Dagur - 16.02.1993, Side 2

Dagur - 16.02.1993, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 16. febrúar 1993 Fréttir Hafnarframkvæmdir á Norðurlandi: Framkvæmt fyrir 360 milljómr á þessu ári Hermann Guðjónsson, vita- og hafnamálastjóri, segir að gert sé ráð fyrir að framkvæmt verði við hafnir á Norðurlandi á þessu ári fyrir um 360 millj- ónir króna. Þar af nemur kostnaður við tvö verk, annars vegar brimvarnargarð á Blönduósi og hins vegar frá- gang bryggju og dýpkun á Húsavík, um 200 milljónum króna. Norðurland vestra Á Norðurlandi vestra er stærsta framkvæmdin í ár bygg- ing brimvarnargarðs á Blöndu- ósi, en þegar hefur verið gengið frá samningi við lægstbjóðanda í verkið, Viggó Brynjólfsson á Skagaströnd. Samningurinn gerir ráð fyrir að verkið verði unnið á árunum 1993 og 1994, samtals um 120 milljónir króna. Þar af er gert ráð fyrir að vinna fyrir um 90 milljónir króna á þessu ári. Við höfnina á Skagaströnd verður unnið fyrir um 6 milljónir króna. Um er að ræða að setja þekju á þá bryggju sem unnið hefur verið við á undanförnum árum. Á Sauðárkróki er ætlunin að byggja nýja 70 metra langa bryggju með viðlegu beggja megin, fyrir togarana öðrum Sauðárkróksbær: Ófus að míssa spón úr askinum - tapar rúmum 8 milljónum vegna meðaltalsreiknireglu Bæjaryfírvöld á Sauðárkróki eru óhress með þann tekju- missi sem bærinn verður fyrir vegna afnáms aðstöðugjalds. Að sögn Snorra Björns Sig- urðssonar bæjarstjóra vilja menn þar á bæ að farin verði önnur leið við skiptingu bóta vegna niðurfellingarinnar. Sauðárkróksbær var með mjög háa innheimtuprósentu og tap- ar rúmum 8 milljónum m.v. núverandi fyrirkomulag. Stjórnvöld ætla að bæta sveit- arfélögunum upp tekjumissinn vegna afnáms aðstöðugjalds um 80%, sem er m.v. meðaltalsinn- heimtuprósentu sveitarfélag- anna. Sauðárkróksbær var hins vegar með mun hærra innheimtu- hlutfall, allt að 95% árið 1991, sem var að vísu í hærri kantinum. Innheimtuhlutfall hefur þó verið langt yfir 80%, að sögn Snorra Björns. Hann segir bæinn tapa um 3% af heildartekjum, eða rúmum 8 milljónum, m.v. inn- heimtuhlutfall ársins 1991. Þetta mál kom til umræðu á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag. Þá lýsti bæjarstjórinn því yfir að nauðsynlegt sé að berjast fyrir því að fá leiðréttingu þessara mála. Hann kvað það slæmt að Samb. ísl. sveitarfélaga hefði samþykkt þessa leið. Snorri Björn sagði í samtali við blaðið að hann hafi skrifað þingmönn- um og óskað eftir leiðréttingu. Hann kvað bæjaryfirvöld óska eftir endurgreiðslum m.v. raun- tölur, þ.e. rétta innheimtu- prósentu, ekki meðaltal. „Við eigum mjög erfitt með að sætta okkur við þetta og höfum verið að leita eftir því að þetta verði lagfært. Hvort það er hægt verð- ur bara að koma í ljós“, sagði Snorri Björn. sþ megin og smábátana hinum megin. Á þessu ári verður fram- kvæmt fyrir um 65 milljónir króna. Þegar er búið að semja um efni í stálþil, en gert er ráð fyrir að bjóða út sjálfar fram- kvæmdirnar þegar nær dregur vori. Norðurland eystra Til framkvæmda í Ólafsfjarð- arhöfn verður varið um 35 millj- ónum króna. Ætlunin er að rífa gamla bryggju og byggja upp í hennar stað 80 metra langa við- legubryggju, ekki ósvipaða fyrir- hugaðri viðlegubryggju á Sauðár- króki. Hermann