Dagur


Dagur - 20.03.1993, Qupperneq 6

Dagur - 20.03.1993, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 20. mars 1993 Ég vil hafa kaffið sterkt - segir Úlfar Hauksson, framkvæmdastjóri Kaffibrennslu Akureyrar í kaffispjalli Úlfar Hauksson, framkvæmdastjóri Kaffibrennslu Akureyrar: Ég drekk að sjálfsögðu Braga. Mynd: Óskar Þór Halldórsson Kaffi er ekki bara kaffi. Til eru ótal tegundir af þessum vin- sæla drykk og aðferðirnar við meðferð þess og neyslu eru jafn margvíslegar og mennirnir eru margir. Fólk er íhaldssamt á sitt kaffi og velur sömu teg- undina ár eftir ár. íhaldssemin er ríkjandi á þessu sviði eins og svo mörgum öðrum. Talið er að neysla á kaffi hafi fyrst haf- ist í Eþíópíu, nánar tiltekið í héraðinu Kaffa, en um 1500 segir sagan að það hafi borist til S-Arabíu og um miðja öld til Evrópu. Til þess að fræðast um þennan merkilega drykk snéri blaðamaður sér til Ulfars Haukssonar, framkvæmda- stjóra Kaffibrennslu Akureyr- ar, sem starfs síns vegna veitt eitt og annað um kaffið. Hann var fyrst spurður um hvað ráði mismunandi eiginleikum og bragði á kaffi? „Vissulega er margt sem ræður því hvernig kaffið er; í fyrsta lagi afbrigði sjálfrar kaffiplöntunnar, í öðru lagi jarðvegur og loftslag og í þriðja lagi verkunaraðferðin, þ.e.a.s. hvernig farið er að því að ná kaffibaununum úr ávexti kaffiplöntunnar. í aðalatriðum eru tvær tegundir kaffiplantna ræktaðar, annars vegar Arabica og hins vegar Canephora, sem gengur í daglegu tali undir nafn- inu Robusta. Robusta-plantan er í hugum manna óæðra afbrigði og af henni kemur að flestra mati lakara kaffi. Það þarf ekki endi- lega að vera vont kaffi, en hefur ekki þau bragðgæði sem Arabica-plantan almennt gefur. Arabica-plantan er vandmeð- farnari og viðkvæmari í ræktun og hún er mun dýrari en Robusta. í Norður-Evrópu er nær eingöngu notað kaffi af Arabica-plöntunni, en suður við Miðjarðarhaf er Robusta meira áberandi. Til dæmis samanstend- ur ítalskt expresso-kaffi yfirleitt til helminga af Arabica og Robusta.“ Kaffi keypt frá mörgum íöndum „Loftslag og jarðvegur ræður miklu um bragðið. Við höfum keypt kaffi frá Brasilíu, Kólum- bíu, Costa Rica, Salvador, Cuate- mala, Honduras og Kenya. Brasilíukaffið hefur sín sérstöku einkenni og það sama má segja um kaffi frá Kólumbíu og Kenya. Hins vegar er kaffi frá Mið- Ameríkuríkjunum Honduras, Costa Rica, Salvador og Guate- mala keimlíkt. Rétt er að geta þess að það eru tvær meginaðferðir við að ná bauninni innan úr ávexti kaffi- plöntunnar. Annað hvort eru berin, sem umlykja kaffibaunirn- ar, þurrkuð eða að þau eru sett í gerjunartanka og baunirnir síað- ar frá. Kaffið fær mismunandi einkenni eftir því hvor aðferðin er notuð. Almennt má segja að síðarnefnda aðferðin er öruggari, þ.e.a.s. hún tryggir jafnari bragð- gæði.“ * Islendingar töluvert kröfuharðir Úlfar sagði íslendinga töluvert kröfuharða kaffidrykkjumenn. „Auðvitað er allur gangur á því, en hins vegar eru heilmikil trúar- brögð í kringum kaffidrykkju, margir eru afar íhaldssamir á kaffitegundir. Ef til vill má segja að hér sé ekki til staðar svokölluð kaffimenning." Hann sagði að þótt íslendingar væru sagðir miklir kaffiþambarar, þá væri það samt svo að til væru meiri kaffidrykkjumenn á Norðurlönd- um, trúlega ættu Finnar Norður- landametið. „íslendingar kaupa um 2000 tonn af kaffi á ári, sem þýðir að hver landsmaður