Dagur


Dagur - 19.05.1993, Qupperneq 10

Dagur - 19.05.1993, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 19. maí 1993 Iþróttir Haildór Arinbjarnarson TINDASTOLL V Stofnaö 1907 Besti árangur:6. sæti í 2. deild 1988 og 1989. 3. deildar meistari 1992. 8 lióa úrslit í bikarkeppni KSÍ 1988. Stærsti deildarsigur: 11:2 ge^n HSÞ-b í 3. deild NA 1987. Stærsta deildartap:0:7 gegn ÍBÍ í 2. deild 1984. Ferill á íslandsmóti:3. deild 1970 og 1977-1981. 3. deild NA 1982- 1983. 2. deild 1984. 3. deild NA 1985-1987. 2. deild 1988-1991. 3. deild 1992. 2. deild 1993. Nýir leikmenn:Steingrímur Orn Eiðsson frá KS og Ingvar Magnússon frá Kormáki. Farnir frá síðasta sumri:Sverrir Sverrisson í Þrym, Hólmar Astvalds- son, Bergur Stefánsson, Finnur Kristinsson og Guðbjöm Tryggvason.. Markahæstir á síðasta sumri:(Bikar) Bjarki Pétursson 17(4), Sverrir Sverrisson 14(4), Pétur Pétursson 7(1). Bjarki Pétursson 17 leikir Björn Björnsson 75 leikir Björn Sigtryggsson 45 leikir Grétar Karlsson 19 leikir Guðbjartur Haraldsson Gunnar Þ. Gestsson 106 leikir 50 leikir Ingvar Magnússon Lýður Skarphéðinsson Tryggvi Tryggvason 1 leikur 13 leikir 18 leikir Stefán Ö. Pétursson 89 leikir Stefán V. Stefánsson 18 leikir . Gísli Sigurðsson 111 leikir Ingi Þ. Rúnarsson 19 leikir Sigurjón Sigurðsson 28 leikir Steingrímur Örn Eiðs- son Sverrir Sverrisson 114 leikir Wrður Gíslason 35 leikir Árni Stefánsson aðstoðarþjálfari Pétur Pétursson þjálfari Bjarki Pétursson átti mjög gott tímabil í fyrra með Tindastóli og mun án efa verða drjúgur í sumar. Erfítt að ná öflu flðínu saman - segir Pétur Pétursson Pétur Pétursson, landsliðsmað- ur og atvinnumaður í knatt- spyrnu til margra ára, mun þjálfa 2. deildar lið Tindastóls í sumar. Pétur Iék með liðinu sl. tímabil og þá vann Tindastóll yfirburða sigur í 3. deild. Liðið hefur í stórum dráttum haldið sínum mannskap en þjálfarinn frá því í fyrra, Guðbjörn Tryggvason, er horfinn á braut, sem og markahrókurinn Guð- brandur Guðbrandsson, sem nú þjálfar og leikur með 4. deildar liði Þryms á Sauðár- króki. Þetta er frumraun Péturs sem þjálfara meistaraflokks og kvað hann það leggjast vel í sig.“Undir- búningur liösins hefur í raun gengið ágætlega en það hefur verið erfitt aó koma mannskapn- um saman, menn hafa verið dreifðir um landið. Hópurinn er reyndar heldur minni en í fyrra en getulega séð ætti hann að vera svipaður. Sumarið leggst samt vel í mig. Við gerum okkur grein fyr- ir að þetta eru erfið lið sem við erum að fara að spila á móti og það verður án efa hart barist en við ætlum að sjálfsögðu að standa okkur.“ Þegar Pétur var spurður um frammistöðu liðsins í leikjunum í vor, sagði hann það hafa verið ákveðió vandamál, að alltaf vant- aði einhvem í hópinn í þeim leikjum. „Ég hef ekki getað haft allan mannskapinn saman í þess- um leikjum. Það hafa alltaf verið 3-4 menn sem ekki hafa komist í einstaka leiki. Ég held að það hafi því lítið verið að marka þetta hjá okkur. Það verða hins vegar allir komnir á morgun (í dag). Sumir koma reyndar ekki alkomnir heim fyrr en í júní því þeir eru að klára skóla fyrir sunnan en þeir verða með okkur í leikjunum.“ Eins og hinir þjálfarar 2. deild- ar liðanna sagðist Pétur enga grein geta gert sér fyrir stöðu Tindastóls miðað við hin liðin í deildinni. „Maður veit auðvitað að lið cins og Leiftur, KA, Breióa- blik, Grindavík og Stjaman eru sterk en hvar við stöndum í sam- anburði við þau er erfitt að segja. Ætli það komi nokkuð í ljós fyrr en við byrjum að spila.“ I 1. um- ferð á Tindastóll heimaleik á móti ÍR á laugardaginn kl. 14.00. Sverrir Sverrisson skoraði 14 mörk í deildarkeppninni í fyrra og 4 í bikarnum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.