Dagur - 21.01.1993, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 21. janúar 1993
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGIV. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
UÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Svört skýrsla
Þjóðhagsstoftiunar
Þjóðhagsstofnun hefur sent frá sér spá um horfur í efna-
hags- og atvinnulífi þjóðarinnar á þessu ári. Vægt er til
orða tekið þótt sá vísdómur er þar kemur fram sé nefndur
svört skýrsla. Fátt er þar að finna er jákvætt getur talist
og samkvæmt útreikningum stofnunarinnar, sem byggðir
eru á þeim forsendum er þjóðarbúskapurinn gefur tilefni
til, þurfa landsmenn ekki að búast við efnahagslegum
bata - hvorki á þessu ári eða því næsta og að hagvöxtur
fari ekki að glæðast fyrr en í fyrsta lagi á árinu 1996. Bent
er á að nú gangi lengsta efnahagslægð er sögur fara af
yfir landið og fá haldreipi sé að finna er gefi tilefni til
bjartari vona.
í spá Þjóðhagsstofnunar er því haldið fram að atvinnu-
leysi verði um 5% á þessu ári eða meira en áður hefur
þekkst hér á landi. Kaupmáttur ráðstöfunartekna verði
um 5,5% minni en á síðasta ári og erlend lán nái að verða
60% af framleiðslu landsmanna. Hagvöxtur verði lítill eða
nær enginn á næstu tveimur árum og landsframleiðslan
verði um 1,4% minni en á árinu 1992. Þá gerir Þjóðhags-
stofnun ráð fyrir að verðbólgan, sem legið hefur nánast í
dvala að undanförnu, vakni til lífsins á ný og verði um 4%
á ársgrundvelli á yfirstandandi ári. Spáð er að viðskipta-
hallinn við útlönd minnki nokkuð eða lækki úr 14,7 millj-
örðum á síðasta ári í 9,0 milljarða króna á þessu ári vegna
þess að eftirspurn eftir innfluttum vörum og þjónustu
dragist saman um 8%.
Helstu ástæður þessarar hrakspár eru samdráttur í
útflutningsframleiðslu þjóðarinnar og rýrnandi viðskipta-
kjör á erlendum mörkuðum. Þjóðhagsstofnun gerir ráð
fyrir að verðmæti heildarafla verði um 1,3% minna á
þessu ári en því síðasta, að botnfiskaflinn minnki í heild
sinni um 3% á föstu verði á milli ára og að heildarsam-
dráttur í þorskafla verði allt að 18,5%. í greinargerð með
efnahagsspá Þjóðhagsstofnunar kemur fram að orsakir
þessa mikla samdráttar í efnahagslífi bæði hér á landi og
í öðrum vestrænum ríkjum megi rekja til fjárhagslegrar
endurskipulagningar fyrirtækja og heimila í mörgum
löndum eftir mikla skuldasöfnun á uppgangstímum
níunda áratugarins og einnig að vextir í ríkjum Evrópu
hafi verið mjög háir að undanfömu.
Því verður ekki neitað að í spá Þjóðhagsstofnunar kem-
ur sá barlómur, er grafið hefur um sig hér á landi, fram í
fullu veldi. Fátt er þar að finna er vonir getur vakið um
betri tíð, hvað þá blóm í haga efnahagslífsins. En við
aðstæður sem þessar, þegar þrengir að efnahags- og
atvinnulífinu á þann hátt sem nú gerist er hættulegt að
leggjast í eymd og volæði. Slíkt hugarvíl lengir einungis
það ástand sem nú ríkir og Þjóðhagsstofnun spáir að
framhald verði á. Aldrei er nauðsynlegra en á erfiðum
tímum sem þessum að tala kjark í landsmenn, að blása
anda vonar og trúar á framtíðina í nasir þjóðarinnar. Með
því móti einu verður sigrast á erfiðleikunum. Því miður
hafa stjórnvöld landsins látið það undir höfuð leggjast.
Fremur hafa þau talið ástæðu til að ala á vonleysinu.
Óljóst er hvaða meining er í því háttalagi en helst má
álykta að verið sé að hræða þjóðina umfram það sem
tilefni er til. Slíkt er mjög varhugavert við þær aðstæður
sem hin svarta skýrsla Þjóðhagsstofnunar boðar. ÞI
Frímerki
Sigurður H. Þorsteinsson
Hugleiðingar á nýju ári
Við skulum hefja þennan þátt
með því að svipast um á nýja ár-
inu og sjá hvað hefir verið boðað
nýtt í frímerkjaútgáfum og öðru
á árinu 1993.
Það verða gefin út tvö ný frí-
merki í flokknum keppnisíþrótt-
ir, þann 10. mars næstkomandi.
Verðgildi þeirra frímerkja verða
30,00 krónur. Það eru þeir Ást-
þór Jóhannsson og Finnur Malm-
quist, sem þar hanna frímerki er
tilheyra handknattleik og hlaupi.
Verða þessi frímerki í sama dúr
og fyrri frímerki í þessum
íþróttaflokki, sem þeir félagar
hafa hannað. Fer nú að gerast
áleitin sú spuming, hvort ekki
hefir verið tekið frá nóg upplag
til að gefin verði út gjafamappa
með íþróttafrímerkjum.
Nýr frímerkingarmiði
Aðeins fyrir þessa útgáfu kemur
þó út frímerkingarmiði númer 3.
