Dagur - 04.02.1993, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 4. febrúar 1993!
iPRÓTTIR
Halldór Arinbiarnarson
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Jafiitefli í KA-húsinu í döprum leik
- KA-menn ekki með í fyrri hálfleik
Leikur KA og Fram verður
varla hátt skrifaður í hand-
knattleikssögunni. Til þess var
hann einfaldlega allt of leiðin-
legur. KA-menn voru einstak-
lega áhugalausir framan af,
Framarar sínu skárri en voru
mjög grófir í varnarleik sínum
á köflum. Jafntefli 20:20 verða
því að teljast sanngjörn úrslit
þegar á heildina er litið.
Framarar byrjuðu mun betur.
KA-menn voru hreinlega ekki
með fyrstu mínúturnar og raunar
allan fyrri hálfleik. Ef ekki hefði
komið til einstaklingsframtak Al-
freðs Gíslasonar, sem skoraði 5
af 8 mörkum liðsins í fyrri hálf-
leik, hefði staða KA í leikhléi
verið slæm. Framarar höfðu yfir í
leikhléi 10:8 sem var síður en svo
of mikið.
KA-menn hresstust heldur í
síðari hálfleik og komust í fyrsta
skipti yfir í leiknum, 17:16, þegar
um 9 mínútur voru eftir. Þeir
voru síðan skrefi á undan allt til
loka en Framarar vörðust vel síð-
ustu mínúturnar og jafntefli
20:20 varð niðurstaðan.
Alfreð Gíslason var ákaflega
óhress með sína menn. „Við spil-
uðum hörmulega og stór hluti
liðsins var gersamlega út á þekju.
Það var eins og menn héldu að
fríið væri byrjað.“
Gangur leiksins: 0:4, 3:5, 6:6, 7:8, 8:10,
10:12, 13:15, 15:15, 17:17, 19:18, 20:20.
Mörk KA: Alfreð Gíslason 10/6, Óskar
E. Óskarsson 3, Erlingur Kristjánsson 2,
Ármann Sigurvinsson 2, Pétur Bjarnason
1, Þorvaldur Þorvaldsson 1, og Einvarð-
ur Jóhannsson 1. Iztok Race varði 6 skot
og Björn Björnsson 5.
Fijálsar íþróttir:
Gnumskólamót Akureyrar
Ungmennafélag Akureyrar
mun þann 27. þessa mánaðar
standa fyrir frjálsíþróttamóti á
milli grunnskólanna á Akur-
eyri. Keppt verður í tveimur
aldursflokkum, 7. bekk og
yngri og 8.-10. bekk og hjá báð-
um kynjum.
Skólar munu senda frá sér lið
bæði í stráka- og stúlknaflokki
báða eða annan aldurshópinn,
allt eftir aðstæðum. Hver kepp-
andi má aðeins keppa í einni
grein. Þaö lið sem verður stiga-
hæst samanlagt hjá báðum kynj-
um í hverjum aldursflokki fær
titilinn Grunnskólameistari
Akureyrar í frjálsum íþróttum.
Keppt verður í langstökki án
atrennu, hástökki með atrennu
og 40 m spretti hjá báðum aldurs-
flokkum og einnig í þrístökki án
atrennu hjá þeim eldri. Nánari
upplýsingar veitir Gunnar Gunn-
arsson í síma 11547/21772.
Mörk Fram: Jón Ö. Kristinsson 6, Páll
Þórólfsson 5, Karl Karlsson 4, Davíð
Gíslason 4 og Jason Ólafsson 1. Sigtrygg-
ur Albertsson varði 7 skot.
Dómarar: Ingvar Georgsson og Jóhann
Júlíusson og voru slakir.
Staðan
Úrslit í 18. umferð:
Selfoss-Þór 27:23
KA-Fram 20:20
Stjarnan-Víkingur 23:19
Haukar-FH 24:27
Valur-IR 21:15
ÍBV-HK frestað
Staðan:
Stjarnan 18 12-4- 2 446:419 28
FH 17 11-2- 4 456:41124
Valur 17 9-6- 2 406:366 24
Selfoss 18 9-3- 6 466:448 21
Haukar 18 9-1- 8 482:443 19
Víkingur 17 8-1- 8 397:398 17
KA 17 7-3- 7 391:395 17
ÍR 18 7-3- 8 427:443 17
Þór 17 5-2- 10 408:450 12
ÍBV 16 4-3- 9 373:40111
Fram 18 3-3-12 433:465 9
HK 17 4-1-12 395:448 9
.. ‘
Þorvaldur Þorvaldsson brýst hér inn af línunni og skorar af harðfylgi.
Mynd: Robyn
Blak, 2. deild karla Norðurlandsmót:
Snörtur einn á toppnum
Á þriðjudagskvöldið áttust við
toppliðin í 2. deild Norður-
landsriðils í blaki karla. Þetta
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Vöm Þórsliðsins var ,Akkilesar-
hælliim“ í tapleik gegn Selfossi
Selfyssingar hafa eflaust verið
minnugir leiksins gegn HK á
sunnudagskvöldið er þeir töp-
uðu óvænt fyrir þeim og mættu
fjallgrimmir til leiks gegn Þórs-
urum á Selfossi í gærkvöld og
unnu leikinn eftir að Þórsarar
höfðu verið yfir í hálfleik,
12:13. Leikurinn var síðan jafn
15:15 en þá komust Selfyssing-
ar í 18:15 og héldu þeim mun
til leiksloka en Iokaúrslit urðu
27:23.
