Dagur


Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 6

Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 27. febrúar 1993 hlutina lesið þriggja binda verk Her- bjargar Wassmo. „Ég man að við pældum alveg óskaplega í Her- björgu Wassmo, þessum þremur bókum hennar. Við höfum tekið nokkra kvenhöfunda fyrir“, segir Aðalheiður og nefnir Fay Weldon auk þeirra Lessing og Wassmo og Jakobínu Sigurðardóttur af íslenskum höfundum. Þær segj- ast báðar vera miklir aðdáendur Doris Lessing og Aðalheiður kveðst einnig halda mikið upp á Iris Murdoch. Við skeggræddum bækur Doris Lessing um stund. „Hún skrifar stór verk eins og um Mörthu Quest, svo skrifar hún venjulegar skáldsögur eins og Grasið syngur og hún skrifar snilldarlegar smásögur", segir Anna Kristín og við erum allar sammála um að Lessing sé afskaplega margbreytilegur höfundur. Aðalheiður kveðst hafa týnt síðasta bindi bóka- flokksins um Mörthu Quest fyrir tuttugu árum og ennþá sjá eftir henni. „Við vorum fyrst alltaf með bækur eftir konur“, segir Aðalheiður. „Svo kom breyt- ingatillaga frá frú Aðalheiði í fyrra um að við prufuðum nú að taka eina bók eftir karlmann", segir Anna Kristín og Aðalheið- ur bætir við: „já, við lásum Laxness, sjálfa íslandsklukk- una“. Þær segjast tilbúnar að gefa karlrithöfundum tækifæri. Hugleiða lífíð og tilveruna Ég spyr þær hvort þær séu farnar að lesa með öðru markmiði en að allir athugi sömu bókina. „Það hefur alltaf háð okkur að við hofum ekki náð í nógu mórg eintök af sömu bókinni. Við höf- um verið í nýrri bókum núna og það er ennþá erfiðara að fá þær“, segir Anna Kristín. Aðalheiður segir að oft standi misjafnlega vel á hjá þeim, stundum séu þær svo uppteknar við annað að þær komist ekki yfir að Iesa. „Pá hafa farið fleiri skipti í sömu bókina og orðið misvísun, því það eru ekki allir búnir að lesa og sumir kannski ekki búnir að sjá bókina. Þess vegna kom ég með þessa til- lögu að við færum bara að hug- leiða lífið og tilveruna og finna út hvernig hver höfundur vinnur úr ákveðnu efni“, segir hún. Við ræðum um stund um gildi þess að lesa í hóp. Aðalheiður: „Ég þekkti enga þessara kvenna þegar ég byrjaði og þurfti að lemja mig svolítið áfram. En það þýðir ekkert að segja, ef ég væri í Reykjavík þá gæti ég gert þetta eða hitt, og vera fúll úti í horni. Mér fannst þetta strax mjög skemmtilegt. Ég fann að ég var orðin svo forn og sérviskufull af því að ég hafði alltaf verið ein með mínar bækur. Mér fannst svo gaman að finna hvernig aðrir sáu hlutina. Bókin dýpkar og maður fær meira út úr henni.“ „Sumir sjá sama atriðið með sitt hvoru mótinu og það festist miklu betur í manni“, segir Anna Kristín. Aðalheiður segir að þeg- ar þær lásu Dansinn við Regitze, hafi hún aldrei komist í samband við þá bók, en hinar hafi verið mjög hrifnar af henni. „Mér fannst mjög gaman að heyra Önnu Rósu og Helgu útskýra hana, því þær lifðu sig svo inn .í hana.“ Par með lendum við út í aðra sálma og ég fór af fundi þessara meðvituðu og víðlesnu kvenna staðráðin í að standa mig betur við lesturinn eftirleiðis til að hafa í fullu tré við þær. sþ Bækur: að því hvemig aðrir sjá - leshringur kvenna á Sauðárkróki heimsóttur Dóra, Helga og Þórey í heim- spekilegum þönkum. Konurnar í les- hringnum önn- um kafnar að I ræða unglinga- bókmenntír. A myndina vantar Önnu Rósu Skarphéðins- dóttur, en hún var fjarverandi. Elín, Aðalheið- ur og Anna Kristín hugleiða hvað eigi að taka fyrir næst. mið er líklegra að árangur náist, auk þess sem alltaf er skemmti- legt að ræða það við aðra sem verið er að lesa. Það gefur nýja sýn, því hver og einn sér verkið á sinn hátt. Aðallega kvenrithöfundar - en karlarnir ekki útilokaðir Ég króaði þær Aðalheiði B. Ormsdóttur og Önnu Kristínu Gunnarsdóttur af og bað þær að segja frá starfi leshringsins. Aðal- heiður byrjaði á upphafinu, haustið 1990. „Það voru fjórtán konur úr sveitunum hingað og þangað sem ætluðu að vera í leshringnum. Við vorum sex á fyrsta fundinum og á þeim næstu vorum við bara tvær eða þrjár. Svona gekk þetta fyrst. Svo var talað um að hætta, en við hittumst heima hjá mér í janúar til að koma lífi í þetta. Þá var ákveðið að halda áfram og þetta gekk nú svona heldur betur. Haustið eftir komu Anna Kristín og Elín inn og Dóra.