Dagur - 04.02.1993, Síða 3

Dagur - 04.02.1993, Síða 3
Fimmtudagur 4. febrúar 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Loðnuleiðangur Hafrannsóknastofnunar skilaði ekki gildri loðnumælingu: Loðnurannsóknir fyrir Norðurlandi í byijun mars Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er nýkomið úr rannsóknaleiðangri af Aust- fjörðum en þar fóru fram rann- sóknir á stærð, göngu og hrygningu Ioðnustofnsins. Auk þess tók hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson þátt í leið- angrinum og er það nú úti fyrir Suðausturlandinu við frekari - engin loðnuveiði í fyrrinótt og veiðisvæðið færist sífellt sunnar rannsóknir. Leiðangursstjóri á Bjarna Sæmundssyni var Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðingur en Sveinn Svein- björnsson á Árna Friðrikssyni. Hjálmar Vilhjálmsson segir að vegna mikilla frátafa vegna nán- ast stöðugrar ótíðar og brælu á miðunum hafi ekki náðst gild mæling á loðnunni og alls óvíst að það takist að þessu sinni. Enn- fremur hafi hluti af hrygningar- göngunni verið kominn í hlýrri sjó út af Suðausturlandinu og reynslan hafi sýnt að þá sé nánast ómögulegt að henda reiður á hvað sé að gerast fyrr en sú loðna kemur aftur upp að suðurströnd landsins og það verður væntan- lega á næstunni. „Mér segir svo hugur um að við munum ekki enda með neitt í höndunum ann- að en það sem þegar hefur verið sagt sem þýðir m.a. enga aukn- ingu á loðnukvóta að svo komnu máli. Áður en að veiðihrotan í síðustu viku byrjaði var staðan sú að um 420 þúsund tonn voru eftir af íslenska loðnukvótanum auk MENOR og Dagur eína tíl ljóðasamkeppni Menningarsamtök Norðlend- inga og Dagur hafa ákveöið að efná til samkeppni í ljóðlist. Þetta er í annað sinn sem þess- ir aðilar efna til slíkrar sam- keppni, hið fyrra sinn var vet- urinn 1991. Auk þess hafa Dagur og MENOR tvívegis efnt til smásagnasamkeppni. Góð þátttaka í keppnunum til þessa bendir eindregið til að hljómgrunnur sé fyrir ritverka- keppni af þessu tagi og því er haldið áfram á sömu braut. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir það ljóð sem dómnefnd metur best. Höfundur þess fær að launum tvö meistaraverk íslenskrar bókmenntasögu: Rit- safn Jónasar Hallgrímssonar og Sturlungasögu. Ritsafn Jónasar er alls fjögur bindi að stærð og Kennarar í HÍK og KÍ á kjaramálafundi: Kennarar hvetja til samstöðu í kjaramálum Sameiginlegur fundur kennara í Hinu íslenska kennararfélagi og Kennarasambandi íslands var haidinn í Gagnfræðaskóla Akureyrar fimmtudaginn 28. janúar sl. Á fundinum var samþykkt að hvetja kennara til samstöðu í kjaramálum. Fullum stuðningi var lýst við stjórnir og kjaranefndir félag- anna til að ná þeim leiðréttingum sem kennarar telja að ríkisvaldið hafi á síðustu misserum verið einhliða að færa frá launþegum til fyrirtækja. Fundurinn telur það ábyrgðarhluta fyrir kennara- stéttina að sitja hjá aðgerðar- lausa við slíka einhliða „kjara- samnmga" og hlýtur að kalla á harðar aðgerðir til að ná fram nauðsynlegum leiðréttingum. Að loknum þessum fundi var haldinn annar fundur á vegum BKNE (Bandalagi kennara á Norður- landi eystra) þar sem staðan í kjaramálum var reifuð enn frekar og þeim möguleikum velt upp sem eru í þeirri stöðu að ná fram kjarabótum fyrir kennara. Til þess að boða verkfall þarf meiri- hluta í allsherjaratkvæðagreiðslu og miðað við þann tón sem var í málflutningi kennara á þessum fundi hafa líkurnar fyrir því farið vaxandi. Samningar renna út 1. mars nk. GG Sturlungasaga er tvö bindi auk skýringa og fræða. Höfundur þess ljóðs, sem dómnefnd metur næstbest, fær Sturlungasögu að launum. Gefandi vinninga er Mál og menning. Síðasti skiladagur ljóða í keppnina er 