Þórsarar spiluðu mjög vel
fyrstu 40 mínútur leiksins en þá
þá urðu þeim á mistök, aðallega í
varnarleiknum auk þess sem öll
vafaatriði voru heimamönnum
Sigurður Sveinsson og Einar Gunnar Sigurðsson voru markahæstir Selfyss-
inga og taka hér hressilega á Rúnari Sigtryggssyni. Mynd: Robyn
hagstæð. Sóknin var mjög vel
leikin, beðið eftir færum en
nokkurs óþols gætti þegar heima-
menn komust yfir um miðjan
seinni hálfleik en fram að því
hafði sóknarleikur Þórsliðsins
verið mjög árangursríkur. Mjög
erfitt er að spila á Selfossi, hávaði
gífurlegur, jafnt frá trommu-
leikurum sem mannsbörkum.
Gísli Felix varði alls 17 skot í
leiknum gegn 7 skotum kollega
síns, Hermanns Karlssonar, í
marki Þórs en Ingólfur Guð-
mundsson varði eitt. Markahæst-
ir Þórsara voru Sigurpáll Árni
Aðalsteinsson með 8 mörk, Ole
Nielsen 7, Finnur Jóhannsson 4,
Atli Rúnarsson 2, Rúnar Sig-
tryggsson 1, Sævar Árnason 1 en
markahæstur Selfyssinga var
Sigurður Sveinsson með 8 mörk,
línumaðurinn Gústaf Bjarnason
með 6, Einar Guðmundsson 6,
Einar Gunnar Sigurðsson með 4,
Sigurjón Bjarnason 2 og Jón Þór-
irJónssonl. GG
var viðureign Snartar frá
Kópaskeri og Skautafélags
Akureyrar eða Skautanna eins
og þeir kalla sig.
Leikurinn var hinn fjörugasti
og góð barátta á báða bóga.
Snörtur vann 1. hrinuna 15:8 en í
þeirri næstu snérist dæmið við og
Skautarnir unnu 15:5. Þá sögðu
Kópaskersbúar hingað og ekki
lengra, unnu næstu 2 hrinur 14:11
og 15:7 og gerðu út um leikinn.
Næstkomandi miðvikudag fara
Snartarmenn til Kópavogs og
keppa við HK, topplið 1. deildar,
í undanúrslitum bikarkeppninn-
ar. Sama dag eigast Þróttur og
KA við í hinum undanúrslita-
leiknum.
Staðan
Blak, 2. deild karla
Norðurlandsriðill
Snörtur
Skautar
KA2
Völsungur
4 4 0 12:2 12
43110:4 10
312 4:6 4
303 1:9 1
2 0 2 0:6 0
Alþjóðlegt handknattleiksmót
í Hafnarfirði:
Hið fyrsta hérlendis
fyrir yngri flokka
Nú stendur fyrir dyrum alþjóð-
legt handknattleiksmót fyrir
yngri flokka, hið fyrsta sinnar
tegundar hérlendis. Það verð-
ur haldið í Hafnarfírði 8.-12.
aprfl og eru það FH-ingar sem
ríða á vaðið.
Forsvarsmenn mótsins búast
við góðri þátttöku íslenskra liða,
þegar hafa um 10 erlend lið til-
kynnt þátttöku og vitað er um
fleiri sem munu koma. Leikið
verður í drengja- og stúlknaT
flokki í 2., 3., 4. og 5. flokki.
Keppt verður í íþróttahúsum
bæjarins og gist í grunnskólun-
um. Boðið verður upp á mat
meðan á mótinu stendur fyrir þá
sem vilja. Gisting og matur kosta
7500 og þátttökugjald er 8000 á
lið. Tilkynna verður þáttöku fyrir
1. mars til Geirs Hallsteinssonar í
síma 91-50900. Bæklingur mun
verða sendur öllum félögum sem
aðild eiga að HSÍ.
Handknattleikur:
Markaskorarar í 3. flokki
í frétt á þriðjudaginn af keppni
3. flokks Þórs og KA á íslands-
mótinu í handknattleik vantaði
nöfn markahæstu manna. Hér
verður bætt úr því.
Mótið var haldið f íþróttahöll-
inni á Akureyri og reyndust KA-
menn sterkastir. Þjálfari liðsins
er Árni Stefánsson. Heiðmar
Felixsson var markahæstur Þórs-
ara með 22 mörk, Baldvin Her-
mannsson skoraði 19, Ingólfur
Björnsson 8, Ragnar Ragnarsson
7, Elmar Steindórsson 6, Þor-
björn Björnsson 2 og Jón Lúð-
víksson 2. Hjá KA var Atli Þór
Samúelsson iðnastur við kolann.
Hann skoraði 21 mark, Matthías
Stefánsson 19, Óskar Bragason
16, Sverrir Björnsson 8, Heimir
Haraldsson 7, Tómas Jóhannes-
son 4, Óli Ólafsson 4 og þeir
Halldór Sigfússon og ísleifur
Einarsson 1 hvor.