“ „Og það hefur verið mjög vel mætt síðan“, segir Anna Kristín. Þær hafa oftast lesið allar eina og sömu bókina, en það er ekki algilt. „Það hefur líka komið fyrir að við höfum lesið ákveðinn höfund, eins og Doris Lessing“, segir Anna Kristín og Aðalheið- ur bætir því við að þær hafi líka Gaman Við heyrum það stundum að lestur bóka sé að leggjast af smám saman. Að sjónvarpið og myndböndin séu að hertaka frítíma fólks. Þetta er ef til vill ekki að ástæðulausu, en sem betur fer er ennþá nóg af fólki sem les bækur. Það er líka til í dæminu að hópur fólks taki sig saman í svokallaða leshringi og lesi bækur og ræði þær saman. Á Sauðárkróki hittist góður hópur kvenna aðra hverja viku í leshring. Eg ákvað að líta við hjá þeim og fræðast nánar um áhugamálið. Leshringurinn hefur starfað á þriðja ár, en var stofnaður sem hluti Kvennasmiðjunnar í Skaga- firði. Kvennasmiðjan var stofnuð 19. júní 1990 og leshringurinn hóf göngu sína þá um haustið. Aðsetur starfsemi Kvennasmiðj- unnar var í fyrstu í húsnæði Kaupfélagsins við Aðalgötu, sem kallað er Grána í daglegu tali. Leshringurinn flutti sig síðan yfir í Villa Nova, og þetta er annar veturinn sem hann er þar. Starf- semi Kvennasmiðjunnar hefur að miklu.leyti lagst niður, en þegar af stað var farið réði fjölbreytnin ríkjum. En það er tímafrekt að taka þátt í félagsstarfi og nútfma- konan hefur í nógu að snúast. Upphaflega hluti Kvennasmiðjunnar Konurnar sem nú eru í leshringn- um eru sjö talsins. Það eru ekki allt sömu konurnar frá upphafi, sumar hafa hætt og aðrar komið í staðinn. Þær sem nú eru í hópn- um eru Aðalheiður B. Ormsdótt- ir, en hún hefur unnið að ritstörf- um og starfar jafnframt á Sýslu- skrifstofunni, Anna Kristín Gunnarsdóttir og Anna Rósa Skarphéðinsdóttir sem báðar eru kennarar, Dóra Þorsteinsdóttir forstöðumaður Bókasafnsins, Þórey Jónsdóttir búandkona (að eigin sögn) í Keflavík, Helga Hannesdóttir sem vinnur í versl- un og starfar jafnframt með Leik- félaginu og Elín Huld Hart- mannsdóttir hárgreiðslukona. Allar eiga það sameiginlegt að hafa lestur góðra bóka að áhuga- máli. Afþreyingabækur eru þó ekki bannorð og sumar viður- kenna mikinn glæpasöguáhuga. í leshringnum er lesið allt milli himins og jarðar, stundum lesa allar sömu bókina og stundum velja þær sér efni, eitt eða fleiri. Nú síðast lásu þær unglingabók- ina Bak við bláu augun eftir Þor- grím Þráinsson. Þær voru á einu máli um nauðsyn þess að kynna sér áhugamál barna og unglinga og athuga þessa bók, sem er óhemju vinsæl af vissum aldurs- hópi eins og aðrar bækur höfund- ar. Konurnar í hópnum hittast oft- ast í Villa Nova, einu af gömlu húsunum á Sauðárkróki og afskaplega fallegu. Þar eru málin rædd yfir kaffibolla eina kvöld- stund aðra hverja viku. Ég fór á fund þeirra þegar þær ræddu um bók Þorgríms. Það er skemmst frá því að segja að umræðufund- urinn var afskaplega fjörugur og skemmtilegur. Þó að bækur skipi þar meginsess eru málin rædd vítt og breitt og formlegheitin í minna lagi. Þetta er fyrst og fremst andleg upplyfting og hvíld frá daglegu amstri. Þegar hópur fólks tekur sig saman um lestur bóka veitir það aðhald við lestur- inn. Flestir sem á annað borð hafa áhuga á bókalestri ætla sér oft og tíðum að lesa hitt og þetta, en koma því ekki í verk. Ef fleiri taka sig saman og setja sér mark-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.