16. mars næstkom- andi og er þar miðað við síðasta póstlagningardag. Engin mörk eru sett um lengd ljóðanna og þau mega vera hvort sem er hefð- bundin eða óbundin. Ljóðin skulu send vélrituð og auðkennd með dulnefni en með fylgi í lok- uðu umslagi hið rétta nafn höfundar, heimilisfang og síma- númer. Umslagið skal merkt sama dulnefni og ljóðið. Þriggja manna dómnefnd mun fjalla um ljóðin. í henni eiga sæti þau Valgerður Gunnarsdóttir, bókmenntafræðingur og fram- haldsskólakennari á Húsavík og er hún formaður riefndarinnar; Málmfríður Sigurðardóttir, bókavörður og Stefán Sæmunds- son, umsjónarmaður helgarblaðs Dags. Úrskurður dómnefndar- innar er endanlegur um allar niðurstöður keppninnar. Ljóðin skal senda til Önnu Helgadóttur, formanns MENOR, Duggugerði 2, 670 Kópaskeri. Úrslit ljóðasamkeppninnar verða kunngerð í hófi sem haldið verður á Akureyri sunnudaginn Útgerðarfélag Akureyringa hf. Kostnaður vegna ffamkvæmda við Harðbak fór ekki fram úr áætíun - segir Gunnar Larsen, tæknistjóri Harðbakur EA hélt til veiða í gær, en ráðgert var að togarinn léti úr höfn sólahring fyrr. Taf- ir urðu vegna bilunar í vélstýr- ingu togarans. Sem komið hefur fram í blað- inu samdi Útgerðarfélag Akur- eyringa hf. um breytingar og endurbætur á Harðbak EA við skipasmíðastöðina Nauta, sem er í Gdynia í Póllandi. Togarinn fór utan um miðjan september á liðnu ári og er kominn til heima- hafnar fyrir nokkru. Að undan- förnu hafa starfsmenn Útgerðar- félagsins unnið að því að útbúa togarann til veiða og ljúka við- gerðum, sem alla tíð stóð til að framkvæma hér heima. „Við erum hæstánægðir með framkvæmd erlendu skipasmíða- stöðvarinnar. Kostnaður fór ekki fram úr áætlun. Upphæð tilboðs plús áætluð aukaverkefni fóru 2lA% fram úr áætlun, sem er inn- an skekkjumarka. Verkþáttur og tækjakaup Utgerðarfélagsins er innan sömu marka, en það er um helmingur kostnaðar. Frétta- flutningur útvarps af kostnað- arhlið verksins var afar villandi þó ekki sé meira sagt. Daglegt eftirlit með verkinu var í höndum Guðmundar Tulinius og Romans Bartoszewics og Guðmundur Jónsson, rafeindavirki og Jón Jóhannesson, skipstjóri, höfðu umsjón og eftirlit með uppsetn- ingu og tengingu tækja í stýris- húsi,“ sagði Gunnar Larsen, tæknistjóri Útgerðarfélags Akur- eyringa hf. ój ' ■ £ >4 ifflúnúw <i, , .' ■ m " Harðbakur EA hélt til veiða í gær. Mynd: KK 4. apríl nk. Verðlaunaljóðin verða birt í páskablaði Dags og ef til vill einnig í riti á vegum MENOR. Aðstandendur keppn- innar áskilja sér einnig rétt til að birta með hliðstæðum hætti önn- ur ljóð, sem send verða til keppn- innar. Annar útgáfuréttur er í höndum höfunda. Nánara fyrir- komulag keppninnar verður kynnt í Degi á næstunni. BB. 90 þúsund tonna sem útlending- arnir eiga en það eru nánast eng- ar líkur til að þeim takist að veiða það magn á þeim tíma sem þeir hafa en það er til 15. febrúar auk þess sem þeir mega ekki veiða fyrir sunnan 64° 60”,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson. Næsti loðnuleiðangur verður farinn á Árna Friðrikssyni í byrj- un marsmánaðar og verður þá könnuð loðnuganga norðan- og norðvestanlands og jafnvel út af Vestfjörðum. Engin loðnuveiði var í fyrri- nótt vegna brælu en veiðisvæðið er sífellt að færast sunnar því um miðjan dag í gær voru bátarnir farnir að fá loðnu austur af Stokksnesi og leit út fyrir ágæta veiði. Bjarni Bjarnason skipstjóri á Súlunni EA sagðist vera búinn að fá í hálfan bátinn, um 400 tonn, og væru allir loðnubátarnir á svipuðum slóðum. GG Wtmr ■ r m ** Mísy ■ * ■ y Þátttakendur i fegurðar- samkeppni rlands 1993 ortven lölllllliif fostudag og iaugardag SJALUNN

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.