Dagur - 20.03.1993, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 20. mars 1993
Hann er borinn og barnfæddur Ólafsfirðingur, hefur aldrei hleypt
heimdraganum til lengri dvalar en tvo vetur á skólabekk á
Akureyri, en eftir gagnfræðapróf á heimaslóðum fór hann í fram-
haldsnám við Gagnfræðaskóla Akureyrar, svokallaðan 5. bekk, og
síðan í 4. bekk Menntaskólans en hætti þar, þar sem hann sá ekki
neinn viðhlítandi tilgang með því að Ijúka námi við Menntaskólann,
þar sem ekki þurfti þá menntun til að starfa við sparisjóð, sem
honum stóð þá til boða, en þar hafði hann starfað í sumarafleysing-
um. Síðar hefur leiðin reyndar legið á styttri námskeið, sem öll
hafa snúist kringum nýjungar í bankastarfsemi, eins og t.d.
tölvuvinnslu. Hann fann sér kvonfang, sem að sjálfsögðu er einnig
hreinræktaður Ólafsfirðingur. Hann hefur allan sinn starfsferil
starfað við einu peningastofnun kaupstaðarins og varð aðeins 25
ára að aldri sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Ólafsfjarðar og þar með
einn yngsti sparisjóðsstjóri landsins. Faðir hans var Ólafsfirðingur
en móðir hans fædd að Lónkoti í Skagafirði, en kom ung til Ólafs-
fjarðar sem ráðskona á heimili föðurafa hans og ömmu og fann þar
sinn lífsförunaut. Börn þeirra urðu fimm og hafa öll sest að í
Ólafsfirði, sem teljast verður nokkuð óvenjulegt í ekki stærra
byggðarlagi. Faðir hans var starfsmaður Sparisjóðs Ólafsfjarðar í
20 ár, þar af sparisjóðsstjóri í 11 ár og sonurinn tók svo við því
starfi 1981 eftir að hafa starfað við hlið hans í allmörg ár, eða frá
árinu 1975. Viðmælandi okkar er Þorsteinn Þorvaldsson,
sparisjóðsstjóri í Ólafsfirði, formaður knattspyrnudeildar Leifturs
og einn af þeim sem hefur verið áberandi í mannlífinu í
Ólafsfirði og sett hafa svip sinn á það þrátt fyrir ungan aldur.
Kona hans heitir Gunnlaug Kristjánsdóttir og synir þeirra
Þorvaldur og WiIIiam Geir.
Sparisjóður Ólafsfjarðar, sem Þorsteinn
er í forsvari fyrir, er stofnaður árið 1914 og
var aðalhvatamaður að stofnun hans sr.
Helgi Árnason, þáverandi sóknarprestur,
en stofnendur voru 15 bændur og útvegs-
menn í Ólafsfirði. Fyrsta aðsetur sjóðsins
var heima hjá presti, sem þá nefndist
„Borg“. Sr. Helgi var sparisjóðsstjóri frá
1914 til 1925 en þá tók við Ingólfur Þor-
valdsson, sem einnig var með starfsemina í
heimahúsi. 1928 tekur Þorvaldur Sigurðsson
við og um leið flytur starfsemin í 40 fer-
metra húsnæði í Brekkugötu 9 og var þar í
55 ár, eða allt til 28. febrúar 1983 er flutt var
í nýtt og glæsilegt hús að Aðalgötu 14, alls
800 fermetra eða tuttugu sinnum stærra en
gamla húsnæðið.
Þorvaldur Sigurðsson var sparisjóðsstjóri
í 42 ár og tók þá við Þorvaldur Þorsteinsson,
faðir Þorsteins, og hefur Þorvaldsnafnið því
verið viðloðandi sparisjóðinn allt frá upp-
hafi því einn af stofnendum hans hét Þor-
valdur Friðfinnsson. En við flutninginn að
Aðalgötu 14 heldur tölvuvæðingin loks inn-
reið sína í stofnunina, en allt fram að því
höfðu allar færslur verið handfærðar og því
nánast um byltingu að ræða. Flutningurinn
var auk þess mikið átak fyrir sjóðinn því
eigið fé og stærð hans var mjög lítið en það
jókst síðan mjög hröðum skrefum. Á síð-
asta ári var upphæð innlána og verðbréfa
hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar sú mesta meðal
norðlenskra sparisjóða, 719 milljónir, sem
er 12,4% aukning milli ára.
Upphaflega var könnuð sú hugmynd að
sparisjóðurinn, bæjarsjóður og bæjarfógeti
yrðu undir sama þaki, eins konar stjórn-
sýsluhús, en það hlaut sáralítinn hljóm-
grunn og í dag leigir sparisjóðurinn efstu
hæðina undir minjasafn, og einnig hafa Raf-
magnsveitur ríkisins og Vátryggingafélagið
skrifstofur sínar í húsinu.
reyndar sæti enn sem formaður og ennfrem-
ur í byggingastjórn íþróttahúsins fyrir
íþróttafélagið Leiftur.
