Dagur - 29.07.1993, Blaðsíða 2

Dagur - 29.07.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 29. júlí 1993 Ibúðir á söluskrá HJALLALUNDUR: Stórglæsileg 3ja herb. íbúö í fjölbýli á 4. hæö 93.9 m2. Ibúðin er öll meö parketi, á baðherbergi er vatnsgufa, svalir eru yfirbyggðar og eru mjög sólríkar. Vandaöar innréttingar. Ákv. sala. BEYKILUNDUR: 6 herbergja einbýlishús 196,6 m2 m/bílskúr. Lóö er vel ræktuð með góðu gróðurhúsi. Eldhús með góðri innréttingu, parket á gólfi. Sjónvarpshol með parketi, stofa með teppi, gangur með parketi, herb. með teppum. Eign í góðu ástandi. Ákv. sala. GRENIVELLIR: 5 herb. 118,8 fm hæð og ris. Tvö herb. í risi og snyrt- ing á neðri hæð er tvöföld stofa, herb. og nýtt eldhús ásamt bað- herbergi, sérgeymsla í kjallara með glugga, hagstætt vinnuherbergi. Sameign er öll mjög snyrtileg. TÍSKUVÖRUVERSLUN: Tískuverslun í fullum rekstri til sölu og afhendingar strax. Uppl. á skrifstofu ekki f sfma. HÁRSNYRTISTOFA: Hársnyrtistofa í fullum rekstri til afhendingar strax. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu, ekki í sfma. ATVINNUHÚSNÆÐI: Grunnur v/Hvannavelli tilvalið iðnaðar- eða verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Upplýsingar og teikningar á skrif- stofu. Höfum kaupanda að 200 m2 einbýlishúsi á syðri brekku. Brekkugötu 4 • 600 Akureyri ® 21744 og 21820 Fax 27746 Gunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Árni Pálsson hrl. Sölumenn: Oddur Óskarsson og Ágústa Ólaf sdóttir. SJALLINN Fimmtudagur • Sjallakráin: iQÍCÍCi Reykjavífíur Diskótek á efstu hæð • Aðgangur ókeypis Föstudagur: ||§§|| SSSÓL Diskótek á efstu hæð Laugardagur og sunnudagur: rn JJ Diskótek á efstu hæð Kjallarinn Fimmtudagur: Hermann Arason trúbador Föstudagur: Rokkabillýband Reykjavíkur Laugardagur: Karaokekeppni ölpylsa með hverjum bjór Lítill 350 - stór 450 SJALLINN Fréttir Nordjob á Akureyri og nágrenni: Fimm Norðurlandabúar við ýmis störf í sumar A vegum Nordjob hafa fimm manns frá Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi fengið vinnu á Ak- ureyri eða í nágrenni. AIls eru áttatíu Nordjobarar á íslandi í sumar og dreifast j>eir um land- ið, flestir eru þó í Reykjavík. Alls bárust um 1000 umsóknir um vinnu á íslandi en ekki var unnt að sinna þeim öllum að sögn Ólafar Brynjólfsdóttur, tómstundafulltrúa Nordjob í Reykjavík. Þeir sem sækjast eftir að fá vinnu á vegum Nordjob þurfa aó- eins að uppfylla þau skilyrði að vera frá Norðurlöndunum og vera á aldrinum 18-26 ára. Reynt er að útvega vinnu þár sem íslensku- kunnátta er ekki nauðsynleg. „Yfirleitt veljast í þetta krakkar sem eru opnir og skemmtilegir og til í flestallt enda finnst þeim ef- laust erfitt að koma til Iands þar sem tungumálió er erfitt og byrja að vinna við eitthvaó sem þeir hafa ekki starfað við áður,“ sagði Ólöf. Erfítt að útvega vinnu Kristín Magnúsdóttir er tóm- stundafulltrúi Nordjob á Akureyri og nágrenni og hefur séð um að koma skjólstæðingum sínum inn í hlutina og skipuleggja ferðir og annað tómstundastarf. „Það hefur verið svolítiö vandamál aó útvega vinnu í ár vegna atvinnuástands- ins. Krakkamir sem eru hérna í bænum eru öll í skiptivinnu. Krakkar héóan hafa farið út og skipt á sinni vinnu við þá sem komu hingað.