Dagur


Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 21

Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 21
Laugardagur 27. febrúar 1993 - DAGUR - 21 Perla er týnd! Bröndótt, smávaxin læöa tapaöist. Er með rauða hálsól. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 21718 eftir kl. 12.00 á hádegi. Námskeið. Indversk matargerð. Surekha Datye býöur upp á kynn- ingu á indverskri matargerð. Þátt- takendur fá tækifæri til aö elda og kynnast indverskum réttum undir leiðsögn hennar. Kynningin stendur í fjögur skipti. Verö kr. 2.500 hvert skipti, allur matur innifalinn. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband viö S.D., sími 11856. Skógarlóðir. í landi Bjarkar í Eyjafjaröarsveit er til sölu íbúðarlóðir á skipulögöu svæöi. Lóðirnar eru þaö stórar aö þær geta hentað þeim sem hafa áhuga á skógrækt. Allar nánari upplýsingar gefur Aöal- steinn Hallgrímsson í h-síma31189 og v-síma 31339. Geri upp gömul húsgögn svo sem kommóður, stóla, borö, kistur, skenka o.m.fl. Einnig tek ég aö mér aö leggja parket. Upplýsingar í síma 96-24896. Bókhald - Skattframtöl. VSK-uppgjör - Launavinnsla. Rekstrar- og tölvuráðgjöf. Jónas Reynir Helgason, iðnrekstrarfræðingur. Símar 26313 og 41175. Kenni á Nissan Sunny Sedan 4x4. Tímar eftir samkomulagi. Útvega öll náms- og prófgögn. Greiðslukjör við allra hæfi. Anna Kristín Hansdóttlr, ökukennari, sími 23837 og bíla- sími 985-33440. Hundeigendur. Hlýðninámskeið fyrir alla hunda. Hlýðni I fyrir byrjendur og Hlýðni fyrir lengra komna. Hundaskóli Súsönnu, sími 96-33168. Reikifélag Norðurlands. Fundur verður f Barnaskóla Akur- eyrar, mánud. 1. mars kl. 20. Allir sem lokið hafa námskeiði í reiki eru velkomnir. Stjórnin. Glerárkirkja. Laugard. 27. febrúar bænastund og biblíulestur kl. 13.00. Sunnud. 28. febrúar barnasamkoma kl. 11.00. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Messa verður kl. 21.00. Ath. breyttan messutíma. Sóknarprestur. Dalvíkurprestakall: Barnamessa verður í Dalvíkur- kirkju sunnudaginn 28. febrúar kl. 11. Guðsþjónusta verður í Tjarnar- kirkju sunnudaginn 28. febrúar kl. 14. Allir velkomnir. Sóknarprestur. Olafsfjarðarprestakall: Guðsþjónusta verður á Hornbrekku sunnudaginn 28. febrúar kl. 16. Athugið breyttan tíma. Allir velkomnir. Barnaguðsþjónusta verður í Olafs- fjarðarkirkju sunnudaginn 28. febrúar kl. 17. Jón Helgi Þórarinsson. Möðruvallaprestakall. Kvöldguðsþjónusta verður í Glæsi- bæjarkirkju nk. sunnudag, 28. febrúar, kl. 21.00. Kór kirkjunnar syngur. Organisti Birgir Helgason. Guðsþjónusta í Skjaldarvík kl. 16 sama dag. Sóknarprestur. Efst í huga Svavar Ottesen HVITASUnmiRKJAM wsmn>shlb Föstudagur 26. febrúar kl. 20.00 bæn og lofgjörð. Laugardagur 27. febrúar kl. 21.00 samkoma fyrir ungt fólk. Sunnudagur 28. febrúar kl. 11.00 barnakirkjan, allir krakkar vel- komnir. Sama dag kl. 15.30 sam- koma, ræðumaður Vörður Trausta- son. Samskot tekin til tækjasjóðs. Barnapössun meðan á samkomu stendur. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hjálpræðisherinn. Laugard. 