Dagur - 20.03.1993, Page 23
I UPPÁHALDI
Laugardagur 20. mars 1993 - DAGUR - 23
„Langar ekki til Akureyrar aftur“
- segir Jón Eiður Jónsson
Jón Eiður Jónsson er verslunar-
stjóri hjá Verslunarfélagi Rauf-
arhafnar hf., en auk þess að
starfrækja verslun á staðnum
rekur félagið gistiheintili á efri hæð
hússins við Aðalbraut 24. Jón Eiður
er einnig kafari í aukavinnu en segir
ekki mikið að gera á því sviði og þá
er hann sjúkraflutningamaður, lærði
til þess á Borgarspítalanum 1987, og
því starfi þarf hann skiljanlcga að
sinna öðru hverju. Við slógum á
þráðinn austur til Akureyringsins
fyrrverandi.
Hvað gerirðu helst ífrístundum?
„Ég vi! helst vera heima með fjölskyld-
unni. Frístundimar eru það fáar að mér
finnst þeim best varið heima.“
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá
þér?
„íslenska lambakjötið, hvemig sem það
er nú matreitt.“
Uppáltaldsdrykkur?
„Ætli það sé ekki aðallega kók og líka
kaffi, svo maður tali eins og sannur
koffínisti."
Ertu hamhieypa til allra verka á heim-
ilinu?
„Ég er ekkert rosalega duglegur í heint-
ilisverkunum en reyni að hjálpa tii. Ég
hef yfirleitt alltaf vaskað upp á kvöldin
síðan strákurinn fæddist 1990, en mað-
ur hefur ósköp lítinn tíma.“
Spáirðu mikið í heikusamlegt líferni?
„Nei, ég spái akkúrat ekkert í það. Og
þó. Það blundar í meðvitundinni að
Jón Eiður Jónsson.
drífa sig í eitthvað en ég hef aldrei gert
neitt í því.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu?
„Að sjálfsögðu kaupi ég Dag og við
kaupum Dagblaðið líka. Það eru einu
blöðin sem ég les.“
Hvaða bók er á náttboröinu hjá þér?
.íað er bókin um Kristján Jóhannsson,
söngvara. Ég er ágætlega hrifinn af
honum, enda er hann góður söngvari.“
Hvaða hljómsveitltónlistarmaður er i
mestu uppáhaldi hjá þér?
„Það er nú gamli Mick Jagger og Roll-
ingamir."
Uppáhaldsiþróttamaður?
,JHver gæti það nú verið? Nei, ég held
að ég eigi engan uppáhaldsíþróttamann.
Þeir standa sig sjálfsagt allir með ágæt-
um.“
Hvað horfirðu hekt á í sjónvarpi?
„Fréttir. Ég eltist ekkert við annað efni
en horfi kannski á stöku bíómyndir ef
þannig stendur á.“
Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mest álit?
„Svei mér þá, ég held að ég hafi ekki
álit á neinum þeirra í dag. Steingrímur
Hermannsson hefur þó alltaf verið í
nokkuð miklu uppáhaldi hjá mér en ég
veit ekki hvort hann nái þvt f dag.“
Hvar á landinu vildirðu helst búafyrir
utan heimahagana?
„Ætli Húsavík yrði ekki fyrir valinu.
Nei, mig langar ekki til Akureyrar aft-
ur. Það er helst að ég sakni trjánna það-
an og Hlíðarfjalls. Það var alltaf hress-
andi að skreppa á skíði.“
Hvaða hlutlfasteign langar þig mest til
að eignast um þessar mundir?
„Nú seturðu mig í bobba. Ætli ég
myndi ekki bara vilja eignast mína fast-
eign sjálfur, þessa sem maður er með á
herðunum í dag.“
Hvernig myndirðu eyða þriggja vikna
vetrarfríi?
„Á skíðum í Austurríki. Það er að vísu
háð því skilyrði að ég fái lottópottinn."
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
,JÉg ætla með konunni minni á stórhátíð
sem jeppaklúbburinn héma heldur.
Þetta er að verða cin stærsta hátíðin
héma og ég held að það verði fleiri í
mat en á þorrablótinu. Síðan ætla ég að
eyða helginni heima og safna kröftum
fyrir langa og stranga vinnuviku." SS
PÓSTKORT FRÁ PAU
Fannhvít jörð í Frans
Kæri vinur.
Ég er farinn að halda að eitt-
hvað veðurfarslegt ólán elti mig á
röndum. Fyrst var það sex vikna
sleitulaus rigning og núna . . .
Hvort sem þú trúir því eða ekki
þá gerðist það einn laugardags-
morguninn þegar ég halaði hler-
ann frá glugganum hjá mér, að
við blasti hvít jörð og slydduhríð.