“ Þeim sem starfa á Akureyri og nágrenni á vegum Nordjob í sum- ar hafa verið útvegifð störf hjá Garðræktinni, á barnadeild FSA og í Fóðurvörudeild KEA. Einnig eru tveir starfandi á sveitabæjum í nágrenni Akureyrar. Sá sem fyrstur kom í sumar kom í byrjun júní en hin fjögur komu um síðustu mánaðamót. „Þetta hefur gengió mjög vel það sem af er. Þeim hefur gengiö vel að komast inn í vinnuna og þess háttar. Ég held aö það hafi ekki verið mikið um tungumálavand- ræði, það er helst að þau kvarti undan því að íslenskir krakkar séu feimnir við að tala norður- landamálin, þau geti það en þori ekki,“ sagði Kristín. Hún stefnir aó því að fara í úti- legu meö Nordjobarana um næstu helgi og er áætlað fara austur í Mývatnssveit, skoða Goðafoss, Laufás og fleiri fallega staði á Norðurlandi. Kann vel við bæinn Lena Sjölind frá Finnlandi vinnur í sumar á vegum Nordjob á bamadeild Fjórðungssjúkrahúss- ins. Hún er 22 ára og kemur frá Jakobstad, þar sem hún stundar fóstrunám. „Ég hef ekki haft vinnu tvö síó- astliðin sumur og mig var farið að langa til að gera eitthvað. Ég sótti því um Nordjob og þegar mér bauðst starf á íslandi ákvað ég aó drífa mig,“ sagði Lena og tók fram aó hún myndi vilja fara aftur í vinnu á vegum Nordjob næsta sumar fengi hún tækifæri til þess. „Ég kann vel við Akureyri, bærinn er hvorki of stór né of lít- ill. Stærðin hentar mér vel þar sem íbúar í heimabæ mínum eru að- eins 5000 fleiri," sagði hún. Lena verður í vinnu á barnadeildinni til 15. ágúst en hyggst dvelja hér í viku eftir það áður en hún heldur heim til þess að ljúka námi. KR í. «■ f Lena Sjölind frá Finnlandi vinnur í sumar á vegum Nordjob á barnadcild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Mynd: Pjetur. Áskriftargetraun Dags og Flugleiða: Helgarferðimar til áskrifenda á Akureyri og SvaJbarðsströnd Guðmundur Helgason, skrif- stofumaður hjá Sjóvá/Almenn- um á Akureyri og Helgi Sig- urðsson, bóndi á Brautarhóli á Svalbarðsströnd, duttu í lukku- pottinn er við drógum út nöfn vinningshafa júlímánaðar í áskriftargetraun Dags og Flug- leiða. I>eir hljóta hvor um sig helgarferð fyrir tvo til Reykja- víkur. Þetta er í sjöunda sinn sem dregið er í áskriftargetrauninni, sem efnt var til í tilefni af 75 ára afmæli Dags þann 12. febrúar sl. I lok hvers mánaðar allt þetta ár verða dregin út nöfn tveggja skuldlausra áskrifenda blaðsins og Guðmundur Hclgason. þeim gert að svara tveimur lauf- léttum spurningum, tengdum fréttum líðandi stundar. Séu svör- in rétt fá þeir að launum helgar: ferð fyrir tvo til Reykjavíkur. í desember nk. hlýtur síóan einn heppinn áskrifandi blaðsins helg- arferð fyrir tvo til Amsterdam í Hollandi. I hverri helgarferð til Reykja- víkur felst fiug fyrir tvo meó Flugleióum, gisting í tvær nætur á Hótel Esju eða Hótel Loftleiðum og bílaleigubíll frá Bílaleigu Flugleiða meðan á dvölinni stend- ur. Nöfn vinningshafa eru valin úr áskrifendaskrá með aðstoð tölvu- Helgi Sigurðsson. forrits. Athygli skal vakin á því að allir áskrifendur Dags, núvcrandi og nýir, eru sjálfkrafa þátttakend- ur í leiknum. Þeir Helgi og Guómundur áttu báðir svör viö spurningunum scm fyrir þá voru lagðar. Þeir vissu að fjölskylduhátíóin, sem haldin verður á Akureyri um verslunar- mannahelgina, ber nafnið „Halló Akureyri“ og þcir vissu einnig upphæð fjárveitingarinnar sem ríkisstjórnin ráðstafaði til at- vinnuuppbyggingar nú nýlega en þar var um að ræða einn milljarð króna. Dagur og Flugleiðir óska vinn- ingshöfunum til hamingju og vona aó þeir njóti ferðarinnar. BB. Æ%: M m ISTASÚMAR ‘93 Fimmtudagur 29. júlí: Blómahús- ið kl. 21; „íslenskur dagur“; dans, harmonika og upplestur. Myndlistarsýniqg eldri borgara í Deiglunni og myndlistarsýning Laufeyjar Margrétar Pálsdóttur á Café Karólínu standa út mánuð- inn. Skrifstofa Listasumars er í Kaupvangsstræti 23, sími 12609.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.