Dagur - 21.01.1993, Síða 14

Dagur - 21.01.1993, Síða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 21. janúar 1993 MlNNING tlngimar Eydal Fæddur 20. október 1936 - Dáinn 10. janúar 1993 Síðbúin kveðja. Ingimar Eydal er allur, langt um aldur fram. Það var erfitt að trúa andlátsfregninni þegar hún heyrðist, þótt vitanlegt væri að hann háði tvísýnt sjúkdómsstríð. Það var svo ótrúlegt að honum, þessum lífsglaða manni væri svipt af sjónarsviðinu á miðjum aldri og hann, sem segja mátti að væri sérstakur merkisberi eða sendi- herra Akureyrar og í krafti þess starfs síns sem skemmtikraftur hefði eignast sérstaka ímynd í huga þjóðarinnar, kæmi ekki lengur fram í þeim hlutverkum sínum. Sá sem þessar línur ritar á sín- ar minningar um Ingimar Eydal, þótt ekki sé beint hægt að segja að við ættum mjög náin kynni. Fyrst bar fundum okkar saman, þegar hann sem ungling- ur kom að vorlagi í Laugaskóla, Suður-Þingeyjarsýslu, að þreyta þar landspróf. Nú eru mér gleymdar ástæður þess, að hann tók ekki próf þetta í heimabæ sínum, en það best ég man lauk hann þessu umdeilda og vissulega erfiða prófi með sóma. Það sem enn lifir gleggst í minni mínu er hinn hávaxni, myndarlegi piltur, ljós yfirlitum og prúður í fram- komu, er skar sig nokkuð svo greinilega úr hópi hinna ungling- anna þetta vor á Laugum. Nafnið gleymdist þá heldur ekki, því skömmu seinna hófst frægðarfer- ill hans sem skemmtikrafts og tónlistarmanns. Eftir að ég fluttist til Akureyr- ar, lágu leiðir okkar saman í starfi Framsóknarflokksins hér í bæ. Á mörgum fundum létti hann mönnum lund með gamansemi sinni eða varpaði í máli sínu ljósi á áður óskoðaðar hliðar umræðu- efnisins. Síðast en ekki síst er línum þessum ætlað að flytja kveðju og þakkir frá samstarfsfólki í einni nefnd Akureyrarkaupstaðar, áfengisvarnarnefnd bæjarins. Þar var Ingimar formaður um árabil og var það í góðu samræmi við óhvikult fylgi hans við bindindis- hugsjónina og atbeina í málefn- um hennar. Starfssvið áfengis- varnarnefnda nú á dögum er ekki mjög yfirgripsmikið, enda munu sum verkefni þeirra á fyrri tíð nú komin í hendur annarra stofnana eða félagasamtaka. Nefndar- fundir eru því ekki ýkja margir né langir á ári hverju. En þeim Skráning stendur yfir í fyrsta íslandsmót í parasveitakeppni í bridds sem haldið verður í Sigtúni 9 í Reykjavík helgina stjórnaði Ingimar af mildri rögg- semi og létti mönnum lund með góðlátlegri kímni. Þekking hans á þeim málum, sem um var fjall- að var grundvölluð á langri setu hans í nefndinni og kynnum af áfengismálum vegna starfa sinna sem skemmtikraftur. Verulegur hluti af starfi nefnd- arinnar var að segja álit sitt á umsóknum veitingastaða um vín- veitingaleyfi eða endurnýjum þeirra. í því efni kom skilningur Ingimars á aðstæðum annarra og eðlislæg mannúð fram þannig, að hann tók mið af þeirri staðreynd að þar gat verið um tekjumögu- leika og afkomu fólks að tefla. í annan stað hafði hann opin augu fyrir því, ef reglur um meðferð og veitingar áfengis voru brotnar, einkanlega ef það sneri að ungl- ingum og gekk einbeittur fram að reisa skorður við því. Þannig var hann okkur ný- græðingum í starfi öruggur leið- togi en jafnframt fræðari og gleðigjafi. Ég tel mig geta mælt fyrir munn okkar allra sem með honum störfuðu í nefndinni þessi síðustu ár, að við hugsum til hans með söknuði, virðingu og þökk fyrir samstarfið og vottum Ástu, eiginkonu hans, börnum þeirra og öðrum aðstandendum innilega samúð okkar. Guðmundur Gunnarsson. 6.-7. febrúar nk. Miðað er við að spila milli 90 og 100 spil alls og fer lengd leikja eftir þátt- tökufjölda sveita. Spilað er um gullstig. Þeir sem ætla að vera með eru vinsamlega beðnir að skrá sig sem fyrst á skrifstofu Bridge- sambands íslands í síma 91- 689360. Laugardaginn 30. janúar nk. verður haldið í Sigtúni 9, opið tvímenningsmót. Sigurvegararnir úr því móti fara á vegum Bridge- sambandsins á Evrópumót í tví- menningi í Bielefeld í Þýskalandi 19.