Dagur


Dagur - 20.03.1993, Qupperneq 17

Dagur - 20.03.1993, Qupperneq 17
Laugardagur 20. mars 1993 - DAGUR - 17 BÖRNIN OKKAR Kristín LindaJónsdóttir „Barnið mitt er veikt“ Þegar barnið okkar veikist skiptir það eitt okkur máli að það nái heilsu á ný. Sjúkdómar eru eins mismunandi og þeir eru margir. Börnin okkar geta veikst vegna léttvægs kvefs eða af alvarlegum sjúkdómi. í þessari grein er einungis fjallað um algenga smitsjúkdóma. Það er að segja þau tilvik þegar börn- in okkar eru veik og við, foreldrar þeirra, önnumst þau eftir bestu getu heima, þá reynir á að hafa ráð undir rifi hverju. Þegar börnin okkar veikjast leit- ar sú spurning fyrst á hugann hve alvarleg veikindin séu og hvort ástæða sé til að leita til læknis. Sjálfsagt er að fylgjast náið með barni sem er að veikjast og veita eftirtekt líðan þess og hegðun á næstu klukkustundum. Nauðsyn- legt er að ná í hitamæli og mæla barnið. Með hitamælingu fá for- eldrar ákveðnar hlutlægar upp- lýsingar sem ekki byggjast á hug- lægu mati þeirra. Því er margfalt öruggara og nákvæmara að nota mælinn og í raun út í hött að meta hitann með því að þreifa á barninu. Rétt er að velta því fyrir sér hvort barnið sé hugsanlega með smitsjúkdóm sem er að ganga í umhverfi þess, svo sem maga- veiki, inflúensu, hálsbólgu, kvef eða einhvern barnasjúkdóm. Ef foreldrarnir eru ekki vissir í sinni sök getur stutt símtal við heimil- islækni fjölskyldunnar veitt svör við þeim spurningum sem leita á hugann. Minnumst þess að ávallt er mun erfiðara að meta veikindi barna en fullorðinna og því erfið- ara því yngra sem barnið er. Þess vegna er betra að fá lækni í lið með sér því fyrr sem sjúklingur- inn er yngri að árum. Að lækka hitann Þegar börn eru með háan hita er hægt að beita ýmsum leiðum til að reyna að lækka hitann sem um leið bætir líðan barnsins. Helsta lyf sem foreldrar geta gefið börn- unum sínum til hitalækkunar er parasetamól stílar. Einnig eru til fleiri hitalækkandi lyf heppileg fyrir börn en þau eru eingöngu seld samkvæmt lyfseðli. Para- setamól er hægt að gefa börnum 3-4 sinnum á sólarhring í nokkra daga jafnvel allt upp undir viku. Hins vegar er nauðsynlegt að hafa samband við lækni ef barn er með hita í svo langan tíma til að leita skýringa á hitanum. Ef um flensu er að ræða getur lyfja- gjöfin verið rétta leiðin en ávallt verður að leita orsaka hitans og átta sig á af hverju hann stafar. Nauðsynlegt er að fylgjast vel með hita barnsins þar sem hann getur rokið skyndilega upp um leið og lyfið hættir að verka. Þegar barn er með háan hita verður að gæta þess að hafa ekki of heitt í húsinu eða herberginu sem barnið dvelur í. Heppilegt hitastig er í kringum 20° C. Athugið að barnið þarf að tapa hita til umhverfisins. Þess vegna má ekki byrgja hitann inni með fötum, sæng eða ullarteppi, best er að hafa aðeins lak ofan á barn- inu. Gætum okkar á þeirri til- hneigingu okkar að vefja veik börn inn í teppi. Til hitalækkunar má setja barnið í bað, láta það liggja í volgu baðvatni en þá tap- ar barnið hita til umhverfisins. Einnig má þvo barninu hátt og lágt með volgu vatni, uppgufun vatnsins á húðinni hjálpar barn- inu að tapa hita til umhverfisins. Til hitalækkunar getur verið gott að hafa viftu í gangi í herbergi barnsins. Hættumerki Þegar barn er með háan hita skal ávallt fylgjast sérstaklega vel með hegðun barnsins. Ef barnið er frísklegt og sprækt, drekkur og leikur sér og ekkert sljólegt þá er að öllum líkindum ekki hætta á ferðum. En ef barnið er sljótt, snýr sér upp í horn, vill fá að vera í friði, vill ekki drekka og jafnvel kastar upp þá er hætta á ferðum. Varasamast í þessu