Guðjónsson, vita- og hafnamálastjóri, segir að fjárveiting þessa árs dugi vart fyr- ir öðru en kaupum á efni í bryggjuna. A Dalvík er ætlunin að nýta þær 8 milljónir sem eru til ráð- stöfunar til að leggja slitlag á 3500 fermetra gámasvæði. Til framkvæmda í Grímsey verður varið 18 milljónum króna. Byggð verður 40 metra löng við- legutrébryggja landmegin. Mið- að er við að þessi fjárveiting nægi til að ljúka framkvæmdum í ár. Á Árskógssandi verður rekið niður þil sem leiðir til 60 metra lengingar viðlegukants. í þessar framkvæmdir verða settar um 37 milljónir króna. Á Húsavík er ætlunin að ljúka þeim umfangsmiklu hafnarfram- kvæmdum sem hófust þar í fyrra. Gengið verður frá bryggjunni og höfnin dýpkuð. Til þessara fram- kvæmda er ætlað að verja um 100 milljónum króna á þessu ári. Á Kópaskeri er ætlunin að dýpka fyrir um 2 milljónir króna og á Raufarhöfn er á áætlun að setja 4 milljónir króna í að bæta innsiglingarmerki við höfnina. Auk þessara framkvæmda hafa Siglfirðingar áhuga á að ganga frá lögnum við svokallaða Ingvars- bryggju og hafnaryfirvöld á Akureyri hafa hug á að ljúka framkvæmdum við Tangabryggju. Til þessara framkvæmda eru ekki fjárveitingar á fjárlögum og þær yrðu því á ábyrgð heimamanna. óþh 18 milljónum króna verður varið til framkvæmda við Grímseyjarhöfn. Byggð verður 40 metra löng viðlegutrébryggja. Landssamband hestamannafélaga: íslandsmót í hesta- íþróttum fæi i til mn viku Samkvæmt mótaskrá frá Lands- sambandi hestamannafélaga var ráðgert að íslandsmótið í hestaíþróttum 1993 færi fram á Akureyri dagana 15. til 18. júlí nk. Nú er búið að færa íslands- mótið til um viku samkvæmt ósk LH, þ.e. til daganna 22. til 25. júlí. Mótsstaður er að Hiíð- arholti ofan Akureyrar sem fyrr. Að sögn talsmanns Lands- sambands hestamannafélaga reyndist ekki mögulegt að halda íslandsmótið í hestaíþróttum á þeim dögum sem fyrirhugað var þar sem mótið rakst á fyrirhuguð hestaþing á Murneyri og hjá Stormi á Vestfjörðum. „Eyfirðingar og Akureyringar leystu vanda okkar hjá LH fljótt og vel. íslandsmótið verður dag- ana 22. til 25. júlí og Hátíðisdag- ar hestafólks á Melgerðismelum verða viku fyrr þ.e. dagana 17. og 18. júlí í stað 24. og 25. júlí,“ sagði talsmaður Landssambands hestamannafélaga. ój íslandsmótið í dorgveiði: Bjöm G. Sigurðsson sigur- vegari í Norðurlandsriðli íslandsmót í dorgveiði Norðurlandsriðli fór fram sl. laugardag á Ólafsfjarðarvatni. Sigurvegari keppninnar varð Björn Grétar Sigurðsson, for- maður Dorgveiðifélags íslands. Að sögn stjórnarmanna í Dorgveiðifélagi Islands, sem stóð fyrir keppninni, voru skráningar til keppninnar mun færri en reiknað var með og má þar um kenna fárviðri því sem gekk yfir landið aðfaranótt laugardagsins. Þegar keppendurnir ellefu héldu út á ísinn á laugardagsmorguninn kl. 11.00 var komið hið besta veður, sunnan gola og frost. ísinn reyndist þykkur, allt að einn metri með austurlandinu, en nokkru þynnri neðan laxeldis- stöðvarinnar við vesturbakkann. Félagar í Veiðifélagi Ólafsfjarðar höfðu kvöldið áður borað nokkr- ar holur með austurlandinu, en þar varð ekki vart. Með vestur- landinu varð vart bleikju og laxar voru þar einnig á sveimi. Upp úr Sigurvegarinn, Bjöm G. Sigurðsson, fyrir miðju. Með honum á