Dagur - 04.03.1993, Side 2

Dagur - 04.03.1993, Side 2
2 - DAGUR - Ftmmtudagur 4. mars 1993 Fréttir Bæjarstjórn Sauðárkróks: Sauðárkrókur verði eini landshlutakjarnmn - á Norðurlandi vestra Á fundi bæjarstjórnar Sauðár- króks sl. þriðjudag var lögó fram tillaga bæjarráðs vegna skýrslu Byggðastofnunar um byggðamál. Var tillagan sam- þykkt ásamt viðaukatillögu sem fram kom á fundinum. Skv. tillögunni telur bæjar- stjórnin eðlilegt að einn lands- hlutakjarni sé í hverju kjör- dæmi og á Norðurlandi vestra verði það Sauðárkrókur. Þessar ályktanir komu í kjöl- farið á fundi bæjarráðs með Sig- urði Guðmundssyni frá Byggða- stofnun og fleiri aðilum og ósk Byggðastofnunar um ábendingar og hugmyndir heimamanna um mótun byggðastefnu. í samþykkt bæjarráðs segir m.a. að gerö byggðaáætlunar til lengri tíma sé „af hinu góða" og nauðsynlegt sé aö fara eftir „forsendum í stað þess að láta tilfinningar ráða“. Síðan segir: „Að mati Bæjar- stjórnar Sauðárkróks er cðlilegt Blönduós: Ögraundur og Kári á Stéttarfélögin í Austur- Húnavatnssýslu boða til almenns fundar á Hótel Blönduósi sunnudaginn 7. mars kl. 20. Framsögumenn á fundinum verða Ögmund- ur Jónasson, formaður BSRB, og Kári Arnór Kára- son, formaður Alþýðu- sambands Norðurlands. Tvö meginmál verða rædd á fundinum; hver er staöan í kjarasamningum og er tíma- bært að grípa til aðgerða strax? Stjórnir stéttarfélag- anna í A-Húnavatnssýslu hvetja launafólk til að fjöl- menna á fundinn og standa saman í baráttunni sem fra- mundan er. Sætaferöir verða frá Skagaströnd. SS að einn landshlutakjarni sé í hverju kjördæmi“, og að „eilífur ágreiningur" verði ef kjarnarnir verði tveir, Blönduós og Sauðár- krókur". Loks segir í samþykkt- inni: „Það er eindregin skoðun Bæjarstjórnar Sauðárkróks að rökrétt sé að Sauðárkrókur verði landshlutakjarni fyrir Norður- land vestra, en Siglufjörður, Blönduós og Hvammstangi verði héraðskjarnar." Þessi ályktun var samþykkt með öllum atkvæðum og sömu- leiðis viðbótartillaga Önnu K. Gunnarsdóttur, Alþýðubanda- lagi. í viðbótartillögunni er fjall- að um mikilvægi bættra sam- gangna, sérstaklega er varðar frakt- og farþegaflug til að „auð- velda útflutning á ferskum mat- vælum héðan og skjóta stoðum undir ferðaþjónustu". Jafnframt er bent á að brýna nauðsyn beri til að „þess verði gætt í hvívetna að Noröurland vestra verði ekki afskipt með opinbera þjónustu og framkvæmdir ef ekki á illa að fara“. sþ Margir lögðu leið sína í Gryfjuna sl. þriðjudagskvöld þegar Listadagar MA og VMA voru formlega settir. Mynd: Robyn Listadagar VMA & MA: Kappræður þingmanna í Möðruvallakj allara Listadagar VIVIA og IVIA hóf- ust á þriðjudagskvöldið og eft- ir setningu þeirra í Gryfju Verkmenntaskólans var KK- band með opnunartónleika. Leiðir allmargra nemenda lágu í Gryfjuna í gær en þess ber að geta að dagskrá Listadaga VMA og MA er öllum opinn. í gærkvöldi var fyrirlestur um skotveiði og flutt gamanmál en í kvöld leiða saman hesta sína í kappræðum í kjallara Möðru- valla þingmennirnir Halldór Blöndal og Steingrímur Sigfús- son og fýsir örugglega marga að fylgjast með því er þingmennirnir takast á með orðsins brandi. GG Fjöldi landsela að staðaldri á ósasvæði Eyjaflarðarár: „Grípa verður til róttækra ráðstafana sé málið eins alvarlegt og af er látið“ - segir Kristján Jónsson, formaður Veiðifélags Eyjafjarðarár I framhaldi af frétt í blaðinu í gær þar sem Agnar Tómasson, veiðimaður á Akureyri, segir landselinn strádrepa geld- bleikjuna í ósum Eyjafjarðarár hafði Dagur samband við menn er gjörþekkja Eyjafjarðará og ósavæðið sem Agnar. Sverrir Vilhjálinsson, flugumferðar- stjóri á AkureyrarflugvelH, hefur dag hvern útsýni yfir ósasvæði Eyjafjarðarár og hann tekur undir orð Agnars: „Um leið og opnast vakir hér inn með vesturlandinu, allt inn að flugturninum, þá er selur- inn kominn og hann er í engu öðru en bleikjunni. Það er sem bleikjan hafi ekki við selnum því hann er svo hraðsyntur,“ segir Sverrir Vilhjálmsson og ihvetur eindregið til þess að selnum verði haldið niðri. Jóhannes Kristjánsson, kunnur Aðföng til landbúnaðar: Verulegur verðmunur á vörum allt að 28 Lægsta verð á kúafóðurblöndu var kr. 40,537 tonnið hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki en hæsta verð var 50.175 krónur tonnið hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga á Höfn eða 34,8% hærra í könn- un sem Verðlagsstofnun hefur látið gera. Munur