Dagur - 28.05.1993, Blaðsíða 11
Föstudagur 28. maí 1993 - DAGUR - 11
Hér og þar_______________
Pottþétt ráð til að
öðlast vinsældir
Sumir eiga erfítt með að eign^
ast vini og vita ekki af hverju. í
rauninni er sáraeinfalt að verða
vinsæll og vinamargur, þú þarft
aðeins að fylgja þeim átta ráð-
leggingum sem koma hér á eftir:
Vertu brosmildur. Það er
ótrúlega einfalt og árangursríkt
að auka vinsældirnar með því að
brosa og því er ráðlegast að vera
ekki spar á brosið. „Eitt bros get-
ur dimmu í dagsljós breytt", sagði
Einar Ben. Ef þú brosir við fólki
finnur það að þér líkar vel við
það. Ef þú ert ekki ánægður með
brosið þitt skaltu æfa þig fyrir
framan spegil og leita álits hjá
einhverjum nákomnum.
Vertu vel upplýstur. Þú þykir
mun skemmtilegri en ella ef þú
ert vel heima í nýjustu kvikmynd-
unum, vinsælustu lögunum, hita-
málum dagsins í dag og helstu
slúðursögunum. Það er nauðsyn-
legt fyrir konur aö vera vel að sér
í öllu sem viðkemur slúðri, tísku
og bamauppeldi. Karlamir þurfa
að þekkja vel til í heimi íþrótta,
fjármála, bíla og hljómtækja.
Eigðu eitthvað sameiginlegt
með öðrum. Þú tengist sjálfkrafa
öðru fólki ef þú lætur í það skína
að þú hafir svipaða reynslu og
sömu áhugamál. Vertu skilnings-
ríkur hlustandi, hvettu aðra til að
tala og spurðu út í sameiginleg
áhugamál.
Hrósaðu öðrum. Það þarf ekki
að vera mikið. Yfirleitt er nóg að
nefna nafn viðmælandans stöku
sinnum meðan á samræðum
stendur. Ekki segja „heyrðu“
heldur „Kristján" eða „Já, Jósef-
ína“. Fólki finnst notalegt að
heyra nafn sitt nefnt og það
treystir sjálfsmynd þess.
Vertu óhræddur við snert-
ingu. Eitt lítið klapp á öxlina eða
ofurlétt snerting á handarbakið
sýnir glöggt að þér fellur vel við
viðkomandi. Og klapp á öxlina
eða handtak þegar þið kveðjist
styrkir böndin.
Vertu uppveðraður. Þegar
kunningi þinn hringir máttu ekki
svara fýlulega „halló“ eða ,já“
eða „sæll/sæl“ heldur skaltu upp-
veðrast og segja „hæ“ meó há-
stemmdri röddu eða „nei, komdu
blessaóur/blessuö". Gefðu það
skýrt í skyn að þú sért glaður yfir
upphringingunni.
Vertu bjartsýnn og kvartaðu
ekki. Ef þú er bjartsýnin uppmál-
uð vill fólk gjaman vingast við
þig. Þaó fælir fólk hins vegar frá
ef þú ert síkvartandi, upptekinn af
bölmóði og áhyggjum.
Ekki svara með einsatkvæðis
orðum. Stuttaraleg svör á borð
við „já“ eða „nei“ fæla fólk frá
þér. Ef einhver biður þig til dæmis
að koma í keilu, íþrótt sem þú
hefur aldrei prófað, þá skaltu ekki
bara segja „nei“. Segðu frekar:
„Nei, takk, ég kann ekki keilu. En
ég er til í að koma í ballskák.“
Eða: „Ég hef aldrei farið í keilu,
en það væri gaman að prófa.“
Hér koma átta ráð frá bandarískum sérfræðingum til fólks sem vill auka
vinsældir sínar og efla vinatengsl.
Tvær hliðar á
hverju máli
Það hefur löngum verið sagt að það
séu tvær hliðar á öllum málum og það
á svo sannarlega við þegar ekið er
fram hjá þessum gömlu húsarústum
nærri smábænum Le Petit-Quevilly í
Frakklandi
Húsin eyðilögðust á stríðsárunum
þegar andspyrnuhreyfingin var að
reka nasistana af höndum sér en Iist-
málarinn Pierre Garcette sá óvenju-
legt notagildi í rústunum og málaði á
framhlið þeirra eftirlíkingu af frægu
málverki eftir málarann Millet, sem
hcitir „Angelus“.
Vinningstölur
26. maí ’93
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING
— | 6at6 0 19.880.000.-
m 5 af 6 +bónus 0 353.428.-
i 5 af 6 3 92.564.-
É 4 af 6 263 1.679.-
3 af 6 +bónus 1.041 182.-
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Nú getur þú eignast
þína eigin perlu
Classika garðhús
tvœr stœrðir 9 m2 og 15 m2.
Sýningarhús á staðnum.
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
j.
TZ ,--T 1
á QjgfJ og vörum
Komið og gerið góð kaup
s iplolrl t
Glerárgötu 28 • Sími 11445.
Af tilefni 70 ára afmælis míns 19. maí,
vil ég færa öllum þeim, fjær og nær,
sem glöddu mig með gjöfum, blómum og
heillaóskum, hugheilar þakklætiskveðjur.
HARALDUR M. SIGURÐSSON,
Hrísalundi 2, íb. 201.
I