Dagur - 18.12.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
Fréttir
Ólafs^örður:
Ný stafræn símstöð
að komast í gagnið
Ný símstöö verður komin í
gagnið í Ólafsfírði á næstu
dögum. Þá verður skipt út
gamalli símstöð og í staðinn
sett svokölluð stafræn símstöð
sem mun gera Ólafsfírðingum
kleift að nýta sér þá þjónustu-
liði Pósts og síma sem boðið
er upp á í gegnum stafræna
kerfíð. Jafnframt þessu tengj-
ast Ólafsfírðingar að fullu Ijós-
leiðara og segir umdæmisstjóri
Pósts og síma á Norðurlandi
að þannig aukist gæði síma-
sambandsins nokkuð.
í gær stóð til að senda mann-
skap til Ólafsfjarðar til tengingar
á nýju stöðinni og átti jafnvel að
reyna tengingu í gærkvöld eða í
dag. Ársæll Magnússon, um-
dæmisstjóri Pósts og síma á
Norðurlandi, segir að með sím-
stöðinni aukist afgreiðslugetan
mikið sem og gæðin á sambönd-
um.
Ársæll segir öruggt að fyrir jól
verði nýja stöðin komin í gagnið í
Ólafsfirði en þessi breyting mun
víðar gerast á Norðurlandi á
næsta ári. Stafrænar stöðvar
verða þannig settar fljótlega eftir
áramótin á Grenivík og á Hrafna-
gili í Eyjafjarðarsveit en á síðar-
nefndu stöðinni hafa verið
nokkrar truflanir að undanförnu,
bæði vegna bilunar og undirbún-
ingsvinnu fyrir nýju stafrænu
stöðina. Þá mega Siglfirðingar,
Skagstrendingar, Raufarhafnar-
búar og Þórshafnarbúar vænta
nýrra stafrænna stöðva á næsta
ári. JÓH
Vaxandi atvinnuleysi í Húnavatnssýslum:
Seilist irrn í ailar greinar
- segir Hólmfríður Bjarnadóttir,
formaður Verkalýðsfélagsins Hvatar
Atvinnuleysi í Húnavatnssýsl-
um fer vaxandi. Nú um jól og
áramót bætist fjöldi manns á
atvinnuleysisskrá vegna lokun-
ar fískvinnslufyrirtækja. Ekki
er sjáanleg nein breyting fram-
undan á atvinnuástandi.
Verkalýðsfélag A-Húnavatns-
sýslu sér um skráningu fyrir
Blönduós og alla hreppa nema
Höfðahrepp. Að sögn Valdimars
Guðmannssonar, formanns
verkalýðsfélagsins, voru 39
manns á skrá um síðustu mán-
aðamót, 22 karlar og 17 konur.
Sagði Valdimar þessa tölu hafa
verið minnsta 20 manns eftir að
haustslátrun lauk og síðan hefði
hún hækkað. Hæst varð hún 47
manns í nóvember. Hann sagði
orsakir margvíslegar m.a. að lítið
sé um byggingavinnu, ekkert nýtt
komi í stað þess sem hættir.
Valdimar sagði að nú fari að
koma inn á atvinnuleysisskrá fólk
sem missir vinnuna vegna lokun-
ar hjá Fiskiðjunni Særúnu hf. og
Prjónastofunni Adam um jól og
fram í janúar.
Tólf manns eru á atvinnuleysis-
skrá í Höfðahreppi, en voru tíu
um síðustu mánaðarmót. Eru
það svipaðar tölur og verið hefur
í haust. Hins vegar er búist við,
að fjölgi á atvinnuleysisskrá í
hreppnum vegna jólastopps hjá
Hólanesi hf. og sömuleiðis óvíst
hvað verður um áramótin vegna
uppsagna í Frystihúsi Hólaness
hf.
Hólmfríður Bjarnadóttir, for-
maður Verkalýðsfélagsins Hvat-
ar á Hvammstanga sagði atvinnu-
leysisdaga í nóvember hafa verið
855 og bakvið þá tölu stæðu 67
einstaklingar, þar af 37 konur.
Þessar tölur gilda fyrir alla vest-
ursýsluna utan Hrútafjarðar.
Hólmfríður segir þetta talsverða
aukningu og ástæður ýmsar m.a.
almennan samdrátt. „Þetta seilist
inn í allar greinar," sagði hún.
