Dagur - 27.02.1993, Blaðsíða 11

Dagur - 27.02.1993, Blaðsíða 11
E Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 11 |Bl|B8| Norræna Ba félagið Aðalfundur Norræna félagsins, Akureyrardeild- ar, verður haldinn miðvikudaginn 3. mars kl. 20.30 að Bjargi, Bugðusíðu 1 (Sjálfsbjörg). Kaffiveitingar. Stjórnin. hefst mánudaginn 1. mars ÍDA Brekkugötu 5 Sími 24991 Foss í klakaböndum séður úr fjarlægðinni - klakahöll - tákn um kulda. I frosnum fossinum eru súlur - suðrænar - andstæður hinnar hrjúfu og köldu ímynd norðursins. Andstæðir straumar mynda þannig Súlnaberg Önnu G. Torfadóttur, myndverkið eins og það kemur fram á sýningu hennar á samnefndu kaffihúsi í miðbæ Akureyrar. Sýning Önnu er liður í sýningaröð sem Menningarsamtök Norðlendinga, MENOR, standa fyrir á Súlnabergi „Teríunni“ og í húsakynnum Byggðastofnunar við Geislagötu á Akureyri. Þær myndir sem Anna sýnir á Súlnabergi eru sérstaklegar unn- ar fyrir þessa sýningu og er myndin Súlnaberg ákveðið tákn sem felur nafn sýningarstaðar- inns í sér - í einskonar forystu- hlutverki annarra verka. Við myndsköpun sína beitir Anna tækni sem hún kvaðst ekki hafa notað áður - „ljósmyndacollage" sem hún vinnur úr eigin ljós- myndum. Hún stækkar ljós- myndirnar, sumar allt að 200 an yfir kaffibolla á Súlnabergi nú í vikunni. Maður í ham og máttarstólparnir Anna sýnir níu myndir á Súlna- bergi og 10 myndir í Byggða- stofnun. Uppistaða þeirra mynda eru litlar myndir - unnar með svonefndri blindþrykkstækni en auk þeirra sýnir hún einnig tvær stórar teikningar. í myndinni „í ham“, sem er eitt stærsta mynd- í ham - á norðurvegg Súlnabergs. Alþýðubandalagið boðar til almennra stjórnmálafunda í Norður-Þingeyjarsýslu og á Húsavík: Kópaskeri sunnudaginn 28. febrúar kl. 20.30 í Öxi. Raufarhöfn mánudaginn 1. mars kl. 20.30 í félags- heimilinu. Þórshöfn þriðjudaginn 2. mars kl. 20.30 í félags- heimilinu. Húsavík miðvikudaginn 3. mars kl. 20.30 í fundarsal verkalýðsfélaganna. Alþingismennirnir Kristinn H. Gunnarsson og Stein- grímur J. Sigfússon mæta á fundina á Kópaskeri og Raufarhöfn en Svavar Gestsson og Steingrímur J. Sigfússon á Þórshöfn og Húsavík. ★ Allir velkomnir. Alþýðubandalagið. Heimur andstæðna - á klippimynda „collage“ sýningu í Súlnabergi og Byggðastofnun á Akureyri Anna G. Torfadóttir, myndlistarmaður við verk sitt Súlnaberg. prósent áður en hún klippir þær og raðar saman þannig að þær mynda eina heild. Anna notar síðan málningu til að skapa hinn endanlega myndflöt og framkalla þannig þau blæbrigði og áherslur sem hún vill ná fram. Suðrænt kaffihús á Súlnabergi í einni mynda hennar má sjá kaffihús, er gæti verið einhvcjrs 'staðar í Suður-Evrópu. Gestir sitja á gangstéttinni í hinni suðrænu sól og borða ávexti eða gæða sér á kir eða Capucino. Líf- legir litirnir og gömul kaffikann- an fyrir miðri mynd ná í samein- ingu að mynda þennan suðræna blæ götukaffihússins þrátt fyrir að grunnur myndefnisins sé allur fenginn hér norður á hinu kalda Fróni og hafi áður borið fyrir linsu myndavélar listamannsins. Fékk hugmyndina að myndunum eftir að hafa skoðað sýningarsvæðið Anna kvaðst hafa fengið hug- myndina að þessari myndsmíð þegar henni hafi boðist að sýna á Súlnabergi. Veggflöturinn hafi gefið færi á þessari stærð, sem nýtist illa til að sýna grafíkmyndir sem hún hafi einkum unnið við að undanförnu. „Ég fór að hugsa um á hvern hátt ég gæti nýtt þetta pláss og þá varð hugmyndin að myndunum til. Ég hafði oft velt því fyrir mér á hvern hátt ég gæti notað ljósmyndasafnið mitt við myndsköpun og nú sá ég að tæki- færið var komið,“ sagði listakon- verkið á sýningunni og prýðir norðurvegg Súlnabergs bregður fyrir sex myndum af manni - manni í ham - undir mismunandi tilbrigðum birtu og lita. Hver hluti myndarinnar er ákveðið myndskeið þar sem litirnir skapa umgjörð um viðkomandi persónu. Á einu myndskeiðinu er einstakl- ingurinn undir vökulu augnaráði sem brýst fram úr litrófinu og við það lítur hann upp og í átt til áhorfandans. Á annarri mynd sem Anna kallar „Á vegum bæjarins" sitja máttarstólparnir í kringum borð og ráða ráðum sín- um varðaðir af brunahönum sem geta táknað bæjarfélagið í heild sinni. Heimur andstæðna - tilraun sem hefur heppnast Með sýningunni á Súlnabergi og í Byggðastofnun hefur Anna G. Torfadóttir sýnt á sér nýja hlið sem myndlistarmaður. Hún hefur sótt efni í þá smiðju sem áhuga- ljósmyndaranum áskotnast á leið sinni og unnið úr því myndefni er leiðir áhorfandann inn í nýjan heim. Heim andstæðna sem hún teflir fram með djarflegum hætti. Hinar heitu súlur við kaldan Svartafoss eða gömul kaffikanna úr aflögðu búi á íslandi - allt í einu er orðin miðpunktur suð- rænnar stemmningar. Eða kaldir brunahanar sem tákn bæjarfélags og umgjörð umhverfis þá sem menn í stólum sitja og ráðum ráða. Þessi tilraun Önnu G. Torfadóttur hefur heppnast og forvitnilegt verður að sjá hvernig henni tekst til haldi hún áfram á þessari braut myndlistarinnar. ÞI Á suðrænu kaffihúsi - hvar annars staðar?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.