Dagur - 29.07.1993, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 29. júlí 1993
99
Gengið virkilega vel að sameina fóMð“
segir Sigríður Magnea Jóhannsdóttir, forstöðukona sambýlis aldraðra við Skólastíg
Að Skólastíg 5 á Akureyri hefur
nýlega verið sett á stofn sam-
býli fyrir aldraða. Það er rekið
af öldrunardeild Akureyrar-
bæjar og er húsið um 300 fer-
metrar á þremur hæðum. Húsið
er hið glæsilegasta að innan
jafnt sem utan enda hafa mikl-
ar endurbætur verið gerðar til
að fullnægja þeim kröfum sem
gerðar eru. Forstöðukona er
Sigríður Magnea Jóhannsdóttir
og sagði hún undirbúning hafa
hafíst fyrir ári en þá var húsið
keypt. Framkvæmdir við breyt-
ingar á húsnæðinu hófust í
febrúar og lögð var lokahönd á
það verk rétt áður en fyrstu
þrír íbúarnir fíuttu inn 18. júní.
Á neðstu hæð hússins er vel út-
búið eldhús meó smá borókrók,
stór borðstofa auk þvottahúss og
skrifstofuhorns forstöðukonu. Á
miðhæð er aðalinngangur, sex
einstaklingsherbergi karlmann-
anna og baðherbergi og á efstu
hæðinni hafa konumar fjórar sín
sérherbergi og snyrtingu auk þess
sem setustofa er þar staðsett.
Lyfta er í húsinu og að sögn Sig-
ríðar Magneu eru íbúarnir ekki
hræddir við að nýta sér hana ef
þeir treysta sér ekki í stigana.
„Það er kannski ókostur að hafa
stofuna á cfstu hæóinni og við
nýtum hana kannski ekki sem
skyldi en það verður eflaust öðru-
vísi í vetur.“ Þrjú stöðugildi eru
við sambýlið. Sigríður Magnea er
í fullri stöðu sem forstöðukona en
auk hennar eru þjár konur í hluta-
stöðum.
„í hádeginu virka daga fáum
við mat sendan frá Dvalarheimil-
inu Hlíð en að öðru leyti er eldaö
hér og bakað. Eins og á dvalar-
heimilum fá íbúar hér alla þjón-
ustu t.d. þvotta, böðun og annað.
Félagsstarf geta þau sótt út í Hlíð
eóa upp í Víðilund og við hvetj-
um þau til að nota sér það,“ sagði
Sigríður Magnea forstöðukona sambýlisins.
Tilbod
Grilllombolærissnciðor
fró Kjornofæði - oðeins 890 kr. kg
30% ofslóttur
íinors somlokubrouð -118 kr. stk.
30% ofslóttur
Cgils Sunkist 2 lítror -109 kr.
Chick King kjúklingobitor - 99 kr. stk.
Opið um verslunormanncihelgi:
Laugardog kl. 10-22
Sunnudog kl. 10-22
Mónudag kl. 10-22
Matvöru-
markaðurinn
Kaupangi
Opið virka daga kl. 9-22
Laugardaga og
sunnudaga kl. 10-22
Sigríður Magnea. „Við reynum
að hafa þetta sem líkast venjulegu
heimili og það líkar íbúunum vel.
I borðstofunni ætlaði ég t.d. að
láta borða við tvö borð en það
vildu íbúarnir ekki og sögðu
mikiu heimilislegra að boröa við
langboró og það gerum við núna.
Þau hjálpa til í eldhúsi, bera á
borðin og ganga frá, aóstoóa við
bakstur og annað. Þau strauja
einnig þvott og taka virkan þátt í
heimilisstarfinu."
Vakt er á sambýlinu frá átta á
morgnana til 8 á kvöldin alla
daga vikunnar en utan þess tíma, á
kvöldin og á nóttinni, sér Securi-
tas um öryggisgæslu.
Sigríður Magnea sagði samein-
ingu fólksins hafa gengið mjög
vel. „Hérna eru einstaklingar sem
eru búnir að búa mismunandi
lengi einir og mér finnst hafa
gengið virkilega vél að sameina
fólkið.“
„Þetta er annað sambýlið sem
sett er á stofn fyrir aldraða hér á
Akureyri. Búið er að starfrækja
sambýli í Bakkahlíð í tvö ár og
þar eru 8 íbúar. Talió er að til
þess aó svona sambýli standi und-
ir sér þurfi aó vera 10 íbúar og
Húsið er um 300 ferm. og á þremur hæðum.
mér sýnist það gefa mjög góóa
raun. Fyrirhugað er að setja á
stofn fleiri sambýli á Akureyri
enda hefur þetta form gefið góða
raun og íbúarnir eru mjög ánægð-
ir. Þeim finnst þetta ekki vera
eins og dvalarheimili. Þau fá sína
gesti hvenær sem þau vilja og
fara allra sinna ferða um bæinn,“
sagði Sigríður Magnca.
Þcgar leitaö var eftir fólki á
sambýlið við Skólastíg var farið
eftir biðlistum og þörf einstakling-
anna. „Ibúarnir hér eru á bilinu
67 ára til níræðs. Fólk á sambýl-
um sem þessum þarf aó vera svo-
Iítið sjálfbjarga og geta t.d. bjarg-
að sér þegar engin vakt er í hús-
inu eins og á kvöldin og næturn-
ar.“ KR
„Hér er svo afskaplega heimilislegt“
- segja íbúar sambýlis aldraðra
Þrír hcimilismenn á sambýlinu
sátu í borðkróknum í eldhúsinu
ásamt forstöðukonunni og fengu
sér kaffí og spjölluðu saman
þegar blaðamann bar að garði.