27. febr. kl. 13.30: Opið hús fyrir börn, 6-12 ára. Sunnud. 28. febr. kl. 11.00: Helgun- arsamkoma. Kl. 13.30: Sunnudagaskóli. Kl. 19.30: Bæn. Kl. 20.00: Almenn samkoma. Mánud. 1. mars kl. 16.00: Heimila- samband. Kl. 20.30: Hjálparflokkur. Miðvikud. 3. mars kl. 17.00: Fundur fyrir 7-12 ára. Fimmtud. 4. mars kl. 20.30: Biblía og bæn. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hríseyjarkirkja. Kirkjukvöld verður á sunnudags- kvöldið 28. febr. kl. 20.30. Ræðumaður verður Guðjón Björns- son og Þorsteinn Pétursson flytur hugleiðingu og kynnir Gideon- félagið. Sólveig Hjálmarsdóttir og kirkjukór Hríseyjarkirkju munu syngja. Organisti er Pálína Skúladóttir. Tekin verða samskot í biblíusjóð Gideonfélagsins. Sóknarprestur. KFUM og KFUK, Sunnuhlíð. Sunnudaginn 28. febrúar bæna- og söngvastund kl. 20.30. Allir velkomnir. Það vantarmeiri ró yfir mannfólkið Þegar ég fór að skrifa þennan pistil og hugleiða hvað væri efst í huga mínum þessa dagana, kom í Ijós að það var ekkert eitt málefni, sem var þar efst á baugi. Mér varð hugsað til þeirra hörmulegu atburða, sem gerðust í Bretlandi á dögunum er tveggja ára drengur var lim- lestur og drepinn og sökudólgarnir voru tveir tíu ára strákar. Þá vakti líka athygli mína í fréttum, að ástandið víða í London væri orðið slíkt að fólk þyrði varla út úr húsi af ótta við að verða fyrir líkamsmeiðingum af völdum ofbeldis- sinnaðra utangarðsmanna. Hér á landi, sérstaklega í Reykjavík, berast fregnir af látlausum þjófnuðum og fólk getur varla talist óhult lengur að kvöldlagi án þess að eiga á hættu að verða fyrir barðinu á ofbeldismönnum. Skemmst er að minnast þess að ráðist var á tvær telpur nýlega á götu í Reykja- vík. Það er ekki óeðlilegt að menn á mín- um aldri fari að hugleiða alvarlega hvað sé að gerast í okkar mjög svo friðsæla, íslenska þjóðfélagi. Það er engin spurn- ing að það þjóðfélag, sem við höfum skapað á íslandi á undanförnum áratug- um er mjög ólíkt því, sem ég þekkti þeg- ar ég var að alast upp. Þó tók það mikl- um breytingum á stríðsárunum, þegar hér dvöldu að ég held jafnmargir erlendir hermenn og allir (slendingar voru. í þá daga var fátækt mikil, en fólk virtist una glatt við sitt og ég man ekki betur en börn og unglingar væru ánægð og yndu sér vel við leiki og störf. í dag er þessu öðruvísi farið. Þetta er allt annað þjóðfélag. Til skamms tíma hafa allir haft vinnu og það þykir orðið sjálfsagt í dag að báðir foreldrar vinni úti, en börnin eru í fóstri ýmist á leikskólum eða hjá dagmæðrum. Lífsgæðakapp- hlaupið er í algleymingi og við búum í svokölluðu neysluþjóðfélagi, en það þýðir í raun að allir verða að eiga þak yfir höfuðið, einn til tvo bíla, öll heimilistæki, húsgögn af ýmsu tagi, ganga í fínum föt- um o.s.frv. Þegar ég nú horfi til baka þá verð ég að viðurkenna að það er eitthvað sem vantar. Það vantar meiri ró yfir mannfólk- ið — þessi mikla spenna í þjóðfélaginu fer illa með fólk, það vantar þolinmæð- ina. Ungt fólk, sem er að byrja að búa, getur