myndinni eru Baldur Vilhjálmsson og Jónas Bjarnason, sem lentu í öðru og þriðja sæti. hádegi voru keppendurnir allir komnir á svæðið niður af laxeldis- stöðinni og beitt var rækju, sem bleikjan gaf sig að. Þegar keppni lauk kl. 16.00 var haldið til hótelsins á staðnum, Hótel Ólafsfjarðar, þar sem aflinn var vigtaður og verðlaunaveiting fór fram. Sigurvegari keppninnar varð Björn G. Sigurðsson með þyngst- an afla. í öðru sæti varð Baldur Vilhjálmsson og í því þriðja Jón- as Bjarnason. Veiðimennirnir eru allir frá Akureyri og eiga nú rétt til úrslitakeppninnar um íslandsmeistaratitilinn í dorg- veiði. ój Björn G. Sigurðsson með einn lítinn silungstitt. Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Atvinnumálanefnd fékk Ásgeir Magnússon á fund nýlega, þar sem hann lagði fram greinargerð og tillögur um stofnun markaðsfyrirtækis á Akureyri, sem hefði það að aðalmarkmiði að auka að- dráttarafl bæjarsins, m.a. með því að gera hann að aðsetri jólasveinsins hér á landi. í máli Ásgeirs kom m.a. fram að óskað er eftir þátttöku Akureyrarbæjar að hálfu á móti hagsmunaaðilum í bænum. Miklar umræður urðu um þetta mál en síðan sam- þykkt að skoða þetta mál bet- ur milli funda og jafnframt vísa málinu til bæjarráðs. ■ Bæjarráði hefur borist bréf frá Prentsmiðjunni Ásprenti' hf. í bréfinu er fjallað um útboð á vegum Akureyrarbæj- ar og hlutdeild fyrirtækja á Akureyri á þeim. Bent er á nauðsyn þess að Akureyrar- bær'móti heildarstefnu í þess- um málum. ■ Á fundi bæjarráðs nýlega voru kynntir og ræddir kaup- samningar Akureyrarbæjar á 10 íbúðum í Lindarsíðu 4. Bæjarráð staðfestir kaup- samningana með fyrirvara hvað snertir húsreglur og veð- setningu íbúðanna. Jafnframt var bæjarlögmanni og félags- málastjóra falið að starfa með bygginganefndinni að samn- ingu húsreglna. ■ Bæjarráð tók fyrir á fundi sínum fyrir helgi, lið úr fund- argerð bygginganefndar, þ.e. umsókn frá húsnæðissam- vinnufélaginu Búseta um byggingasvæði sunnan Hjarð- arlundar vestan Verkmennta- skólans. Á fundinn komu byggingafulltrúi og skipulags- stjóri og veittu upplýsingar. Bæjarráð telur ótímabært að ráðast í skipulag á nýju bygg- ingasvæði en bendir á þá möguleika sem eru að skipu- leggja slíkt byggingasvæði í Giljahverfi. ■ Menningarmálanefnd hef- ur borist styrkbeiðni frá Oddi Bjarna Þorkelssyni og Borgari Þórarinssyni, vegna þátttöku í Eurovision. Nefndin frestaði afgreiðslu málsins. ■ Atvinnumálanefnd hcfur borist erindi frá Jóni Björns- syni, félagsmálastjóra, þar sem hann sækir um styrk til að sækja námskeið í Danmörku um málefni atvinnulausra á Norðurlöndum. Nefndin telur mikla nauðsyn á að kynnast umræðum á þessu sviði en vís- aði styrkbeiðninni til bæjar- ráðs, þar sem hún var samþykkt. ■ Atvinnumálanefnd hefur borist styrkbeiðni frá KA að upphæð kr. 350.000 til að standa straum af kostnaði vegna kaupa á sýningarkerfi sl. sumar. Nefndin hafnar beiðninni en samþykkti að taka upp viðræður við KA um lausp þessa máls. ■ Á fundi umhverfisnefndar nýlega var þess minnst að Ingi- mar Eydal, fulltrúi í umhverf- isnefnd, lést 10. janúar sl. Nefndarmenn vottuðu minn- ingu hans virðingu og þökk- uðu þátt hans í uppbyggingu umhverfismála á Akureyri.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.