Dagur - 20.03.1993, Síða 3
Laugardagur 20. mars 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
Eyjaflarðarferjumálið:
Best fyrir Vegagerðina að byija upp á nýtt
- segir Smari Thorarensen, oddviti Hríseyjarhrepps
í gær var ekki fengin niður-
staða í Eyjafjarðarferjumálinu
svokallaða og ekki búist við að
línur myndu skýrast fyrr en eft-
ir helgi. Fulltrúar Hríseyjar-
hrepps lögðu fram greinargerð
um málið fyrir Helga Hall-
grímsson, vegamálastjóra, í
vikunni og hún er nú til
skoðunar hjá Vegagerðinni.
Jón Birgir Jónsson, aðstoðar-
vegamálastjóri, sem hefur öðrum
fremur haft með ferjumál að gera
hjá Vegagerð ríkisins, hefur ver-
ið í Kína að undanförnu og var
hann væntanlegur til vinnu í gær.
Ekki tókst að ná tali af honum í
gær, en eftir því sem næst verður
komist var á dagskrá fundur hans
í gær með Halldóri Blöndal, sam-
gönguráðherra, um málið.
Á sunnudag hefur samgöngu-
ráðherra boðað þrjá flokksbræð-
ur sína úr Hrísey á fund á Dalvík
til viðræðna um Eyjafjarðarferju-
málið. Þetta eru þeir Smári Thor-
arensen, Narfi Björgvinsson, sem
eru aðalmenn í hreppsnefnd, og
Árna Kristinsson, sem er vara-
maður í hreppsnefnd Hríseyjar-
hrepps.
Smári Thorarensen sagði í
samtali við Dag að afstaða hans
hafi ekkert breyst í þessu máli.
„Ég tel að úr því sem komið er sé
best fyrir Vegagerðina að falla
frá öllum tilboðum og byrja á
þessu dæmi upp á nýtt. Það er
alveg ljóst mál að við munum
ekki sætta okkur við þá leið sem
hefur verið rædd, að semja við
Eystein Yngvason um þessa
flutninga með Árnesi. Ef hins
vegar er ætlunin að valta yfir
okkur með því móti, þá er það
þeirra mál og þeir taka þá þeim
afleiðingum. Ef þetta mál endar
á þann veg, sem virðist stefna í
núna, þá endar það verr en það
byrjaði. Menn voru ekki sam-
mála á sínum tíma þegar Sæfari
kom, en hann er staðreyndin í
dag og hann er það sem við vilj-
um vinna úr,“ sagði Smári.
„Við höfum vitnað til þess
samnings sem gerður vaT í fyrra
og kvað á um að ríkið yfirtæki
Sæfara og síðan yrði stofnað
hlutafélag um reksturinn. Þessi
samningur var undirritaður af
báðum aðilum og honum hefur
aldrei verið sagt upp,“ sagði hann
ennfremur.
Eins og fram hefur komið var
Sæfari settur á söluskrá í byrjun
þessa mánaðar í Noregi og var
uppsett verð um 22 milljónir
króna. Vegamálastjóri sagði í
viðtali við Dag sl. miðvikudag að
Vegagerðin hafi ekki sett skipið á
söluskrá og misskilningur hafi
orðið þess valdandi að það var
gert. Dagur hefur fyrir því traust-
ar heimildir að forsvarsmenn
sveitarfélags í Noregi hafi að
undanförnu spurst fyrir um
möguleikann á kaupum á Sæfara
fyrir sem næst 40 milljónir króna.
Samkvæmt skýrslu Ríkisend-
urskoðunar „Stuðningur ríkisins
við ferjur og flóabáta“ frá því í
febrúar sl. kemur fram að Sæfari
hafi verið keyptur hingað til
lands frá Noregi f ársbyrjun 1990
og skipið hafi kostað 95 milljónir
króna með endurbótum. Þar af
hafi farþegaskýli á skipið kostað
um 20 milljónir króna. óþh
íslandsmótið
Íshokkí-Bauerdeildin
★
Laugardag 20. mars kl. 16.00
SA-SR
Vélsleðamót í Mývatnssveit
íslandsmeistaramót í vélsleða-
akstri verður haldið í Mývatns-
sveit um næstu helgi. Keppt
verður 26. og 27. mars. Lang-
lengsta hefðin er orðin á
mótunum í Mývatnssveit, að
sögn Sigurðar Rúnars Ragn-
arssonar sveitarstjóra. Vél-
Fordstúlkan 1993:
Dalvíkur-
dama valin
Birna Willardsdóttir, 16 ára
Dalvíkurdama var valin
Fordstúlkan 1993. Hún var
valin úr hópi 12 stúlkna á
úrslitakvöldi á veitingastaðn-
um Sólon íslandus í Reykja-
vík í fyrrakvöld.
Birna var eini Norðlending-
urinn í hópnum en allar hinar
stúlkurnar eru af suðvestur-
horninu. Stúlkurnar í keppn-
inni eru á aldrinum 15-21 árs.
Nánar verður fjallað um þenn-
an glæsilcga árangur Birnu í
næstu viku. -KK
sleðamótin hafa verið árviss
viðburður í ein 15 ár og aðeins
þrisvar fallið niður vegna
snjóleysis.
Mývetningar reikna með að
íbúatala sveitarinnar tvöfaldist
helgina sem mótshaldið stendur.