Skemmst er frá að segja, að ég
var fljótur að skríða aftur upp í
og lá þar í eymd og volæði, horf-
andi á hvítar flygsurnar svífa
fram hjá glugganum, allt fram
undir hádegi. Ég, kominn alla
leið frá íslandi, landi snjóa, og
suður undir Spán, land sólar, en
samt snjóaði úti. Stórfurðulegt,
þar sem hér snjóaði síðast fyrir
fjórum árum og þá duttu einungis
örfá korn úr lofti. Ég var ekki
lengur í nokkrum vafa um að
veðurguðirnir væru í því að ergja
mig með að snúa veðri suðlægra
slóða upp í andhverfu sína hvað
eftir annað. Fyrst rigning að
hausti, síðan hitabylgja í janúar,
nú snjókoma og guð má vita hvað
vorið ber í skauti sínu.
Annars verður að segjast eins
og er, að þegar ég skreiddist loks-
ins fram úr þennan snjóhvíta
laugardag og gekk út til að
sannprófa að þetta væri raun-
verulegur snjór, þá fór um mig
sæluhrollur. Að finna snjókornin
bráðna í hárinu, sjá fótspor sín í
snjónum og hnoða snjókúlur,
vakti upp hlýjar minningar og
mér fannst ég vera kominn heim.
Ekki var heldur hægt annað en
komast í gott skap, svo skemmti-
leg voru viðbrögð fullorðins
fólks, sem og barna, við þessum
hvíta gesti. Allir hlæjandi, að
gera snjókarla eða kasta snjó í
hvern annan. Að vísu sýndi fólk
ekki mikla leikni í snjókúlugerð,
en það verður að teljast eðlilegt
miðað við búsetu. Ég naut þess
því, að senda nokkrar góðar, án
þess að mikið bæri á, sem ollu
smá usla.
Eitt vakti þó meiri athygli hjá
mér en annað. Flestir voru vopn-
aðir regnhlífum í snjókomunni
og satt best að segja kom það
mér íslendingnum hálf spánskt
fyrir sjónir. En hvers vegna?
Sennilega vegna þess að maður
er vanari að grípa snjóbuxurnar
og úlpuna að ógleymdri lambhús-
hettunni, en dusta rykið af regn-
hlífinni áður en ætt er af stað út í
norðangarrann. Kannski ekki að
ástæðulausu, því það er eins með
snjókomuna á íslandi og rigning-
una, hún er yfirleitt lárétt en ekki
lóðrétt.
Hér í Frakklandi heldur snjó-
koman hinsvegar í gamlar venjur
og fellur af himnum ofan líkt og
regnið. Þetta með regnhlífarnar
reyndist því ekki svo ýkja galið
hjá Frökkunum, þó ég hafi kosið
að snúa heim með snjóblautt hár.
Annars entist blessaður snjórinn
heldur stutt og ég kvaddi hann
með tárin í augunum, fjórum
dögum eftir komu hans, því auð-
vitað er ég sannur íslendingur,
sem þrái snjó þegar hann er ekki
til staðar, en bölva honum í sand
og ösku loksins þegar hann lætur
sjá sig. Þetta föl sem kom varð
því ekki til annars, en kveikja hjá
mér óstjórnlega löngun í að kom-
ast heim i kuldann og snjóinn.
Hver getur líka hugsað sér betri
líkamsrækt en moka snjóinn af
tröppunum heima hjá sér, moka
snjóinn frá bílnum, moka sig í
gegnum nokkra skafla á leiðinni í
vinnuna, ýta á bílana hjá þeim
sem hafa fyrir fádæma klaufa-
skap fest sig í fölinu og gera yfir-
leitt allt það sem venjulegur
íslendingur gerir á hverjum degi
þegar snjó festir í byggð. Ef það
er snjór fyrir utan gluggann hjá
þér núna, sem þú ert búinn að
bölsótast mikið yfir, máttu altént
vita að einn vinur þinn vildi
gjarnan vera kominn til þín, til
að drífa þig út í snjókast.
Ton ami
SBG
Nú bjóðum við 15% staðgreiðslu-
afslátt af allri íslenskri málningu
Ifram að páskum
★
Komið og kynnið ykkur fjölbreytt úrval lita
og málningarefna.
★
Ath. Mjög lágt verð á sérblandaðri málningu.
Verið velkomin.
Sjúkrahúsið
í Húsavík s.f.
Sími 41333 - 640 Húsavík
H j ú kru narf ræði ngar
LAUSAR STÖÐUR:
Hjúkrunarfræðingur óskast á blandaða legudeild
nú þegar.
Hjúkrunarfræðingur óskast á skurðstofu frá 1.
maí.
Deildarstjóri óskast á öldrunardeild frá 1. júlí.
Allar nánari upplýsingar gefur Aldís Fr. hjúkrunarfor-
stjóri í síma 96-41333.
LUHDARSKÓU
Lundarskóli
Akureyri
Sérkennara vantar
að skólanum næsta skólaár.
Megin viðfangsefni hans verður, í samvinnu við
bekkjarkennara, að þróa kennsluaðferðir sem hæfa
mjög fötluðum nemanda sem kemur í 1. bekk skól-
ans í haust.
Frekari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 96-
24888 og 96-21749 utan skólatíma.
HóTELÍflffiinnr
Þingeyingar!
Hótel Laugar auglýsir eftir starfsfólki til almennra
hótelstarfa í sumar.
Lágmarksaldur 18 ár.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 30. mars nk.
Hjördís Stefánsdóttir, sími 43340, 650 Laugar.