Dagur - 16.02.1993, Page 9
Þriðjudagur 16. febrúar 1993 - DAGUR - 9
Enska KNATTSPYRNAN
Þorleifur Ananíasson
Ian Wright kom Arsenal áfram
Um helgina var 5. umferð FA-
hikarsins í öndvegi á knatt-
spyrnuvöllunum í Englandi.
Þrátt fyrir að þessi keppni sé
fræg fyrir óvænt úrslit, þá brá
nú svo við að úrslit í öllum
leikjum urðu samkvæmt bók-
inni. Af þessum sökum voru
aðeins leiknir þrír leikir í
Úrvalsdeildinni, en þrátt fyrir
það skipti deildin um forystu-
lið. En þá skulum við líta yfir
leiki helgarinnar og byrja á
FA-bikarnum.
■ Arsenal liðið með Ian Wright
í broddi fylkingar stefnir nú að
því að komast á Wembley í bæði
FA- og Deildabikarnum, auk
þess sem leikmenn liðsins neita
að gefa meistaratitilinn uppá
bátinn. Á laugardag mætti
Arsenal hinu mikla bikarliði
Nottingham For. á heimavelli
sínum og sigraði 2:0. Það var
Wright sem skoraði bæði mörk
liðsins í fyrri hálfleik, en Forest
liðið átti þó talsvert í leiknum og
sigur Arsenal full stór. Fyrra
markið kom á 21. mín., það virt-
ist ekki mikil hætta á ferðum er
Ian Selley skallaði boltann fram
frá miðjunni en þar tók Wright
við boltanum og sendi hann með
glæsilegu skoti frá vítateig yfir
Mark Crossley markvörð Forest.
Nigel Clough fékk síðan gullið
færi á að jafna fyrir Forest eftir
góða sendingu fyrir mark Arsenal,
en skaut yfir af stuttu færi. Undir
lok fyrri hálfleiks skoraði síðan
Wright síðara mark Arsenal er
hann fékk boltann frá Selley, lék
Úrslit Úrslit í vikunni. FA-bikarinn 4. umferð.
Grimsby-Swansea 2:0
Deildabikarinn undanúrslit,
fyrri leikur.
Blackburn-Sheffleld Wed. 2:4
Úrvalsdeild
Arsenal-Wimbledon 0:1
Crystal Palace-Aston Villa 1:0
Ipswich-Q.P.R. 1:1
Leeds Utd.-Manchester Utd. 0:0
Sheffleld Utd.-Middlesbrough 2:0
Chelsea-Liverpool 0:0
Everton-Tottcnham 1:2
Southampton-Norwich 3:0
1. deild
Birmingham-Millwall 0:0
Portsmouth-Ncwcastle 2:0
Sunderland-Oxford 2:0
Derby-Barnsley 3:0
Luton-Brcntford 0:0
Southcnd-Bristol City 1:1
West Ham-Peterborough 2:1
Úrslit um helgina. FA-bikarinn 5. uinferð.
Arsenal-Nottingham For. 2:0
Blackburn-Newcastle 1:0
Derby-Bolton 3:1
Ipswich-Grimsby 4:0
Manchester City-Barnsley 2:0
Sheflicld Wed.-Southend 2:0
Sheffield Utd.-Man. Utd. 2:1
Tottenham-Wimbledon 3:2
Úrvalsdeild
Chelsea-Aston Villa 0:1
Leeds Utd.-Oldham 2:0
Southampton-Liverpool 2:1
1. deild
Birmingham-Portsmouth 2:3
Charlton-Sunderland 0:1
Peterborough-Wolves 2:3
Swindon-Millwall 3:0
Tranmere-Luton 0:2
Watford-West Ham 1:2
Brentford-Cambrídge 0:1
- ekkert óvænt í FA-bikarnum - Aston Villa á topp úrvalsdeildar
Peter Schmcichel markvörður Man. Utd. sér hér á eftir boltanum í netið frá Jamie Hoyland í ieiknum gegn Sheff.
