Dagur - 27.02.1993, Blaðsíða 17

Dagur - 27.02.1993, Blaðsíða 17
Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 17 Aldraðir skemmtu sér í Sjallanum á konudagfam Hún var einlæg og rík, gleðin sem var við völd í Sjallanum á konu- daginn, sunnudaginn 21. febrúar sl. Þá hélt Skíðaráð Akureyrar veglegt kaffisamsæti fyrir eldri borgara. Skíðaráð hefur mörg undanfarin ár séð um skemmtun á konudaginn fyrir Öldrunarþjón- ustu Akureyrarbæjar við einstak- lega góðar undirtektir. Rúmlega 200 manns mættu í Sjallann og skemmti fólk sér vel og lofaði veit- ingarnar. Björg Finnbogadóttir, Bella, var veislustjóri að vanda og fórst það afskaplega vel úr hendi. Stefán Vilhjálmsson flutti minni kvenna, hluti af Kór Glerárkirkju söng, hópur frá Dalvík sýndi viki- vaka og hljómsveit Pálma Stefáns- sonar lék fyrir dansi. Fjörið var svo mikið að skemmtunin dróst á langinn því gestina þyrsti í meiri dans. Skíðaráð Akureyrar sá um allar veitingarnar, fólk á vegum ráðsins bakaði, lagði á borð og var til aðstoðar á skemmtuninni. Var bakkelsið allt hið ljúffengasta og þáttur Skíðaráðs lofsverður að mati þeirra sem þessa velheppn- uðu skemmtun sóttu. SS Bakkelsið frá skíðaráðsfólki var girnilegt enda hafði einn veislugesta á orði að hann hlakkaði alltaf jafn inikið til konudagsins því þetta væri bestu kræsingar sem hann kæmist í. Félagar í Kór Glerárkirkju sungu og fór stjórnandinn, Jóhann Baldvinsson, fyrir sínu fólki. ■ ; v\V\v Nokkrir eldri borgarar gæða sér á veitingunum Það var mikið dansað og eins og í dansskólanum í gamla daga dönsuðu konurnar oft saman. Myndir: Robyn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.