Dagur - 04.02.1993, Page 7

Dagur - 04.02.1993, Page 7
Fimmtudagur 4. febrúar 1993 - DAGUR - 7 Verslunin Toppmenn & sport hefur flutt sig um set í miðbæ Akureyrar. Verslunin var áður til húsa að Ráðhústorgi 7 en hefur nú opnað í Skipagötu 1. Toppmenn & sport verslar með íþróttavörur frá Adidas, Rucanor og fleirum og er einnig með sportfatnað fyrir karlmenn, eins og gallabuxur, boli, peysur og fleira. Á myndinni eru þrír af fjórum eigenda verslunarinnar, f.v. Áskell Gíslason, Þorvaldur Hilmarsson og Ragnar Þorvaldsson. Sá fjórði er Friðbjörn Benediktsson. Mynd: kk Hótel ísland: Söngskemmtun byggð á lögum Geirmundar Næstkomandi laugardags- kvöld, 6. febrúar, verður frum-1 sýnd á Hótel Islandi söng-. skemmtun byggð á sívinsælum lögum Geirmundar Valtýsson- ar. Söngvarar í söngskemmtun- inni verða ásamt Geirmundi þær Guðrún Gunnarsdóttir og Berg- lind Björk Jónasdóttir ásamt Ara Jónssyni. Hljóðfæraleikur verður í höndum hljómsveitar Geir- mundar Valtýssonar, en hana skipa þeir Eiríkur Hilmisson á gítar, Sólmundur Friðriksson á bassa, Kristján Baldvinsson á trommur ásamt Magnúsi Kjartans- syni á hljómborð og blásurunum Asgeiri Steingrímssyni og Einari Braga Bragasyni. Kynnar verða þau Þorgeir Ástvaldsson og Mar- grét Blöndal. í takt við erfiða tíma í þjóð- félaginu hefur verið ákveðið að stilla verði í hóf á söngskemmtun þessa til þess að sem flestir sjái sér fært að koma á Hótel ísland og skemmta sér með Geirmundi Valtýssyni og hljómsveit hans. Miðaverð, þríréttuð máltíð inni- falin, verður því aðeins þrjú þús- Verslunin Radionaust á Akureyri hefur sett í gang svokallaðan nýársleik sem stendur í sjö vikur. Hann er í því fólginn að boðið er uppá tvo tilboðshluti hverja viku, en tilboðsvikan er frá fimmtudegi til fimmtudags. Þeir sem versla þessar tilboðs- vörur lenda í svokölluðum lukku- potti sem safnað verður í í sjö vikur, að því búnu eða föstudag- inn 5. mars kl. 17 verður óvænt uppákoma í Radionaust og þá und og níu hundruð krónur sem er þúsund króna lækkun frá því miðaverði sem verið hefur í gildi á kvöldverð og skemmtanir sem dreginn út sá heppni, en hann fær vöru þá er hann keypti að fullu endurgreidda. Mörg þekkt og vönduð vöru- merki verða á boðsólum í þessum nýársleik, má þar nefna Philips, Samsung, Electrolux, Audio- sonuc, Panasonic, Rowenta, Casio og fleiri. Þegar hefur þessum leik og til- boðum verið vel tekið og pottur- inn að verða nokkuð stór enda til mikils aö vinna. Fréttatilkynning þessa. (Úr fréttatilkynningu) Nýársleikur Radionaust á Akureyri: Boðið uppá tvo tilboðs hluti í hverri viku MENOR - menningardagskrá í febrúar Laugardagur 6. febrúar kl. 12:00 Hádegistónleikar í Akureyrar- kirkju. Bjöm Steinar Sólbergsson flytur verk eftir Bach og Jón Nordal. Léttur hádegisverður í Safnaðar- heimili eftir tónleika. Sunnudagur 7. febrúar kl. 17:00 Glerárkirkja, Kammerhljómsveit Akureyrar Tónleikar á myrkum músikdög- um. Frumflutningur á Brekku- götu eftir Atla Ingólfsson. Verkið er sérstaklega samið fyrir Kamm- erhljómsveit Akureyrar -Epitaf- ion eftir Jón Nordal - St. Kentig- em svíta eftir Thomas Wilson. Sunnudagur 7. febrúar kl. 20:30 Ástardrykkurinn eftir Donnizetti 5. og síðasta sýning. Laugarborg, Eyjafjarðarsveit. Flytjendur: Nemendur og kenn- arar Tónlistarskólans á Akureyri. Föstudagur 12. febrúar kl. 20:30 Safnahúsið, Húsavík. Margrét Bóasdóttir, sópran, Kristinn Öm Kristinsson, píanó, Flytja ljóðasöngva um konur og ástina: Lagaflokkinn „Helga fagra“ eftir Jón Laxdal, ljóð Suleiku og Philine úr kvæðum J.W. von Goethe eftir Schubert, Schumann, Mendelssohn og Hugo Wolf. Söngvar um Maríu Guðsmóður eftir Áskel Jónsson og Karl O. Runólfsson og lög eftir þingeysk tónskáld. einnig halda þau tónleika á eftirtöldum stöðum: Laugardagur 