Dagur - 20.03.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 20. mars 1993
Árshátíð
FUNA
verður haldin í Sólgarði, þann 27. mars '93 og
hefst kl. 20.30.
Ljúffengur matur og óskapleg skemmtiatriði.
Dansbandið leikur fyrir dansi.
Miðaverð aðeins kr. 2.500,-
Miðar seldir í Hestasporti og versluninni Brynju,
23. og 24. mars og hjá Þór á Akri og Birgi í Teigi
25. mars.
Allir velkomnir, sjáumst hress!
Nefndin.
AKUREYRARB/ER
ÚTBOÐ
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd
bæjarsjóðs Akureyrar óskar hér með eftir til-
boðum í gatnagerð og iagnir í áfanga III A í
Giljahverfi.
Tilboðið nær til gerðar á 220 lengdarmetra af
götu og 240 lengdarmetra af stígum ásamt til-
heyrandi holræsalögnum og jarðvinnu fyrir vatns-
lagnir, og er skilafrestur verksins til 29. maí 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Tækni-
deildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri,
frá og með þriðjudeginum 23. mars 1993 gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða fer fram á sama stað þriðjudaginn
13. apríl kl. 11.00 fyrir hádegi.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
Frumsýnum
um helgina
kl. 14.00-18.00
laugardag og sunnudag
NISSAN
MICRA
BÍLL ÁRSIIMS
1993
16 ventla Twin Cam með aflstýri.
Upphituð sæti.
Einnig fáanlegir með sjálfskiptingu.
Verð frá kr. 799 þúsundum.
★
Einnig verður sýndur
Nissan Sunny og Subaru.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri
Fréttir
Síldarverksmiðjur ríkisins fengu aðvörun vegna loðnuleitar:
Erlend fiskiskip verða að
slökkva á fiskileitartækjum
sigli þau um landhelgina
Samkvæmt bréfi sem Síldar-
verksmiðjum ríkisins hefur
borist frá sjávarútvegsráðu-
neytinu mega erlend fiskiskip
ekki vera með fiskleitartæki í
gangi er þau sigla um íslenska
landhclgi og efiaust ætlar ráðu-
neytið sér að fylgjast með því
að því banni verði fylgt eftir.
Það er hins vegar erfitt að
ímynda sér framkvæmdina á
því. Ástæða þess að ráðuneyt-
ið sendir Síldarverksmiðjum
ríkisins þetta bréf er að verk-
smiðjurnar leigðu grænlenska
fiskiskipið Ammassat til
loðnuleitar fyrir sunnan og
suðaustan land.
í bréfi sjávarútvegsráðuneytis-
ins segir m.a.: „Erlendum skip-
um er óheimilt að stunda fiskileit
og rannsóknir í fiskveiðilögsögu
íslands án sérstaks leyfis
íslenskra stjórnvalda samkvæmt
lögum nr. 81/1976 um veiðar í
fiskveiðilandhelgi íslands og lög-
um nr. 41/1979 um landhelgi,
efnahagslögsögu og landgrunn.
Ráðuneytið bendir jafnframt á
að erlend skip sem rannsóknir
stunda án tilskilins leyfis kunna
að verða færð til hafnar og hlutað-
eigandi látnir sæta ábyrgð lögum
samkvæmt.“
Með bréfinu var stjórn Síldar-
verksmiðjanna gefinn kostur á að
leita samþykkis ráðuneytisins um
leigu á grænlenska skipinu til
loðnuleitar og hefur það verið
gert jafnframt því að loðnuleit á
skipinu hefur verið hætt.
Alls hafa veiðst 639.520 tonn á
loðnuvertíðinni sem er nákvæm-
lega það magn sem upphaflega
var leyft að veiða en eftir eru
óveidd 180 þúsund tonn af kvót-
anum og hefur ekkert veiðst
þessa viku, aðallega vegna
veðurs. Hæsta löndunarhöfn
landsins er Siglufjörður með
81.301 tonn, en á Norðurlandi
hefur alls verið landað 199.871
tonni eða 31% af heildaraflan-
um. Til Raufarhafnar hafa komið
58.164 tonn, til Þórshafnar
30.369 tonn, til Krossaness
28.119 tonn og til Ólafsfjarðar
1.918 tonn. GG
Námsefni grunnskólanna um landbúnaðinn:
Er úrelt og þarfiiast endurskoðunar
- segir Atli Vigfússon, bóndi og kennari á Laxamýri
„Ég tel það námsefni sem not-
að er í grunnskólum og snertir
landbúnaðinn sé alls ekki
nothæft. Námsefni og kennslu-
gögn eru úrelt. Þau miðast við
annan tíma og aðrar aðstæður
en við búum við í dag. Þegar
kennarar sem hafa takmark-
aða þekkingu á landbúnaði og
almennum sveitastörfum þurfa
að notast við ófulinægjandi
kennslugögn er engin von til
að þeim takist að upplýsa æsku
landsins um landbúnaðinn á
þann hátt sem æskilegt og
raunar nauðsynlegt er í dag,“
sagði Atli Vigfússon, bóndi og
kennari á Laxamýri í samtali
við Dag.