á lægsta og hæsta verði á fóðurvörum reyndist vera 28% á fískimjöli, sem var ódýrast hjá Fóður- blöndunni hf. í Reykjavík en dýrast hjá Kaupfélagi Saurbæ- inga á Skriðulandi. Mesti verð- munur á aðföngum til land- % á fóðri og 59,7% á búnaðarframleiðslu, sem kom fram í könnuninni var 59,7% á girðinganeti. Meðalverð á þeim fóðurvörum sem athugaðar voru hækkaðj á bilinu 2,4% til 20,4% frá því í desember 1991 til febrúar 1993 eða á 15 mánaða tímabili. Á þessum tíma hækkaði verð á hreinsuðu fóðurlýsi um 20,4% og kálfafóður hækkaði um 6,7% en aðrar verðbreytingar urðu minni. Könnun Verðlagsstofnunar náði til fjögurra flokka fóðurvara og einnig sex flokka girðinga- og byggingaefnis. Mesti munur á girðingarefni Útgerðarfélag Akureyringa hf.: Harðbakur EA með 130 tonn Harðbakur EA kom til lönd- unar í gær. Aflinn 130 tonn af karfa fékkst á miðunum djúpt úti af Breiðafirði. „Aflinn hefði mátt vera meiri. Veðrátta undangenginna daga hamlaöi veiðum, en við erum þokkalega ánægðir þegar mið er tekið af aðstæðum," sagði Jón Jóhannesson, skipstjóri. ój hæsta og lægsta veröi girðinga- efnis var á girðinganeti eða 59,7%. Hundrað metra rú|la af sex strengja girðinganeti kostaði krónur 7,443 hjá Kaupfélagi Hép aðsbúa á Egilsstöðum en 4,660 krónur hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur. Misntunur á hæsta og lægsta verði á girðingalykkj- um var 52,8%. Kostaði pakkinn krónur 330 hjá Jóni Fr. Einars- syni í Bolungarvík en aðeins 216 krónur hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur. Verðmunur á mótatimbri var 29% á milli hæsta og lægsta verðs þar sem 1x6" 3.6 - 2,4 metra borð kostaði 89 krónur hjá Kaup- félagi Héraðsbúa en aðeins 69 krónur hjá Kaupfélagi Saurbæ- inga á Skriðulandi. Könnunin á aðföngum til landbúnaðarfram- leiðslu náði til 26 sölustaða víðs- vegar um landið og reyndist eins og að framan greinir allverulegur munur vera á verðlagi sömu vöruflokka eftir því um hvaða söluaðila var að ræða. ÞI veiðimaður á Akureyri og stjórn- armaður í Veiðifélagi Eyjafjarð- arár, segist ekki rengja orð Agnars um að selurinn strádrepi geldbleikjuna, en hins vegar hafi hann ekki séð sel taka bleikju á svæðinu aðeins þyrskling og kola á Leirunum. Jóhannes bendir á að vel hafi veiðst í Eyjafjarðará undangeng- in sumur. Eyjafjarðará var vatns- mikil á liðnu sumri og úr ánni veiddust á stöng liðlega 3200 fiskar. Uppistaða veiðinnar var bleikja, allnokkrar frá 5 til 8 pund, og í aflatölunni eru 55 lax- ar og liðlega 100 sjóbirtingar. Kristján Jónsson er bóndi í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit og formaður Veiðifélags Eyjafjarð- arár: „Okkur stjórnarmönnum í Veiðifélagi Eyjafjarðarár er ekki Ijóst enn hversu málið er alvar- legt. Við verðum að fara á vett- vang atburðanna og ræða við þá sem gleggsta mynd hafa. Sé svo að landselurinn strádrepi geld- bleikjuna á ósasvæði Eyjafjarð- arár þá verður að grípa til rót- tækra ráðstafana. Ekki er mér kunnugt hvað lög heimila um veiðar á sel á svæðinu, það verð- ur að kanna og þá hvernig best verður að veiðum staðið." oj Árlegt „togararall“ hófst í gærkvöld: „Togað verður inn á íjörðum sem út á köntum“ - segir Sveinn Benediktsson, skipstjóri Bjarts NK Arlegt „togararall“ hófst í gærkvöld á vegum Hafrann- sóknastofnunar. Fimm togarar taka þátt í rannsóknarleiðangr- inum, en síðla dags í gær kom Bjartur NK-121, einn togar- anna, til hafnar á Akureyri til að ná í fískifræðing og fjóra hjálparmenn hans. Sveinn Benediktsson, skip- stjóri Bjarts NK, segir Hafrann- sóknastofnun leigja togarana í 20 daga og togað verði inn á fjörð- um sem út í köntum umhverfis landið. Bjartur NK togar á aust- ursvæðinu, 118 tog, allt frá Grímsey að Glettinganesi. Hof- fell SU togar með suðaustur- ströndinni allt vestur í Meðal- 1 landsbugt, Brettingur NS togar suðvestursvæðin, Múlaberg ÓF verður á Vestfjarðamiðum og Rauðinúpur ÞH-160 á norðvest- urmiðum. „í rannsóknarleiðangrinum taka þátt 13 menn úr áhöfn Bjarts og fimrn menn frá Hafró. Með réttu ættum við að geta hespað leiðangrinum af á skemmri tíma en tuttugu dögum, Allt er þetta háð veðri og við megum ekki toga í meira en átta vindstigum, sem setur okkur viss- ar skorður. Sömu skipin hafa tekið þátt í „togararallinu" frá upphafi og þau voru valin japönsk þannig að lík skip væru á öllum svæð- um," sagði Sveinn Benediktsson. ój

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.