-21. mars nk. Pörin sem lenda í 2. og 3. sæti fá einnig hluta kostnaðar við mótið greiddan. Skráning fer fram á skrifstofu Bridgesambandsins og stendur til 27. janúar og þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. -KK Nýjar bækur________ Draugurinn í skólanum Iðunn hefur gefið út bókina Draugurinn í skólanum eftir Virginiu Ironside. Eldhressir og ærslafullir nemendur Skógarskóla eru að koma aftur í skólann að loknu jólaleyfi. En undarleg atvik hafa gerst og Mörður skólastjóri veit ekki hvað hann á að taka til bragðs - síst af öllu þegar stolt skólans, nýja náttúrfræðihúsið hrynur til grunna. Krökkunum líst ekki á blikuna og þeir komast brátt að því að það er ekki heigl- um hent að kljást við ógnvald Skógarskóla. Námskeið til aukinna ökuréttinda verður haldið á Akureyri í febrúar. Upplýsingar og innritun hjá Kristni Jónssyni, símar 96-22350 og 985-29166, og hjá Hreiðari Gíslasyni, símar 96-21141 og 985-20228. Ökuskólinn á Akureyri. Ökukennarafélag íslands. Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra verður á almennum bændafundi í sal Fjallalambs á Kópaskeri föstudaginn 22. janúar kl. 20.30. Allir velkomnir. Landbúnaðar- og samgönguráðuneytið. ÍRIDDS Bridgesamband Islands: Fyrsta íslandsmótið í parasveitakeppni Sjur Mördre heldur fyrirlestur á Hótel KEA annað kvöld og segir frá ferðum sínum á Norður- og Suðurpólinn. Akureyri: Þekktasti „Pólarfari“ Norðmaima í heimsókn - heldur fyrirlestur á Hótel KEA Einn þekktasti „Pólarfari“ Norðmanna, Sjur Mördre, er væntanlegur til Islands í dag, fimmtudaginn 21. janúar og mun dvelja hér fram á mánu- dag. Sjur Mördre er einn af fáum sem hafa bæði farið á Suður- og Norðurpólinn og náð alla leið. Á morgun föstudaginn 22. janúar, mun Sjur heimsækja Akureyri í boði Vöruhúss KEA og Skátabúðarinnar og halda fyrirlestur á Hótel KEA kl. 20.00. Þar mun hann segja frá ferðum sínum í máli og myndum og hvaða reynslu hann hefur öðl- ast hvað varðar útbúnað og að sigrast á náttúruöflunum. Ferðin á Suðurpólinn tók Sjur og félaga hans þrjá 120 daga en vegalengdin sem þeir fóru er 3200 km. Ókeypis aðgangur er á fyrirlesturinn annað kvöld, hann er fluttur á ensku og er öllum Opinn. Fréttatilkynning Nordjobb 1993 tekið til starfa: Miðlar sumaratvinnu milli Norðurlanda fvrir fólk á aJdrinum 18-26 ára Nordjobb 1993 hefur tekið til starfa og er þetta áttunda starfsár verkefnisins. Umsókn- arfrestur fyrir Nordjobb er frá 15. janúar til 15. mars og ber að skila umsóknum til Norræna félagsins. Nordjobb er miðlun sumar- atvinnu milli Norðurlanda fyrir fólk á aldrinum 18-26 ára og eru störfin, sem boðið er upp á, í löndunum öllum svo og á sjálf- stjómarsvæðum Norðurland- anna. Einnig sér Nordjobb um að útvega húsnæði og bjóða upp á tómstundastarf til að kynna land og þjóð. Störfin sem bjóðast eru margvísleg. Þau eru á sviði iðn- aðar, þjónustu, landbúnaðar, verslunar o.fl. og eru miðuð við faglært svo og ófaglært fólk. Launakjör miðast við kjarasamn- inga í hverju landi og eru skattar greiddir samkvæmt sérstökum samningum við skattayfirvöld. Starfstíminn getur verið allt frá 4 vikum upp í 4 mánuði á tímabil- inu 15. maí til 15. september. Það eru norrænu félögin á Norðurlöndum sem sjá um Nordjobb, hvert í sínu landi með styrk frá Norrænu ráðherra- nefndinni. Á íslandi sér Norræna félagið um Nordjobb, en í því felst að félagið veitir allar upplýs- ingar, tekur við umsóknum frá íslenskum umsækjendum, kemur þeim áleiðis og sér um atvinnu- miðlun, útvegun húsnæðis og tómstundadagskrá fyrir norræn ungmenni sem koma til íslands. Reiknað er með að um 90 norræn ungmenni komi til starfa hér á landi á vegum Nordjobb 1993 og að álíka fjöldi íslenskra ungmenna fari til starfa á hinum Norðurlöndunum á vegum Nordjobb. Er það von Norræna félagsins að atvinnurekendur taki vel í að ráða norræn ungmenni til starfa í sumarvinnu. Allar upplýsingar um Nordjobb 1993, þar á meðal umsóknar- eyðublöð, fást hjá Svæðisskrif- stofu Norræna félagsins á Akur- eyri, Strandgötu 19 b, sími 96- 27599; hjá Norræna félaginu, Norræna húsinu í Reykjavík, sími 91-19670 og hjá Upplýsinga- skrifstofu Norræna félagsins á ísafirði, sími 94-3393.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.