Dagur - 19.05.1993, Page 4

Dagur - 19.05.1993, Page 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 19. maí 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Deilur um verðjöfnun Á undanförnum árum og áratugum hefur ríkt nokkur samstaða um að standa vörð um land- búnaðinn sem atvinnugrein. í því efni hafa verið gerðar til hans kröfur um ýmiskonar hagræðingu og aðlögun að breyttum tímum hvað viðskipta- hætti varðar. Bændur hafa að flestu leyti brugðist vel við þessum kröfum og lagt sig fram um að nálgast þau markmið er óumflýjanleg hafa verið talin. Með núgildandi búvörulögum voru stigin stór skref í átt til nýrra tíma þótt þau hafi kostað bændastéttina erfiða aðlögun og ýmsar fórnir hvað rekstrarmöguleika og tekjuöflun varðar. Með búvörulögunum gengu íslendingar skrefi lengra í aðlögun landbúnaðar í átt til samkeppni og frjálsari viðskiptahátta en flestar aðrar þjóðir, þar sem útflutningsbætur á landbúnaðarafurðir voru lagðar niður. í því efni sýndu íslendingar gott fordæmi og gengu einnig til móts við vilja þeirra er vildu draga úr opinberum framlögum til atvinnugreinarinnar. Þær deilur sem nú hafa orð- ið um málefni landbúnaðarins innan ríkisstjórn- arinnar og á Alþingi endurspegla þó svo djúp- stæðan ágreining að ljóst er að sú samstaða sem ríkt hefur um tilvist hans virðist vera að rofna. Með samningunum um Evrópska efnahags- svæðið er gert ráð fyrir að leyfa takmarkaðan innflutning á ákveðnum tegundum landbúnaðar- vara hingað til lands. Vegna þess að í mörgum tilfellum er um niðurgreiddar vörur að ræða - meðal annars með útflutningsbótum í viðkom- andi framleiðslulandi - eru í samningunum heim- ildir til að jafna verð innfluttra vörutegunda við verð hér á landi. Skal það gert með sérstöku verðjöfnunargjaldi er leggja má á viðkomandi vörur eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Ætli ís- lendingar að standa vörð um landbúnað sinn og framleiðslu matvæla í landinu er ljóst að þessum gjöldum verður að beita, komi til innflutnings þeirra framleiðsluafurða, sem landbúnaðurinn framleiðir nú. Af þeim ástæðum er talið eðlilegt og réttmætt að ráðuneyti landbúnaðarmála fari með ákvörðunarvald um hvenær verðjöfnunar- heimildunum verði beitt. Á þetta sjónarmið geta sumir ráðamenn þjóð- arinnar ekki fallist og af þeim sökum kom til hinna snörpu átaka í þinglok. Þótt alþingismenn væru sendir í sumarfrí hafa þau málefni, er deilt var um, ekki verið til lykta leidd. Ástæður þess eru fyrst og fremst þær að nú ætla þeir aðilar, er opna vilja fyrir innflutning á landbúnaðarvörum til landsins, að nýta sér þessar aðstæður. Þeir telja að með því að fela landbúnaðarráðuneytinu forræði verðjöfnunar á milli innlendra og erlendra búvara verði verjöfnunargjöldum fremur beitt og þar með dregið úr innflutningi. Þegar þessir aðil- ar tala um sparnað af innflutningi landbúnaðar- afurða þá gleyma þeir því gjarnan að til innflutn- ings þarf erlendan gjaldeyri. Þeir gleyma einnig að mikill kostnaður er samfara því að leggja heila atvinnugrein að mestu niður er verða mundi ef erlendir ríkissjóðir verða látnir niðurgreiða land- búnaðarvörur ofan í íslendinga. Landbúnaðurinn á háværa og öfluga andstæð- inga í landinu og áhrif þeirra virðast fara vax- andi. Til þeirra eru stjórnmálamenn einkum að höfða þegar þeir efna til deilna um verðjöfnun á landbúnaðarvörum. ÞI Kvenfélagasamband Norður- Þingeyinga