Atli sagði að þótt ýmis vand-
kvæði séu á að flytja rekstur
grunnskólana að fullu til sveitar-
félaganna eins og hugmyndir séu
komnar fram um þá séu þau
vandamál fyrst og fremst tengd
rekstri skólanna og tekjustofnum
sveitarfélaga. Ýmis ljós atriði
megi einnig finna í þessum hug-
myndum og þá ekki síst að með
auknum yfirráðum heimamanna
eigi að verða auðveldara að laga
námsefnið að þeim þörfum sem
viðkomandi svæði búi við. Þrátt
fyrir það sé þó einnig nauðsyn-
legt að efla kennslu um landbún-
aðinn og raunar atvinnuvegina
alla í grunnskólum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Atli sagði að fólk sem engin
tengsl hafi haft við landbúnaðinn
eða sveitirnar eigi oft erfitt með
að átta sig á mörgu er snertir líf
fólks og afkomu í sveitum og á
landsbyggðinni almennt. Þetta
fólk eigi eðlilega einnig erfiðara
með að skilja samhengi landbún-
aðarins og jafnvel annarra fram-
leiðsluatvinnuvega við aðra þætti
í vikunni Iönduðu þrír togarar
hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga hf. Aflinn var þorskur að
stórum hluta.
Árbakur EA landaði sl. mánu-
dag. Aflinn var 145 tonn, þar af
voru 97 tonn karfi. Árbakur er
nú í slipp, sem Svalbakur EA. í
síðustu viku gerði Svalbakur EA
sölu í Þýskalandi. Söluverð afl-
ans var 10,3 milljónir króna, sem
var mjög lélegt. Meðalverð var
tæplega 75 krónur á kíló, en
hefði þurft að vera 105 krónur
samfélagsins og eigið daglegt líf.
Hann sagði að bændur yrðu sjálf-
ir að vakna til vitundar um sinn
þátt í þessu efni og hefja baráttu
fyrir því að námsefni um land-
búnaðinn í grunnskólum landsins
verði endurnýjað með hliðsjón af
þeim tímum er væru að hefjast í
landbúnaði með tilliti til gróður-
vörslu, landverndar og sjálfbærr-
ar þróunar. ÞI
hið minnsta að sögn talsmanns
ÚA.
Á miðvikudaginn landaði
Harðbakur 202 tonnum, þar af
voru 124 tonn þorskur, og Dal-
víkurtogarinn Baldur EA kom til
löndunar sl. þriðjudag. Aflinn
var 97 tonn, að stórum hluta
þorskur.
Næstir til löndunar hjá Útgerð-
arfélagi Akureyringa hf. verða
Hrímbakur EA, á mánudag, og
um miðja viku Kaldbakur EA.
ój
Afli ÚA togara
þorskur að stórum hluta
- léleg sala Svalbaks EA í Þýskalandi
HHHHHHMHHHHHHHHHHHHHHMHHHHHHHHHHH
11.-27.
mars
HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH
Bifreiðaskattar:
Hertar aðgerðir
vegna vanskila
Höfuöstóll útistandandi bif-
reiöaskatta vegna álagningar
1992 og eldri ára var 552 millj-
ónir miöað við 16. mars sl. Að
viðbættum dráttarvöxtum
nema þessi vanskil 775 milljón-
um króna. Vegna ársins 1993
eru um 825 milljónir útistand-
andi.
í fréttatilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu kemur fram að
hertar aðgerðir til innheimtu bif-
reiðaskatta eru hafnar og því hef-
ur verið beint til innheimtu-
manna ríkissjóðs að þeir geri ráð-
stafanir til að skráningarnúmer
verði tekin af þeim bifreiðum þar
sem bifreiðaskattar eru komnir á
eindaga.
Bifreiðaskattar eru þunga-
skattur, bifreiðagjald og vátrygg-
ing ökumanns. SS