sambandi er ef barnið gæti verið með heila- himnubólgu. í þeim tilfellum verður barnið sljótt og dauft og vill kúra í friði uppi í rúmi og get- ur fallið í nokkurs konar mók. Kastar jafnvel upp og einnig geta þau fengið punktblæðingar á húð einhvers staðar á líkamann. Því betur hefur heilahimnu- bólgutilfellum fækkað verulega á síðustu árum hér á landi og má þakka það að mestu leyti því að farið var að bólusetja börn við heilahimnubólgu. Hér á landi var byrjað að bólusetja árið 1988 en þá voru Finnar eina Norðurlanda- þjóðin sem höfðu hafið bólusetn- ingar við heilahimnubólgu. Nú hafa hinar Norðurlandaþjóðirnar tekið þær upp. Bólusett er við einni algengustu tegund heila- himnubólgu en til eru fleiri teg- undir sem ekki er bólusett við. Heilahimnubólga er eitruð bakt- ería og ef barn fær hana geta batahorfur oltið á því hvort barn- ið kemst klukkutímanum fyrr eða seinna undir læknis hendur. Allir foreldrar ættu að vera vel á verði gagnvart þessari bakteríu og fylgjast náið og stöðugt með börnunum sínum jafnt að nóttu sem degi hafi þau háan hita. Lítið á uppköst í þessum tilfellum sem hættumerki. Það eru einmitt börnin sem kúra róleg í móki inni í rúmi sem eru hugsanlega í hættu, ekki þau sem gráta og heimta athygli og umönnun. Þess vegna er heilahimnubólga lúmsk- ur óvinur. Andartak krampans Börn geta fengið hitakrampa vegna mikils hita og skiptir þar engu af hverju hitinn stafar. í langflestum tilfellum er hita- krampinn sem slíkur ekki hættu- legur. Þegar barn fær hitakrampa er það eina sem foreldrar geta gert að gæta þess að barnið skaði sig ekki og reyna að halda ró sinni. Hafa síðan samband við lækni eða aka með barnið á Barnið þitt þarf á þér að halda þegar það er veikt, vertu hjá því! „Því miður kem ég ekki til vinnu í dag þar sem barnið mitt er veikt.“ (Myndir úr bókinni Fjölskylduhandbók um hjúkrun heima) „Það er ekkert vont að láta mæla sig með svona hitamæli.“ sjúkrahús eftir því hvernig aðstæður eru. Leitist við að forð- ast að barn fái hitakrampa með því að vinna að því að lækka lfk- amshita veiks barns. Lífsnauðsynlegur vökvi Þegar börnin okkar eru með hita er mjög nauðsynlegt að þau drekki nóg, meira en einn og einn sopa, svo þau fari ekki að þorna upp. Börnum sem kasta upp eða eru með niðurgang er sérlega hætt þar sem þau tapa svo miklum vökva úr líkamanum. í þeim tilfellum er reynandi að gefa þeim, í smáskömmtum, saltvatn. í apótekum er slík salt- blanda til að setja út í vatn fáan- leg. Ef foreldrar telja möguleika á að barn sé að þorna upp, fái ekki nægilegan vökva, þá er nauðsynlegt að hafa samband við lækni. Barnið þarf þá hugsanlega á því að halda að það sé lagt inn á sjúkrahús og því gefinn vökvi í um. Hægt er að búa til hlaup úr matarlími og ávaxtasafa, fáið ömmu eða afa í heimsókn og bjóðið barninu að drekka með þeim. Berið drykkina fram í glasi með röri, dúkkubollastelli eða lítilli gosflösku. Búið til íshristing og bjóðið barninu fjölbreytt úr- val af drykkjum í fernum svo sem léttmjólk, kókómjólk eða blöndu. Athugið þó hvaða drykkir eru heppilegir ef barnið þolir einhverja þeirra illa vegna veikindanna. Ég er með kvef Ef barn er með þrálátan hósta er hægt að minnka ertinguna með því að gefa barninu hóstasaft. Ef um nefkvef er að ræða, í nef- kokseitlinum, þá lekur úr honum niður í kokið þegar barnið leggst útaf og það veldur ertingu og hósta. Þá getur verið heppilegra að nota saltvatnsdropa eða nef- dropa og hreinsa úr nefinu með nefsugu en að gefa barninu hósta- saft. Ef barn fær barkabólgu er nauðsynlegt að hafa rakt loft í herberginu sem barnið sefur í og fara með barnið í gufu. Til dæmis er