er 50 ára um þessar mundir. Félagið hélt aðalfund sinn á Kópaskeri 8. maí sl. í til- efni afmælisins var Stefaníu Maríu Pétursdóttur, formanni KÍ, og Steinunni Ingimundar- dóttur, starfsmanni KI, boðið að sitja fundinn og þáðu þær boð- ið, sambandskonum til mikillar ánægju, að sögn Maríu Páls- dóttur, formanns Kvenfélags Keldhverfinga. Umhverfismál voru mjög til umræöu á fundinum, auk venju- legra aðalfundarstarfa. Áhersla Keldhverfskar konur á Signubökkum. Kvenfélagasamband Norður-Þingeyinga 50 ára: Aðalfundur og kvöldvaka - sagt frá Parísarferð Keldhverfinga var lögð á aukna fræðslu í þeim efnum. Einnig var sjónvarpsefni nokkuð til umræðu. Fordæmdu fundarkonur vaxandi þátt ofbeld- ismynda í dagskránni og þær lýstu undrun sinni og hneykslun á þeirri sagnfræði sem kom fram í fyrsta sjónvarpsþætti Baldurs Her- mannssonar, þar sem fjallað var um vistarbandið og bændasamfé- lagið. Að fundi loknum var fulltrúum og gestum boðið að skoða Byggðasafn Norður-Þingeyinga á Kópaskeri. Safninu hefur verið komið haganlega fyrir í gamla skólahúsinu, sem endumýjað var til þeirra nota. Kvöldvaka var síðan haldin í Skúlagarði. Til hennar bauð KSNÞ öllum sínum félagskonum, ásamt mökum þeirra og gestum. Á Signubökkum. Notre Dame í baksýn. Haldin var kaffiveisla og ýmis skemmtiatriði flutt meðan á borð- haldi stóð. Anna Helgadóttir, for- maður sambandsins, rakti í stuttu máli 50 ára sögu þess og minntist þeirra kvenna er stærstan þátt áttu í stofnun KSNÞ, vexti þess og viðgangi. Ávörp fluttu Stefanía María Pétursdóttir og Gerður Pálsdóttir, sem var fulltrúi frá sambandi Norðlenskra kvenna. Fluttu þær sambandinu afmælis- kveójur og heillaóskir. Félögin innan KSNÞ lögóu til skemmti- efnið, sem var hið fjölbreyttasta, upplestur, bæði ljóð og laust mál, frásögn af Parísarferð Kvenfélags Keldhverfmga, söngur, lúðrasveit- arspil og leikur á píanó. Að lokum var dansað. Um 170 manns tóku þátt í kvöldvökunni. Stjóm KSNÞ skipa Anna Helgadóttir, formaður, Guðný H. Bjömsdóttir, ritari, og Kristín Kristjánsdóttir, gjaldkeri. Beðíð eftir hreSSÍngU í ParÍS. Myndin María Pálsdóltir Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit: Handunnar ullarpeysur ofar- lega í huga í vorkuldanum! Baldvin Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri verksmiðjunnar Foldu, mætir í Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju í dag, miðvikudag, 19. maí, og hug- leiðir atvinnuhorfur og viðhorf til nýrra verkefna. Baldvin ræðir um átaksverk- efni á vegum Akureyrarbæjar og Atvinnuleysistryggingarsjóðs, en hugmyndir hafa m.a. verið uppi um framleiðslu hér á handunnum ullarpeysum. Þá mun Edda Her- mannsdóttir, íþróttakennari, einnig kynna „Hversdagsleikana“, sem er alþjóðlegur hreyfidagur og jafnframt bæjakeppni milli Akur- eyrar og Aschkelon í ísrael. Mun Edda gera nánari grein fyrir til- gangi þessa hreyfidags, sem ákveðinn er 26. maí nk. Veitingar verða á borðum öll- um að kostnaðarlausu og er þess vænst að sem flestir noti tækifærið Miðstöð fyrir fólk í atvinnulcit er til húsa í Safnaðarheimili Akureyrar kirkju. og taki þátt í samverustundinni, sem hefst kl. 15.00. Allir eru vel- komnir hvort sem þeir eru í eða án vinnu. í Mióstöð fyrir fólk í atvinnu- leit eru upplýsingar gefnar í síma Safnaðarheimilisins milli kl. 15 og 17 á þriðjudögum og föstudögum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.