Nóg er að gera við undirbúning
mótsins, en að því standa Björg-
Síðastliðinn miðvikudag var
Víkingalóttói hleypt af stokk-
unum á íslandi, en þátttöku-
rétt eiga þegnar Danmerkur,
Noregs, Svíþjóðar og Finn-
lands auk Islendinga. Islend-
ingur var meðal þriggja vinn-
ingshafa og komu 12 milljónir
króna í hans hlut.
Sex aðaltölur og þrjár bónus-
tölur voru dregnar út í beinni
unarsveitin Stefán, Slysavarna-
deildin Hringur og Eilífur,
íþróttafélagið.
Sigurður Rúnar sagði að
þokkalegur snjór væri fyrir móts-
haldið og feikinægur fyrir keppn-
ina. Og Mývetningar voru hinir
ánægðustu með snjókomuna á
föstudagsmorguninn. IM
útsendingu sjónvarpsstöðvanna á
miðvikudagskvöldið. Vinnings-
hafarnir reyndust vera þrír, frá
jafn mörgum löndum, og skiptu
þeir pottinum 36,4 milljónum
króna. íslenska vinningsröðin var
seld í Reykjavík og talsmaður
íslenskrar Getspár vill koma á
framfæri að lottókössum er lokað
kl. 16.00 á miðvikudögum er
Víkingalottó er spilað. ój
Víkingalottó:
íslendingur vann
12 milljónir króna
Háskólinn á Akureyri:
Nýjungar í kennaramenntun
- eru á meðal þess sem kynnt verður á námskynningu í Reykjavík
Hin árlega námskynning æðri
menntastofnana á Islandi verð-
ur haldin næstkomandi sunnu-
dag í Reykjavík og stendur frá
kl. 13-18. Að þessu sinni verða
allar deildir Háskólans á
Akureyri með kynningu sína í
andyri Tæknigarðs, Dunhaga
5.
O HELGARVEÐRIÐ
Nú í morgunsárið verður aust-
anáttin vaxandi með snjó-
komu á Norðurlandi. Er líður á
daginn gengur’ann í talsvert
hægari vestlæga átt og til
landsins léttir til. Á morgun,
sunnudag, verður hæg norð-
an- og síðan norðvestanátt,
án úrkomu, og frost verður
talsvert.
Heilbrigðisdeild mun kynna
nám í hjúkrunarfræði, sem nú er
4 ára nám og lýkur með B.S.
gráðu. Kynnt verður uppbygging
námsins, helstu kennslubækur og
tímarit sem tengjast náminu svo
og nokkur athyglisverð kennslu-
gögn. Þá verður gestum boðið
upp á blóðþrýstings- og púlsmæl-
ingu.
Hin nýja kennaradeild Háskól-
ans á Ákureyri hefur starfsemi
sína á hausti komanda. Innleidd-
ar verða nýjungar í kennara-
menntun á Islandi og verða þær
kynntar.
Rekstrardeild mun kynna
brautir sínar, þ.e. iðnrekstrar-
braut, rekstrarbraut og gæða-
stjórnunarbraut. Núna í vor
verða tímamót í íslenskri skóla-
sögu, þar sem nemendur verða í
fyrsta skipti útskrifaðir af sér-
stakri námsbraut í gæðastjórnun
hér á landi.
Hrogn og svil ígulkcrja eru ný
og vaxandi útflutningsvara frá
íslandi. Auk hefðbundinnar
kynningar verða nemendur sjáv-
arútvegsdeildar með kynningu á
lifandi ígulkerum og hörpuskel
úr Eyjafirði og verður gestum
gefinn kostur á að bragða á þess-
um nýjustu útflutningsafurðum
eyfirsks sjávarútvegs.
í tilefni af „opnu húsi“ verða
einnig fjórir fyrirlestrar um rann-
sóknaverkefni tengd íslenskum
sjávarútvegi í kennslustofu
Tæknigarðs. Fyrirlestrarnir verða
kl. 14-15 og kl. 14.30 mun dr.
Steingrímur Jónsson, sérfræðing-
ur við Háskólann á Akureyri og
útibússtjóri Hafrannsóknastofn-
unar, halda fyrirlestur sem hann
kallar; „Vistfræði Eyjafjarðar“.
Aðrir fyrirlesarar eru Dr. Snjólf-
ur Ólafsson, Ágúst H. Ingþórs-
son og Dr. Jörundur Svavarsson.
-KK
★
Sunnudag 21. mars kl. 16.00
SA-SR
★
Vinni SA leikinn á laugardag,
geta þeir tryggt sér íslandsmeistaratitil
í seinni leik liöanna á sunnudag.
VERSLUNIN ESJA
Norðurgötu 8, sími 22676.
Eiðsvallagötu 6
Sannkölluð markaðsstemmning
laugardaginn 20. mars kl. 11-15.
M.a. verður á boðstólum fatnaður,
brauð, kartöflur, keramik, lax, silungur, kökur
og ýmsar vörur fyrir safnara o.fl., o.fl.
ÚTBOÐ
«/é;vm Vegmálun á Norður- og Austur- landi.
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í veg-
VEGAGERÐIN málun á Norður- og Austurlandi.
Helstu magntölur: Akreinalínur 456.000 m og markalínur 57.800 m.
Verki skal lokið 15. september 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald- kera) frá og með 17. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 29. mars 1993.
Vegamálastjóri.