Utd.
inní vítateiginn og skoraði með
góðu skoti. Á síðustu mín. leiks-
ins varð Wright þó að yfirgefa
völlinn meiddur, en vonandi fyrir
Arsenal eru þau meiðsli ekki
alvarleg.
■ Leikur Blackburn gegn New-
castle var sýndur í sjónvarpinu og
þar fengu áhorfendur að sjá jafna
viðureign þar sem Newcastle var
ekkert síðra. David Kelly skall-
aði naumlega yfir mark Black-
burn, en hinum megin var Jason
Wilcox óheppinn, eða réttara
sagt klaufi að skora ekki fyrir
Blackburn. Það stefndi allt í
markalaust jafntefli og annan
leik þar til Roy Wegerle sem átti
mjög góðan leik fyrir Blackburn
skoraði sigurmarkið á síðustu
mín. leiksins eftir að hafa leikið á
tvo varnarmenn í vítateig New-
castle áður en hann renndi bolt-
anum í markið.
■ Mel Machin framkvæmda-
stjóri Barnsley kom með lið sitt í
heimsókn til Manchester City þar
sem hann var eitt sinn við stjórn-
völin, en sú för varð engin frægð-
arför. Tvö mörk frá David White
sitt í hvorum hálfleik sáu til þess.
Þrem mín. fyrir lok fyrri hálfleiks
varði Lee Butler markvörður
Barnsley skalla frá White eftir
fyrirgjöf Terry Phelan, en hélt
ekki boltanum og White var fljót-
ur að átta sig og sendi hann í
netið. í síðari hálfleiknum bætti
White seinna markinu við með '
skoti sem Butler hálfvarði, en
boltinn rétt skreið yfir marklín-
una áður en varnarmönnum tókst
að hreinsa frá. City var síðan
nærri að bæta þriðja markinu við
er Rich Holden átti þrumuskot í
stöng, boltinn barst til Mike
Sheron, Butler varði vel skotið
frá honum.
■ Ipswich átti ekki í neinum
vandræðum með Grimsby og
sigraði örugglega 4:0. Paul
Goddard sem lék mjög vel hjá
Ipswich átti bæði skalla og skot
naumlega framhjá áður en
Bontzo Guentchev skoraði fyrsta
markið á 28. mín. með viðstöðu-
lausu skoti. John Wark bætti
öðru marki Ipswich við eftir
klukkutíma leik með skalla eftir
hornspyrnu. En þá var komið að
Guentchev að fullkomna þrennu
sína, á 73. mín. skoraði hann eft-
ir sendingu frá Goddard og á síð-
ustu mín. gerði hann fjórða mark
Ipswich og sitt þriðja með skalla
eftir að markvörður Grimsby
hafði misst frá sér boltann.
■ Bolton sem sló Liverpool úr
keppninni varð nú að játa sig
sigrað á útivelli gegn Derby.
Þrátt fyrir 3:1 sigur Derby í leikn-
um var Bolton liðið óheppið að
ná ekki öðrum leik. Bolton jafn-
aði 1:1 eftir að Craig Short hafði
náð forystu fyrir Derby snemma í
leiknum með skalla eftir horn-
spyrnu Mark Pembridge. Andy
Walker jafnaði fyrir Bolton með
skalla eftir hornspyrnu, en um
miðjan síðari hálfleik gerði
Derby út um leikinn með tveim
mörkum. Short afgreiddi góða
sendingu frá Marco Gabbiadini
af miklu öryggi í netið og síðan
bætti Paul Williams þriðja marki
Derby við eftir undirbúning Paul
Simpson. Walker misnotaði
dauðafæri fyrir Bolton og heppn-
in var ekki með þeim í leiknum.