Þetta voru Ásgeir Halldórsson,
Anna Oddsdóttir og Anna Pála
Sveinsdóttir, fyrstu þrír íbúarn-
ir í Skólastígnum.
Þegar þau voru spurð að því
hvernig þeim líkaði að búa á sam-
býlinu svöruðu þau öll að þar lík-
aði þcim vel aó vera. „Við erum
alltaf borðandi," sögðu þau og
hlógu. „Ég vigtaði mig áðan og ég
hef bætt við mig nokkrum kíló-
um,“ sagði Ásgeir.
Hann bjó hjá dóttur sinni í ein-
hvern tíma áður en hann fékk inni
á sambýlinu. „Svo var ég hálfan
daginn í dagvist í Hlíð, ég var orð-
inn dálítið þreyttur á því. Sem
betur fer dó enginn í Hlíð, þannig
að ekki losnaði pláss þar og ég
fékk pláss hérna í staðinn. Þar tel
ég mig hafa verió heppinn.“
Mikið spilafólk
„Já, ég held við höfum verið mjög
heppin,“ tók Anna Oddsdóttir
undir. Bæði Anna og Ásgeir
höfðu kynnt sér sambýli fyrir
aldraða í Bakkahlíð áður en þau
fluttu í Skólastíginn. Ásgeir sagð-
ist vera svo ókunnugur Glerár-
hverfinu og farinn aó sjá svo illa
að hann hefði ekki treyst sér til að
búa í því hverfi.
Talió barst að tómstundum íbú-
anna og hvað þeir gerðu sér til
dundurs dagsdaglega. „Við spilum
mikið og þá helst félagsvist og
bridds,“ sagði Anna Pála. „Já,
fólk úti í bæ hefur frétt hvað við
erum miklir spilamenn hér og
stundum koma jafnvel 2 eða 3 til
að spila við okkur,“ bætti Ásgeir
við. „Fólk fer hér líka í göngu-
ferðir um nágrennið enda stutt á
fallega staði eins og t.d. Lysti-
garóinn,“ sagði Sigríður Magnea
forstöðukona. „Og svo notfæra sér
margir sundlaugina sem er hér í
næsta nágrenni."
Ætlaði að tjalda við dyrnar
Ibúarnir þrír sögu sér ekki hafa lit-
ist á að fara á hefðbundið dvalar-
heimili fyrir aldraða. „Mér heföi
alls ekki litist á það,“ sagði Anna
Oddsdóttir. „Þegar mér var sagt
að ég fengi ekki pláss hér í Skóla-
Anna Oddsdóttir, Ásgeir Halldórsson og Anna Pála Sveinsdóttir í borð-
króknum.
Jónína Sæmundsdóttir í herberginu
sínu, sem er stórt og bjart.
stígnum sagðist ég ætla aó tjalda
við dyrnar og bíða þar til ég
kæmist inn. Eg sagðist vilja vera
þar sem mér líkaði vel.“
„Ibúafjöldinn hér er alveg
mátulegur og mér finnst fólk al-
veg sérstaklega samhent,“ sagði
Ásgeir. „Já, það er svo afskaplcga
heimilislegt hér,“ sagði Anna
Oddsdóttir.
„Viö fáum hingað bækur frá
Amtsbókasafninu," sagði Sigríð-
ur Magnea. „Vió pöntum bóka-
kassa og getum bæði valið bækur
í hann og eins er blandað efni sett
með. Þjóðlegur fróðlcikur er vin-
sælastur. Svo hef ég haft lestrar-
stund af og til.“ „Þessar lestrar-
stundir hafa heppnast alveg ljóm-
andi vel,“ sagði Anna Oddsdóttir.
„Það er svo þægilegt að hlusta á
hana.“ Sigríður Magnea bætti
við: „Svo náum við oft upp spjalli
á eftir um það sem verið var að
lesa. Annars hel'ur aðalumræðu-
efnið hjá okkur undanfarið verið
veórið.“
Sambýli góður kostur
Jónína Sæmundsdóttir bættist nú í
hópinn í eldhúsinu. ,,Það er mjög
gott að vera hérna. Ég bjó áöur
ein og auðvitað eru það heilmikil
viðbrigði að flytja af sínu eigin
heimili innan um svona margt
fólk. En hér eru þó ágætisher-
bergi þar sem við höfum okkar
húsgögn og h!uti.“
„Ég prjóna þónokkuð og dunda
mér aðallega við að prjóna dúka.
Ég myndi ekki segja að ég væri
mikil prjónamanneskja en ég er
þó dálítið fyrir prjónaskap.“ Jón-
ína sagðist ekki hafa farið mikið í
gönguferðir um nágrennið en þó
aðeins.
Aðspurð að því hvernig henni
líkaði sambýlisformið sagði Jón-
ína að sér líkaði það mjög vel.
,,Hérna er allt svo heimilislegt.
Ég held að sambýli sé mjög góð-
ur kostur fyrir fólk, það getur ráó-
ið sér nokkuð sjálft. Ég held að
menn verði bara ellihrumir á elli-
heimili. Hérna þarf maður þó svo-
lítið að hugsa og við hjálpum að-
eins til við húsverkin. Svo getum
við fengið til okkar gesti hvenær
sem við viljum og það stendur
víst ekki á því að við getum boðið
þeim upp á kaffi,“ sagði Jónína.
KR