda hækkun
Landsvirkjunar og erum að taka
raunverulega á okkur þær verð-
lagsbreytingar sem slíkt hefur í
för með sér fyrir rafveituna,
þ.e.a.s. að hækkun Landsvirkj-
unar mun fara inn í vístitölu og
þar með hækka kostnað," sagði
Sigurður J. Sigurðsson. JOH
Þurrkað af!
Mynd: Robyn
„Þessi jól verða meiri plast-
kortajól en oftast áður“
- segir Porsteinn Þorvaldsson sparisjóðsstjóri í Ólafsfirði
„Það er ekki mikið um það að
fólk komi í bankann til að fá
aðstoð við að halda jól, en
ég á frekar von á því að ein-
hverjir leiti ásjár bankans í
janúar og febrúar á næsta ári
þegar greiðslukortareikning-
arnir falla,“ segir Árni Sveins-
son útibússtjóri Landsbankans
á Húsavík.
Árni segist telja að stærstur
hluti viðskipta þeirra sem fóru
erlendis í haust í verslunar-
leiðangur hafi farið fram með
greiðslukorti og þeir reikningar
K' Ifalli fyrstu dagana í janúar.
telur að fólk hafi meira haldið
að sér höndum í haust til þess að
hafa rýmri peningaráð í desem-
ber vegna jólaundirbúnings og
dagleg innlegg þeirra verslana
sem eru í viðskiptum við Lands-
bankann hafi ekki minnkað að
neinu ráði nú þessa síðustu daga.
Sigurður Hafliðason útibús-
stjóri íslandsbanka á Siglufirði
segir viðskiptavini bankans ekki
ásæknari í fyrirgreiðslu fyrir þessi
jól en mörg undanfarin ár.
Þokkalegt atvinnuástand hefur
verið á Siglufirði þótt nú sé uppi-
hald í verksmiðjum Síldarverk-
smiðja ríkisins vegna loðnuleysis
og afkoma fólks jafnvel skárri nú
en oft áður á þessum árstíma.
„Ég verð ekki var við það að
fólk komi hér meira nú en áður
til að biðja sparisjóðinn um fyrir-
greiðslu vegna peningaleysis,
enda eru viðskipti með greiðslu-
kort orðin svo snar þáttur í öíí-
um viðskiptum í dag. Margir taka
reyndar út innistæður í spari-
sjóðnum á þessum tíma til að
létta á jólainnkaupunum. Þessi
jól verða meiri plastkortajól en
oft áður og á vandamálunum
verður ekki tekið fyrr en í byrjun
febrúar þegar greiða skal úttekt-
ina hjá greiðslukortafyrirtækjun-
um. Vanskil vegna greiðslukorta-
viðskipta hafa farið vaxandi á
þessu ári og það dregur alls ekki
úr þeim á þessum árstíma.
Atvinnuástand hefur verið gott
hér í Ólafsfirði og það hefur ekki
lítið að segja þótt víða séu þreng-
ingar hjá fólki,“ segir Þorsteinn
Þorvaldsson sparisjóðsstjóri hjá
Sparisjóði Ólafsfjarðar. GG
Mjólkurtankar bænda í
Svarfaðar- og Skíðadal fullir:
Mjólk ekki verið
sótt vegjna ófærðar
síðan á fóstudag
Mjólk hefur ekki verið sótt á
nokkra bæi í Svarfaðardal og
Skíðadal síðan föstudaginn 11.
desember og eru flestir mjólk-
urtankar á þessum bæjum
orðnir fullir og því eiga kúa-
bændur ekki önnur úrræði en
að hella mjólk niður ef mjólk-
urbílarnir komast ekki þangað
fljótlega.
Halldór Karlsson hjá Bifreiða-
deild KEA segir mjólkurbílana
hafa komist á miðvikudag til allra
bæja á félagssvæði Mjólkursam-
lags KEA að undanskildum
Svarfaðardal og Skíðadal en ekki
hefur tekist að komast til bæj-
anna Syðra-Hvarfs, Dælis og
Hnjúks síðan á föstudag og til
fremstu bæja í Svarfaðardal síðan
á laugardag. Óskar Gunnarsson
bóndi í Dæli segir snjómagnið
orðið slíkt að vegurinn að þess-
um bæjum verði ekki opnaður
nema með stórtækum snjóblás-
ara. Síðdegis í gær var snjóblás-
arinn staddur sunnan Dalvíkur
og átti síðan að senda hann fram
í Svarfaðardal, vestan megin.
Svarfaðardalshreppur greiðir
helming snjómoksturskostnaðar
um dalinn á móti ríkinu. Mjólk-
urbíll átti að fylgja í slóð hans.
Atli Friðbjörnsson, oddviti og
bóndi á Hóli, segir marga mjólk-
urframleiðendur vera búna að
fylla alla mjólkurtanka en sumir
eigi eitthvað af brúsum sem nýttir
verða ef nauðsyn ber til en því
megi heldur ekki gleyma að
geymsluþol mjólkurinnar er tak-
mörkunum háð.
Hjá Mjólkursamlagi KEA
fengust þær upplýsingar að ekki
yrðu nein vandræði með fram-
leiðslu á rjóma og neyslumjólk
fram að hátíð og tryggt yrði að
birgðir yrðu nægar.