„Það fer ekki saman að stjórna peninga-
stofnun og vafstra í pólitík og því hef ég
dregið mig út úr því þrátt fyrir að ég væri
beittur töluverðum þrýstingi til að taka
áfram sæti á listanum fyrir kosningarnar
1990. Ég tel mig hins vegar aldrei hafa beitt
pólitík í starfi mínu í sparisjóðnum enda
væri ég þá ekki starfi mínu vaxinn. Hag
sparisjóðsins er líka best borgið með þeim
hætti. Þess má reyndar geta að bæjarstjórn
er ábyrgðaraðili að sparisjóðnum en ekki
ábyrgðarmenn sem eru sérstaklega til þess
kosnir eins og algengast er meðal íslenskra
sparisjóða og því er stjórn hans kosin af
bæjarstjórninni. Það eru aðeins stjórnir
sparisjóðanna á Hvammstanga og í Borg-
arnesi sem eru eins samansettar. Kosturinn
við það er sá að það verða tíðari skipti í
stjórn en þar sem ábyrgðamannakerfið er
en þar má oft sjá sömu andlitin í stjórn,
jafnvel áratugum saman.
íslandsmeistari í tvíkeppni
Eins og hjá fleiri ungum mönnum beindist
áhugi Þorsteins fljótt að íþróttum og eitt af
því fyrsta sem gert var eftir að skólaganga
hófst var að innritast í íþróttafélagið Leift-
ur. Norrænu skíðagreinarnar, ganga og
stökk, voru þá allsráðandi hjá unga fólkinu
og var Þorsteinn mjög virkur þátttakandi
þar, m.a. íslandsmeistari í öllum unglinga-
flokkum í stökki og tvíkeppni, en það er
samanlagður árangur í göngu og stökki. Því
átti skíðaíþróttin hug hans allan framan af,
en þrátt fyrir það hefur hann alltaf verið
hlynntari iðkun hópíþrótta.
„Fótboltinn var ekki í miklum hávegum
hér í Ólafsfirði á þessum árum enda aðstað-
an mjög léleg en sparkað var á velli sem
„Fyrsti íþróttabúningurínn
var hvít nælonskyrta
hneppt upp í háls"
15. maí 1988. Stór stund í lífi margra Leiftursmanna en þá fór fram fyrsti fyrstudeildarleikurinn í
Olafsfirði. Fyrirliðarnir, Þorvaldur Jónsson og Guðbjörn Tryggvason Skagamaður, heilsast í blóma-
skrúði.
„Þeir félagarnir, Þorvaldarnir, voru mjög
hæverskir í allri sinni framgöngu og það var
stundum sagt að í Brekkugötu 9 væri yfir-
leitt mjög lítið talað og öll nauðsynleg orða-
skipti væru á lægri nótunum. Ég er hræddur
um að það gengi ekki í dag í allri tölvuvæð-
ingunni enda hefur þjónustan margfaldast,
starfsmannafjöldinn þrefaldast og iðulega ys
og þys í afgreiðslunni. Við höfum í auknum
mæli verið að þjóna helsta atvinnuveginum
hér, útgerð og fiskvinnslu, og fá í viðskipti
fyrirtæki sem hafa haft öll sín viðskipti, þar
með talin afurðalán, hjá bönkunum á Akur-
eyri. Afurðalánaviðskiptin voru um síðustu
áramót upp á 140 milljónir og því fylgir auð-
vitað viss áhætta, en þetta er eina peninga-
stofnunin á staðnum og því fylgja að sjálf-
sögðu ákveðnar skyldur og kannski meiri
kvaðir en ef við værum í samkeppni hér á
staðnum við annan banka. Almenningur er
nánast undantekningalaust með öll sín við-
skipti hér enda greiða vinnuveitendur vinnu-
laun inn á reikninga í sparisjóðnum."
Pólitíkin
Nú fer ekki hjá því að þeir sem skipa lykil-
embætti í hverju bæjarfélagi eru oft á tíðum
komnir á kaf í stjórnmálin, þá venjulegast í
bæjarstjórnina. Þorsteinn skipaði 5. sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar 1986 en þá komst listinn í
meirihluta. Auk þess að vera varabæjarfull-
trúi sat hann í ýmsum nefndum og ráðum,
m.a. í tómstundanefnd þar sem hann á
- segir Steini
sparisjóðsstjóri
í Ólafsfirði
og Leifturs-
maður með
meiru
kallaður var Hraunprýði en nafn sitt dró
hann af því hversu grófur hann var. Aðai-
lega var æft á á túni eða sandi og fróðir
menn segja mér að aðalvöllurinn hafi verið
á flæðunum og bæði úr grasi og sandi, þ.e. í
öðru markinu var gras en í hinu sandur. Það
var ekki fyrr en 1975 sem núverandi malar-
völlur milli skólanna var tekinn í notkun.
Lítið var um keppnisferðir en mín fyrsta
keppnisferð var til Akureyrar um 1968 og
var þar keppt við KA. Engar skipulagðar
æfingar voru fyrir þessa ferð og við klædd-
umst engum sérstökum búningum, vorum
þó hvítklæddir og mín hvíta treyja var