Dagur - 04.03.1993, Side 15

Dagur - 04.03.1993, Side 15
Fimmtudagur 4. mars 1993 - DAGUR - 15 Halldór Arinbjamq.rson t? ' 7 Skíðastaðatrinunið haldið næstkomandi laugardag Árlegt Skíðastaðatrimm fer fram í Hlíðarfjalli næstkomandi laugardag 6. mars. Gangan hefst við Strýtu kl. 14.00 með hópstarti. Velja má um 2 vegalengdir, 8 eða 20 km. Trimmbrautin endar við hús göngumanna og verður þar boðið upp á hressingu. Allir fá sérstaka viðurkenningu fyrir þátttökuna og veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sæti í hverjum flokki karla og kvenna. Skráning er í Skíðastöðum. Þátttökugjald er 300 fyrir fullorðna en ókevpis fyrir 12 ára og yngri. Keppendur verða fluttir með lyftum upp á Strýtu án endurgjalds. Skíðastaðatrimmið er liður í Islandsgöngunni, sem er röð trimmmóta sem ætluð eru almenningi. Gönguleiðin í Skíðastaðatrimminu er létt og við allra hæfi, jafnt byrjenda og þeirra sem lengra eru komnir. Hér að ofan er kort af leiðinni sem gengin er (20 km) og þeir sem ganga styttri leiðina sleppa tveimur efri slaufunum. Báðar brautir verða vandlega merktar. Aðalfundur Þórs: Aðalsteinn áfram formaður íþróttafélagið Þór hélt aðal- fund sl. laugardag í félags- heiniilinu Hamri. Þar var m.a. kosin ný aðalstjórn og er Aðalsteinn Sigurgeirsson áfram formaður félagsins. í stjórn með honunt voru kjörnir: Kristján Kristjánsson varaformaður. Einar Sveinn Ólafsson gjaldkeri, Guðmundur Sigurbjörnsson ritari, Gunnar Bill Björnsson spjaldskrárritari, Benedikt Guðmundsson með- stjörnancli og Anton Benjamtns- son meðstjórnandi. Töluverðar umræður urðu á fundinum um ýmis mikilvæg mál er varða félagið og samþykkti fundurinn m.a. ályktun þess efnis að aðal- stjórn félagsins skuli vinna að gervigrasvelli og koma því máli í höfn. Að sögn Aðalsteins gekk reksturinn vel á síðasta ári og staða félagsins að hans mati sterk. Hann sá því enga ástæðu til annars en að vera bjartsýnn á komandi starfsár. Skíði: Ólafsíjarðarmót í svigi Hér kemur síðari hluti úrslita úr Olafsfjarðarmóti í Alpa- greinum sem haldið var um síðustu helgi. Fyrst koma úrslit úr svigkeppni 12 ára og yngri og síðan úr samhliðasvigi 15 ára og eldri. 6 ára og yngri: 1. Brynja M. Brynjarsdóttir 1:18,93 2. Sunna Eir Haraldsdóttir 1:20,06 3. Ólöf E. Guðmundsdóttir 1:51.07 1. Jóhann G. Kristjánsson 1:24,45 2. Hjalti Már Hauksson 1:24,50 7-8 ára: 1. Kristín M. Gylfadóttir 1:13.88 2. Freydís Konráðsdóttir 1:14,42 3. Ása B. Kristinsdóttir 1:17,57 1. Kristján U. Óskarsson 1:06,43 2. Hörður Helgason 1:22,92 3. Hjörvar Maronsson 1:26,00 9-10 ára: 1. Jóna B. Árnadóttir 1:11,24 2. Hanna D. Maronsdóttir 1:12,15 3. Tinna Rúnarsdóttir 1:16,43 1. William G. Þorsteinsson 1:04,58 2. Magni Barðason 1:05,95 3. Bragi Óskarsson 1:09,21 11-12 ára: 1. Birna M. Sigurðardóttir 1:05,23 2. Svanborg A. Jófiannsdóttir 1:09,50 3. Lísbet Hauksdóttir 1:09,61 1. Arnar Óli Jónsson 58,79 2. Einar Már Ólason 1:03,91 3. Gísli R. Gylfasson 1:12,96 Samhliðasvig 15 ára og eldri: 1. María Magnúsdóttir 2. Díanna Guðmundsdóttir 3. Jóna E. Valdimarsdóttir 1. Eggert Óskarsson 2. Gísli M. Helgason 3. Steinn V. Gunnarsson Handbolti, 3. flokkur: KA-strákar áfram - óvíst með Um síðustu helgi var keppt á íslandsmóti 3. flokks karla og kvenna og átti KA lið í báðum flokkum. Strákarnir eru örugg- ir í úrslitakeppnina en óvíst er með frekari þátttöku stelpn- anna. Strákarnir