Dagur - 20.03.1993, Síða 9

Dagur - 20.03.1993, Síða 9
Laugardagur 20. mars 1993 - DAGUR - 9 nælonskyrta sem ég hneppti upp í háls. Staðan í hálfleik var 0:0 sem var meiri hátt- ar árangur en leikurinn endaði síðan 4:0 fyr- ir KA. Ári seinna fór ég mína fyrsta kepppnis- ferð á skíðum og var farið með varðskipi á Unglingalandsmót á Seyðisfirði og tók ferð- in 10 daga. Auk okkar Ólafsfirðinganna fóru með skipinu Akureyringar, Húsvíkingar, Vopnfirðingar og fleiri og síðan skilaði skip- ið okkar sömu leið til baka. Á leiðinni aust- ur hrepptum við vitlaust veður og lá megnið af mannskapnum ælandi alla leiðina en er til baka kom var okkar skilað til Akureyrar og komst hópurinn ekki heim fyrr en fært var orðið landleiðina frá Akureyri. Allir Ólafs- firðingarnir, 13 að tölu, gistu hjá Ólafsfirð- ingi sem fluttur var til Seyðisfjarðar og var hver lófastór gólfflötur hússins nýttur sem svefnpláss. í dag þýddi ekki að bjóða ungu fólki upp á slíka þjónustu, helst er ekki hlustað á annað en að gista á hóteli". Stökkpallurinn var mikil lyftistöng „Um þetta leyti var byggður stökkpallur hér inni í bænum og varð hann mikil lyftistöng allri skíðaiðkun, ekki síst fyrir okkur smá- pollana, en lengstu stökk þarna eru ekki nema 15 til 18 metrar og því ekki nógu hátt fyrir þá eldri, sem vilja æfa skíðastökk með keppni fyrir augum. Skíðastökkið varð mjög vinsælt en skíðastökkvarar héðan urðu landsfrægir og áttu nánast fast sæti á verðlaunapalli á öllum Skíðalandsmótum, en nú er ekki keppt í stökki og er það miður. Þegar lyftan kom fór þeim að fækka sem stunda skíðagöngu og ég hugsa að það þyki „fínna“ að vera í skíðabrekkunum á svigskíðum enda er í raun um tvær ólíkar íþróttir að ræða því skíðaganga er herjans mikið puð. Við áttum um tíma landslið í göngu þegar þeir voru í þessu Haukur Sig- urðsson, Gottlieb Konráðsson, Jón Konráðs- son og Guðmundur Garðarsson og ég tek eftir því að þeir krakkar sem stunda skíða- göngu af kappi í dag og ná árangri eru m.a. börn þessara manna. Aðstæður hér í Ólafs- firði eru mjög góðar til að æfa þessa íþrótt og ná árangri og ég vona að það eigi eftir að koma upp aftur. Það kom snemma troðari hingað og var útbúinn á hann plógur til þess að göngumenn hefðu bestu mögulegar aðstæður við æfingar, enda skilaði það sér í árangri á skíðamótum hérlendis. Það tollir hins vegar ekki mikill snjór kringum lyfturn- ar og svo er þar nokkuð bratt þannig að það er mitt mat að iðkendur alpagreina hafi ekki eins góða aðstöðu til æfinga og iðkendur í norrænu greinunum. Þó hefur árangur Kristins Björnssonar ýtt nokkuð undir, en hann er svo sjaldan hér og því hafa börnin ekki fyrirmyndina fyrir sér í skíðabrekkun- um eins og t.d. knattspyrnumennina á sumrin.“ Á síðustu árum hefur knattspyrnan orðið meira áberandi í íþróttalífi Ólafsfjarðar og hæst skein sú frægðarsól sumarið 1988 þegar knattspyrnulið Leifturs lék í fyrsta skipti í 1. deild. En knattspyrnan átti frekar erfitt uppdráttar framan af, ekki síst vegna aðstöðuleysis og það er ekki fyrr en árið 1975 þegar núverandi malarvöllur, sem staðsettur er milli barna- og gagnfræðaskól- ans, var tekinn í notkun að áhuginn fer að vakna, farið er að stunda skipulega æfingar en liðið var þó í neðstu deildunum allt fram til ársins 1983 er liðið vann sigur upp úr 