Prjátíu og þrír einstaklingar bæt-
ast á atvinnuleysisskrá nú í des-
ember vegna vinnustöðvunar
Meleyrar hf. um jól og fram í
janúar. Að sögn Hólmfríðar er
þetta atvinnuástand það versta í
mörg ár.
Ekki náðist í Ásgeir Sverris-
son, formann verkalýðsfélagsins í
Hrútafirði. sþ
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Lokað fyrstu daga ársins
Hrímbakur EA fór til veiða á
miðvikudaginn sem og Frosti
ÞH, en bæði skipin lögðu upp
afla í byrjun vikunnar hjá
frystihúsi Útgerðarfélags
Akureyringa hf. Arbakur EA
er að veiðum fyrir austan og
VEÐRIÐ
Veðurstofan gerir ráð fyrir að
nú fari loks að sjá fyrir endann
á norðanáhlaupinu. í dag er
búist við fremur hægri norð-
lægri átt með éljagangi. Á
morgun taka vest- og suðlæg-
ar áttir síðan við með hlýnandi
veðri og á sunnudag og
mánudag er spáð suðaust-
lægri átt og þurru veðri nyrðra.
aflinn er rýr. Aðrir togarar UA
hafa legið í vari um nokkurn
tíma á Vestfjörðum, en héldu
á miðin í fyrrinótt er veðrið
gekk niður.
„Svalbakur EA kom til
löndunar í morgun. Aflinn er 60
tonn, þorskur og ýsa. Á mánu-
daginn landar Baldur EA 20
tonnum. Hvort unnið verður í
frystihúsinu milli jóla og nýárs er
lítið hægt að segja um á þessari
stundu. Veður og vindar hafa
stjórnað ferð síðustu dægrin. Afli
Árbaks EA er ekki mikill og
Kaldbakur EA hefur vart hafið
veiðar. Vinna milli jóla og nýárs
byggist á því sem Hrímbakur EA
og Frosti f*H fiska fram að jólum.
Samkvæmt áætlun er fyrsta lönd-
un eftir áramót þann 7. eða 8.
janúar og því verður frystihúsið
lokað fyrstu daga ársins,“ sagði
Þorleifur Ananíasson. ój
Dómnefndarmenn, fremur alvarlegir á svip, enda bíður vandasamt verkefni á borðinu fyrir framan þá. Talið frá
vinstri: Kristín Sigfúsdóttir, Hrönn Brynjarsdóttir, Ragna Sölvadóttir, Rósa Aðalsteinsdóttir, Bjami Hafþór Helga-
son, Sigurður E. Ernórsson og Bragi V. Bergmann. Þær Hrönn og Rósa era nemendur Kristínar Sigfúsdóttur,
kennara við Menntaskólann á Akureyri, og henni til halds og trausts við smökkunina. Mynd:Robyn.
Margir tóku þátt í leit Lindu hf. og Dags að „Konfektmeistaranum“:
Rúmlega þúsund konfekt-
molar á borði dómnefridar!
Ótrúleg þátttaka varð í sam-
keppninni um besta heima-
gerða konfektið, sem Linda hf.
á Akureyri og Dagur efndu til.
Þátttakendur áttu að skila inn
15 heimagerðum konfektmol-
um hver og þegar skilafrestur
rann út sl. mánudag, höfðu
borist um 70 mismunandi
gerðir; alls rúmlega þúsund
konfektmolar!
„Þetta er mun betri þátttaka
en mig óraði fyrir og ég er himin-
sæll með undirtektirnar. Eftir því
sem ég veit best er þessi sam-
keppni okkar sú fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi og þátttakan
sýnir að áhuginn á konfektgerð-
arlistinni er mikill,“ sagði Sigurð-
ur E. Arnórsson, framkvæmda-
stjóri Lindu hf. og formaður
dómnefndarinnar í samkeppn-
inni.
Samkeppnin hefur hlotið nafn-
ið „Konfektmeistarinn“ og er
ætlunin að verðlauna höfunda
þeirra 10 konfektgerða, sem
dómnefnd metur bestar. Dóm-
nefndin kom saman í fyrsta sinn á
miðvikudaginn og hittist öðru
sinni í gærkvöld. Þá náði hún að
ljúka fyrstu umferð bragðprófun-
arinnar. Nefndarinnar bíður það
erfiða verkefni að fækka konfekt-
gerðunum, sem til greina koma í
efstu sætin, úr 70 niður í 10 og
velja síðan þá allra bestu úr þeim
hópi. Höfundur besta konfekts-
ins hlýtur sæmdarheitið „Kon-
fektmeistarinn" og vegleg verð-
laun að auki.
