Dagur - 20.03.1993, Side 11
Laugardagur 20. mars 1993 - DAGUR - 11
Eins og hver önnur söftiunarárátta
- spjallað við Þorstein Arnórsson,
formann Félags norðlenskra steinasafnara
„Ætli þetta sé ekki eins og
hver önnur söfnunarárátta. Eg
held þó að ég sé ekkert mjög
illa haldinn,“ segir Þorsteinn
Arnórsson, formaður Félags
norðlenskra steinasafnara,
sem var stofnað 1990. Félagið
tók á leigu húsnæði að Hafnar-
stræti 90 á Akureyri af Kaup-
félagi Eyfirðinga í mars 1991
og þar hafa félagsmenn unnið
að því að koma upp aðstöðu til
sýningarhalds. Fyrsta steina-
sýning á vegum félagsins var á
haustdögum árið 1991 og önn-
ur sýningin í fyrrasumar. Sú
þriðja er í undirbúningi og er
stefnt að því að hún verði opn-
uð í júní nk.
Blaðamaður hitti Þorstein að
máli á dögunum í húsakynnum
Félags norðlenskra steinasafn-
ara. Þarna er óteljandi fjöldi
steina, fyrst og fremst úr íslensku
steinaflórunni, og margir þeirra
eru einkar fallegir og sérstakir.
Félagið sjálft á nokkra steina, en
bróðurpartur þeirra er í eigu
félagsmanna. í kjallara hússins er
unnið að því að koma upp
aðstöðu til að saga og slípa steina
og félagið hefur einnig yfir að
ráða ágætri smásjá.
Tæplega 70 félagsmenn
„í Félagi norðlenskra steina-
safnara eru 67 félagar, en það var
stofnað 15. febrúar 1990,“ sagði
Þorsteinn þegar hann var inntur
eftir stofnun félagsins. „Þó að
félagið heiti Félag norðlenskra
steinasafnara, þá eru félagar í því
allt frá Húnavatnssýslu og austur
á Eskifjörð. Markmið með stofn-
un félagsins var að efla þekkingu
og vinnslu á steinum. Við vinnum
að því að koma upp steinteg-
undasafni í samvinnu við Nátt-
úrufræðistofnun Norðurlands.
Það getur hver sem er gengið í
félagið, félagsmenn þurfa ekki
einu sinni að eiga steina. Við
erum með opið hús hálfsmánað-
arlega, á miðvikudagskvöldum.
Þetta eru engir formlegir fundir,
heldur koma félagsmenn og bera
saman bækur sínar yfir kaffi-
bolla.“
Töluvert flókin stúdía
Þorsteinn segir að ýmsir merki-
legir steinar leynist í heimahús-
um. Ótrúlegur fjöldi fólks safni
steinum á gönguferðum úti í nátt-
úrunni og síðan vakni spurningar
þegar heim sé komið um kristalla-
byggingu og gerð steinanna.
„Þetta er töluvert flókin stúdía,
ef fólk sökkvir sér djúpt. Einkum
liggur kristallabygging steinanna
ekki alltaf í augum uppi. Til
dæmis er oft ekki hægt að sjá
kristallana í geislasteinum og þá
Sími 26211
Þorsteinn Arnórsson, formaður Félags norðlenskra safnara: Þó að félagið
heiti Félag norðlenskra steinasafnara, þá eru félagar í því allt frá Húnavatns-
sýslu Og austur á Eskifjörð. Mymlir: Óskar Þór Halldórsson
Hringdu strax
Takmarkaður fjöldi
Félag norðlenskra steinasafnara er til húsa í suðurhluta hússins Hafnarstræti
90 á Akureyri.
180
HEILSURÆKT
KA-heimilið við Daisbraut
þarf stundum að röntgengreina
þá. Við höfum reyndar ekki yfir
þeirri tækni að ráða, en við eig-
um góða smásjá, sem oft kemur
að góðum notum,“ sagði Þor-
steinn. „Þegar ég byrjaði að
safna steinum fyrir um tuttugu
árum var talið að um 100 tegund-
ir steina væru í íslensku steina-
flórunni, en nú eru þær um 150
talsins,“ bætti hann við.
Geislasteinar í uppáhaldi
Þorsteinn sagðist ekki geta
neitað því að geislasteinar, eða
Zeolítar, væru hans uppáhalds
steinar. „Síðan hef ég dálæti á
steini sem ég fann suður í Borg-
arfirði fyrir nokkrum árum. Það
var eitthvað grænt í honum sem
líktist helst kopar. Mér fannst
það skrítið óg sendi steininn því
til greiningar í Reykjavík. í ljós
kom að þarna var á ferðinni kop-
arbundið súrefni. Jafnframt var
upplýst að þetta væri eini steinn-
inn hér á landi þar sem þetta hef-
ur greinst," sagði Þorsteinn.
Góð aðsókn
Eins og áður segir tók Félag
norðlenskra steinasafnara hús-
næði að Hafnarstræti 90 á Akur-
eyri á leigu árið 1991. „Fljótlega
eftir að við tókum þetta húsnæði
á leigu settum við upp sýningu og
höfðum opið um helgar. Ætlum
okkar var sú að hafa opið í fjórar
vikur, en vegna mikillar aðsókn-
ar var opið í sjö vikur og á þeim
tíma sóttu um 1000 manns sýn-
inguna. Á síðasta sumri settum
við síðan upp fyrstu alvöru sýn-
inguna og höfðum opið frá 15.
júní til ágústloka. Sýningargestir
urðu um 2100 og voru erlendir
ferðamenn rúmur helmingur
þeirra. Við erum að vinna að því
að setja upp sýningu sem við
munum opna í vor. Hún verður
kynnt nánar síðar,“ sagði Þor-
steinn Arnórsson. óþh
8 vikna
STÍFT FITUBRENNSLUNÁMSKEIÐ
HEFST MIÐVIKUDAGINN 24. MARS
★ Fitumæling og vigtun
+ Ráðgjöf varðandi mataræði
* Matarlistar -
Spennandi mataruppskriftir
+ Fyrirlestrar um megrun
og mataræði
Sigríður Eysteinsdóttir
næringarfræðingur
+ Þjálfun og hreyfing 5
sinnum í viku
Verð 9.800
Eina varanlega leiðin að lækkaðri líkams-
þyngd er aukin hreyfing og rétt mataræði.
Láttu okkur hjálpa þér að losna við auka-
kílóin og halda þeim frá fyrir full og allt.
Skráning er hafin.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Leikklúbburinn LOCOS
sýnir í Gryfjunni á Eyrarlandsholti leikritið
„Fyrir austan mána“
eftir Carol Churchill
Leikstjóri er Jón Bjarni Guðmundsson.
Sýningar:
Sunnudag 21. mars kl. 20.30.
Mánudag 22. mars kl. 20.30.
Þriðjudag 23. mars kl. 20.30.
Sala aðgöngumiða hefst kl. 20.00 og
miðinn kostar 500 krónur.
LOCOS-Leikklúbbur VMA
Auglýsing í Degi
ber árangur