■ Sheffield Wed. vann öruggan
2:0 sigur á heimavelli gegn 1.
deildarliði Southend. Eftir góða
byrjun Southend þar sem m.a.
var dæmt mark af Stan Collymore
náði Paul Warhurst forystunni
fyrir Sheff. Wed. rétt fyrir hlé
með marki af stuttu færi. Það var
síðan á 10 mín. síðari hálfleiks
sem Warhurst gerði endanlega út
um vonir Southend með öðru
marki Sheff. Wed. í leiknum er
hann slapp í gegn og skoraði af
öryggi.
Úrvalsdeild
■ Aston Villa komst á topp
Úrvalsdeildarinnar eftir 1:0 sigur
á útivelli gegn Chelsea, sigur sem
hafðist með seiglunni þar sem
Chelsea liðið var sterkari aðilinn
í leiknum. Um miðjan fyrri hálf-
leik eftir langt útspark Mark
Bosnich markvarðar Villa hlupu
þeir saman Mal Donaghy og
Frank Sinclair varnarmenn
Chelsea og leiðin var greið fyrir
Man. Utd. úr leik í FA-bikarnum
Á sunnudag voru leiknir tveir
síðustu leikirnir í 5. umferð
FA-bikarsins og eflaust ein-
hverjir sem telja að óvænt úr-
slit hafi orðið í öðrum þeirra
að minnsta kosti. En lítum
aðeins nánar á leikina og síðan
dráttinn fyrir 6. umferð.
■ Man. Utd. hafði verið spáð
bikarmeistaratitli, en leikmenn
Sheff. Utd. vildu ekkert af því
vita og sigruðu verðskuldað 2:1.
Miklu meiri kraftur var í Shef-
field liðinu þrátt fyrir góða byrj-
un Man. Utd. sem náði forystu á
30. mín. með marki Ryan Giggs
sem slapp í gegn eftir sendingu
Mark Hughes. Aðeins 4 mín. síð-
ar jafnaði Sheff. Utd. eftir auka-
spyrnu Glyn Hodges sem olli
misskilningi hjá Steve Bruce og
Peter Schmeichel sem Jamie
en Tottenham áfram
Hoyland nýtti sér vel og skoraði.
5 mín. fyrir hlé náði Sheff. Utd.
forystunni er Hodges slapp í gegn
og vippaði laglega yfir Schmeichel
og heimamenn komnir yfir. Er 6
mín. voru til leiksloka fékk þó
Man. Utd. kjörið færi á að jafna
og tryggja sér annan leik er
dæmd var vítaspyrna á Sheff.
Utd. Mitch Ward felldi Paul Ince
innan teigs, en Bruce misnotaði
spyrnuna og þar fór bikardraum-
ur Man. Utd. að þessu sinni.
■ Ekkert lið á glæsilegri feril í
FA-bikarnum en Tottenham og
það lið er komið áfram eftir 3:2
sigur gegn Wimbledon. Sann-
gjarn sigur, en Wimbledon liðið
kann ekki að gefast upp og það
fór um marga Tottenham menn
áður en yfir lauk. Tottenham
hafði yfir 3:0 í hálfleik, fyrsta
markið á 26. mín. skoraði Darren
Anderton eftir sendingu Nick
Barmby og rétt fyrir hlé skallaði
Teddy Sheringham inn eftir
hornspyrnu Anderton og síðan
skallaði Barmby inn sendingu
Anderton og leikurinn virtist úti
fyrir Wimbledon. En Wimbledon
gafst ekki upp og Gerald Dobbs
lyfti yfir Eric Thorstvedt mark-
vörð Tottenham um miðjan síð-
ari hálfleik, en það var ekki fyrr
en á síðustu mín. sem Steve Cott-
erill náði að bæta síðara marki
liðsins við.
■ Dregið var til 6. umferðar eft-
ir leiki dagsins og þá leika saman:
Blackburn-Sheffield Utd.
Derby-Sheffield Wed.
Ipswich-Arsenal.
Manchester City-Tottenham.
Þ.L.A.
Ray Houghton sem slapp í gegn
og skoraði af öryggi. Þetta var
ekki dagur Chelsea og Bosnich
varði glæsilega hjólhestaspyrnu
John Spencer og undir lokin var
átherji liðsins Dennis Wise bor-
inn meiddur útaf.