„Þetta er örugglega ekki leið-
inlegasta verkefni sem ég hef tek-
ið að mér um dagana,“ sagði
Bjarni Hafþór Helgason, einn
dómnefndarmanna í samtali við
Dag. „Ég væri alveg til í að sitja í
svona nefnd á hverju ári, ef því
væri að skipta," bætti hann við,
„þótt hliðarverkanir á borð við
aukakíló kunni að gera vart við
sig.“
Dómnefndin stefnir að því að
ljúka störfum um helgina og til-
kynna niðurstöðu sína á þriðju-
daginn. BB.
Söluhæstu bækur á Norðurlandi:
Tvöfalt hjá Þorgrfmi
Verulegar breytingar hafa
orðið á listanum yfír sölu-
hæstu bækur á Norðurlandi
frá því í síðustu viku.
Knattspyrnukappinn Þor-
grímur Þráinsson selur ung-
Iingabækur sínar eins og heit-
ar lummur, skáldsögur þekkt-
ari rithöfunda falla og nokkr-
ar sviptingar eru í ævisögun-
um. Til dæmis skýst Rósa
Ingólfsdóttir inn á listann.
Eins og í síðustu viku var haft
samband við fjórar bókaversl-
anir á Akureyri, eina á Sauðár-
króki og eina á Húsavík og list-
inn settur saman út frá þeim
upplýsingum er þar fengust.
Tölur í sviga tákna hvar bæk-
urnar voru á listanum { síðustu
viku en strik merkir að þær eru
nýjar á lista:
1. (2) Bak við bláu augun -
Þorgrímur Þráinsson.
2. (8) Lalli ljósastaur - Þor-
grímur Þráinsson.
3. (4) Alltaf til í slaginn - Frið-
rik Erlingsson skráði.
4. (5) Dansað í háloftunum -
Þorsteinn E. Jónsson.
5. (-) Rósumál - Jónína Leós-
dóttir skráði.
6. (6) Heimskra manna ráð -
Einar Kárason.
7. (-) Fyrstu athuganir Berts -
Jacobsson/Olsson.
8. (1) Ó fyrir framan - Þórar-
inn Eldjárn.
9.(-) Öldin okkar - minn-
isverð tíðindi 1986-90.
10.(-) Raddir í garðinum -
Thor Vilhjálmsson.
Síðan koma í hnapp bækurn-
ar Lífsganga Lydiu, Betri helm-
ingurinn, Hjá Báru og í kröpp-
um sjó, allar af ævisögulegum
toga og Þroskakostir, Þorgrím-
ur Starri og þýddir reyfarar
krafsa sig inn á lista í sumum
bókaverslunum. Annars eru
línurnar nokkuð skýrar og
bækurnar í fjórum efstu sætun-
um afgerandi. SS
Söluhæstu íslensku plöturnar:
Sálin sleppir ekki
toppsætinu
Samkvæmt upplýsingum
fímm hljómplötuverslana á
Akureyri og Sauðárkróki
virðist ný plata Sálarinnar
hans Jóns míns vera enn sölu-
hæsta íslenska hljómplatan.
Þó tóku hljómplötusalar
fram að plötusala hafi verið
fremur lítil undanfarna daga
vegna veðurs og færðar og því
kunni sölulistinn að breytast
þegar upp verður staðið. Sumir
viðmælendur blaðsins í gær
sögðu að ekki kæmi á óvart þó
ný plata KK-bands, Bein leið,
yrði söluhæsta plata ársins á
Norðurlandi.
En svona lítur sölulisti vik-
unnar út. Innan sviga er sæti á
„topp-tíu“
viku:
1.
listanum í síðustu
Sálin hans Jóns míns -
Þessi þungu högg (1).
2. KK-band - Bein leið (2).
3. Nýdönsk - Himnasending
(3).
4. Jet black Joe - Jet black
Joe (5).
5. Bubbi Morthens-Von (4).
6. Grimm sjúkheit - safnplata
(6).
7. Minningar 2 - safnplata
(7).
8. Endurfundir - safnplata ().
9. Stóru börnin leika sér -
Hókus pókus (9).
10. Sinfóníuhljómsveitin
Hvít jól (). óþh