drekk- ur sem svarar til rétt um 8 kílóa af kaffi." Hitastigið skiptir miklu máli Úlfar segir að út af fyrir sig sé framleiðsluferillinn á kaffi ekki flókinn. Helsta kúnstin sé fólgin í því að kaupa inn þær kaffibauna- tegundir sem henti í framleiðsl- una og blanda þær rétt. „Við erum tveir hér sem smökkum á framleiðslunni og það fer ekkert kaffi á markaðinn án þess að það sé smakkað áður og gerðar á því prófanir eftir kúnstarinnar reglum,“ sagði Úlfar. En hvaða kaffi skyldi fram- kvæmdastjóri Kaffibrennslunnar drekka? „Ég drekk að sjálfsögðu Bragakaffi," sagði hann og glotti. „Ætli ég hafi ekki lengst af drukkið Colombia-kaffið í grænu pökkunum. Ég er ekki kaffi- þambari, en ég vil hafa kaffi sterkt og laga það þannig að af því sé alvöru bragð. Reyndar er mjög vandasamt að laga gott kaffi. Það er ekki bara það að menn þurfi til þess gott hráefni, vatnið verður að vera ferskt. Sjálfur nota ég á bilinu 50-60 grömm af kaffi í einn lítra af vatni. Mörgum finnst sjálfsagt að það sé sterkt kaffi. Hitastigið skiptir líka máli. Vatnið þarf að vera 92-96 gráður þegar hellt er upp á, en það verður að segjast að fæstar sjálfvirkar kaffikönnur hita vatnið svo mikið og það kann að koma niður á bragðgæð- unum. Síðan má hitinn undir kaffikönnunni sjálfri ekki vera meiri en 85 gráður.“ Kaffi í niðursuðudósum Úlfar sagði að vissulega hefði fólk sínar aðferðir við að hella upp á kaffi og sumir hituðu það upp í örbylgjuofnum eða á hellum, þótt hann gæti ekki mælt með því. „En Japanir til dæmis sjóða kaffi niður í dósir og hita það síðan í örbylgjuofnum. Sam- kvæmt því er allt til í þessu. En hvernig sem á það er litið er kaffi ferskvara og það er alltaf best nýbrennt og malað. Þess vegna vilja íslenskir kaffiframleiðendur halda því fram að þeir hafi nokk- urra vikna forskot á innflutta kaffið. Neytendur virðast hins vegar ekki hugsa út í þessa hluti.“ Harður slagur á kaffimarkaðnum Kaffibrennsla Akureyrar er gamalgróið fyrirtæki í „kaffi- bransanum“. Hver þekkir ekki gamla góða Bragakaffið, sem hefur yljað landsmönnum í gegn- um tíðina? Úlfar segir að mark- aðshlutdeild Kaffibrennslunnar sé talsvert meiri úti á landsbyggð- inni en á höfuðborgarsvæðinu, en þar hefur innflutt kaffi meiri markaðshlutdeild. Slagurinn á kaffimarkaðnum er harður og nærri lætur að í stærri matvöru- verslunum séu um 40 tegundir á boðstólum. Innlenda framleiðsl- an hefur átt í vök að verjast á undanförnum árum, en Úlfar ber sig vel og segir að söluniðursveifl- an hafi verið stöðvuð. Á síðasta ári setti fyrirtækið á markað nýja tegund, svokallað Rúbínkaffi, sem Úlfar sagði að hafi gengið mjög vel. Blaðamaður þakkaði fram- kvæmdastjóranum, hagfræðingn- um og kaffismakkaranum Úlfari Haukssyni fyrir fróðleiksmola um kaffi. Að vísu koma þeir blaðamanni ekki að notum, þar sem hann hefur sagt skilið við kaffið og hallað sér þess í stað að teinu. En bróðurpartur þjóðar- innar, 16 ára og eldri, drekkur kaffi í ómældu magni og segir það allra meina bót. Og á þeirri skoðun eru líka vísindamenn, samkvæmt nýlegum fréttum. óþh Umtalsverð verðlækkun!!! ★ Sveigjanlegir greiðsluskilmálar ÞÖR5HAMAR HF. söluumboð Glerárgötu 36, Akureyri. Sími 96-11036. Isuzu Trooper SE Verð 2,432.000 stgr. Isuzu pallbílar Isuzu Sportcap (2ja dyra) bensín og dísel. Isuzu Crew cap (4ra dyra) bensín og dísel.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.