Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 9
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - 9
gleypi ekki við öllu en þeir sem
komast inn í landið njóta vissu-
lega góðs af því. „í Kína eru
skattaívilnanir til handa fyrir-
tækjum og fyrirtæki sem t.d. selja
85% eða meira erlendis, borga
ekki tekjuskatt fyrstu tvö starfs-
árin. - Og allt þetta gerir það að
verkum að fýsilegt er að koma
upp verksmiðju sem þessari í
Kína. En á móti má reikna með
miklum flutningskostnaði með
vöruna á markað en við horfum
fyrst og fremst á markaði í
Evrópu, alla vega til að byrja
með. Nú og til vara höfum við
stærsta markað í heimi í Kína.“
Tilraunavinnslan
lofar góðu
Hann segir að þegar framleiðslan
verði komin í fullan gang, sem
verður vonandi innan fárra mán-
Stefnt að 750 tonna
framleiðslu á næsta ári
Til að byrja með verða einungis
framleiddir lakkrísbitar en stefnt
er að því auka við framleiðslulín-
una fljótiega. Halldór segir að
' stefnt sé að 750 tonna framleiðslu
á lakkrís á næsta ári og að árið
1994 verði framleiðslan komin í
fullan gang og þá er stefnt að því
að framleiðslan verði aukin í
1000-1200 tonn. „Þetta er mark-
miðið í dag og vonandi stenst
það.“
Hann segir að menn hafi sýnt
áhuga á vörunni en hins vegar sé
lítið að marka þann áhuga fyrr
enn einhver framleiðsla fer í gang
af alvöru og þeir hafi eitthvað í
höndunum til að bjóða. „Það er
ekkert óeðlilegt við það að menn
, vilji fá að skoða og bragða á vör-
Halldór Jóhannsson og Ragnar Sverrisson í suðusalnum í lakkrísverksmiðj-
unni í Kína. A bakvið þá félaga eru þrír af átta suðupottum verksmiðjunnar
en í þessum átta pottum er hægt sjóða 8000 lítra í einu.
aða, sé reiknað með að starfsfólk
í verksmiðjunni verði á milli 130-
150 manns.
Eins og fram kemur hér að ofan,
hófst tilraunavinnsla í verksmiðj-
unni í vikunni og segir Halldór að
byrjunin lofi góðu. „Þetta gekk
mjög vel og menn eru ánægðir
með bæði bragðið og gæðin,
þannig að tækin virka og við get-
um ekki verið annað en bjartsýn-
ir. Lakkrísuppskriftin er íslensk,
það eru íslendingar í helstu
stjórnunarstöðum og við gerum
ráð fyrir að þessu verði stýrt frá
Akureyri og einnig markaðssetn-
ingunni í Evrópu. Það er ágætt
að hafa eitthvað að hugsa um
hinum megin á hnettinum, ekki
síst á meðan ástandið hér á landi
er eins og það er.“
íslendingamir sem vinna við
framleiðsluna í Kína koma heim
um jólin en á meðan munu
heimamenn vinna við lokafrá-
gang í verksmiðjunni. í janúar
verður sett á fulla ferð.
Dregið í happ-
drætti Jóla-
handbókar KEA
Dregið hefur verið í happdrætti
Jólahandbókar KEA. Á forsíðu
hvers blaðs er númer og þann 16.
desember voru dregin út þrjú
vinningsnúmer.
1. verðlaun: Blað nr. 4901.
Verðlaun: Kvöldverður fyrir tvo
á Hótel KEA að verðmæti kr.
8.000,-
2. verðlaun: Blað nr. 8157.
Verðlaun: Verkfærataska með
topplyklasetti frá Raflagnadeild
KEA að verðmæti kr. 5.605,-
3. verðlaun: Blað nr. 794.
Verðlaun: Vöruúttekt í Vöruhúsi
KEA að verðmæti kr. 5.000,-
Vinningshöfum er vinsamlega
bent á að hafa samband við Pál
Þór Ármann, vöruhússtjóra, í
síma 30300.
unni áður en þeir fara að gefa út
yfirlýsingar um það hvort þeir
vilji kaupa hana eða ekki. Við
ætlum að reyna að kynna okkur
vel á sýningu sem verður í Köln í
Þýskalandi um mánaðamótin
janúar/febrúar og þá finnum við
betur hvernig landið liggur."
Sumum fínnst þetta
afskaplega fyndið
Þeir eru margir sem hafa furðað
sig á þessu brölti ykkar í Kína.
Hvernig hafa viðbrögðin verið
hér á Akureyri?
„Þau eru nú allavega. Sumum
finnst þetta afskaplega fyndið en
aðrir eru vantrúaðir á að þetta
gangi upp. En flestir hafa nú ósk-
að okkur góðs gengis og vona að
hlutirnir gangi upp. Svo hafa aðr-
ir lýst yfir ánægju með það að
enn séu til menn sem hafi þor til
að gera eitthvað á þessum síðustu
og verstu tímum. Það sem við
erum að gera er ekkert annað en
að sýna sjálfsbjargarviðleitni og
það hefst ekki nema menn hafi
vilja til þess og þori að taka ein-
Handa henni
hverja áhættu. En auðvitað von-
umst við til þess að hagnast á
þessum rekstri."
Marglitur en samstilltur
hópur
Að sögn Halldórs er hópurinn
sem stendur að þessu fyrirtæki í
Kína marglitur en samstilltur og
með því að virkja það besta úr
hverjum og einum sé von á
árangri. „Tíminn á eftir að leiða í
ljós hvernig þetta ævintýri kemur
til með að ganga en við erum
strax miklu bjartsýnni eftir að til-
raunaframleiðslan hófst og gekk
vel. Næstu skref eru því að koma
verksmiðjunni í fullan gang og í
framhaldi af því að koma afurð-
unum á markað og selja þær,“
segir Halldór Jóhannsson.
Veljið sjálf góðgæti í körfuna
Einnig sápur og snyrtivörur
u Við pökkum í gjafapakkningu ^
^e/k°rr>in . Starfsfó|k
llmvötn, rakvélar, jakkaföt, leikföng,
kjóla, hljómtæki, gjafapappír, geisladiska,
sjónvörp, potta, pönnur, hanska, gjafa-
vörur, hraösuöukatla, veiöistangir, jóla-
skraut, jólakort og margt, margt
fleira færöu í
Vöruhúsi KEA
Jólasveinarnir koma í Leikfanga-
deild laugardaginn 19. desember
kl. 14 og draga út nöfn vinnings-
hafa í jólaleiknum
1
f/A
Alls konar jólagjafir á
tilboösverði
Þaö er einfalt aö versla í
Vöruhúsi KEA - og ódýrt
aö auki!
i