■ Southampton liðið er ekki auð-
velt heim að sækja og á því fékk
Liverpool að kenna um helgina.
Neil Maddison náði forystu fyrir
Southampton á 24. mín. eftir
sendingu frá Jason Dodd, en síð-
an varði Tim Flowers í marki
Southampton glæsilega frá Don
Hutchison úr opnu færi. Það
jafnaðist þó út er dómarinn
sleppti augljósri vítaspyrnu á
Liverpool er Matthew Le Tissier
var klipptur niður í vítateignum.
En Hutchison náði að jafna fyrir
Liverpool eftir hlé eð góðu skoti,
en hann hefði þó átt að vera
búinn að skora þrennu áður.
ISigurmark Southampton kom er
16 mín. voru til leiksloka, eftir
langt útspark Flowers mistókst
Steve Nicol að skalla frá og Nicky
Banger sem komið hafði inná
sem varamaður slapp einn í gegn
og skoraði.
■ Leeds Utd. sigraði Oldham á
heimavelli 2:0 í ágætum leik, en
dómarinn kom þó Leeds Utd. á
bragðið er hann gaf liðinu víta-
spyrnu sem Gary McAllister
skoraði úr. Lee Chapman skor-
aði síðara mark Leeds Utd. með
jþrumuskoti eftir góðan undir-
búning McAllister og stigin eru
kærkomin fyrir meistarana í fall-
baráttunni. Þ.L.A.
Staðan
Úrvalsdeild
Aston Villa 29 15- 8- 6 45:30 53
Man. Utd. 28 14- 9- 5 42:22 51
Norwich 27 14- 6- 7 40:41 48
Ipswich 28 10-13- 5 37:32 43
Coventry 28 11- 9- 8 44:38 42
Blackburn 27 11- 8- 8 40:30 41
QPR 27 11- 8- 8 37:32 41
Man. City 27 11- 7- 9 39:30 40
Sheff. Wed. 26 10- 9- 7 35:30 39
Tottenham 28 10- 8-10 32:39 38
Chelsea 29 9-10-10 32:36 37
Southampton 29 9- 9-11 34:35 36
Arsenal 26 10- 5-11 25:25 35
Liverpool 27 9- 7-11 38:39 34
Leeds 28 9- 8-11 40:41 33
Wimbledon 28 8- 9-11 33:36 33
Crystal Palace 28 8- 9-1135:44 33
Everton 28 9- 5-14 30:37 32
Middlesbrough 28 7- 9-1236:47 30
SheflT. Utd. 27 7- 7-13 27:36 28
Oldliam 27 7- 6-14 38:50 27
Nott. For. 26 6- 7-13 26:35 25
1. deild:
Newcastle 29 19- 5- 5 52:26 62
West ltam 30 17- 7- 6 56:29 58
Millwall 301410- 6 52:30 52
Portsmouth 30 14- 8- 8 53:36 50
Tranmerc 27 14- 6- 7 50:35 48
Swindon 27 13- 8- 6 48:38 47
Grímsby 28 13- 4-11 42:37 43
Wolves 3011-10- 9 42:37 43
Leicester 28 12- 6-10 39:36 42
Charlton 30 10-11- 9 35:30 41
Pcterborough 28 10- 8-10 39:43 38
Derby 2811. 5-12 46:39 38
Brentford 30 10- 7-13 39:42 37
Oxford United 28 8-12- 8 40:36 36
Bamsley 29 10- 6-13 34:35 36
Sunderland 28 10- 6-12 31:39 36
Watford 30 9- 9-12 44:54 36
Bristol City 29 8- 8-13 34:53 32
Cambridge Unitcd 29 7-10-12 33:48 31
Luton 29 6-13-10 30:45 31
Notts County 29 6-10-13 34:49 28
Bimiingham 29 7- 7-15 26:50 28
Southcnd 29 6- 9-14 30:38 27
Bristol Rovers 29 7- 5-17 37:60 26