heppilegt að láta renna heitt vatn í baðkerið og sitja með barnið í gufunni inni á baði. Ef barnið slefar, virðist ekki geta kyngt og á erfitt með öndun, verður að leita læknis og því alvarlegar er ástandið sem börnin eru yngri. Ef börn fá asma í kjöl- far kvefs er nauðsynlegt að leita til læknis og fá lyf til að létta asmann. Gruni foreldra að barn- ið þeirra sé með eyrnabólgu þarf að leita til læknis og fá viðeigandi lyf. Hvenær má barn fara aftur í skóla eða leikskóla eftir veikindi? eða veik ættu að sofa úti í vagni, þá er rétt að athuga að öryggi veiks barns er mun meira sé barnið inni. Foreldrar geta fylgst betur með barninu sé það inni í rúmi en úti í vagni. Þar heyra for- eldrarnir betur í barninu ef eitthvað kemur upp á, til dæmis í sambandi við öndun ef barnið hóstar, kokar eða hrekkur ofan í það. Það er almennt talið nauðsyn- legt að veikur einstaklingur sé tvo daga inni hitalaus áður en gengið er til daglegra starfa. Sjúkdómar, til dæmis flensa, geta verið þess eðlis að hitinn liggi niðri í einn dag en blossar svo upp aftur. Þá er sjúkdómurinn ekki um garð genginn þó komið hafi einn hitalaus dagur. Því er óráðlegt að senda börn í skóla eða leikskóla þó hitinn hverfi í einn sólarhring. Hins vegar getur aðstaða foreldra í þjóðfélagi nútímans verið slík að þeir séu undir verulegri pressu frá vinnu- veitanda vegna fjarvista vegna veikinda barna. í raun er hlálegt að ímynda sér að sjö daga fjar- vera frá vinnu á ári, vegna veikra barna, sé nægjanleg á nokkrum öðrum en þeim heimilum þar sem tveir aðilar geta nýtt sjö daga hvor vegna eins barns. Hvar standa þá allir einstæðu foreldr- arnir og hver er staða útivinnandi fólks sem á nokkur börn? For- eldrar veikra barna á íslandi eru í vanda, neyðin er misstór en vandinn er verulegur og nauðsyn- legt að berjast fyrir úrbótum barnanna vegna. Barnasmitsjúkdómar Nú er bólusett hér á landi fyrir mörgum barnasjúkdómum sem áður voru algengir svo sem barnaveiki, kíghósta og misling- um og rauðum hundum. Skarlatssótt er talsvert algeng nú og ef börn fá hana er nauðsyn- legt að þau fái lyfjagjöf. Börn geta fengið skarlatssótt oftar en einu sinni. Helstu einkenni eru hár hiti, útbrot einkum í andliti til að byrja með en síðan víðar á líkamanum. Börnin fá rauðar eplakinnar, útbrot á tungu og hálsbólgu. Ef skarlatssótt er ekki meðhöndluð með lyfjum er möguleiki á fylgikvillum svo sem nýrnabólgu og liðagigt. Hlaupabóla er algeng og mjög smitandi en ekki alvarlegur sjúk- dórnur. Aðalatriðið í umönnun- inni er að bæta líðan barnsins og gæta þess að það rífi ekki ofan af bólunum þar sem það opnar leið fyrir sýkingu inn í húðina. Gott er að gefa börnunum paraseta- mól stíla til hitalækkunar og til að slá á óþægindin sem bólurnar valda. í apótekum er til fljótandi áburður sem bera má á bólurnar til að draga úr kláðanum en gætið þess að rífa ekki ofan a þeim um leið. Bað getur dregið úr kláða. Einn barnasjúkdóminn enn mætti nefna sem er töluvert algengur, það er svo kölluð fjögurra daga hitasótt. Börn sem fá þann sjúkdóm fá háan hita í þrjá til fjóra daga og þegar hitinn dettur niður eftir þessa daga þá fá þau útbrot um allan líkamann sem síðan hverfa af sjálfu sér. Þetta er vægur sjúkdómur sem ekki eru gefin lyf við. æð. Ef barnið vill ekki drekka nægilegan vökva reynir á hug- myndaflug foreldranna. Bjóðið barninu ís eða frostpinna, búið til klaka úr ávaxtasafa í ísmolabox- Ef við veltum því fyrir okkur hvort ungabörn sem eru kvefuð Greinin er byggð á samtali við barna- lækni og ýmsum handbókum um efnið. Næsti þáttur: Um sérkennslu

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.