Dagur - 04.03.1993, Blaðsíða 5

Dagur - 04.03.1993, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 4. rriars 1993 - DAGUR - 5 Fréttir Verðkönnun Verðlagsstofnunar á fiski: Soðningin ódýrari á stöðum utan höfuðborgarsvæðisins Nýverið kannaði Verðlags- stofnun verð á fiski í 44 fisk- búðum og matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu og 25 verslunum utan þess þar af 15 á Norðurlandi. Niðurstöður könnunarinnar þykja hinar athygliverðustu. Fram kemur að meðalverð á fiski var í flestum tilvikum lægra á þeim stöðum utan höfuðborg- arsvæðisins sem könnunin náði til, en á höfuðborgarsvæðinu. Sem dæmi má nefna að meðal- verð á ýsu og ýsuflökum var 12- 18% hærra á höfuðborgarsvæð- inu en utan þess, steinbítur var 58% dýrari á höfuðborgarsvæð- inu og stórlúða 35% dýrari. Verðlagsstofnun gerði sam- bærilega könnun í september 1991. í ljós kemur að meðal- hækkun á nýjum fiski er tæplega 3% á þessu tímabili og er það sama hækkun og á fiski í fram- færsluvísitölunni. Lítum nú til þeirra verslana sem úrtakið tók til á Norður- landi, þ.e. frá Hvammstanga til Húsavíkur. Húsmóðir á Norðurlandi sem ætlar að hafa stórlúðu í matinn, sem er herramannsmatur, gerir bestu kaupin í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki. Par kostar kílóið kr. 337,00. Hæsta verðið er hins- Suður-Þingeyjarsýsla: Lögregla stöðvar klipptan bíl Lögreglan á Húsavík var á ferð um sveitir Suður-Þingeyjar- sýslu á þriðjudag og klippti númer af nokkrum bifreiðum sem láðst hafði að færa til skoðunar lengur en góðu hófi gegndi. Einnig stöðvaði lögreglan bifreið sem hún hafði klippt núm- erin af í janúar. Bifreiðin var óskoðuð enn og var eigandi hennar vinsamlegast beðinn að láta af akstrinum meðan svo stæðu mál. Ferskar fréttir með morgunkaffinu Askriftarí3? 96-24222 Lögreglan mun leita óskoð- aðra bíla á næstu dögum með klippurnar á lofti, en lítið mun þó vera eftir af bílum í sýslunni sem ástæða er til að svipta númerun- um af. IM Skákfélag Akureyrar: 10 mínútna mót - úrslit í 15 mín. móti Skákfélag Akureyrar heldur 10 mínútna mót fimmtudaginn 4. mars næstkomandi kl. 20 í skákheimilinu við Þingvalla- stræti. Um síðustu helgi var haldið 15 mínútna mót og þar sigraði nýbakaður Akureyrarmeistari örugglega. Gylfi Þórhallsson fékk 6'/2 vinning af 7 möguleg- um. í 2. sæti varð Sigurður Inga- son með 5 v. 3. Sigurjón Sigur- björnsson 5 v. 4. Jakob Pór Krist- jánsson 5 v. SS vegar hjá Kaupfélagi Vestur- Húnvetninga á Hvammstanga kr. 698,00 kílóið. Sé litið til Akur- eyrar er verð lægst í Matvöru- markaðinum í Kaupangi, kr. 490,00 kílóið, og hæst er verðið í Sælandi við Móasíðu kr. 644,00 kílóið. Ýsan er hvað oftast á borðum okkar íslendinga. Lítum á verð á hausaðri og slægðri ýsu. Dýrustu soðninguna er að fá í Fiskbúð Siglufjarðar. Þar kostar kílóið kr. 253,00, en ódýrust er ýsan í Fiskbúð Fiskiðjusamlags Húsa- víkur, kr. 163,00 kílóið. Á Akur- eyri er Matvörumarkaðurinn í Kaupangi ódýrastur sem fyrr, hvert kíló á kr. 232,00. Hæsta verð á landsvísu á lausfrystum ýsuflökum er að finna hjá Sæ- landi við Móasíðu, kílóið kostar kr. 593,00. Enn er Matvörumark- aðurinn í Kaupangi í lægri kant- inum með 398,00 kr. kílóið. Á landsvísu er KHB á Reyðarfirði með lægra verð kr. 395,00. ój Stóra bókamarkaðnum lýkur á sunnudagskvöld: Bókakaup bókaimnendamæld í tonnum ■Mjög mikil aðsókn hefur verið að Stóra bókamarkaðnum sem staðið hefur að undanförnu í Höfðahlíð 1 á Akureyri og seg- ir Björn Eiríksson bókaútgef- andi að salan nemi einhverjum 'tonnum og sé hún svipuð og iverið hefur undanfarin ár. Reiknað var með meiri sölu vegna þess að verðið á bókun- um er kaupandanum hagstæð- ara en nokkru sinni fyrr. Einnig er fjölda bókatitla fleiri . en á undanförnum árum, eða vel á fjórða þúsund, en einhverjir þeirra eru raunar orðnir uppseld- -ir. Bókamarkaðnum lýkur nk. sunnudagskvöld og reynslan hef- ur verið sú að á síðustu dögunum koma tiltölulega langflestir, rétt eins og margir geymi sér það til síðasta dags að koma og kaupa bækur. „Enn er því tækifæri til að gera reyfarkaup í bókum,“ sagði Björn Eiríksson. GG MIÐAV FORSALA FIMMTUDAÚINN 4 MARS. ROKKBANWÐ -FÖSTUDAC SKRJÐJÖKIAR -IAUCARDAC KJALLARINN HÚSBRÉF Kaupum og seljum húsbréf Ávöxtunarkrafa við kaup 7,20% við sölu 7% éélKAUPÞING______ NORÐURLANDS HF Kaupvangsstræti 4 ■ Akureyri • Simi 96-24700.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.