13. febrúar kl. 17:00 Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju. Sunnudagur 14. febrúar kl. 16:00 Breiðumýri, Reykjadal, S-Þing. Laugardagur 20. febrúar Tónlistarskólinn á Húsavík - sal- ur. Sinfóníuhljómsveit tónlistarskóla á Norðurlandi flytur 2 Gymnop- edíur eftir Erik Satie, píanó- konsert í C dúr K-415 fyrir píanó og hljómsveit eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Sinfónía nr. 8 ófullgerða hljómkviðan eftir Franz Schubert. Einleikari: Bima Helgadóttir. Stjómandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Þessir sömu tónleikar verða einnig: Sunnudag 21. febrúar Glerárkirkja Laugardagur 27. febrúar Dalvíkurkirkja Gítartónleikar. Flytjendur: Nem- endur Tónlistarskólans á Akur- eyri Teíksýníngar' Föstudagur 5. febrúar Deleríum Búbónis - Fmmsýning Höfundar: Jónas og Jón Múli Ámasynir. Leikstjóri: María Sig- urðardóttir. Flytjendur: Umf. Efling - leikdeild Laugardagur 6. febrúar Júpíter hlær eftir A.J. Cronin Sýning á Dalvík. Þýðandi: Ævar R. Kvaran. Leikstjóri: Einar Þor- bergsson. Flytjendur: Leikfélag Kópaskers Laugardagur 6. febrúar kl. 16:00 Ronja Ræningjadóttir - Fmmsýning. Höfundur: Astrid Lindgren. Þýðandi: Einar Njáls- son. Leikstjóri: Brynja Bene- diktsdóttir. Flytjendur: Leikfélag Húsavíkur Miðvikudagur 10. febrúar Skúlagarður N- Þing. Júpíter hlær eftir A.J. Cronin Föstudagur 12. febrúar Plógur og stjömur - Frumsýning. Höfundur: Sean O’Casey. Þýð- andi: Sverrir Hólmarsson. Leik- stjóri: Sigurður Hallmarsson Laugardagur 13. febrúar Þórshöfn N-Þing. Júpíter hlær eftir A.J. Cronin. Sunnudagur 14. febrúar Raufarhöfn. Júpíter hlær eftir A.J. Cronin. Leikfélag Akureyrar Útlendingurinn. Höfundur: Larry Shue. Leik- stjóri: Sunna Borg. Miðasala op- in alla daga frá kl. 14:00 nema mánudaga. Sími 2 40 73 Bridgefélag V.-Húnvetninga a Hvammstanga: Aðalsveita- keppnin - sveit Eggerts Starfsemi Bridgefélags Vestur- Húnvetninga á Hvammstanga er komin í fullan gang á nýju ári. í byrjun janúar var haldinn tvímenningur með þátttöku 7 para og sigruðu þeir Halldór Sigfússon og Pálmi Sigurðsson með 74 stig. Eggert Ó. Levy og Elías Ingi- marssor. urðu í 2. sæti með 71 stig og þeir Marteinn Reimarsson og hálfnuð Ó. Levy leiðir Hallur Sigurðsson í 3. sæti með 64 stig. Aðalsveitakeppni félagsins hófst fyrir skömmu með þátttöku fjögurra sveita. Spiluð er tvöföld umferð og eftir fyrri umferðina er sveit Eggerts Ó. Levy í efsta sæti með 71 stig. Sveit Árnar Guð- jónssonar er í 2. sæti með 44 stig, sveit Konráðs Einarssonar í 3. sæti með 39 stig og sveit Þórðar Jónssonar í 4. sæti með 23 stig. Sveitakeppni í bridds - Akureyrarmót: Sveit Krístjáns efst hörð barátta á toppnum Sveit Kristjáns Guðjónssonar er enn í efsta sæti að loknum 12 umferðum af 22 í Akureyr- armótinu í sveitakeppni í bridds sem nú stendur yfir. Hins vegar er staða efstu sveita mjög jöfn, þar sem aðeins 20 stig skilja að 1. og 5. sveit. Sveit Kristjáns hefur hlotið 219 stig en sveit Páls Pálssonar er í öðru sæti með 215 stig. í þriðja sæti er sveit Hermanns Tómas- sonar með 211 stig, sveit Sigur- björns Þorgeirssonar í fjórða sæti með 205 stig og sveit Gylfa Páls- sonar í fimmta sæti með 199 stig. Framundan er hörð barátta um sigur í mótinu en næstu þrjár umferðir verða spilaðar í Hamri þriðjudaginn 9. febrúar og hefst spilamennskan kl. 19.30. -KK Nokkrar ungar stúlkur héldu á dögunum hlutaveltu til styrktar Sophiu Hansen. Ágóða hlutaveltunnar verður komið rétta boðleið. Á myndinni eru þær Katrín Ólafsdóttir og Þóra Pétursdóttir en Vilborg Ólafsdóttir og Hrafnhildur Gunnþórsdóttir voru fjarverandi. Mynd: Robyn Aðalfundur Flugbjörgunarsveitar Akureyrar verður haldinn að Galtalæk, fimmtudaginn 11. febrúar og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.