Dagur


Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 22

Dagur - 27.02.1993, Qupperneq 22
22 - DAGUR - Laugardagur 27. febrúar 1993 Popp Magnús Geir Guðmundsson Saigon Kick nýtur nú mikilla vinsælda með ballöðunni Love is on the way og virðist líkleg til frekari afreka í framtíðinni. Saigon Kick: Ekki við eina fjölina felldir Á sínum tíma uppgötvaði Jon Bon Jovi Skid Row er hann eitt kvöldið rambaði inn í klúbb í New Jersey. Kom hann þeim á framfæri við Atlantic útgáfuna, sem snarlega gerði samning við hljómsveitina. Framhaldið þekkja svo flestir og er Skid Row í dag eitt stærsta nafnið í ameríksku rokki. Það má því með nokkrum sanni segja að sagan hafi endur- Velvet Underground byrjar að öllum líkindum starfsemi á ný. Hér er hljómsveitin ásamt Nico. Velvet Underground endurreist Endurlífgun fornfrægra hljóm- sveita tíðkast nú sem aldrei fyrr og virðist sem sú iðkun sé nánast eins og tíska. Eru það helst stóru útgáfufyrirtækin sem hvetja til þessarar endurnýjunar lifdaga og bera þau ómælt fó í viðkom- andi í því skyni. Hefur áður verið sagt frá því hér á Poppsíðu að líkur sóu á að Bítlarnir þrír, sem enn lifa, komi saman á ný á árinu og nú berast fregnir af því að ein helsta og áhrifamesta nýbylgjurokksveit Bandaríkjanna, The Velvet Underground, muni e.t.v. hefja störf á ný eftir langt hlé. Komust sögusagnir um endur- reisn fyrst á kreik er fréttist að Polygram útgáfan hefði i hyggju að gefa út tvö kassasöfn með verkum Velvet Underground. Annars vegar með þremur fyrstu plötum hljómsveitarinnar The Velvet Underground And Nico, Whitle Light, White Hear og The Velvet Underground og hins vegar með ýmsum áður ólöglega útgefnum (bootlegs) tónleikaupptökum á þremur geislaplötum. Staðfesti bassaleikari og víólu- leikari VU, John Cale, fyrir nokkru að sögusagnirnar væru á rökum reistar og að hann ásamt hinum þremur upprunalegu meðlimum sveitarinnar, Lou Reed, Sterling Morrison og Moe Tucker, væri að íhuga að byrja aftur. Segir Cale að ef æfingar sem nú standa yfir skili aftur gamla andanum, sem var í Velvet Underground hér áður fyrr, muni þau fjögur vera til alls líkleg. Þá spila peningar líka sinn þátt í' leiknum að sögn Cale.' Auk þessara fregna um endur- komu VU hefur heyrst að fyrrum meðlimum poppsveitarinnar frægu, Roxy Music, hafi verið boðnar vænarfúlgurtil að byrja á ný. Er ekki vitað hvort svo verður, en Ijóst að hljómborðsleikarinn og upptökustjórinn frægi, Brian Eno, verður ekki með. tekið sig i tilfelli hljómsveitarinnar Saigon Kick frá Miami í Florida, því það voru meðlimir Skid Row sem komu henni á framfæri við sömu útgáfu, nokkrum árstíðum eftir að Jon Bon Jovi gerði hið sama fyrir þá. Það þarf ekki að tíunda að þessa dagana nýtur Saigon Kick mikilla vinsælda með laginu Love is on the way, sem er að finna á annarri plötu hljómsveitarinnar, The Lizard, er kom út á miðju síðasta ári. Gæti þvf allt eins ver- ið að hún sé nú á sömu leið til frægðar og Skid Row, þótt að ekki sé mikið meira sameiginlegt með þeim. Eins og fyrr segir kemur Saigon Kick frá Miami á Florida og voru það þeir Jason Bieler, gítarleikari, og Matt Kramer, söngvari, sem stofnuðu hljóm- sveitina kringum 1986. Fyrsta eina og hálfa árið komu félagar þeirra Bielers og Kramers og fóru í hljómsveitinni þannig að losarabragur var á henni. Var tónlistin sömuleiðis á óræðum nótum þetta tímabil og lítil stefnumótun í gangi vegna mannabreytinganna. En með til- komu Tom DeFile bassaleikara og Phil Varone trommuleikara small hljómsveitin hins vegar saman í heillega mynd og hefur hún nú verið þannig skipuð í um fjögur ár. Með miklum dugnaði við tónleikahald víðsvegar um Florida náði Saigon Kick fljótlega vinsældum í fylkinu og var orðin ein sú vinsælasta þar er félagarnir í