varla vænst þess að eignast alla hluti á einu bretti. Þá þarf að taka lán og þar með er þetta unga fólk búið að binda sig á klafa til lífstíðar. Ef svo viðvarandi atvinnuleysi bætist við erfiðleika hjá fólki, þá er það mín skoðun að við íslendingar munum eiga í miklum erfið- leikum á næstunni. Við getum aldrei sætt okkur við sömu aðstæður og eru í Bretlandi og víðar að þar er til fólk á fer- tugsaldri sem aldrei hefur tekið þátt í verðmætasköpun þjóðfélagsins, en hef- ur sótt sínar atvinnuleysisbætur mánað- arlega. Ég óttast slíkt þjóðfélag og vona að við berum gæfu til að forða okkar ungmennum frá slíku. kvöldið □ HULD 5993317 IV/V 3 I.O.O.F. 15 = 174 3281/2 = O Fundarboð. 6. félagsfundur Junior Chamber Akureyri verð- ur haldinn mánudags- . mars 1993 nk. kl. 20.00 stundvíslega, í félagsheimili JC Akureyrar að Eiðsvallagötu 6 n.h. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemi JC hreyfingarinnar. Junior Chamber Akureyri. Konur, konur! fvlnrxr ”Agl°w“ kristilegt félag ^IUW. kvenna heldur fund á Hótel KEA, mánudaginn 1. mars kl. 20.00. Ræðumaður verður Janice Dennis. Söngur, lofgjörð og fyrirbænaþjón- usta. Kaffiveitingar kr. 500. Allar konur hjartanlega velkomnar. Stjórn Aglow Akureyri. fHÍj I u"1 SJÓNARHÆÐ W HAFNARSTRÆTI 63 Laugardagur 27. feb.: Laugardags- fundur á Sjónarhæð, Hafnarstræti 63 kl. 13.30. Ástirningar og aðrir krakkar velkomnir. Unglingafundur á Sjónarhæð kl. 20. Allir unglingar velkomnir. (Ástirn- ingar á unglingsaldri athugið, þetta er líka fyrir ykkur.) Sunnudagur 28. feb.: Sunnudaga- skóli í Lundarskóla kl. 13.30. Krakkar, reynið að fá fleiri með ykkur! Samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Allir eru hjartanlega velkomnir. Sigfús Jónsson, Þórunnarstræti 121, Akureyri, verður sjötugur sunnu- daginn 28. febrúar. Hann og kona hans, Elsa Gríms- dóttir, verða í Reykjavík á afmælis- daginn. Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Austurvegur 4, Þórshöfrt, þingl. eig. Jón Stefánsson, gerðarbeiðendur Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Tryggingastofnun ríkisins, 4. mars 1993 kl. 16.00. Nónás 6, Raufarhöfn, þingl. eig. Jóhann H. Þórarinsson, gerðarbeið- andi íslandsbanki hf., 4. mars 1993 kl. 14.00. Stórhóll 77, Húsavík, þingl. eig. Sigurður Helgi lllugason og Guðrún Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur Húsnæðisstofnun ríkisins, lögfr.- deild og innheimtumaður ríkissjóðs, 3. mars 1993 kl. 13.30. Sýslumaðurinn á Húsavík 25. febrúar 1993. Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. I. Opið hús alla miðvikudaga kl. 15 til 18: Kaffiveitingar, fræðsluerindi, fyrirspurnir og almennar umræður. Ymsar upplýsingar veittar. Einkaviðtöl eftir óskum. II. Símaþjónusta þriðjudaga og föstudaga kl. 15-17. Sími: 27700. Allir velkomnir. Hestamenn! Látum ekki aka á okkur í skammdeginu - notum ENDURSKINSMERKI HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR Stofnaö 5 nóv 1928 P O Box 348 - 602 Akurayn

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.