höfnuðu í 3. sæti í 1. deild og nú verður leikið í tveim- ur 5 liða riðlum þar sem 2 lið úr hvorum komast áfram. Um helg- ina unnu þeir KR 19:17 en töp- uðu 19:22 fyrir UBK. Síðan gerðu þeir jafntefli við FH 19:19 stelpurnar og 22:22 við Stjörnuna. Marka- hæstur í liði KA var Atli Samúels- son trieð 37 mörk. Stelpurnar töpuðu 11:13 fyrir ÍR, unnu Fylki 15:5 og hefði nægt jafntefli við Gróttu til að vera öruggar áfram. Grótta vann leik- inn 11:10. Þó er ekki loku fyrir að skotið að 3 lið komist áfram úr riðlinum sem KA var í en það skýrist alveg á næstunni. Þjálfari stelpnanna er Óskar E. Óskars- son en Árni Stefánsson er með strákana. Körfubolti, úrvalsdeild: Njarðvík sigraði Tindastól naiunlega í baráttuleik Njarðvíkingar unnu Tindastól í íþróttahúsinu á Sauðárkróki sl. þriðjudagskvöld með einu stigi, 90:89. í heild var leikur- inn afleitur og mistök hjá báð- um liðum bæði í vörn og sókn. Lykilmenn beggja liða brugð- ust gersamlega og dómararnir voru stéttinni til skammar. Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu. Varnarleikurinn var í fyrirrúmi hjá báðurn liðum, en bæði léku reynd^ slaka vörn þannig að það hafði engin áhrif á úrslitin. Tindastólsmenn leiddu fyrstu mínúturnar, voru með eins stigs forystu eftir 10 mínútur, en liðin skiptust síðan á um að hafa forystuna allan hálfleikinn, en á endanum náðu Njarðvíkingar að ljúka hálfleiknum með fjögurra stiga mun, 39:35. Síðari hálfleikur byrjaði svipað, með mikilli baráttu. En Njarðvíkingar voru ákveðnari og héldu Tindastólsmönnum í hæfi- legri fjarðlægð, þó munurinn hafi aðeins verið 4 stig í byrjun hálf- leiksins. Njarðvíkingar náðu mest 15 stiga forskoti eftir afleit- an kafla hjá Tindastólsmönnum, þegar um 4 mínútur voru til leiks- loka, 81:66. Stólarnir náðu loks aðeins að rífa sig upp og minnka muninn á síðustu mínútunum, en það kom of seint. Þegar leikurinn var úti var staðan 90:87 en síðar kom í ljós að 2 stig höfðu verið vantalin á Tindastól á ritaraborð- inu og því endaði leikurinn 90:89. í heild var leikurinn afleitur og mikil mistök hjá báðum liðum, bæði í vörn og sókn. Lykilmenn hjá Tindastóli, þeir Raymond og Valur, brugðust gersamlega og léku langt undir getu sinni. Sama rná segja um Teit Örlygsson og Ástþór Ingason hjá Njarðvík. Erfitt er að hæla einhverjum sér- staklega, en þó má nefna Rondey og Jóhannes Kristbjörnsson hjá Njarðvík, sem báru af. Hjá Tindastóli var Ingvar bestur, en Páll, Karl og Ingi einnig sterkir. Dómarar voru þeir Bergur Steingrímsson og Einar Skarp- héðinsson og voru stéttinni til skammar. Það hlýtur að fara að koma að því að liðin í Úrvals- deildinni segi nóg komið og heimti dómara sem kunna til verka. GBS Stig Tindastóls: Ingvar Ormarsson 22, Raymond Foster 14, Páll Kolbeinsson 14. Karl Jónsson 13, Valur Ingimundar- son 12, Ingi Þ. Rúnarsson 12 og Björgvin Reynisson 2. Stig UMFN: Rondey Robinson 30, Jóhannes Kristbjörnsson 30, Rúnar Árnason 16, Atli Árnason 6, Teitur Örlygsson 4, Ástþór Ingason 2 og Jón Árnason 2. TILBOff> Fiskbúðingur 1/erð nú kg. 498 Áður 646 Beikonsteik 997 1405 Ömmusperlar 397 688 Frosið kindahakk 698 898 Frosnir hamborgarar 819 1198 Kýrhakk i kjötborði 599 799 Grillaðir kjúklingar 599 stk. Matvöru- markaöurinn Kaupangi Opiö virka daga kl. 9-22 Laugardaga og sunnudaga kl. 10-22

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.