Skid Row komu þeim á framfæri árið 1990. Fyrsta platan, sem einfaldlega nefndist Saigon Kick, kom svo út 1991 og fékk hinar ágætustu móttökur sem byrjendaverk. Endurspeglaði hún vel hina fjöl- breyttu áhrifavalda hljómsveitar- innar (sérstaklega Bielers sem þá sem nú bar hitann og þung- ann af lagasmíðunum), en þeir eru allt frá Bítlunum og Prince til Jane’s Addiction og Metallica. Hefði slík blanda einhvern tímann þótt heldur þunnur þrettándi og sundurlaus, en aldeilis ekki í tilfelli Saigon Kick. Hinn fjölskrúðugi lagagarður þótti nefnilega vel heppnaður í heild og hljómaði að margra mati sem á vissan hátt nýr og ferskur. Það sama er svo upp á teningnum á The Lizard, með ekki síðri árangri að máti gagn- rýnenda en á fyrstu plötunni, jafnvel betri. Það er þó hætt við að flestum þeim sem fallið hafa fyrir Love is on the way, líki ekki alls kostar við annað efni plötunnar, því Saigon Kick er fyrst og fremst kraftmikil rokk- sveit, þrátt fyrir fjölbreytt áhrif í tónlistarsköpuninni. Það ætti þó alls ekki að fæla neinn frá því að kaupa plötuna því aldrei er að vita nema að aðrar hliðar Saigon Kick en sú Ijúfa heilli líka. Er frekar til marks um fjöl- breytnina hið makalausa lag Chanel, bráðgrípandi sveiflu- slagari, sem algjörlega er á skjön við annað á plötunni, en merki- legt nokk, venst bara vel með rokkinu. Saigon Kick er þó eins og áður segir númer eitt rokkhljómsveit, en við eina fjölina er hún ekki felld og það gerir hana meir athyglisverða en ella hefði verið. EvrovisiorT* Jæja þá erum við ísalandsbúar búnir að velja okkur áttunda framlag í Evrópusöngvakeppn- ina æruverðugu, sem fram fer á írlandi í maí næstkomandi. Eins og sjálfsagt allir vita var það Jón Kjell sem bar sigur úr býtum með laginu Þá veistu svarið í flutningi Ingibjargar „Veggfóðursskvísu" Stefánsdóttur, en hann vann líka í keppninni um Landslagið hér á eyri Akurs í fyrra. Það var aldrei ætlunin hjá mér að fara að fjasa eitthvað um þessa blessuðu keppni nú frekar en áður, en eftir að hafa setið við imbann um síöustu helgi líkt og flestir aðrir Frónbúar get ég bara ekki stillt mig. Eins og aðrir (allavega flestir aðrir) hef ég almennt verið jákvæður í garð keppninnar og viðurkennt að til- vist hennar er nauðsynleg. Þið; vitið, gefur nýjum höfundum tækifæri á að koma sér á fram- færi og nýjum söngvurum líka, sameinar þjóðina, hvorki meira né minna o.s.frv. En fyrr má nú aldeilis fyrrvera. Mikið óskaplega, voðalega, hrikalega var þetta nú lélegt og leiðinlegt og hefur þó keppnin ekki verið burðug hin seinni ár. Hef ég alla vikuna verið að klóra mér í kollinum yfir keppninni og spurt sjálfan mig hvað aðstand- endur hennar séu eiginlega að hugsa með að halda hana. Jú, vissulega var Katla María krúttleg og fín í keppninni og Júlli „Logan" vel „nettur" að vanda auk þess sem smálíf var i lögum Ingunnar og Tómasar (kannski norðlensk hlutdrægni í mér þar), Jón Kjell bæði sigurvegari í Lands- laginu og Evróvisíon. en að öðru leyti allt eitthvað svo þreytt og misheppnað. Verst af öllu slæmu fannst mér hið „eld- hressa" Hopp abla ha lag hans Ómars. Mætti ég frekar biðja um húbba húlla ísraelsmanna fimm- tíu sinnum á dag en þessi ósköp einu sinni. Æ, æ, voðalega er þetta eitthvað dapurt. Til að bæta gráu ofan á svart voru svo tæknimálin líka i ólagi í útsendingunni. Ætli tækni- mönnunum hafi ekki bara leiðst eins og mér og sofnað á verðin- um. Kynnir keppninnar hinn hátíð- legi Steinn Ármann Magnússon fær þó sérstakt hrós fyrir að vera eins ólíkur sjálfun sér og hugsast gat, þannig að enginn þekkti hann til að byrjað með. Að lokum vonar maður þrátt fyrir allt að sigurlaginu gangi vel á írlandi, en betur má ef duga skal er ég hræddur um.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.