4. deild undir stjórn Einars Helgasonar og svo 1. deildar sæti með því að hljóta annað sæt- ið í 2. deild haustið 1987 undir stjórn Óskars Ingimundarsonar, eins og áður er minnst á. Góður kjarni „Ætli það hafi ekki verið árið sem ÍBA-lið- inu á Ákureyri var skipt í Þór og KA og þau léku í 3. deild, sem við unnum KA hér í Ólafsfirði 5:4 og öll mörkin komu upp úr löngum innköstum, sem Albert Ágústsson tók, en strákurinn var alveg fílhraustur. Þess ber þó að gæta að völlurinn var nokkuð lítill. Þegar Einar Helgason kom hingað til að þjálfa var að myndast hér mjög sterkur kjarni, sem hefur verið þungamiðjan í árangri Leifturs á knattspyrnuvellinum undanfarin ár. Þessi „árgangur“ var mjög stór og þeir héldu mjög vel saman og hófu snemma að æfa af einhverju viti. Þetta voru strákar eins og Þorvaldur Jónsson, Friðgeir Sigurðsson, Guðmundur Garðarsson, Róbert Gunnarsson, bræðurnir Hafsteinn og Sigur- björn Jakobssynir, Halldór Guðmundsson, Helgi Jóhannsson og Geirhörður Ágústs- son. Árin 1987 og 1988 voru sannkölluð draumaár hjá okkur Leiftursmönnum ekki síst vegna þess að við áttum aldrei von á þeim árangri sem náðist, en liðið fór úr 3. deild upp í 1. deild á aðeins tveimur árum en takmarkið sumarið 1987 var að haida sér í deildinni, enda vorum við nýliðar þar. Við vorum hins vegar strax í þriðju umferð komnir í annað sætið og það varð svo endanlega okkar þegar upp var staðið. Það hefur stundum verið sagt að liðið 1987 hafi að mestu verið skipað aðkomumönnum, en staðreyndin er sú að það voru aðeins þeir bræður, Steinar og Óskar Ingimundarsynir, sem þjálfaði liðið, ásamt Gústafi Ómars- syni, sem kom frá Reyðarfirði, auk Ólafs Björnssonar, sem kom frá Njarðvík, en hann kom hingað vegna vinnu við laxeldi en ekki fyrst og fremst vegna boltans. Ég á rúmlega 100 meistaraflokksleiki að baki og lék síðast með Leiftri 1985. Ég var þó aldrei afgerandi en hafði óskaplega gam- an af því að leika knattspyrnu og var því viðloðandi þetta eins lengi og raun ber vitni. Ég hef líka lengi verið viðloðandi stjórn knattspyrnudeildarinnar, var 17 ára þegar ég kom þar fyrst í stjórn sem gjaldkeri og hef verið í stjórn allar götur síðan að undan- skildu einu ári, en þá var ég formaður aðal- stjórnar Leifturs og hef því verið við stjórn- arstörf hjá félaginu í tvo áratugi. En þetta allt væri ekki hægt í bæjarfélagi sem telur 1200 íbúa ef við hefðum ekki að baki okkur gríðarlegan áhuga bæjarbúa og eru sumir alveg helteknir af „fótboltabakteríunni“. Það eru dæmi þess að fullorðnir menn sjái alla leiki liðsins, ekki aðeins hér í Ólafsfirði heldur einnig á útivöllum og mér finnst Myndir og texti: Geir Guðsteinsson þetta vera mjög góðkynjaður „sjúkdómur' Sumir hafa fengið bakteríuna mjög seint e hafa orðið þeim mun „veikari". Þar lang; mig sérstaklega að nefna Aðalbjörn Sigui laugsson, sem er á netaveiðum og byrja snemma vetrar til þess að geta lokið vertú’ inni áður en næsta vertíð, þ.e. knattspyrni vertíðin hefst. Þess eru einnig dæmi að i hann hefur verið á sjó og ekki í símasan bandi þegar Leiftur hefur verið að leika a hann hefur keyrt trillluna í þrjá tíma til a komast í símasamband og fá fréttir af leikr um. Upphafið að knattspyrnuáhuga Aðal björns var það að við vorum að leika hér vit' Grindvíkinga og Aðalbjörn hitti mann sen