A Klaufabrekkum er rekið
hænsnabú með 5400 varphænum
og var þar orðið fóðurlaust á
miðvikudagskvöldið. í gær braust
Ekki kvarta allir kaupmenn yfir veðrinu:
„Man varla eftir eins mikilli bóksölu“
- segir Ingvar Þórarinsson, bóksali á Húsavík
Kaupmenn á Norðurlandi bera
sig fremur iUa margir hverjir út
af fannfergi og fjúki síðustu
daga. Viðskiptavinirnir hafa
varla treyst sér út í ofsann og
einnig hefur dreiflng á vörum
gengið illa. Ekki er þó algilt að
verslun hafl dottið niður í
óveðrinu eins og Ingvar Þórar-
insson, bóksali á Húsavík,
kann frá að segja.
„Það er búið að vera mjög
mikið að gera hjá mér og ég man
varla eftir eins mikilli bóksölu.
Ein ástæðan er ugglaust sú að
verð bóka er lágt, nánast óbreytt
eða jafnvel lægra en í fyrra. Og
þrátt fyrir óveðrið hefur salan
verið svona góð sem að mínu
mati staðfestir að bókin heldur
velli,“ sagði Ingvar Þórarinsson í
Bókaverslun Þórarins Stefáns-
sonar á Húsavík.
Aðspurður vildi Ingvar ekki
neita því að það gæti haft sín
áhrif að fólk hefur ekki komist til
Akureyrar vegna ófærðar og því
sé meiri gróska í verslun á Húsa-
vík en ella. Hann lagði samt
áherslu á sterka stöðu bókarinn-
ar. En Ingvar kann líka að segja
frá veðrahamnum.
„Já, veðrahamurinn hefur ver-
ið óskaplegur hér á Húsavík. Ég
lenti í því að geta ekki lokað
hurðinni á búðinni því vindurinn
stóð beint á hana. Ég lá á hurð-
inni í fjörutíu mínútur án þess að
geta hreinsað falsið og dúaði
hjálparvana þangað til ég fékk
hjálp. Ég hef sennilega aldrei
verið eins illa staddur um dag-
ana. Síðan brast hann skyndilega
aftur á síðastliðið miðvikudags-
kvöld og sonur minn sem var að
fara með 9 ára gamla dóttur heim
frá skólanum hélt að hann yrði
úti á leiðinni. Ég hef ekki upplif-
að svona veðráttu síðan ég var
barn,“ sagði Ingvar.
Bóksalar á Akureyri voru á
öðru máli en Ingvar í sambandi
við söluna og sögðu hana hafa
verið fremur dræma í vikunni,
fyrst og fremst vegna óveðurs og
samgönguerfiðleika. SS
svo snjóbíll Slysavarnafélagsins
með nokkra poka af fóðri fram
að Klaufabrekkum en það fóður
éta hænurnar upp á þremur
dögum. Eggjabirgðir hafa einnig
myndast að Klaufabrekkum sem
er mjög bagalegt nú þegar eggja-
notkun er í hámarki. GG
Maður í'annst
látinn á Skaga
Benedikt Guömundsson,
bóndi á Saurum á Skaga,
fannst látinn skammt frá Saur-
um í gærmorgun.
Björgunarsveitir höfðu þá leit-
að hans frá því á miðvikudags-
kvöld. Síðast var vitað til ferða
Benedikts sl. laugardag. Leit
hófst á miðvikudagskvöld og var
henni framhaldið í gærmorgun,
en þá fannst Benedikt látinn. Er'
talið að hann hafi orðið úti. sþ
FSA:
Góður árangur
í spamaði og
launauppbót
til starfsfólks
Á fundi stjórnar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri 9.
desember sl. var samþykkt að
greiða starfsfólki sjúkrahússins
launauppbót í desember og
þakka því þannig vel unnin
störf á árinu og fyrir þann
árangur sem náðst hafi við að
hagræða í starfseminni og ná
sparnaði í rekstrarútgjöldum.
Þessi launauppbót er 15 þús-
und krónur á hvern starfsmann í
fullu starfi og hlutfall þeirrar
upphæðar til starfsmanna í hluta-
starfi.
í bréfi til starfsfólks FSA,
undirrituðu af Inga Björnssyni,
framkvæmdastjóra FSA og Valtý
Sigurbjarnarsyni, stjórnarfor-
manni FSA, kemur fram að
vegna skerts framlag ríkisins til
sjúkrahússins á árinu 1992 miðað
við 1991 hafi þurft að hagræða á
öllum sviðum rekstrar stofnunar-
innar og ómögulegt hafi verið að
ná tilætluðum árangri í sparnaði
nema með víðtækri samvinnu
allra starfsmanna FSA.
Samkvæmt fyrirliggjandi rekstr-
aruppgjöri og áætlun til áramóta
stefnir í að markmið um sparnað
á árinu 1992 náist og um nokkurn
rekstrarafgang verði að ræða.
Stjórn FSA samþykkti á stjórn-
arfundi 9. desember að verja
þessum áætlaða rekstrarafgangi
til greiðslu launauppbótar til
starfsfólks. óþh