Hann verður úr vél sem staðsett
verður í Umferðarmiðstöðinni, á
pósthúsútibúi númer 6 í Reykja- j
vík. Þarna er svo sannarlega þörf
fyrir slíka frímerkingarmiða,
sökum þess að þarna er stöðug
umferð fólks alla vikuna og mikil
hagsbót af því að geta keypt frí-
merki eða frímerkingarmiða á
slíkum stað. Útgáfudagur þess-
ara miða verður að því er best
verður vitað, þegar þetta er.
skrifað, þann 15. febrúar 1993.
Engin tölfræðileg úttekt er mér
kunn, sem segir til um hvort það
hafi verið hagkvæmt að taka upp
þessar vélar sem gefa út fyrir
okkur frímerkingarmiða eða
ávísun á burðargjald. Væri gam-
an að fá slíkt yfirlit, þar sem tillit
væri tekið til stofnkostnaðar,
fjármagnskostnaðar og rekstrar-
kostnaðar. Þá væri þarna einnig
yfirlit yfir tekjur af vélunum, eða
af sölu þessarra ávísana, svo og
ef hægt væri yfirlit yfir hversu
mikil þjonusta er veitt á móti og
hversu mikið er selt beint til safn-
ara. Það mundi ef til vill verða
þess valdandi að hinar ýmsu póst-
afgreiðslur færu að stimpla þessa
miða, en meta þá ekki sem vél-
frímerkingu fyrirtækja. Oftlega
verð ég að biðja sérstaklega um
að fá þessháttar bréf stimpluð og
verður póstafgreiðslufólk undr-
andi yfir því að stimpla eigi slíkar
„rauðar áprentanir".
„Brýr á íslandi“
Haldið verður áfram að gefa út
frímerki með myndum af íslensk-
um brúm. Áætlað verðgildi þess-
arra frímerkja verður 90,00 krón-
ur og 150,00 krónur. Nefnist
þessi flokkur frímerkja „Brýr á
Islandi", samkvæmt tilkynningu
póstsins. Að þessu sinni verða
það brýrnar á Hvítá, hjá Ferju-
koti og á Jökulsá á Fjöllum, sem
Frímerkingarmiði, eða ávísun á
burðargjald.
skreyta frímerkin. Vonar
höfundur þessara þátta að litur
og prentun merkjanna verði
hreinni og skýrari en var í fyrri
útgáfu. Það er Helgi Hafliðason
sem hannar þessi frímerki, eins
og þau fyrri tvö á árinu 1992.
Koma þau sennilega út sama dag-
inn og frímerkin sem helguð eru
keppnisíþróttunum.
Evrópufrímerki
Evrópufrímerkin að þessu sinni
verða eins og áður í tveim verð-
gildum og koma út þann 26.
apríl, 1993. Myndefni þessara
frímerkja verða nútímalegar
höggmyndir. Annað myndefnið
er sótt til Akureyrar, en hitt
verður Þotueggið hjá Leifsstöð á
Keflavíkurflugvelli. Nú verður
fróðlegt að sjá hver verða verð-
gildi þessarra frímerkja, en þau
gætu hvort sem er orðið fyrir
burðargjald innanlands - burðar-
gjald til Evrópulanda - eða burð-
argjald til annarra landa. Þarna
yrði í raun eðlilegast að burðar-
gjaldið yrði fyrir almenn bréf til
Evrópulanda og annarra landa.
Þema Evrópufrímerkjanna í ár
er nútímalist.
Norðurlandafrímerki
Sama dag koma einnig út
Norðurlandafrímerki með þem-
anu „Áfangastaðir ferðamanna“.
Þessi frímerki verða einnig í
tveim verðgildum. Og er því
þarna enn ein bundin útgáfa.
Myndefni þessarra frímerkja
verður svo Perlan í Reykjavík og
Bláa Lónið við Svartsengi. Að
öllum líkindum verða verðgildi
þessarra frímerkja 30,00 krónur
og 35,00 krónur, ef ekki verður
úr því að neinar burðargjalda-
hækkanir fáist á árinu. Hins vegar
er ómögulegt að spá neinu um
það, miðað við útlitið í dag.
Dagur frímerkisins
9. október
Þá komum við næst að þeim
frímerkjum, sem gefin verða út í
sambandi við Dag frímerkisins
þann 9. október næstkomandi.
Þarna verður fyrst um að ræða
smáörk með átta frímerkjum
með myndum fjögurra mismun-
andi flugvéla sem notaðar hafa
verið við póstflutninga. Meðal
annarra verður þarna DC-3 eða
þristur, sem er ein sú vél er mest
gagn hefur gert á íslandi á liðnum
áratugum. Þá þarf einnig á þess-
um degi frímerkisins að gefa út
blokk með yfirverði til að greiða
kostnað við frímerkjasýningu
ungmenna á Norðurlöndum sem
þá stendur til að halda hér árið
eftir, að því er ég best veit á
Kjarvalsstöðum.
Þá verða samkvæmt venju gef-
in út jólafrímerki tvö að tölu,
þann 8. nóvember. Ekki er vitað
til að nein alþjóðasamtök eins og
WWF eða önnur samtök fái
útgefin frímerki hér á næsta ári.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Perlan í Reykjavík er myndefni annars Norðurlandafrímerkisins sem gefið verður út þann 26. aprfl næstkomandi.