hafði komið með þeim og fór með honum á völlinn og það er raunar hægt að segja að þar hafi hann verið síðan. Hann tók sig m.a. til í sumar og safnaði farþegum í Fokker-vél sem átti að fara til ísafjarðar með hópinn til að fylgjast með leik okkar gegn ísfirðingum en tilboð Flugleiða brást en þeir peningar sem ætlaðir voru til farmiðakaupa runnu til knattspyrnudeildarinnar. Sjómenn hafa verið dyggir stuðnings- menn og m.a. stofnað stuðningsmannafélag um borð og þar get ég nefnt Nikulás um borð í frystitogaranum Sigurbjörgu og nýstofnað stuðningsmannafélag, Ketilás, hjá þeim á Mánabergi ÓF og VeðdeildBlíð- fara sem þeir stjórna snillingarnir Aðal- björn, Jakob og Haukur. Þetta væri ekki hægt fjárhagslega nema til kæmi öflugur bakstuðningur en við erum í fjáröflunar- verkefnum nánast allan ársins hring. Öðru vísi næðust endar ekki saman. Það má því með sanni segja að mínar tómstundir og áhugamál sameinist í kringum knattspyrn- una en það væri ekki hægt nema til kæmi stuðningur frá eiginkonunni og eins eru báðir synirnir á kafi í íþróttum, knattspyrnu á sumrin og skíðum á veturna. Það er engin tími aflögu til að stunda neitt annað eins og t.d. golf eða laxveiði. Góðir meðstjórnarmenn En ertu mjög einráður í stjórn knattspyrnu- deildarinnar? „Nei því fer vtðsfjarri að ég stjórni knatt- spyrnudeildinni einn og meðstjórnendur mínir eru hamhleypur til vinnu. Eins eru konurnar mjög starfsamar enda gengi þetta ekki öðruvísi. Þær standa m.a. fyrir kútt- magakvöldi eða sjávarréttakvöldi þar sem saman hefur komið allt að 300 manns og vinsældir þessa kvölds aukast stöðugt. Fyrsta skóflustungan að nýjum grasvelli var tekin 1987 og það var búið að vera gríðarlega löng og mikil barátta fyrir því við bæjarstjórn Ólafsfjarðar að það fengist en 1988 var Leiftur eina fyrstudeildarliðið sem lék sína heimaleiki á möl og það var mjög gagnrýnt útávið og ég skil það mætavel. Margir vildu byggja íþróttahús á undan grasvellinum en menn báru gæfu til að fara í grasvöllinn á undan íþróttahúsinu enda væru þá enn mörg ár í það að grasvöllur sæi hér dagsins ljós. En ég er að sjálfsögðu mjög sæll með það að það hillir undir nýtt íþróttahús hér því ég er sannfærður um að það verður öllu íþrótta- lífi á staðnum mikil lyftistöng. Með íþrótta- húsinu rætist gamall draumur margra Ólafs- firðinga.“ Mesta gleðistundin sem Leiftursmaður Hver hefur verið mesta gleðistundin í þínu lífi sem Leiftursmaður? „Gleðistundirnar eru margar en ætli það sé ekki þegar flautað var til leiksloka á Þróttarvellinum í Reykjavík og ljóst var að við höfðum unnið okkur sæti í fyrstu deild með sigri á Þrótturum en við reiknuðum aldrei með þvf en um sumarið höfðum við aðeins unnið einn útileik. Takmarkið var að halda sér í deildinni en því meiri varð ánægjan enda var staðan sú þegar þrjár umferðir voru eftir að við gátum allt eins lent í fallbaráttu.“ Setja Leiftursmenn markið hátt á kom- andi sumri? „Við náðum 4. sæti í 2. deildinni sl. sumar og stefnum að því að árangurinn verði ekki lakari. Marteinn Geirsson verður áfram þjálfari en ég álít að komandi sumar verði að mörgu leyti skemmtilegra því KA og Tindastóll verði bæði í deildinni og því verða hér nokkrir „derby“ leikir með til- heyrandi stemmningu." GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.